NT - 13.08.1985, Blaðsíða 22

NT - 13.08.1985, Blaðsíða 22
Þriðjudagur 13. ágúst 1985 22 Evrópubikarkeppnin í frjálsíþróttum á Laugardalsvelli: Þríríslenskirsigrar íslendingar stóðu sig með miklum ágætum í C-keppni Evrópubikarkeppninnar í frjálsíþróttum um helgina, en 2. riðill hennar fór fram í Reykjavík. Einar Vilhjálms- son og Oddur Sigurðsson náðu báðir að tylla sér í efstu tröpp- una við verðlaunaafhendingu og Helga Halldórsdóttir hrós- aði sigri í 400 metra grinda- hlaupinu. Að auki höfnuðu íslendingar oftsinnis í öðru sæti. Þessi góði árangur náði þó ekki að lyfta íslensku liðunum af botninum í karla- og kvennakeppninni. Svíar unnu þá fyrrnefndu og Norðmenn þá síðarnefndu. Báðar þjóðir færast því upp í B-keppnina. Fyrri dag keppninnar gekk íslendingum mun betur og allir þrír sigrarnir komu þá, Einar lét áhorfendur bíða eftir sig- urkastinu í spjótinu þar til í síðustu umferð, en Oddur kunni ekki við að halda áhorf- endum í neinni spennu. Hann var kominn meö góða forystu áöur en komið var inn á beinu brautina í 400 metra hlaupinu og Norðurlandameistarinn sigraði örugglega á 46,97. Sigur Helgu var einnig ör- uggur og hún náði svo öðru sætinu í 100 m grindinni á 14,01. Flott það. Tími Helgu í 400 m var 58,75. í hástökki kvenna stökk Þórdís Gísladóttir 1,83, aðeins fjórum cm lægra en íslandsmet hennar og náði í silfrið. Unnar Vilhjálmsson kom á óvart í hástökkinu og hlaut bronsið og í stangarstökkinu varð Sig- urður T. Sigurðsson í öðru sæti. Sömu sögu er að segja af Kristjáni Harðarsyni í lang- stökkinu. Svanhildur Kristjónsdóttir setti tvö íslandsmet á mótinu, í 100 og 200 m hlaupunum og var í sveitinni er setti met í 4x100 metrunum. Hún varð önnur í 100 metrunum á 11,79 sek., en met Oddnýjar Árna- dóttur, sem varð önnur í 400 m hlaupi, var 11,92. Svanhildur hljóp svo á 24,39 sek. í 200 m hlaupinu og varð þriðja. Boð- hlaupssveitin hljóp á 46,76. íris Grönfeldt kastaði 58 metra slétta í spjótkastinu og varð í öðru sæti á eftir hinni norsku Trine Solberg. Eggert Bogason stóð sig vel í köstunum. Hann varð annar bæði í kringlukasti og kúlu- varpi, kastaði 53,74 og 17,38 metra. Öll úrslit á mótinu verða birt á morgun. Svanhildur varð þriðja í 200 m á nýju íslandsmeti. NT-mynd: Ámi Bjama. Úrslit Evrópukeppninnar - sem haldin var á þremur stöðum um helgina ■ Evrópubikarkeppnin fór fram á þremur stöðum um helgina. Hér í Reykjavík fór frarn 2. riðill C-keppninnar,í Austurríki var 1. riðill C- keppninnar og í Búdapest var B-keppnin. Urslit stiga- keppninnar á öllum þessum stöðum fara hér á eftir: REYKJAVIK: Karlar: Svíþjód 79 stig, Belgía 68 stig, Danmörk 53 stig, írland 53 stig og ísland 45 stig. Konur: Noregur 49 stig, Belgía 48 stig, írland 32 stig og ísland 30 stig. Þaö veröa því Svíar sem færast upp i B-keppni karla og Nordmenn í kvennaflokki. AUSTURRÍKI: Karlar: Austurriki 