Fréttablaðið - 13.06.2003, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Suðurgötu 10, 101 Reykjavík — sími 515 7500
Tónlist 26
Leikhús 26
Myndlist 26
Bíó 30
Íþróttir 18
Sjónvarp 32
KVÖLDIÐ Í KVÖLD
PERSÓNAN
Mikill
fjölskyldumaður
FÖSTUDAGUR
13. júní 2003 – 131. tölublað – 3. árgangur
bls. 39
BÆKUR
Hillary
er indæl
bls. 24
STA Ð R EY N D UM
MEST
LESNA DAGBLAÐIÐ
Samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallup í mars/apríl 2003
22,1%
52,3%
61,7%
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
M
O
R
G
U
N
B
LA
Ð
IÐ
D
V
REYKJAVÍK Fremur hæg
austlæg eða breytileg átt.
Skýjað með köflum og stöku
skúrir. Hiti 9-16 stig.
VEÐRIÐ Í DAG
+
+
VINDUR ÚRKOMA HITI
Ísafjörður 10-15 Skýjað 11
Akureyri 5-10 Skúrir 10
Egilsstaðir 5-10 Súld 10
Vestmannaeyjar 3-8 Skúrir 13
➜
➜
➜
➜
+
+
FÓLK
Bubbi
byggir
SÍÐA 30
MAÐURINN
Kaupsýslu-
maður
og þjálfari
SÍÐA 16
Númi mætir Val
FÓTBOLTI Níu leikir fara fram í 32
liða úrslitum Visa-bikarkeppni
karla í fótbolta. Huginn tekur á
móti ÍA á Seyðisfirði klukkan 18,
en hinir átta leikirnir hefjast
klukkan 19.15. Þá mætir m.a.
þriðju deildar lið Núma Val,
Njarðvík tekur á móti Þrótti,
Fram mætir ÍR og KR sækir HK
heim. Einn leikur verður í bikar-
keppni kvenna. Fjölnir tekur á
móti ÍR klukkan 20.
Flugdrekagerð í
Árbæjarsafni
NÁMSKEIÐ Árbæjarsafn býður upp
á stutt námskeið fyrir foreldra og
börn, eða afa og ömmu og barna-
börn, í flugdrekagerð. Ætlast er til
að börn komi í fylgd með fullorðn-
um. Námskeiðið stendur frá klukk-
an 13 til 16.
Bjartir dagar
í Firðinum
TÓNLEIKAR Hnúkaþeyr spilar á
Björtum dögum í Hafnarfirði.
Blásaraoktettinn skipa Ármann
Helgason og Rúnar Óskarsson á
klarinett, Eydís Franzdóttir og Pet-
ar Topkins á óbó, Anna Sigur-
björnsdóttir og Ella Vala Ármanns-
dóttir á horn, Darri Mikaelsson og
Kristín Mjöll Jakobsdóttir á fagott.
Tónleikarnir eru í Hafnarfjarðar-
kirkju og hefjast klukkan 20.
Þitt
eintakbirta
um reimleika í reykjavíkmagnús skarphéðinsson
hjátrú ● persónuleikapróf
Magnús Skarphéðinsson:
▲
fylgir Fréttablaðinu dag
Draugar í
Reykjavík
birta
UTANRÍKISMÁL Umtöluðu bréfi Dav-
íðs Oddssonar forsætisráðherra
til George Bush Bandaríkjafor-
seta um varnarliðsmálið var varp-
að á vegg á rúmlega klukkustund-
arlöngum fundi utanríkismála-
nefndar síðdegis í gær.
Efni bréfsins er leynilegt og
sagði Steingrímur J. Sigfússon,
formaður Vinstri grænna, það til
marks um mikilvægi þess. „Við
vorum upplýst um atriði í
samskiptum íslenskra og banda-
rískra stjórnvalda á undangengn-
um vikum sem ég tel mikilvæg.
Það segir í lögum að samráð skuli
haft með nefndinni um mikilvæg
utanríkismál. Þarna er augljós-
lega um mikilvægt mál að ræða,
enda eru þetta samskipti milli
æðstu ráðamanna þjóðanna.“
Steingrímur mótmælti því
harðlega á fundinum að ekki hafi
verið haft lögboðið samráð með
utanríkismálanefnd um málið, þar
sem nefndinni var sýnt bréfið
degi eftir að því var veitt viðtaka
og gafst ekki tækifæri til að veita
ráðgjöf um málið. Halldór Ás-
grímsson utanríkisráðherra sagði
fullt samráð hafa átt sér stað, hins
vegar hafi ekki verið unnt að kalla
nefndina saman fyrr þar sem for-
maður og varaformaður voru er-
lendis, auk hans sjálfs.
Stjórnvöld bíða nú viðbragða
Bandaríkjamanna við bréfi Dav-
íðs og kvaðst Halldór búast við
viðræðum landanna tveggja á
næstunni. ■
SAMRÁÐ EFTIR Á
Steingrímur J. Sigfússon gagnrýndi Halldór
Ásgrímsson utanríkisráðherra harðlega á
fundi utanríkismálanefndar fyrir að hafa
ekki lögboðið samráð með nefndinni. Hall-
dór sagði fundinn vera samráð.
