24 stundir - 01.12.2007, Blaðsíða 1
„Enginn á jörðinni hefur ekki einhvern með sér. Oft eru þetta ættingjar
og fólk sem hefur tengst viðkomandi. Það er alltaf verið að leiðbeina okk-
ur. Við erum aldrei ein,“ segir Bíbí Ólafsdóttir en ævisaga hennar sem
Vigdís Grímsdóttir skráir er ein af jólabókum ársins. Í viðtali við 24
stundir ræðir Bíbí um lífshlaup sitt og samband við
aðra heima.
Við erum aldrei ein
24 stundir/Ómar
„Enginn hefur ekki einhvern með sér“
»50-52
Birgitta Haukdal segir að leik-
konan Natalie Wood hefði getað
leikið sig, væri hún á lífi, en þær
eru sláandi líkar. Birgitta svarar 24
spurningum að þessu sinni þar
sem hún kemur upp um sig.
Á tvífara á himnum
24SPURNINGAR»38
24stundirlaugardagur1. desember 2007231. tölublað 3. árgangur
Fjölmiðlakonan Svanhildur Hólm
Valsdóttir opnar myndaalbúmið
sitt að þessu sinni fyrir lesendum.
Má þar jafnt sjá skírnarmynd af
henni sem brúðarmynd og
myndir af fjölskyldunni.
Í skírnarkjólnum
MYNDAALBÚMIл34
Eftir Frey Rögnvaldsson
freyr@24stundir.is
Gríðarlegur verðmunur er á lýsis-
perlum í apótekum annars vegar og
stórmörkuðum hins vegar. Sam-
kvæmt verðkönnun 24 stunda sem
gerð var í gær eru 500 lýsisperlur
nálega tvöfalt dýrari í apóteki Lyfju í
Lágmúla heldur en í verslun Bónuss
í Hraunbæ.
Í Bónus kostuðu lýsisperlurnar
1.088 krónur en í Lyfju kostuðu þær
1.979 krónur.
Í könnuninni var verð á fleiri
vörum sem almennt eru seldar bæði
í apótekum og dagvöruverslunum
kannað. Í öllum tilfellum utan
tveggja var verð talsvert hærra í
apótekum en í stórmörkuðum.
Lyf í dagvöruverslanir?
Á fundi Rannsóknarstofnunar
um lyfjamál við Háskóla Íslands í
fyrradag sagði Páll Gunnar Pálsson,
forstjóri Samkeppniseftirlitsins, að
samkeppnisleg rök mætti færa fyrir
því að leyfa sölu á ákveðnum lyfjum
sem ekki væru lyfseðilsskyld, víðar
en í apótekum. Dæmi um slík lyf
væru meðal annars nikótínlyf og
væg verkjalyf. Könnun 24 stunda
sýnir að vörur sem bæði apótek og
stórmarkaðir selja nú eru almennt
ódýrari í síðarnefndu verslununum.
Áhyggjur af örygginu
Unnur Björgvinsdóttir, formað-
ur Félags lyfjafræðinga, setur mikla
fyrirvara við þessar hugmyndir.
„Við höfum miklar áhyggjur af ör-
yggisþáttum í þessu sambandi. Það
verða væntanlega ekki heilbrigðis-
starfsmenn starfandi í þessum versl-
unum og þar af leiðandi verður ekki
hægt að veita fræðslu um virkni
lyfjanna. Hvað á að vinnast með
þessu, spyr ég? Það hlýtur að verða
að leggja meiri áherslu á öryggis-
sjónarmið en smávægilegar verð-
lækkanir.“
Lýsið lang-
dýrast í
apótekum
Lýsi tvöfalt dýrara í Lyfju en í Bónus
Apótekin almennt dýrari en stórmark-
aðirnir Lyf brátt til sölu í verslunum?
APÓTEK EKKI EIN Í LYFSÖLU»2
➤ Samkeppniseftirlitið komstað þeirri niðurstöðu í fyrra að
í smásölu lyfja ríkti fákeppni
og Lyf og heilsa og Lyfja
hefðu markaðsráðandi stöðu.
➤ Landlæknir hefur lýst því yfirað hann sjái ekki meinbugi á
að selja nikótínlyf og sumar
tegundir verkjalyfja annars
staðar en í apótekum.
LYFJAVERSLUNIN
Mannréttindadómstóll Evrópu
hefur óskað eftir því við íslenska
ríkið að það skýri innheimtu iðn-
aðarmálagjalds sem öll fyrirtæki í
iðnaði eiga að greiða. Ríkið hefur
frest til 7. janúar til að svara dóm-
stólnum, en húsasmíðameistarar
mótmæla gjaldinu sem
nemur 0,08% af veltu.
Evrópa hlustar
á húsasmiði
»2
Matvörukeðjan Irma hefur
endursent heilan árgang af
rauðvíni sem framleitt er í
Château de Cayx, víngarði
Hinriks Danaprins í Suður-
Frakklandi.
„Okkur barst fjöldi kvartana
vegna þess að fólk sem langaði
að njóta konunglegu veiganna
náði töppunum ekki úr flösk-
unum,“ segir Sören Grönbæk,
gæðastjóri Irmu.
Vandamálið virðist vera sam-
spil of langra tappa og vit-
lausrar ísetningar. aij
Hinrik með
of stóra tappa
HIGH LINE ÚTISERÍUR
Gæði, sem þola íslenska veðráttu
Úrval, sem sinni þörfum allra
Tilboð, sem er engu líkt:
Kauptu tvær seríur
og fáðu ódýrari á HÁLFVIRÐI.
• or.is/jolaleikur – Taktu þátt!
23dagar til jóla
3
0
2 0
1
GENGI GJALDMIÐLA
GENGISVÍSITALA 118,79
ÚRVALSVÍSITALA 6.983,68
SALA %
USD 61,26 -0,47
GBP 125,80 -0,90
DKK 12,08 -1,01
JPY 0,55 -1,96
EUR 90,06 -1,01
-0,49
1,28
NÁNAR 4
VEÐRIÐ Í DAG
22
110% munur á
smurosti
NEYTENDAVAKTIN