Tíminn - 28.06.1970, Blaðsíða 1

Tíminn - 28.06.1970, Blaðsíða 1
 142. tbl. — Sunnudagur 28. júní 1970. — 54. árg. Orlofshús B.S.R.B. sem risin eru í landi Munaðarness i Stafholtstungum í Borgarfirði, og til hliðar á er Sigurgeir Ingimarsson byggingameistari, sem hefur með höndum framkvæmdir í Munaðarnesi. (Tímam. Kári) Oriofsheimili B. S. R. B. rísa KJ—Keykjavík, laugardag. í ágúst í fyrra hófust fram kvæmdir við orlofsheimili Banda lags starfsmanna ríkis og bæja j landi Munaðarness : Stafholts- tungum í Borgarfirði, en þarna eiga að rísa 20 orlofshús, aulc samkomuhúss og húsvarðarhúss. Fréttamaður Tímans kom við i Munaðarnesi í vikunni. og skoð aði framkvæmdir ' fylgd Sigur geirs Ingimarssonar byggingameist ara í Borgarnesi, sem hefur með höndum framkvæmdir á staðnum. Sigurgeir sagði að framkvæmdir við húsin hefðu hafizt í ágúst á s.l. ári, og síðan hefur stöðug verið unnið við að koma húsur um upp. Var byr.iað á að gera undirstöður fyrir húsin, en þau voru keypt af fyrirtækinu Hoch| tief, sem hafði með höndum fram; kvæmdir við Straumsvíkurhöfn. Framhaid á bls. 14. Miklar hlaðizt smjörbirgðir haía upp / verkfallinu KJ-Reykjavík, iaugardag. Miklar smjörbirgðir hafa hlað- izt upp hjá mjólkurbúunum á Sel- fossi og í Borgarnesi, vegna þess að mjólkurfr. leyfðu ekki, að nema hluti at venjulegu mjólkur magni færi á markaðinn. Hefur orðið mikið sölutap hjá mjólkur- búunum af þessum sökum, og má vera að þetta komi fram í lægra mjólkurverði til bænda á þessu ári, Til Mjólkurbús Flóamanna á Selfossi bárust 115—120 þúsund lítarar af mjólk á dag verkfalls- dagana, en aðeins 40—50 þúsund lítrar fóru á markaðinn. Varð því að vinna úr afganginum af mjólk- inni — sem var að vísu betri kostur en að hella henni niður — og afleiðingin er sú, að mikið hefur safnazt fyrir af smjöri og öðrum mjólkurafurðum, svo sem undanrennu og osti. Ekki liggur nákvæmlega fyrir hve mikið magn af smjöri hér er um að ræða, en allavega er það vLsir að smjör- fjalli. Til Mjólkursamlags Kaupfélags Borgfirðinga, Borgarnesi, bárust um 35 þúsund lítrar á dag verk fallsdagana, en aðeins um lí þúsund lítrar fóru á markað, ú' afganginum var unnið í mjólkui samlaginu. í Borgarnesi var fyrs og fremst unnið smjör úr mjólk inni, og einnig kasein og fóður I ostur, sem er heldur verðlítill Hefur því safnazt fyrir töluver magn af smjöri í samlaginu. Vegna sölutapsins á mjólk, m jafnvel búast við að verkfallií hafi það í för með sér, að bænd ur fái endanlega lægra verð fyri: Framhald á bls. 14 SJ-Reykjavík, laugardag . í gær kom hingað til lands Karl Vibach, lcikstjóri frá Liibeck í Þýzkalandi, en hann mun stjórna uppfærslu jóla- leikrits Þjóðleikhússins 1970. En það vei'ður leikrit Goethes um Faust. Leikstjórinn hefur hér skamma dvöl að þessu sinni, fer aftur utan á morgun, sunnudag. f kvöld sér hann leikrit Jóhanns Sigurjónssonar, „Mörð 'Talgarðsson“, i Þjóð- leikhúsinu. En erindið hingað að þessu sinni er að ræða um hlutverkaskipun við Þjóðleik- hússtjóra og samstarfsmenn hans, ennfremur að kynnast íslenzkri leiklist og leikurum svo sem unnt er í svo stuttri heimsókn. Við hittum Kar] Vibach að máli í dag, þar sem hann var að ræða við G-uðlaug Rósin- kranz, Þjóðleikhússtjóra og Gísla Alfreðsson, íeikstjóra, og þeir flettu myndabók frá sýn- ingum leikhússins. — Það er erfitt að segja nokkuð um væntanlega sýningu hér & Faust að svo komnu máli. Ég