NT - 09.01.1985, Blaðsíða 24

NT - 09.01.1985, Blaðsíða 24
Hreinsanir í Alþýðuflokknum? W 'IfillWllllHIIWPfliliWIMBBBMBI Jón Baldvin vill sína menn í trúnaðarstöður ■ Samkvæmt áreiðanlegum heimildum NT vinnur hinn nýkjörni formaður Alþýðuilokksins, Jón Baldvin Hannihalsson, nú að því að losa sig við fólk úr trúnaðarstörfum á vegum flokksins, sem hann telur vera sér andsnúið. Þannig mun hann opinskátt hafa látið í ljós að hann vilji losna við Kristínu Guðmundsdóttur úr starfl framkvæmdastjóra flokksins. Það mál hefur verið rætt í framkvæmdasttjórn flokksins, en engin ákvörðun hefur verið tekin um að segja henni upp. Tveir menn hafa einkum verið nefndir sem arftakar liennar. Þráinn Hallgrímsson, fyrrum blaðamaður á Alþýðublaðinu og á Tímanum, nú starfsmaður MFA, og Helgi Már Arthúrsson, fræðslufulltrúi BSRB, en'vafi leikur á um áhuga þeirra. Annar maður sem rætt hefur veriö unt að brátt muni þurfa að taka pokann sinn er Haukur Helgason sem gegnir starfi þinglóös, þ.e. fulltrúi flokks- stjórnar í þingflokknum, en þar situr hann mcð fullum réttindum. Par mun Jón vilja breytingu á, samkvæmt söntu heimildum, og er nefndur góð- ur stuöningsmaður Hans, Birg- ir Dýrfjörð. Sú hefð hefur ríkt varðandi þessa stöðu, að hana skipi maður úr verkalýðshreyf- ingunni. bar sem bæði Karl Steinar og Karvel Pálmason eiga sæti á þingi, hefur þótt rétt að maður úr röðum BSRB gegni henni, en Haukur Helga- son er þar stjórnarmaður. Birgir Dýrfjörð er hins vegar ekki tengdur launþegarhreyf- ingum, hins vegar hefur hann verið með eigin rekstur í nokk- ur ár. Heimildir NT segja aö Jón Baldvin hafi viljaö skipta um alla fulltrúa flokksins í banka- ráðum, en aöeins komið því í gegn í einu tilviki, þ.e. þegar Bjarna P. Magnússyni var ýtt út úr bankaráði Landsbankans og í staöinn var settur Þór Guðmundsson, áður starfs- maður Landsbankans á ísa- firði. Aðrir bankaráðsmenn Haukur Hclgason. Alþýðuflokksins sitja áfram í stöðum sínum. „Ég hef nú ekki unnið mikið að þessu að undanförnu, þar sem ég hef veriö á mikilli fundaherferð á Austfjörðum," sagði Jón Baldvin, þegar NT spurði hann um þessi mál í gær. Um innri mál Alþýðu- flokksins er það að segja, að framkvæmdastjórn Alþýðu- flokksins hcfur verið að ræða og nióta tillögur um endur- skipulagningu á innra starfi; útgáfustarfi, rekstri og öðru slíku. Þessar tillögur liggja fyr- ir á frumstigi. Þær verða innan tíðar afgreiddar hjá fram- kvæmdastjórn, lagðar fyrir flokksstjórn og þegar þær hafa verið afgreiddar kemur auðvit- að til álita að á grundvelli þeirra verði tekin afstaða til hvers konar mannahalds sem þarf á vegum flokksins og þangað til þær hafa verið út- kljáðar innan hans er ekkert frá mér að hafa um það frekar." Unt það sem að bankaráðs-| mönnunum snýr sagði Jón Baldvin að hann hefði lagt fram tillögur í þingflokknum um þrennt: Flokkurinn beiti sér fyrir því í samstarfi við aðra flokka að kosið verði árlega í stjórnir ríkisfyrirtækja og stofnana eins og annars staðar í atvinnulífinu. að flokkurinn beiti sér fyrir þeirri starfsreglu, fyrir utan að skipa ekki þingmenn í slíkar stofnan- ir, að enginn skuli sitja þar lengur en fjögur ár hið lengsta, og loks að hver sá sem gegni trúnaðarstörfum fyrir flokkinn og þyggi fyrir einhver laun skuli gjalda í flokkssjóð þriðj- ung launa. Jón Baldvin Hannibalsson Ný spariskírteini ríkissjóðs: Fjölbreyttir ávöxtunar- möguleikar hjá ríkissjóði Margir möguleikar standa nú þeim til boða sem hug hafa á að ávaxta peningana sína í spariskírteinum ríkissjóðs því íslenskir bridgespilarar: Náðu 5. sæti á móti í Svíþjóð ■ Jón Baldursson og Sig- urður Sverrisson náðu 5. sæti á sterku bridgcmóti sem haldið var í Lundi í Svíþjóð um síðustu helgi, en flestir sterkustu