NT - 01.03.1985, Blaðsíða 1

NT - 01.03.1985, Blaðsíða 1
Stjórnin fallin - Kratar óstöðvandi nr ■ Kíkisstjórnin myndi tapa meirihluta sínum á Al- þingi ef kosningar yrðu haldnar á næstu dögum. Það sýna fyrstu niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar NT. Þegar aðeins eru taldir þeir sem tóku afstöðu í könnuninni njóta stjórnar- flokkarnir tveir ekki fylgis nema ríflega 48% kjósenda en stjórnarandstaðan fær yfír 50% atkvæða. Á vettvangi íslenskra stjórnmála er um þessar mundir einungis rúm fyrir einn sigurvegara. Sá heitir Jón Baldvin Hannibalsson. Jón Baldvin hefur nú tvö- fajdað fylgi Alþýðuflokksins frá síðustu Alþingiskosning- um á þeim fáu mánuðum sem hann hefur „staðið í brúnni". Flokkurinn ntundi fá 23,6% atkvæða ef kosið væri nú en hlaut aðeins 11.7% þegar síðast var •kosið. Sé að öðru leyti mið- að við síðustu Alþingiskosn- ingar hefur Kvcnnalistinn bætt við sig einu prósentu- stigi og fær nú 6,6%. Aðrir flokkar tapa misjafnlega ntiklu, Sjálfstæðisflokkur- inn mest eða sex prósentu- stigum en tap Framsóknar- flokksins er einnig verulegt þ.e. 4 prósentustig. Ef aðeins er reiknað með þeim sem tóku afstöðu, ntyndu atkvæði skiptast sem hér segir (Breytingar frá síð- ustu kosningunum innan sviga): A listi 23,6% (+11,9) B listi 15,0% (- 4,0) C listi 5,4% (- 1,9) D listi 33,2% (- 6,0) G listi 14,7% (- 2,6) V listi 6,6% (+ 1,1) Fl. mannsins 1,5% Af tæknilegum ástæðuin eru ekki tök á að birta niðurstöður könnunarinnar í smáatriðum fyrr en á morgun, en þá getum við lofað lesendunt ýmsurn spennandi upplýsingum um skiptingu eftir kynjum og landshlutum. hreyfingar milli flokka o.s.frv. o.s.frv.. Missið ekki af NT á morgun! ArneTreholt: I KGB-maðurinn I varspennandi -sjáerlendar fréttir bis. 21 Varð undir brotajárni ■ Maður varð undir brota- járni sem hann var að hífa með litlum krana á vörubílspall við Stálsmiðjuna í Reykjavík í gærdag. Losnaði járnlunning sem hann var að hífa uppá pallinn úr krananum og lenti á hægri fæti hans. Var maðurinn fluttur á slysadeild en meiðsli hans voru ekki talin alvarlegs eðlis. ■ Fulltrúar yfirmanna og útvegsmanna af Vestfjörðum undirrituðu nýja samkomulagið á 12. tímanum í gærkvöldi. NT-mynd svcmr. Sviftingar í sjómannadeilunni í gær: Háskóli á Akureyri sjá bls. 4 Prófkjör í Háskólanum -sjábls.24 Yf irmennirnir sömdu undirmenn gengu út! „Munum berjast til síðasta blóðdropa," segir Óskar Vigfússon ■ Samningar tókust í gær- kvöldi í deilu yfirmanna á fiski- skipaflotanum milli Farmanna- og fiskimannasambandsins og skipstjóra- og stýrimannafélags Vestfjarða hins vegar. Sam- komulagið byggir í megin atrið- um á hugmyndum, sem ríkis- sáttasemjari lagði fram í fyrra- Kennararnirgangaút ■ Framhaldsskólar landsins verða lamaðir í dag og á næst- unni, ef svo fer fram sem horfir. Á 300 manna fundi í Mennta- skólunum við Hamrahlíð í gær- kvöldi, þar sem mættir voru kcnnarar sem sagt höfðu upp störfum sínum í haust var sam- þykkt að hlíta ekki tilmælum menntamálaráðuneytisins uni að mæta til kennslu á ný með 229 atkvæðum gegn 49, en auðir seðlar voru 13. Til viðbótar koma atkvæði með ótgöngu frá Menntaskólanum á Akureyri og