Tíminn - 04.10.1972, Blaðsíða 1

Tíminn - 04.10.1972, Blaðsíða 1
GOÐI 'fyrir gónun mat JQ/tö£iaYv«/a/i. A/ RAFTÆKJADEILD Hafnarstræti 23 Símar 18395 & 86500 Myndin var tekin um helgina, af höföanum, sem er sunnan viö Reykjahlíö, og þarna sér austur yfir hraunið á milli Stórugjáar og Varmholts. Námafjall í baksýn og þar vestan viö Bjarnarflag meö rjiik- andi gufuholum. (Tlmamynd: Kári) LEYNIST STÓR HELLIR I JÖRÐU VIÐ REYKJAHLÍD ? KJ-ltcykjavik Miklar líkur eru taldar á því, að steinsnar frá byggðinni i Reykja- hlíð viö Mývatn, sé stór og mikill hellir, nánar til tekið i hrauninu austan við Stórugjá. Mývetningar segja, að jarðfræðingar telji hellinn ná frá Stórugjá og upp undir Varmholt, en það þýðir, að liann getur verið allt að einn kíló- metri á lengd. Slikir hellar sem þessi eru viða i hraunum landsins, en ekki viða eins nálægt byggð eins og þessi Mývatnshellir, sem mætti kannski kalla svo. Það styður einkum tilgátur jarðfræðinganna um tilveru hellis þessa að á einum stað er hellisþakið fallið niður, þótt hvergi hafi samt fundizt manngengt op á hellinum. Ef áhugi væfiá, mætti sjálfsagt ganga úr skugga um tilveru Séra Jóhann Hlíðar skipaður prestur i Nesprestakalli Iíómsmálaráðherra skipaði I gær nýjan prest i Nesprestakalli, séra Jóhann Illiðar. Séra Jóhann hcfur verið prestur i Vestmanna c.vjum i tæp tuttugu ár. Séra Jóhann Hliðar hellisins en til þess þarf krana og jafnvel ýtu, þvi mikil björg þarf að fjarlægja. bað hefði sjálfsagt mikið að- dráttarafl fyrir ferðamenn,. ef hellirinn yrði opnaður og enn myndi bætast við undur Mývatns- sveitar. Menn hafa látið sér detta i hug, að i botni hellisins væri heitt vatn, likt og i Grjótagjá, en ekki mun sú tilgáta eiga sér marga fylgismenn, sökum þess hve hátt hellirinn liggur. Ef hins vegar svo vildi til, að á botni hellisins væri heitt vatn, hefði hellirinn stör- kostlegt aðdráttarafl fyrir ferða- menn, bæði innlenda og erlenda. Sagt er, að margir ferðist landið þvert og endilangt eingöngu til að fá sér bað i Grjótagjá og ekki væri þá óliklegt að menn myndu fara milli landa til að fá sér bað i mörg hundruð metra laug, sem væri neðan jarðar, ef þess væri kostur. „ÞIÐ EIGIÐ MARGA VINI í NOREGI" Æskulýðsfylkingin, sem barðist gegn inngöngu Norðmanna i EBE var leyst upp i siðustu viku að unnum sigri. Á lokafundinum var ungum Vinstriflokksmönnum fal- ið að kalla saman fulltrúa æsku- lýðsfélaga þeirra, sem að bar- áttufylkingunni höfðu staðið, i þvi skyni að stofna nefnd til liðsinnis við lslendinga i landhelgismál- inu. Þessi nefnd mun siðan halda áfram þeim stuðningi við ts- lendinga, sem baráttusamtökin gegn inngöngu Norðmanna i EBE hóf, og verður markmið nefndar- innar að vinna að þvi, að norsk stjórnarvöld taki eindregna af- stöðu með íslendingum i land- helgismálinu. „Ykkar kunna aö biða erfiðleikar”, segir i bréfi frá Æskulýðssamtökunum til Tim- ans,” en þið getið treyst þvi, að þið eigið marga vini i Noregi”. Lóðabelgurinn kominn til landsöfnunar fullur af peningum með kærri kveðju fró Höfn Klp-Reykjavik i húsakynnum landhelgis- söfnunarinnar á Laugavegi 13 er nú lóöabelgur, sem hefur gegnt hlutverki, er mun gera hann frægan. Mcð hann gengu félagar úr Ijónaklúbhnum á Höfn í Horna- firði um heimabæ sinn siðasta laugardag i septembermánuði og söfnuðu i hann sextiu þúsund krónum. Um kvöldið var dans- leikur haldinn i Sindrabæ og bætt- ust þá Við fjörutiu þúsund krónur, svo