bridgespilarar Sví- þjóðar tóku þátt í mótinu. Alls tóku 56 pör þátt í mötinu og spilaðar voru átta 14 spila umfcrðir. Jón og Sigurður unnu tvisvar til sér- Stakra vcrölauna fyrir aö ná hæstu skor í umferð og þegar sex umfcrðum var lokið af óg Sigurður . n átta voru Jón efstir á mótinu. I tveim síð ustu umferðunum gáfu þeir þó eftir og hleyptu fjórum pörunt uppfyrir sig. Sigurvegarar á mótinu urðu Anders Brunzell og Jim Nilsen en aðrir landsliðs- menn Svía, eins og Bcrglund og Hallberg sem spiluðu á Ólympíumótinu í haust, Ek- bcrg og Nilsland, og Hallen og Stenberg, urðu að gcra sér að góðu að enda fyrir neöan 10. sæti. sala á fjórum tegundum ríkis- skuldabréfa hefst á morgun. Ríkissjóður býður almenn- ingi nú í fyrsta sinn að kaupa gengistryggð spariskírteini, tryggð samkvæmt gengi SDR (sérstök dráttarréttindi Alþjóða- gjaldeyrissjóðsins), auk þess sem þau bera 9% fasta vexti allan lánstímann-5 ár. Vextirn- ir greiðast allir í einu lagi við innlausn. í SDR vega þyngst: Bandarískur dollar rúm 55%, þýskt mark um 15% og japanskt yen tæp 14%, en auk þess fransk- ur franki og sterlingspund. Annað nýmæli er verð- tryggð skírteini þar sent eigandi getur fengið vextina greidda út tvisvar á ári, en verðbættur höfuðstóllinn er síðan laus til innlausnar að 5 árum liðnum. Sýnist það álitlegur kostur fyrir þá sem njóta vilja nokkurs góðs af eignum sínum án þcss þó að ganga á höfuðstólinn. Vextir þessara skírteina eru 6,71% á ári, jafnir allan lánstímann og verða greiddir út 10. janúr og 10. júlí ár hvert, gegn vaxtamið- um sem fylgja skírteininu sjálfu. Þriðji kosturinn er verð- tryggð spariskírteini með hreyf- anlegum vöxtum og vaxtaauka. Þau eru til 18 mánaða, þ.e. gjalddaga 10. júlí 1986. Vextirn- ir eru hreyfanlegir og ákveðnir sem einfalt- meðaltal þeirra vaxta sem viðskiptabankarnir greiða að meðaltali á 6 mánaða verðtryggða reikninga á hverj- um tíma, auk 50% vaxtaálags sem bætast við. Meðalvextir þessir eru nú 3,43% á ári, en 5,14% að viðbættum vaxtaauk- anum. að sögn fjármálaráðu- neytisins. Þessi bréf segir fjár- málaráðuneytið hugsað fyrir þá sparendur scm njóta vilja ríf- legrar ávöxtunar án þess að binda fé sitt í langan tíma. Fjórði flokkurinn er hin hefð- bundnu verðtryggðu spariskírt- eini, með 7% jöfnum vöxtum allan lánstímann. Hægt er að innleysa þau eftir 3 ár, en láns- tími er lengstur í 14 ár. í öllum flokkunum eru gefin út 3 verðgildi spariskírteina: 5.000 kr.. 10.000 kr. og 100.000 krónur. Verðbætur miðast við lánskjaravísitölu. Skólabílastríðið á Suðurlandi: Enginn akst- ur er á veg- um skólans En krakkarnir koma samt ■ Á Suðurlandi virðist ekki þurfa að biðja menn um að gera hlutina því þar cr nú enginn ráðinn til skóln- aksturs Fjölbrautarskóla- nema en krökkunum engu að síður skilað á Selfoss á tilsettum tímum. Frá áramótum hefur skóla- nefndin ekki haft önnur af- skipti af akstrinum en að hún sagði Sérleyflsbílum Selfoss upp ölluni akstri eftir mikið stríð sem þeir höfðu átt í við Austurleið frá Hvolsvelli og Sérleyfi Kristjáns í Hvera- gerði og Þorlákshöfn. Frá því stríði hefur verið sagt í NT. Sérleyfisbílar Selfoss voru þó beðnir um það munnlega að lialda áfram akstri nem- enda frá Stokkseyri og Eyr- arbakka. Aftur á móti hafa einungis nemendur skólans beðið Sérleyfi Kristjáns að aka sér og hann gert það. Frá Hvolsvelli ekur Austurleið en við þá hafði sýslunefnd Rangárvallasýslu samið um akstur til áramóta meðan skólanefnd Fjölbrautaskól- ans leysti úr því ófremdar- ástandi sem var á þessum málum fyrir jól. Nú eftir jól aka þeir samningslaust eins og aðrir og ekkert hefur enn heyrst frá skólanefndinni þess efnis að hún þori að ráða neinn til akstursins.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.