Davíðsbréfið til Bush:
Þingmönnum gert að þegja
FÉHIRÐIR Stjórnendur Símans
sögðu í gær frá fjárdráttarmáli
Sveinbjörns Kristjánssonar, fyrr-
verandi aðalféhirðis. Komið er á
daginn að á fjögurra ára tímabili
dró Sveinbjörn sér
250 milljónir króna
en reyndar er talið
hugsanlegt að
meira eigi eftir að
koma í ljós. Þetta
er langstærsta mál
sinnar tegundar
sem komið hefur
upp hérlendis. Jón
H. Snorrason, yfirmaður efna-
hagsbrotadeildar Ríkislögreglu-
stjóra, staðfesti það í samtali við
Fréttablaðið.
Alls dró Sveinbjörn 250 millj-
ónir úr rekstri Landssímans. Þar
af fóru 130 milljónir til Alvöru
lífsins, sem er í eigu Kristjáns Ra
Kristjánssonar, bróður Svein-
björns, og Árna Þórs Vigfússonar,
sem báðir hafa tengst Skjáeinum.
Auk þess að draga sér fé stóð
Sveinbjörn í ýmsum vafasömum
einkaviðskiptum.
Brynjólfur Bjarnason, forstjóri
Landssímans, segir að Sveinbjörn
hafi meðal annars átt í viðskiptum
við Skjá einn. Frá ágúst til október
1999 lagði Sveinbjörn þrjár
greiðslur inn á reikning Íslenska
sjónvarpsfélagsins, samtals 25
milljónir króna. Í árslok 1999 var
þessi upphæð endurgreidd.
Um mitt ár 2000 keypti Svein-
björn víxil af Burnham á 42 millj-
ónir króna. Sá víxill var greiddur
á gjalddaga 30. nóvember 2000.
Víxillinn var keyptur í nafni
Landssímans, sem Sveinbirni var
óheimilt að gera án samþykkis
síns yfirmanns. Árið 2001 var
gerð upp skuld við Íslenska sjón-
varpsfélagið að upphæð 18,6
milljónir.
Refsiramminn vegna fjárdrátt-
ar eða fjársvika gerir ráð fyrir
fangelsi í allt að sex ár. Þyngsti
dómur sem kveðinn hefur verið
upp í slíku máli hérlendis kvað á
um tveggja og hálfs árs fangelsis.
Þar var um að ræða mann sem
falsaði nöfn fólks á skuldabréf og
sveik út nokkrar milljónir króna.
Vatnsberinn svokallaði, sem sveik
út háar fjárhæðir í formi virðis-
aukaskatts, fékk tveggja ára fang-
elsi rétt eins og Árni Johnsen al-
þingismaður, sem sveik út um
fjórar milljónir króna.
Mál Sveinbjörns aðalgjaldkera
felur í sér margfalt hærri upp-
hæðir en þarna er um að ræða,
auk þess sem um alvarlegt trúnað-
arbrot er að ræða í starfi. Ein-
beittur brotavilji hans og langvar-
andi fjárdráttur geta orðið til þess
að þyngja enn dóminn.
Sjá nánar bls. 8
hrs@frettabladid.is
rt@frettabladid.is
LANDSSÍMINN
Aðalgjaldkerinn dró sér 250 milljónir á
árabilinu 1999-2003.
Mesti fjárdráttur sögunnar
Sveinbjörn Kristjánsson, aðalféhirðir Símans, dró sér 250 milljónir. Hámarksrefsing er
sex ára fangelsi. Þyngsti dómur sem felldur hefur verið fyrir fjársvik er tvö og hálft ár.
■
Refsiramminn
vegna fjár-
dráttar eða
fjársvika gerir
ráð fyrir fang-
elsi í allt að
sex ár.
Bandaríkin:
Gregory
Peck látinn
BANDARÍKIN, AP Bandaríski leikarinn
og Óskarsverðlaunahafinn Gregory
Peck er látinn 87 ára að aldri. Hann
lést á heimili sínu
í Los Angeles á
m i ð v i k u d a g s -
kvöldið.
Peck er lík-
lega þekktastur
fyrir leik sinn í
myndinni To Kill
a Mockingbird,
sem kom út árið
1962. Peck hlaut
Óskarsverðlaun-
in fyrir leik sinn í
þeirri mynd, en auk þess var hann
tilnefndur fjórum sinnum til verð-
launanna. Á meðal annarra mynda
sem Peck lék í eru: Gentleman’s
Agreement, The Guns of Navarone
og The Boys From Brazil.
Peck var giftur Veronique
Passani og eignaðist fimm börn.
Fjögur þeirra eru á lífi. ■
GREGORY PECK
Peck er líklega
þekktastur fyrir leik
sinn í myndinni To
Kill a Mockingbird.
Í ÓLGUSJÓ
Ung stúlka hvolfdi kajaknum sínum á siglinganámskeiði í Nauthólsvíkinni í gær. Engin hætta var á ferðum enda stúlkan nálægt landi.
Hún var fljótlega dregin upp í árabát.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M