Tíminn - 02.10.1970, Blaðsíða 1

Tíminn - 02.10.1970, Blaðsíða 1
* * * * * * * * * * * * * ± m FRYSnKISTUR '~Ií} a-'± FRYSTISKARAR mPMwmmwi B. anHHBsrngn a. slp -am * * * * * * * * * * * ■5^ * * ikill hlátur í Dómkirkjunni EJ-Reykjavík, fimmtudag. Menntaskólinn í Reykjavík (MR), var settur við hátíðlega athöfn í Dómkirkjunni í dag, og setti það nokkum kátínu- svip á athöfnina, að hinn nýi rektor skólans uppgötvaði það, er hann var kominn í ræðustól, að hann hafði gleymt ræðunni. Hljóp hann úr kirkju og náði í ræðuna, en Dómkirkjan ætl- aði að rifna af hlátri þeirra fjölmörgu, sem viðstaddir voru athöfnina. Atkvæðatölur hinna föllnu — í prófkjöri Sjálfstæðis- flokksins í Reykjavík TK—Reykjavík, fimmtudag. f fyrstu lotu birtu Sjálfstæðis- menn í Reykjavík aðeins atkvæða- tölur og röð 12 efstu manna í prófkjörinu, sem fram fór um síðustu helgi. Nú hafa þeir, sem næstir komu þessum 12 knúið Mbl. til að birta atkvæðatölur niður í 16. sætið. Lengra virðast Sjálfstæðismenn ekki vilja ganga, Og opna prófkjörið er sem sagt aðeins opið í annan endann. Tím- inn hleypur hér undir bagganna og birtir atkvæðatölur alira, sem þátt tóku í þessu prófkjöri. Taln- anna varð þó áð afla eftir króka- leiðum. Byrjað er á 13. sæti: 13. Gunnar J. Friðriksson, iðin- rekandi, 2231 atkvæði. 14. Þorsteinn Gíslason. skipstjóri, 2200 atkvæði. 15. Páll S. Pálsson, hrl. 1985 at- kvæði. Framhald á bls. 3 GEIMFARARNIR BEINT OR ÞOTUNNI Á SINFÚNlUTÚNLEIKA I REYKJAVlK OÓ-Reykjavík, fimmtudag. Geimfararnir af Appolo 13, James Lovell, Fred Haise og John Swigert, ásamt eiginkonum hinna fyrrnefndu, komu til Keflavíkur- flugvallar rétt fyrir kl. 7 í kvöld. Hér mun þau dvelja fram á sunnu dagsmorgun, en ferð þeirra til nokkurra Evrópulanda er farin a'ð ósk Nixons Bandaríkjaforseta. Strax eftir komuna til Keflavíkur- flugvallar ávarpaði Gylfi Þ. Gísla- son, menntamálaráðherra, gestina og bauð þá velkomna. Síðan héldu geimfararnir þrír stutt ávörp, og síðan var ekið til Reykjavíkur, og haldið beint á tónleika Sinfóníu- hljómsvetarinnar í Háskólabíói. Geimfararnir komu í þotu sem tilheyrir bandaríska forsetaem- bættinu. Þegar flugvélin stöðvað- ist við flugstöðvanbygginguna opnuðust dyr á henni og við blasti merki Appolo 18. Þegar geimfararnir og konur þeirra gengu niður tröppurnar úr flug- véliniji, klapipaði mannfjöldinn, James Lowell fyrirliSi geimfaranna flytur ávarp á Keflavíkurflugvelli. Hægra megin er eiginkona hans. Á miðr! myndinni eru Haise ásamt eiginkonu sinni og til hægri er Swigert, en hann er ókvæntur. (Tímam. Gunnar) Setja EBE-ríkin lágmarksveri á innfíuttan físk á næstunni? Ætla strax að setja reglur, sem Bretar, Norðmenn, Danir og írar verða að samþykkja EJ—Reykjavík, fimmtudag. Þær þjóðir, sem sótt hafa um aðild að Efnahagsbandalagi Evr ópu, hafa nú vaxandi áhyggjur af þeirri fyrirætlan núverandi EBE-ríkja að ganga frá sameigin legri sjávarútvegsmálastefnu frá 1. nóvember næstkr-mandi, en það mun vera ætlun EBE-ríkjanna að hin nýju aðildarríki verði síð- an að fallast á þær reglur ef þau gerast aðilar. Ýmis ákvæði, sem nú eru til athugunar hjá EBE- ríkjunum, munu skapa vandkvæði fyrir ýmsar þjóðir, bæði þær sem nú hafa sótt um aðild og hinar, sem ekki hyggja á aðild að banda laginu. Að sögn brezka blaðsins The Times. hafa EBE-ríkin ákveðið, að stefnan í sjávarútvegsmálum skuli ákveðin fyrir 1. nóvember næstkomandi, og er þegar vitað um ýmis meginatriði þeirra stefnu. Það sem veldur Bretlandi, Nor egi, Danmörku og írlandi mest- um áhyggjum, er það ákvæði. sein EBE-ríkin hyggjast samþykkja, að eftir fimm ár skuii sérhverjum fiskimanni heimilt að veiða inn- an fiskveiðilögsögu allra aðildar- ríkja bandalagsins. IJpphaflega voru Frakkar þessu andvígir en hafa nú snúið við blaðinu. og nú ■ óttast ríkin fjögur, sem sótt hafa | um aðild, að innan nokkurra ára • streymi togarar Frakklands og annarra ríkja inn i fiskveiðilög- sögu sína og veiði bar að vild. Af öðrum atriðum. sem EBE- ríkin hyggjast samþykkja, er að felldar verði niður allar hömlur á viðskiptum með fisk og fisk- afurðir innan bandaiaigs’ins, og jafnframt, að sett verði lágmarks verð á innfluttan fisk til þess að eiga ekki á hættu innflutning á ódýrum fiski eða fiskafurðum. Einnig er ætlunin að komast að samkomulagi um fjármögnun á endurnýjun fiskiflota aðildar- ríkjanna, en slík endurnýjun er sögð mjög brýn, einkum í Frakk landi og á Ílalíu. EBE-ríkin virðast. hafa há a1 stöðu, að það sé þeirra að ákveða þessa stefnu, en væntanlegra að- i'ldar.ríkja að fallast á hana í einu og öllu. Hins vegar er á það bent, að þetta sé ekki réttlátt, því sú stefna í sjávarútvegsmálum, sem kunni að hæfa núverandi EBE- ríkjum. geti engan veginn hæft 10-ríkja-bandalagi. M. a er bent á það, að núverandi EBE-riki þurfa að flytja inn um 500 þúsund tonn af fiski áriega, en ef ríkin 4 verða aðilar að þandaiaginu, þá mun það freniur þurfa að flytja út fisk en inn. Fyrir íslendinga kann það einn ig að skipta verulegu máli. hvað F!BE i'íkin gera í þessu á næsi unni. sem safnazt hafði þarna saman. Á móti þeim tóku Gylfi Þ. Gísla- son og frú, Replogle ambassador og frú og Pétur Tlhorsteinsson, ráðuneytisstjóri og fleiri embætt ismenn. Gengið var frá flugvélinni í flugstöðvarbygginguna og þar fór fram sfcutt athöfn. Gylfi Þ. Gíslason, ávarpaði geimfaranna og bauð þá velkomna í nafni rikis- stjórnarinnar og íslenzku þjóðar- innar, sem hann kvað mikimi heið ur sýndan með þessari heimsókn. Lovelf, sem var fyrirliði Appolo 13 og er einn reyndasti geimfari heims, sagiðist vera glaður yfir að vera kominn hingað í heimsóbn á vegum Bandaríkjaforseta og vænti þess að heimsóbn þeirra mætti vera til að efla vináttubönd þjóð- anna, og þabbaði hlýjar móttöbur. Þá talaði Haise, en hann og Swigert dvöldu hér á lamdí með fleiri geimförum árið 1067 við jarðfræfðirannsóbnir við Ösbju og víðar. Sagðist hann minnast þeirra stunda með gleði, sem hann dvaldi hér á landi til að undirbúa för til og að leysa verbefni dar sagði hann, að ebbi hann þurft á þeirri jarðfræði þekbingu að halda í för Appolo 13, því þeir lentu aldrei á mán- anum, eins og bannugt er. Swigert sagðist sömuleiðis veira mjög ánægður með að vera kominn til íslands aftur, enda ætti hann ánægjulegar minningar frá dvöl sinni hér fyrir þrem árum. Fjötlmenni þyrptist að er mennta málaráðherra og geimfaramir fluttu ávörp sín, en athöfnin fór fram í þeim hluta flugstöðvar- byggingarinnar, sem eingöngu er ætlað farþegum. Bar þarna vel í veiði hjá farþegum sem staddir voru í Keflavík. Er flugvél geim- faranna lenti, var flugvél frá Pan Amercan á vellinum og rétt á eftir lenti Loftleiðavél, sem var að koma futlfermd farþegum frá Luxemiborg og var á leið til New Yorb. Vantaði því sízt áheyrend- ur, eða öllu heldur áhorfendur er móttöbuathöfnin fór fram. Voru farþegarnir, sem auðsjáan- lega voru flestir Biandarík.ja- menn yfir sig hrifnir að komast í námunda við svo fræga menn og sjá konur þeirra eigin augum. og var mibið klappað eftir ávörp- in, og þúsundir mynda teknar. Þegar geimfararnir gengú út úr byggingunn voru ótal hendur á lofti að reyna að ná dýrmætu handtaki eða að minnsta kosti að koma við het.jurnar. Að athöfninnj Iokinni stigu geimfarar, embættismenn og frúr upp í bíla og var ekið í lögreglu fylgd til Reykjavíkur. Var fyrst haldið að Hótel SögKi, en þax munu geimfaramir n« eiginkonur þeirra búa meðan á dvölinni hér stendur. Á hótelinu rétt gafst tímí til að skipta um föt og síð- an hlupu gestirnir út í Háskóla- bíó til að hlusta á fyrri hluta tónleika Sinfóníuhlj ómsveitarion- ar._ Á sunnudagsmorgun kl. 10 fara eeimfararnir áleiðis til Sviss.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.