75 stig, Portúgal 72 stig, Holland 68 stig, Kýpur48 stig og Tyrkland 37 stig. Konur: Sviss 82 stig, Spánn 68 stig, Austurríki 65 stig, Portúgal 52 stig og Kýpur 36 stig. Austurríkismenn fara upp í karla- flokki en Sviss i kvennaflokki. BÚDAPEST-B-KEPPNIN: Karlar: Spánn 116 stig, Búlgaria 113 stig, Ungverjaland 106 stig, Finnland 82,5 stig, Sviss 82 stig Júgóslavia 81 stig, Grikkland 81 stig og Noregur 57 stig. Konur: Frakkland 102 stig, Rúmenía 101 stig, Ungverjaland 82 stig, Finn- land 69,5 stig, Holland 68 stig, Sví- þjóð 61 stig, Júgóslavía 57 stig og Danmörk 35 stig. Spánverjar færast upp í A-keppn- ina í karlaflokki og Frakkland í kvennaflokki. Frændur vorir Norð- menn detta hinsvegar niöur i C-keppni i karlaflokki og Danir í kvennaflokki. Þess má geta aö A-keppnin fer fram í Moskvu um næstu helgi. n Eg fór mjög illa af stað“ - sagði Svanhildur Kristjónsdóttir sem setti tvö íslandsmet ■ „Ég bjóst alls ekki við þessum árangri í 100 metra hlaupinu. Hinar gáfu upp miklu betri tíma fyrir rnótið en ég hef náð og því reiknaði ég alveg með því að vera síðust,“ sagði Svanhildur Kristjóns- dóttir UMSK í samtali við NT í Evrópubikarkeppninni í frjálsíþróttum. Svanhildur varð önnur í hlaupinu og setti íslandsmet, hljóp á 11,79 sek. „Nei, ég bjóst ekki við mcti,“ sagði hún aðspurð. Þetta Islandsmet Svanhildar kom fyrri keppnisdaginn. Þann seinni keppti hún í 200 metra hlaupi. „Ég var illa upplögð, með harðsperrur eftir fyrri daginn, og fór því illa af stað,“ sagði Svanhildur um það hlaup. „Ég var bara ill þegar ég kom í markið, hélt að tíminn væri slakur. Ég bjóst alls ekki við að setja Islands- met og reyndar ekki fyrr en á næsta ári,“ sagði þessi smá- vaxna og geðþekka stúlka. 2. deild íslandsmótsins í knattspyrnu: UBK lafir á toppnum ■ Breiðablik lafir enn á toppi 2. deildar eftir útisigur gegn Leiftri á laugardag. Eina markið á Ólafsfirði gerði Jón Þórir Jónsson og kom það í síðari hálfleik. Á ísafirði gerðu heimamenn markalaust jafntefli við Njarðvík og KS sigraði Fylki 2-1 á Siglu- firði. Fylkir náði forystunni með sjálfsmarki snemma í leiknum og það var ekki fyrr en síðasta korterið sem KS náði að tryggja sér öll stigin. Fyrst skoraði Hörð- ur Júlíusson og rétt fyrir loka- flautuna sendi Baldur Benónýs- son knöttinn í netið beint úr aukaspyrnu. Anton Jakobsson í liði Fylkis sá rautt undir lok leiksins og fór út af og aðrir sjö leikmenn fengu áminningu. Reykvík- ingarnir voru sýnu grófari, því fimm þeirra fengu gul spjöld. Staðan í 2. deild er Breiðablik ÍBV KA Völsungur KS ÍBÍ Njarövík Skallagr. Fylkir Leiftur Markahæstir i 2. nú þessi: 12 7 3 2 22-12 24 12 7 2 2 30-10 23 12 7 2 2 23-11 23 12 5 3 4 21-15 18 12 5 3 4 17-16 18 12 3 5 4 12-16 14 12 3 4 5 7-16 13 12 3 4 5 14-28 13 12 2 3 7 10-16 9 12 2 2 8 8-23 8 deild eru: Tryggvi Gunnarsson, KA 11 mörk Tómas Pálsson, ÍBV 9 mörk