að alls urðu það hundrað þús- und krónur, er Hornfirðingar létu af höndum rakna i lands- söfnunina þennan dag. Þetta er ákaflega myndarlega gert af Hornfirðingum. En fleiri hafa verið örlátir við landhelgis- sjóð, Meðal annars hafa söfnun- inni borizt 100 þúsund krónur frá Hafnarfjarðarbæ og 50 þúsund krónur frá hreppsnefnd Borgar- neshrepps. Starfsfólk Samvinnu- bankans og Andvöku sendi 35 þúsund krónur, Iðja, félag verk- smiðjufólks á Akureyri 25þúsund og Verkalýðs- og sjómannafélag Gerðahrepps 20 þúsund krónur. Þá sendu fjórir einstaklingar á Akranesi 41 þúsund krónur til skrifstofunnar og þangað komu einnig i gær þrir einfetaklingar með 5 þúsund krónur hvor. BREZKA NEFNDIN KEMUR í DAG KJ-Reykjavik — fcg geri ráð fyrir aö sam- komulagsviðræður við Breta hefjist I ráðherrabústaðnum á fimmtudagsmorguninn, sagði llans G. Andersen þjóðréttar- fræðingur i viðtali við Timann i gær, er blaðamaður spurðist fyrir um væntanlegar viðræður is- lendinga og Breta. Hans G. Andersen sagði, aö Brezka sendinefndin kæmi til landsins i dag, að forystumaöur hennar yröi Keeble, sem er yfir- maður efnahagsmáladeildar brezka utanrikisráöuneytisins. Af öörum nefndarmönnum má nefna Pooley, sem gegnir nú störfum ráðuneytisstjóra i sjávarútvegs- Skipting hand- ritanna hafin Annar fundur nefndar þeirrar, sem ákveður hvernig islenzku handritunum i Arnasafni verður skipt milli Islendinga og Dana, hófst i Reykjavik i gærmorgun. Mun fundurinn standa i þrjá daga. h’yrsti fundurinn var haldinn i Kaupmannahöfn og fóru þar fram viðræður um tilhögun siðari funda og skiptingu handritanna. En með þeim fundi, sem nú stendur, er hin eiginlega skipting hafin. Af hálfu Islendinga sitja i nefndinni Jónas Kristjánsson, forstöðumaður Handritastofnun- arinnar og Ólafur Halldórsson, handritafræðingur, sem er i nefndinni i forföllum Magnúsar Más: Lárussonar rektors. Danirnir eru prófessor Westergaard-Nielsen. og Ole Winding, forstöðumaður Arnasafns i Kaupmannahöfn. ráðuneytinu, Elliott úr sam- göngumálaráöuneytinu og Hud- son.forseta samtaka brezkra tog- araeigenda. Þá veröa nokkrír að- stoöarmenn með i förinni, en alls verða i sendinefndinni 6-7 menn. Akveöiö er, að i islenzku viö- ræöunefndinni veröi Þeir Hans G. Andersen þjóöréttarfræöingur, Jón Arnalds, ráðuneytisstjóri i sjávarútvegsráðuneytinu, og Már Elisson.forstjóri Fiskifélagsins. I gær var óráðið hverjir fleiri verða i samninganefnd íslendinga. Hans G. Andersen sagöist búast við, að fundir þessara embættis- mannanefnda stæðu I 2-3 daga. Islendingar efstir í B-flokki ÞÓ-Reykjavik lslenzka skáksveitin á ólympiumótinu i skák I Skoplje I Júgóslaviu stendur sig vel i B- flokki. Eftir sex umferöir eru Is- lendingarnir efstir i sinum flokki með 16 1/2 vinning. Næstir koma Kanadamenn meö 16 vinninga, Englendingar meö 15 1/2 og eina biðskák og Norðmenn eru meö 15 vinninga. t sjöttu umferö tefldi islenzka sveitin við Belgiumenn. Guö- mundur Sigurjónsson gerði jafn- tefli við Boey, Björn Þorsteinsson tapaði fyrir Van Seters, Magnús Sólmundarson vann Kornelis og Ólafur Magnússon vann Beyenn. Sem sagt 2 1/2 — 1 1/2 fyrir Is- land. I A-flokki eru Júgóslavar efstir með 17 vinninga og Sovétrikin koma næst með 15 1/2 Jón Asgeirsson, forstöðumaður landssöfnunar, með lóðabelginn frá Höfn. A hann er letruð kveðja og árnaðaróskir frá Hornfirðingum. TIMAMYND : GE.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.