Frjáls þjóð


Frjáls þjóð - 12.11.1960, Blaðsíða 1

Frjáls þjóð - 12.11.1960, Blaðsíða 1
Um langa hríð hefur FRJÁLS ÞJÓÐ eitt blaða haldið uppi hvassn gagnrýni á fiskeinokunarhnng- rna og starfsaðferðir þeirra. Nú eru mál þessi loks komin á dagskrá í flestum blöðum en seinasta tilefnið er undirboð Sambandsms á fiskmarkaði í Bandaríkj- unum. Það mál er þó aðeins brot af ósómanum öllum. Hjclreiðainenn á Knippelsbrú í Kaupmaqhahöfn. Vinningsmið'arnir í happ- drætti blaðsins, sem lauk í síð- asta mánuði, reyndust allir vera seldir nema einn. Það var flug- ferðin með Loftleiðum til Kaupmannahafnar. FRJÁLS ÞJÓÐ hefur ákveðið að gefa lesendum blaðsins kost á því á nýjan leik að hreppa þennan vinning. Á næstu sex vikum verður efnt til getraunar í blaðinu og er vinningurinn flugfar til Khafnar fram og aftur með Loftleiðum ásamt viku uppihaldi þar og þjónustu leiðsögumanns. Vinningurinn er að verðmæti 9000 íslenzkar kr. Eins og kunnugt er hafa ís- lendingar meiri áhuga á ætt- fræði en flestar aðrar þjóðir. Það er því ætlan blaðsins, að efna til ættfræðigetraunar, sem þannig verður háttað, að nefnd verða fjögur kunn nöfn ís- lenzkra manna og spurt, hver þeirra sé í tilteknum skyldleika- tengslum við einhverja þekkta persónu. A þá að setja kross við það svar sem menn telja réttast, klippa síðan getrauna- seðilinn úr blaðinu og senda alla miðana sex til blaðsins. Þeir einir eru verðlaunahæfir, sem svara öllu rétt, en berist mörg pétt svör, verður dregið um vinninginn. Fyrsta spurningin birtist í dag á 3. síðu blaðsins. Sambandið og Sölumiðstöðin hafa alla tíð barizt af hörku um markaðinn vestanhafs, og hefur SIS gengið öllu betur að Iosna við framleiðsluna og greiða frystihúsum sínum, en allmikið hefur þótt á skorta, að Sölumið- stöðinni tækist að standa í skil- um og hefur bólað á mikilli tor- tryggni og óánægju í samtök- unum. Á seinasta aðalfundi munaði jafnvel sáralitlu, að þeim óánægðu tækist að ná undirtökunum í stjórninni. Á aðalfundi S. H. eru aðeins 56 aðilja;; atkvæðisbærir. Hefur þvi stjórnin gripið til þess ráðs að bjóða um 15 frystihúsaeig- endum til Bandaríkjanna í kynnisför til að friða þá óá- nægðu og styrkja sig í sessi. Eft- ir sem áður neitar stjórn SH að skýra frá því, hverjir eigi sæti; í stjórrv verksmiðjunnar í Nanticoee, sem Sölumiðstöðin telst þó eiga eða birta nokkra reikninga um starfsemina, | hvorki rekstrar- né efnahags- reikninga. Sölumiðstöðin hefur þegið mikla styrki frá ríkinu seinustu árin og er því um al- mannafé að ræða. FRJÁLS ÞJÓÐ hefur krafizt þess að und- anförnu, að yfirvöldin létu rannsaka inneign og reikninga íslenzkra fyrirtækja erlendis, enda er furðulegt að félög og einstaklingar geti ráðstafað miklum fjárfúlgum í erlendum gjaldeyri án nokkurs eftirlits. Ölögleg starísemi. Dagblaðið Tíminn hefur tek- ið upp hanzkann fyrir Samband- ið og haldið því fram, að und- irboð á fiski í Bandaríkjunum hafi ekki aðeins verið eðlileg ráðstöfun heldur stórsigur f.vrir samvinnuhreyfinguna. SÍS hafi getað lækkað milliliðakostnað- inn og selt vöruna ódýrari! Það er eftirtektarvert, að Samband- inu finnst sjálfsagt að gefa bandarískum kaupendum þann milliliðagróða, sem fyrirtækið segist spara, en því kemur ekki jtil hugar að greiða íslenzkum : sjómönnum hærra verð fvrir aflann; eins og sumir hefðu nú talið eðlilegra. Það er vitanlega fráleitt, að Islendingar undirbjóði hver annan erlendis en landsmenn stórtapi á tiltækinu. En það er um leið ólöglegt, sem sagt óger- legt nema einokunarhringarnir hafi sniðgengið lög um útflutt- ar afurðir og hliðrað sér hjá að fá leyfi fyrirfram hjá Útflutn- ingsneínd, en nefnd þessi á ein- mitt að tryggja að