Mánudagsblaðið - 11.01.1982, Blaðsíða 1

Mánudagsblaðið - 11.01.1982, Blaðsíða 1
MANUDAGSBUDID í Á vegum Jazzballett- skóla Báru, setn hefur starfað í Reykjavík næstum tvo áratugi, er nú unnið að alíslenskri glæsisýningu í ætt við amerísk dans- og söngva “show“, sem marg- ir munu kannast við. Þessi sýning á að heita Jazz-inn en frumsýning verður væntanlega í Gamla bíói, eða íslensku óperunni seint í mars eða apríl, sagði framkvæmdarstjóri fyrir- tækisins, Birgir Gunn- laugsson. Nánar um þetta allt á bls. 3, en myndin að ofan er af Báru í jazzball- ett-hlutverki. A BLS. 3 .Mánudagur 11. janúar 1982, 1. tbl. 32. árg. Verð 7 kr. Á ÁRIALDRAÐRA HEILSULAUSIR H0MMAR-BLS.7 ENN ER KROSSAÐ í GRÍÐ I bréfitil blaðsins segir einn bréfritari: Enn er hamast viö aö krossa aflóga embættismenn fyrir það eitt að hafa mætt ódrukknir til vinnu oftast nær. Raunar virðast allir sem vilja fá orðu. svo fremi að þeir hafi ekki drepið mann svo vitað sé. Sjá bls. 2._ -og spurningin er, hvert renna þessar fjárhæðir? Á meðan gasprarar skreyta ræður sínar á tyllidögum með tungumjúkum en áróðursgildum frösum um „þá sem minnst mega sín“, eða „fólkið, sem lagði grundvöllinn að velferðarrík- inu“, og líka þetta með að „stórbæta þurfí kjör gamla fólksins“, að ekki sé minnst á sjálft „ár aldraðara“ - á Aðstandendur sjúkrar, gamallar konu, greiddu í fnaí sl. 30 þúsund eða 3 milljónir gkr. til að konan yfirhöfuð kæmi til greina sem vistmaður. Konan á engin börn, enga ættingja á lífi, en gamlir kunningjar aðstoða hana. Hún býr ein, og veikindi hennar þess eðlis, að hún þarf nauðsyn- lega á aðstoð að halda. Hún hefur enn ekki fengið vist. Hún er ennþá ein og aðst- oðarþurfi, þrátt fyrir þrjár milljónirnar. Önnur kona átti fast- eign sem var seld og gat hún reitt fram 100 þúsund krónur eða 10 milljónir gkr. til að opna sér leiðina. Upphæðin var væn - hún fékk pláss strax. En hún var orðin lasburða og á áttunda degi frá því að hún flutti inn lést hún. Það gerir á aðra milljón á dag. Gamall Reykvíkingur og þaulkunnugur í félags- málum í borginni segir þessa mútupeninga úr vös- um gamla fólksins renna að einhverju leyti til Hrafn- istu í formi gjafa, en telur meðan áramótaræðumenn og froðu- snakkar stjórnmálanna reyna að milda reiðan almenning með slíkum og þvílíkum silkihúfum, blasir sú staðreynd við, að umrætt gamla fólk kemst ekki einu sinni á elliheimili nema greiða stórfé til að múta þcim, sem þar hafa völdin. sig vita um amk. tvo djúpa vasa, þangað sem drýgsti hlutinn hverfí sporlaust. Svívirðilegt athæfi, sé það rétt. Slagorðin og gasprið duga skammt þegar tylli- dagurinn er liðinn. Þá eru komnir bara venjulegir dagar og þarf að fara að gera eitthvað í málunum. Til þess þarffleiri hæfiieika en mjúkmælgi. Vonandi eru þeir hæfileikar ein- hvers staðar til, þótt djúpt virðist á.

x

Mánudagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.