Fréttablaðið - 20.10.2003, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 20.10.2003, Blaðsíða 4
4 20. október 2003 MÁNUDAGUR Finnst þér rétt að lækka áfengis- kaupaaldur niður í 18 ár? Spurning dagsins í dag: Er staða útvarpsstjóra óþörf? Niðurstöður gærdagsins á www.frett.is 37% 63% Nei Já Kjörkassinn Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun frétt.is ■ Írak BANGKOK, AP George Bush, forseti Bandaríkjanna, neitar að til standi að ráðast inn í Norður-Kóreu. Bush neitaði þó að skrifa undir griða- sáttmála við Norður-Kóreu og úti- loka þannig að hvorugt ríkið ráðist á hitt. Bush er staddur á fundi með leiðtogum Asíuríkja í Taílandi þar sem meðal annars er rætt um leið- ir til þess að minnka spennuna milli Bandaríkjanna og Norður- Kóreu. Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, stakk upp á annars konar sáttmála til þess að koma til móts við stjórnvöld í Norður- Kóreu. „Við erum tilbúnir til þess að koma á fót einhvers konar sam- komulagi við þá, til þess að veita þeim þá tryggingu sem þeir eru að leita eftir,“ sagði Powell. Norður-Kórea hefur lýst því yfir að kjarnorkuáætlun þeirra sé einungis milli Bandaríkjanna og þeirra. Eina leiðin til þess að koma í veg fyrir uppbyggingu kjarn- orkuáætlunar í landinu sé að Bandaríkin skrifi undir griða- samning og komið verði á fót frið- samlegum samskiptum milli land- anna. ■ Erfðaþættir tengj- ast krabbameini VÍSINDI Niðurstöður viðamikillar rannsóknar Íslenskrar erfða- greiningar benda til að sterkir erfðaþættir tengist krabbameini og flytji aukna áhættu á myndun krabbameins á milli kynslóða. Þessar upplýsingar komu fram á kynningafundi Íslenskrar erfða- greiningar í gær. Kári Stefánsson forstjóri sagði á fundinum að á Íslandi væru einstakar aðstæður til að rannsaka ættlægni og erfðafræði krabbameina. „Ís- lendingabók er al- gjör grundvöllur að þessum rann- sóknum því við getum þá tengt saman fólk sem er mjög fjarskylt. Í því liggur sérstaða okkar. Eðli algengra sjúkdóma eins og krabbameins er að þeir geta hoppað yfir kyn- slóðir. Það er það sem gerir þá erfiða því það fá ekki allir sem eru með breytanleikan í erfðavís- inum sjúkdóminn. Kári upplýsti að áhætta og skyldleiki allra krabbameins- gerða hafi verið metin, bæði inn hverrar fyrir sig og á milli mis- mundandi krabbameinsgerða. Þannig hafi vísindamenn fyrir- tækisins rannsakað 30.000 tilfelli krabbameins af 80 mismundandi gerðum. Í ljós kom að áhættan virðist ekki bundin við eina teg- und krabbameins heldur virðist áhætta á mörgum mismunandi gerðum krabbameins aukin bæði hjá náskyldum og fjarskuldum ættingjum krabbameinssjúk- linga. Hann benti á til skýringar að náin ættingi manns með krabbamein í blöðruhálsi reynd- ist vera í aukinni áhættu á að fá krabbameinið í nýrum, svo dæmi sé tekið. Vísindamenn Íslenskrar erfðagreiningar munu halda áfram rannsóknum sínum á tengslum krabbameins á milli kynslóða. Kári taldi of snemmt að segja til um það hvenær þess- ar rannsóknir kæmu okkur bein- línis að notum en ekki varlega ályktað ættu börn þeirrar kyn- slóðar sem nú er að vinna að þessum rannsóknum að geta nýtt sér þær. „Vonandi einhver tíma innan örfárra ára verður komin greiningartæki sem spáð getur fyrir um það hvað líkur eru á því að menn fái hin ýmsu krabba- mein. Ef svo er þá er hægt að fylgjast með og grípa inn í fljótt. Því eins og stendur er það besta aðferðin til að koma í veg fyrir að menn falli fyrir krabbameini. Síðan þegar árin líða er ég hand- viss um að við eigum eftir að þróa lyf sem koma í veg fyrir að tilhneiging verði að krabba- meini,“ sagði Kári. ■ NÝR BÚNAÐUR Talið er að ríkisstofnanir og fyrirtæki muni nýta sér nýja hugbúnaðinn til þess að reyna að koma í veg fyrir að trúnaðarupp- lýsingar leki út. Microsoft kynnir nýjung: Tölvupóstur sem eyðist TÖLVUMÁL Í nýjustu útgáfu af Microsoft Office hugbúnaðinum er mögulegt að stilla tölvupóst- sendingar þannig að pósturinn sem sendur er eyðileggist sjálf- krafa eftir ákveðinn tíma. Er þetta hugsað sem öryggis- ventill þegar verið er að senda viðkvæmar upplýsingar á milli tölva. Talið er að ríkisstofnanir og fyrirtæki muni nýta sér þetta