ekki sé um Frh. á 3. s.' Furöulegur þartkagangur B. Gröntíals í útvarpinu Sanitök hernáms- andstæðinga Sími 23647 Maðkar í mysunni Um síðustu áramót keypti Jón Kr. Gunnarsson í Hafn- arfirði fyrir milligöngu Landsbankans hlutabréf að nafn- verði 400.000 kr., í Hraðfrystihúsi Gerðabátanna h.f. — Samkvæmt mati þriggja manna, en Landsbankinn skipaði oddamanninn, var kaupverðið 1 millj. og 800.000 kr. Bank- inn lánaði síðan I millj. og 500.000 kr. gegn veði í nefndum hlutabréfum. S.l. laugardag voru hessi hlutabréf seld á nauðungar- uppboði í Hafnarfirði úr brotabúi Jóns Kr. Gunnarssonar, útgerðarmanns. Lögfræðingur Landsbankans, Björn Ólafs, bauð 40.000 kr., — fjörtíu þúsund krónur — í hlutabréfin f.h. bankans og voru þau slegin lioniini. Sjónarvottar segja, að Björn hafi roðnað dálítið, þegar hann tók við bréfunmn á svo hlægilegu verði, og var það kannski ekki að ástæðulausu. Bankinn býður 40.000 kr. fyrir sömu bréfin og hann tók fyrir nokkrum mánuðum að veði fyrir einni og hálfrí milljón króna! I þættinum „Spurt og spjall- að“, sem Sigurður Magnússon, fulltrúi, sér um í útvarpinu, var s.l. sunnudag rætt um hlutleysi. Þátttakendur voru Benedikt Gröndal, ritstjóri, Magnús Torfi Ólafsson, ritstjóri, Ásgeir Pét- ursson, deildarst jóri og Þorvarð- ur Örnólfsson, kennari. Því miðuf er ekki rúm hér í blaðinu til að rekja þessar umræður en blaðið getur ekki látið hjá líða að minnast á nokkr- ar fáránlegar fullyrðingar, sem Benedikt Gröndal, ritstjóri Al- þýðublaðsins lét frá sér fara. Benedikt hélt þvi fram, að á Keflavíkurvelli væru aðeins varnartæki geymd en ekkert það sem beita mætti til árása. Nú hefur Bandaríkjastjórn lýst yfir því, að engin vörn sé til önnur en sú að hóta andstæð- ingunum gagnárás og tortím- ingu. Spurningin er því sú.1 Hvor aðilinn lætur hafa sig að fífli, Benedikt eða Bandaríkja-I stjórn? Eða til hvers í ósköpun-j um ættu Bandaríkjamenn að láta sér nægja að hafa hér ein-j göngu varnartæki, þegar engin vörn er til — aðeins gagnárás! Benedikt sagði nokkru síðar, að það væri rangt, að fótgöngu- liðar kæmu að engu gagni í næstu styrjöld. Sjálfur Bertrand Russel hefði gizkað á, að ekki meira en tveir þriðju hlutar mannkynsins myndu farast í heimsstyi'jöld. Benedikt sagði, að þar sem báðir aðiljar myndu auðvitað vilja vinna >rsigur“ í styrjöldinni, yrði sá einn þriðji hluti, sem lifað hefði af, sendur, af stað til að leggja heimsálf- urnar undir sig! í þessum fáu orðum Gröndals speglast Ijóslega alger for- heimskan hernámspostulanna á Islandi. Hann heldur því fram, að þegar Rússland og Bandarík- Frh. á 3. s. Hvað skyldu þeir segja? Einar Olgeirsson og Krist- inn Andrésson eru um þess- ar mundir staddir í Moskvu, en þar fer fram ráðstefna kommúnistaforingja víða að úr lieiminum í tilefni a£ byltingarafmælinu. Utan- stefnur islenzkra stjórnmála- manna á fund yfirboðar.a sinna, leiðtoga stórveldanna eru að verða óþolandi fyrir- brigði, ekki sízt lúxusferðir kommúnista til landanna fyrir austan járntjald, en þar liggja íslenzkir verkalýðsfor- ingjar á baðströndum vikunx og mánuðum saman á kostn- að almennings fyrir austarx tjald. FKJÁLS ÞJÓÐ vill leggja þessa spurningu fyrir Þjóðviljann: Hvað myndi blaðið segja, ef Bjarni Bene- diktsson og Eyjólfur Konráð lægju á Flórídaskaga sleikj- andi sólskinið mánuð eftir mánuð í boði Bandaríkja- stjórnar? 12. nóvember 1960 laugardagur 44. tölublað Jólagetraun Frjálsrar þjóöar Fisksöluhringana á aö leysa upp og svipta þá einokunaraðstöðu 9. árgangur

x

Frjáls þjóð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls þjóð
https://timarit.is/publication/311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.