Fjölhrautaskólanum á Sauðár- króki, alls 25 atkvæði. Hugmynd, sem reifuð var á fundinum þess efnis að kennararsinntu nemend- um sínum kauplaust í viku til viðbótar, í trausti þess að stjórn- völd notuðu tímann til að finna raunhæfa lausn, fékk engan stuðning. Samninganefnd ríkisins og fulltrúar HÍK héldu fund síðdegis í gær og þar lýsti samninganefnd ríkisins sig reiðubúna til að standa að sérkjarasamningi við HÍK „á þeim grundvelli að í þeim samningi komi fram hlið- stæðar kjarabætur og í samning- um við önnur aðildarfélög BHM,“ auk þess sem lillit yrði tekið til álits endurmatsnefndar menntamálaráðuneytisins og „þess munar á heildarkjörum, sem kann að hafa myndast á síðustu árum á milli háskóla- menntaðra kennara og annarra háskólamenntaðra ríkisstarfs- manna." Kennarar töldu þessa yfirlýsingu einskis virði. í samþykkt fundarins í Hamra- hlíðarskólanum í gærkvöldi eru kennarar hvattir til að fastráða sig ekki til annarra starfa. „með- an ekki er gengið í þau kennslu- störf sem þeir höfðu nteð hönd- um en bíða átekta uns lokið er samningum við HÍK og meta þá hvort þeir geti unað niðurstöð- Um 60% nemenda við fram- haldsskólana hafa lýst skriflega yfir stuðningi við kjarabaráttu kennara sinna og lýst yfir að þeir muni ekki mæta til kennslu hjá nýjum kennurum. Framhalds- skóianemendur munu efna til útifundar á Austurvelli kl. 14.00 í dag. kvöld og viljayfirlýsingu ríkis- stjórnarinnar um lausn á deil- unni. Fulltrúar Sjómannasam- bands íslands treystu sér ckki til að ganga að samkomulaginu og óskuðu eftir því, að samninga- fundi með þeim yrði hætt. Samkvæmt heimildum NT hljóða tillögur ríkisstjórnarinn- ar m.a. upp á það, að fjárhagur áhafnadeildar aflatrygginga- sjóðs verði bættur, þannig að hún geti lagt fram 80 milljónir króna á þessu ári til að bæta lífeyrisréttindi sjómanna. Þá er gert ráð fyrir, að tryggt verði fé til þess að áhafnadeildin geti hækkað fæðispeninga sjómanna um 10% frá 1. mars. Hugmyndir munu einnig vera um að hækka sjómannafrádrátt úr 180 krón- um í 220 fyrir hvern lögskrán- ingardag á fiskiskipi, eða að hækka fæðispeninga um 20% í stað 10% 1. mars. Ráðstafanir verða gerðar til að lækka olíu- kostnað útvegsins um 2%, og stefnt er að því að lækka sér- staka kostnaðarhlutdeild út- gerðarinnar. Samningurinn, sem gerður var í gærkvöldi, verður kynntur yfirmönnum í dag, og fari svo að hann verði samþykkur, getur Vestfjarðaflötinn þegar haldið á miðin, þar sem undirmenn fyrir vestan eru enn með gildandi samninga. Sjómenn eru allt annað en ánægðir með hvernig málin þró- uðust í gærkvöldi og sagði Osk- ar Vigfússon í samtali við NT á tólfta tímanum að greinilegt væri að vilji útgerðarmanna til samkomulags væri enginn. „Ef við eigum að fá svipaðar trakter- ingar hjá útgerðarmönnum og við höfum fengið síðasta sólar- hringinn erum við ekki ginnkeypt- ir til umræðu. Við munum berj- ast til síðasta blóðdropa fyrir réttmætum kröfum okkar og ég ætla að sjómenn á íslandi snúi bökum saman við þessa mót- báru,“ sagði Óskar Vigfússon forseti Sjómannasambandsins að lokum eftir 32 tíma stans- lausa samningalotu.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.