þekki hvorki íslenzka leikara né leiklistarhefð ykkar. Við Þjóðverjar stöndum á gömlum merg hvað snertir sýningar á leikritinu „Faust“. En hér er „Faust“ óplægður akur. Og Vi- bach bætir við glaðlega: — Ég get hugsað mér, að það sé kannski svolítið svipað að setja Faust á svið hér og Pétur Gaut eftir Ibsen í Argentínu. Karl Vibach er nú stjórn- andi þriggja leikhúsa í Liibeek og jafnframt leikstjóri. Hann starfaði með Gustaf Grundgens, sem stjórnaði þeim sýningum á Faust, sem einna frægastar hafa orðið. Þeir sýndu leikritið í fjölmörgum löndum og ann- aðist Vibach þá æfingar nýrra og nýrra dansara og statista á hverjum stað. Hann æfði til dæmis dansatriðin við Faust með blökkumönnum. Vibach stjórnaði sýningu á Faust í Liibech nú í vetur, og hefur hún orðið mjög vin- sæl. f vor fór hann ásamt leikurum frá Liibech í leikferð um Finnland með „DauSadans inn“ eftir Strindberg í búningi Diirrenmatts. Af öðrum leik- ritum, sem hann hefur stjórn- að, má nefna „Fiðlarann á þak inu“, „Betur má ef duga skal“ og .Richard 111“ en hann stjórn \ Framhaild á bls. 14. Sláttur að hefjast í Eyja- firði og undir Eyjafjöllum SB—Reykjavík, laugardag. Fáeinir bændur undir Eyja- fjöllum og I Eyjafirði, eru byrj aðir að slá. Er það með sejnna móti nyrðra, en á svipuðum tíma og venjulega fyrir sunn- an. Ekki er ,'ó búizt við. að sláttur hefjist almennt fyrr en eftir mánaðamótin. Eggert Ólafsson bóndi á Þor valdseyri í A-Eyjafjallahreppi, sagðist vera byrjaður að slá og væri útliíiS bara nokkuð gott. Þar eystra væru nokkrir bændur að oyrja slátt, en ekki hæfist þó sláttur almennt fyrr en um mánaðamótin. Tíð þar eystra hefur verið vœtusöm undanfarið og nú vantar þurrk inn, tjl að verulega vel spretti næsfcu dagana. Stöku bóndi í Eyjafirði er byrjaður að silá þá bletti. sem verið hafa alfriðaðir fyrir á- gangi sauðfjár. Er það heldur í seinna lagi. Það munu ein ungis bændur í Öngulsstaða og Hrafnagilshreppi. sem eru byrj aðir slátt, en aðrir bændur bar munu væntanlega byrja upp úr mánaðamótunum. Nokkuð lengra mun þó líða, áður en sláttur hefst út með firðinum og í héraðinu í heild. „Faust" leikinn í Þjóðleik- húsinu með „beat“-tónlist! <EB—Reykjavík, laugardag. Framkvæmdir við vatnsmi'ðlun ina við Þórisvatn eru nú í þann veginn að hefjast, en sem kunugt er. á að vejta Köldukvísl inn í Þórisvatn, sem síðan verð vatns miðlun fyrir Búrfellsvirkjun. Það er sameignarfyrirtækið „Þórisós" sem sér um framkvæmdirnar, og vinna nú 20 manns þar uppfrá, við að koma fyrir mötuneyti og svefn húsum, en framkvæmdirnar munu hafa taxizt eitthvað vegna verk fallanna. i Páll Hannesson tjáði blaðinu í dag, að framkvæmdirnar hefðust fyrir alvöru um 10. júlí n. k. og er gert ráð fyrir, að þá muni vinna þar yfir 50 manns. Á að ljúka framkvaamdunum vjð vatnsmiðlunina haustið 1971, Þýzkur leikstjóri stjórnar sýningunni en ekki mun verða unnið við þær frá því um miðjan október fram í maí, en hins vegar kvað Páll ráð vera gert fyrir bvi, að urr 80 manns vinni þar aæsta sumar. Þá sagði hann að áætlað væri að kostnaðurinn við framkvæmdjrn ar næmi um 150 millj. kr. og tovað nú menn bjartsýna á, að framkvæmdirnar myndu ganga sem bezt yrði á kosið. F. v.: Gísli AlfreSsson, aðstoðarleikstjori, Karl Vibach, leikstjóri, og Guðlaugur Rósinkranz. (Tímamynd Gunnar) FRAMKVÆMDIR ERU AÐ HEFJAST VIÐ ÞÓRISVATN

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.