til þess að reyna að koma í veg fyrir að trúnaðarupplýsingar leki út. Notendur hugbúnaðarins munu einnig geta stillt hugbúnaðinn þannig að aðeins ákveðnir aðilar geti lesið tölvupóst. Einnig er hægt að stilla búnaðinn þannig að ekki sé hægt að framsenda tölvu- póst eða prenta upplýsingarnar sem í honum eru. ■ PERES OG SHAATH Shimon Peres, fyrrverandi forsetisráðherra Ísraels, ræddi við Nabil Shaath, utanríkis- ráðherra Pakistan. Samskipti Ísraels og Pakistans: Hvatt til opinnar umræðu ISLAMABAD, AP Shimon Peres, fyrr- um forsætisráðherra Ísraels, hvatti í gær pakistönsk stjórnvöld til þess að opna umræðu um að bæta samskipti þjóðanna. Peres vísaði því algjörlega á bug að ísraelsk stjórnvöld aðstoð- uðu indverska herinn til þess að berjast gegn pakistönskum skæruliðum í héraðinu Kasmír, eins og haldið hefur verið fram í pakistönskum fjölmiðlum. „Pakistan er ekki óvinur okk- ar,“ sagði Peres. „Ég neita því al- gjörlega. Ísrael tekur ekki þátt í átökunum í Kasmír. ■ Alltaf ód‡rast á netinu Breytanlegur farseðill! Verð á mann frá 19.500 kr. ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S I C E 22 35 0 1 0/ 20 03 AUGA LUNDÚNA Parísarhjól Kínverja verður næstum helm- ingi stærra en Lundúnaaugað, stærsta par- ísarhjól heims í dag. Þvermál þess er 132 metrar en hjól Kínverjanna verður 210 metrar í þvermál. Kína: Risa parísar- hjól PEKÍNG, AP Kínverjar ætla að reisa heimsins stærsta parísarhjól. Það verðru byggt í Pekíng í tengslum við Ólympíuleikana sem haldnir verða í borginni árið 2008. París- arhjól Pekíngbúa verður 210 metrar í þvermál og getur sam- tímis flutt 720 farþega. Til samanburðar er þvermál parísarhjóla Lundúna, „Auga Lundúna“ aðeins 132 metrar í þvermál. Byrjað verður að reisa hjólið árið 2007 og er áætlaður kostnað- ur um 100 milljónir dollara eða nálægt 7,7 milljörðum króna. ■ FYRIRSÁT VERÐUR TVEIMUR AÐ BANA Tveir bandarískir hermenn voru drepnir og einn særðist í fyrirsáti norður af Bagdad í gær. RÁÐIST Á BÍLALEST Ráðist var á bílalest bandaríska hersins í Fallujah með þeim afleiðingum að nokkur farartæki sprungu í loft upp. Engin meiðsl er talin hafa orðið á fólki. HANDSPRENGJUÁRÁS Þrír Írakar létust í handsprengjuárás sem beint var gegn bandarískum her- mönnum í Hawija norður af Bagdad. Bush útilokar griðasáttmála við Norður-Kóreu: Neitar að til standi að ráðast á landið BUSH Í TAÍLANDI George Bush Bandaríkjaforseti er staddur í Taílandi á ráðstefnu ásamt leiðtogum Asíu- ríkja. Meðal umræðuefna er spennan milli Bandaríkjanna og Norður-Kóreu. Íslendingabók er forsenda fyrir rannsóknum sem benda til að erfþættir krabbameins flytji aukna áhættu á milli kynslóða. Vonanst er til að inn- an fárra ára verði komin tæki sem spá um líkur á krabbameini. TENGSL Á MILLI MISMUNANDI TEGUNDA KRABBAMEINS Ættingi þess sem fær krabbamein í blöðruhálsi getur verið í aukinni áhættu á að fá krabbamein í nýru. ■ Í ljós kom að áhættan virðist ekki bundin við eina tegund krabbameins MÚSAFARALDUR „Það eru vandræði með mýs alls staðar á landinu, mikið meira en vanalegt er,“ seg- ir Jóhannes Þór Ólafsson, fram- kvæmdastjóri Meindýravarna Suðurlands. Jóhannes segir að þar sem síð- asti vetur var mildur voru afföll músa lítil og stór stofn lifði af veturinn. Þá hefur líka einstak- lega góð fræ- og kornuppskera í sumar mikið að segja því það er þeirra aðalfæða og um leið valda þær uppskerunni miklum skaða. Hann segir að núna kvarti fólk sérstaklega mikið yfir því að mýsnar fari í bílana og skem- mi þá mikið. Þær eyðileggi raf- kerfið, fari í klæðninguna, sætin og hanskahólfið. Mýsnar koma líka inn í hýbýli fólks í ætisleit. Jóhannes segir að þeir vinni mikið á músunum með eitri en líka með ýmsum tólum og tækj- um. „Hér á Selfossi er ég með einu verslunina sem að sérhæfir sig í meindýravörnum hér á landi.“ Hann telur að veturinn eigi eftir að vera mjög slæmur. „Hins vegar ef veturinn verður mildur og góður verður fólk lítið vart við músagang sem verður þá enn meiri á næsta ári.“ ■ Mikið að gera hjá meindýraeyðum: Músafaraldur eftir mildan vetur MÚS Stór músastofn lifði veturinn af .

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.