Íslendingaþættir Tímans - 18.10.1980, Síða 1

Íslendingaþættir Tímans - 18.10.1980, Síða 1
ÍSLENDINGAÞÆTTIR Laugardagur 18. okt. - 33. tbl. 1980 TÍMANS Margrét Jónasdóttir Laust fyrir aldamótin siðustu eða þann 9. september 1899 fæddist hér uppi i Þing- holtunum litil stúlka dóttir hins þekkta tónskálds Jónasar Helgasonar og Ingirið- ar Einarsdóttur i Skálholtskoti, en móðir- in var dóttir þeirra hjóna Einars stein- höggvara Ingimundarsonar og Sigriðar Jónsdóttur. Hér átti upptök sin löng og gifturik ævi Margrétar Jónasdóttur. Hjá þeim seinhöggvarahjónum ólst einnig upp stúlkan Sigriður Einarsdóttir, er siðar varð móðir min. Hún átti raunar að vera þarna aöeins stuttan tíma en neit- aði með öllu að hverfa af þessu heimili þegar á átti að herða. Á þær mæðgur Sigriði og Ingiriði leit móðir min sem væru þær mæður hennar. Hér voru það ekki ættartengslin heldur mannkostirnir sem sköpuðu ástrikið. 1 litla steinbænum bjó áð visu fátækt fólk að veraldargæðum en þeim mun rik- ara af hjartahlýju, sem flestum mun reynast traustara veganesti en fjármunir. Miklir kærleikar urðu með þessum tveim stúlkum Margréti og Sigriði sem aidrei féll skuggi á meðan báðar lifðu og þróast hefur áfram með ættum beggja. Þó nú aö íoreldrar minir ættu heima i Vestmannaeyjum var ætið mikið og náið samband við fólkið i Skálholtskoti eða hvar sem þær mæðgur Margrét og Ingi- rlður siðar áttu heima. Vmsar af minum hugljúfustu endur- minningum eru bundnar Skáiholtskoti. Meðal margs annars stendur mér lifandi fyrir hugskotssjónum morgunn einn 1918 eða 19. Ég vaknaði uppi á iofti i gamla steinbænum við það að ómar frá klukkum Dómkirkjunnar bárust inn um opinn 8'uggann, en i sama mund kom Ingiriður ~~ Inga amma — eins og við kölluðum hana, inn með kaffi og dýrindis kökur, er báru með sér einhvern undursamlegan bni, sem ég aldrei siðan hefi fundið nema ef vera kynni á einum sérstökum staö i Danmörku. Þessi kona, móðir Margrétar, var einhver albesta manneskja sem ég hefi fyrir hitt á lifsleiöinni og öllum sem kýnntust þótti vænt um. Eftir að ég fæddist var ákveðið að ég yrði skirö i höfuðið á Sigriði i Skálholts- koti en Margréti sem þá var unglings- stúlka fannst að litla barnið mætti lika heita i höfuðið á sér og var það látið eftir henni. Ung giftist Margrét Arnóri Guðmunds- syni, er siöar varð skrifstofustjóri Fiski- félagsins, og eignaðist með honum fimm dætur: Unni, sem gift er Báröi isleifssyni arkitekt, Svövu er átti Guðbjart Stefáns- son aðalgjaidkera á tollstjóraskrifstof- unni, sem nú er látinn, Gyðu sem gift er Hermanni Magnússyni simstöðvarstjóra á Hvolsvelli, Huldu konu Óðins Högn- valdssonar prentsmiðjustjóra og Ingu, er á fyrir mann Frank Cremona ættaðan frá Italiu. Barnalán þeirra Margrétar og Arnórs var einstakt þvi allar þeirra dætur eru hver annari myndarlegri og vel geröar að öllu leyti. Margar urðu ferðirnar milli Vest- mannaeyja og Reykjavikur. Dvöldust þær mæðgur Margrét og Ingiriður oft hjá okk- ur um lengri eða skemmri tima og eins dætur þeirra hjóna. Þá áttum við systkin- in og móðir okkar ósjaldan erindi til Reykjavikur og þá fyrst og fremst að Skálholtskoti. Hljómlistarhæfileika hafði Margrét erft frá fööur sinum og lék mikið á pianó á sin- um yngri árum en varð að láta það meira sitja á hakanum er fjölskyldan stækkaði. Þessir hæfileikar hafa gengið áfram i ætt- inni þvi Unnur elsta dóttirin hefur mjög helgað sig hljómlistinni og stundar nú kennslu i músik við tónlistarskólann i Garðabæ. Fyrir svo sem þrem, fjórum árum af- henti Margrét þjóðminjavérði stóran verðlaunapening úr gulli, er faðir hennar hafbi verið sæmdur og fagurlega útskorna gripi er ætlaðir voru til notkunar á skrif- boröi og honum höfðu verið gefnir i viður- kenningarskyni fyrir tónlistarstörf. Er vel til fallið að þessir gripir skyldu verða alþjóðareign til að minna á þennan ágæta hæfileikamann. Ógleymanlegt var að koma á heimili þeirra Margrétar og Arnórs, hann alltaf svo ræðinn og skemmtilegur, mikill bóka- maður og fróður með afbrigðum og hún með þennan einstæða frásagnarhæfileika, er gert gat hversdagslegustu atburði að hreinustu æfintýrum. Og þá má ekki gleyma listfengi húsfreyjunnar hvað það snerti að gera allt svo hlýtt og vistlegt kringum sig. Mann sinn missti Margrét árið 1964 og bjó eftir það ein, vildi hafa áfram sitt eig- ið heimili meðan kraftar entust. Frænd- garðurinn var stór og vinirnir margir svo að reynt var aðgera henni ævikvöldið eins þolanlegt og verða mátti. En vinsældir hennar voru alveg óvenjulegar, sem ekki sist má marka af þvi að i fyrra þegar hún átti áttræðisafmæli sóttu hana heim um hundrað manns. Margrét, sem fyrst leit ljós þessa heims áður en siðasta öld var á enda runnin — áöur en nokkur hér hafði komist i kynni viö sima, rafmagn eöa bifreiðar, meðan aðeins einn eða tveir lögregluþjónar voru i bænum og oliuluktir lýstu upp helstu

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.