Jón Þórir Jónsson, UBK 7 mörk Ómar Jóhannsson, ÍBV 6 mörk Jónás Hallgrímsson, Völsung 6 mörk íslandsmótið 3. deild-B riðill: Baráttan í algleymingi ■ Baráttan á toppi B-riðils 3. deildar er í algleymingi eftir sigra Einherja og Tindastóls um helgina. Einherji er í efsta sætinu með 26 stig, hefur betri marka- tölu en Magni og Tindastóll er í því þriðja með stigi minna. Einherji vann Hugin 1-4. Tinda- stóll vann Leikni 2-0, Valur vann Austra 1-0 og Þróttur sigraði HSÞb 1-3. Ólafur Ármannsson, Stefán Guðmundsson, Baldur Kjar- tansson og Hallgrímur Guð- mundsson skoruðu mörkin dýr- mætu fyrir Einherja á laugar- dag. Þórhallur Ásmundsson og Guðbrandur Guðbrandsson gerðu mörkin á Sauðárkróki og Sigurbjörn Marinósson gerði sigurmark Vals gegn Austra. Sá leikur átti að vera á laugardag en var frestað um sólarhring vegna mikilla rigninga. Bjarni Jóhannsson og Birgir Ágústsson (víti) komu Þrótti í 0-2. Þá náðu heimamenn að minnka muninn en Páll Frey- steinsson átti lokaorðið. Staöan í B-riðli 3. deildar er þessi: Einherji 12 8 2 2 26-14 26 Magni 12 8 2 2 24-14 26 Tindastóll 12 7 4 1 17-6 25 Leiknir, F. 13 7 1 5 18-18 22 Austri 13 5 3 5 21-13 18 Þróttur, N. 13 4 3 6 20-17 15 Valur, R. 13 3 2 8 14-23 11 Huginn 13 2 2 9 12-30 8 HSÞb 13 1 2 10 14-31 5 ■ Það vantaði ekki mörkin í leikjunum í A-riðli 3. deildar um helgina. ÍK sigraði HV 3-4, Reynir og Grindavík gerðu 2-2 jafntefli og á föstudag sigraði Ármann Víking, Ólafsvík 5-0. HV virtist ætla að ná jöfnu gegn ÍK á sunnudag, því að sigurmark leiksins kom ekki fyrr en tvær mínútur voru eftir. Þar var Þórir Gíslason að verki, hans annað mark í leiknum. Hin mörk ÍK gerðu Jón Hersir Elíasson og Hörður Sigurðar- son. Pétur Björnsson skoraði eitt fyrir HV og bærðurnir Sæ- mundur og Elís Víglundssynir eitt hvor. Grindavík var yfir 0-2 á móti Reyni í hálfleik í miklum rok- leik. Helgi Bogason skoraði fyrra markið og Hjálmar Hall- grímsson hið síðara. Ari Hauk- ur Arason jafnaði metin eftir hlé. Fjölmargir hlutu gul spjöld í leiknum og Sigurði Ölafssyni í liði Grindavíkur var vikið af leikvelli. Mörk Ármanns gegn Víkingi skoruðu Smári Jósafatsson, tvö, Egill Steinþórsson gerði eitt og einnig Bragi Sigurðsson og Páll Guðmundsson. Leik Selfoss og Stjörnunnar var frestað. Staðan í A-riðli Selfoss Grindavík Reynir, S. ÍK Stjarnan Ármann HV Víkingur Ó. . deildar er nú þessi: 11 8 3 0 29-9 27 12 6 3 3 23-16 21 12 5 4 3 23-13 19 12 3 6 3 18-18 15 10 4 3 3 10-15 15 11 4 2 5 16-14 14 12 3 2 7 18-22 11 12 1 1 10 9-39 4 IBK burstaði IBI ■ ísfirðingar töpuðu 1-4 fyrir Keflavík í 1. deild kvenna um sl. helgi. ísfirð- ingar leiddu í hálfleik með marki Margrétar Geirsdótt- ur og yfirspUuðu þá Keflvík- inga. En í síðari hálfleik varð ísfirsku stúlkunum á nokkur slæm mistök og þær keflvísku skoruðu fjórum sinnum.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.