Tíminn - 06.03.1973, Blaðsíða 1

Tíminn - 06.03.1973, Blaðsíða 1
HQTEL WnLEHJIR] FUNDARSALIR Hótel Loftleiðir" miðast við þarfir alþiððaráðsfefna og þinga, þar sem þýða þarf ræður manna jafnharðan á ýmis tungumál. LITID A SALARKYNNI HOTELS LOFTLEIÐA — EINHVER ÞEIRRA MUN FULLNÆGJA ÞORFUAA YÐAR. Ólafur Jóhannesson forsætisráðherra: ÞJOÐIN KVEÐUR UPP DOM í LOK KJÖRTÍMABILSINS Tillaga Sjálfstæðismanna um þingrof og nýjar kosningar er eintóm sýndarmennska Leifar fjárhússins sem snjóflóöiö féll á i Kristjánskiauf á Sauöárkróki á sunnudag, en þar fórust 18 kindur, og má sjá skrokkana I forgrunni. Snjóflóö hafa aldrei falliö á Sauöárkróki áöur, svo aö vitaö sé. Ljósmynd Stefán Pedersen Fé og hross grófust í snjó á Sauðárkróki — 3 strákar sátu á fyllunni, en sluppu ómeiddir GÓ, Sauðárkróki. — A sunnu- daginn féli snjóflóö á Sauöár- króki, þar sem heitir Kristjáns- klauf. Þar eru allmörg penings- hús, bæöi yfir hross og fé, og lenti snjóflóöiö á fjárhúsi f eigu Sveins Nikódemussonar og braut þaö. Þar inni voru 36 kindur, 28 full- orönar, 6 gemlingar og 2 lömb, sem fæddust 13. okt. i haust. 17 ær drápust strax og annaö litla lambiö, en hinn helmingurinn slapp litt eöa ekki skaöaður. Þetta geröist rétt fyrir hádegi og var Sveinn þá fyrir skömmu farinn frá húsunum, en óvist er hver afdrif hans heföu oröiö, heföi hann enn veriö þar aö gegningum er snjóflóöiö féll. Er skaöi hans tilfinnanlegur aö missa 17 ær á bezta aldri. Við fjárhúsin var hlaöa meö um 60hestum af heyi og brotnaöi hún lika, er snjóflóöiö skall yfir, m.a. brotnaöi þakiö og er nú heyiö á kafi i snjóflóöinu. Rétt hjá fjárhúsunum var hest- húskofi, sem flóöiö lenti einnig á og braut. Þar inni voru 2 tryppi á fyrsta og öörum vetri. Grófust Jjau bæöi i snjóflóöinu en náöust ur þvi skömmu slöar, bæöi ómeidd. Flóöið lenti einnig á þriöja húsinu, — þar sem inni voru hross-og skekkti þaö veru- lega. Menn muna ekki til aö snjóflóö hafi áöur falliö á Sauöárkróki. Þar var á laugardaginn ofsa- veöur af vestri og suövestri meö mikilli snjókomu. Hefur þá bariö saman þá fönn I Kristjánsklauf, sem daginn eftir sprakk svo fram, en flóöiö átti sér ekki langan aödraganda, eöa þaö byrjaöi um 30 metrum fyrir ofan fjárhúsin. Þá má ekki gleyma því aö þrir strákar voru aö leika sér I snjónum, þar sem fyllan sprakk fram. Sátu þeir á henni alla leiöina niöur, en hún sprakk ekki sundur fyrr en þangaö kom. Hefur þaö vafalitiö oröiö þeim til lifs, því aö heföi fyllan sprungiö á framskriöinu, heföu þeir vafa- laust grafizt I henni. Drengirnir eru á aldrinum 9-13 ára og hafa þarna fengiö sérstæöa sleöaferö. Haraldur og Nixon ræddu um eldgosið KJ, Reykjavik — A föstudaginn afhenti Haraldur Kröyer ný- skipaöur sendiherra tslands I Bandarikjunum Nixon Banda- rikjaforseta trúnaöarbréf sitt. Við þaö tækifæri ræddu sendi- herrann og forsetinn sameiginleg mál íslands og Bandarikjanna, og einnig var rætt um Heima- eyjargosiö. í þvi sambandi sagöi Nixon forseti m.a.: „Viö höfum áhyggjufullir fylgzt meö náttúru- hamförunum, sem fólkiö I Vest- mannaeyjum hefur oröiö fyrir baröinu á, og viö vonum, aö eld- gosinu á Heimaey ljúki sem fyrst, og eyjabúar geti snúiö til heim- kynna sinna. Jafnframt munum viö halda áfram aö gera þaö sem viö getum til aöstoöar undir þessum kringumstæöum”. EJ, Reykjavik. „Þessi þingsályktunar- tillaga Sjálfstæðis- manna um þingrof og nýjar kosningar er ein- ber sýndarmennska, sem flanað er að i fljót- ræði, og það á þeim tima, er mestu varðar, að þjóðin standi sem bezt saman um sin stóru mál, bæði út á við og inn á við. Fátt væri fráleit- ara en að fara að stofna til harðvitugrar ; kosningabaráttu ein mitt nú, enda till. sjálf sagt flutt i trausti þess, að hún verði ekki tekin of alvarlega,,’ — sagði ólafur Jóhannesson, forsætisráðherra, i út- varpsumræðunum um vantrauststillögur Sjálf- stæðisflokksins i gær- kvöldi. Forsætisráöherra sagöi aö þaö dytti „auövitaö engum i hug i alvöru, aö stjórnarflokkarnir hverfi frá hálfunnu verki — eöa raunar vel þaö — aö hálfnuöu kjörtimabili. Núverandi stjórn- arflokkar fengu ótviræöan meiri hluta i siöustu Alþingiskosning- um. Þeir geröu meö sér itarlegan málefnasamning, er byggöur var Framhald á bls. 19 Hafréttar- ráðstefnan undirbúin 1 GÆR, 5. marz, hófst I New York fundur undirbúningsnefndar haf- réttarráöstefnu Sameinuöu þjóö- anna. Mun nefndin sitja aö störfum til 6. aprll n.k. Sendinefnd Islands á fundi nefndarinnar skipa: Hans G. Andersen sendiherra, formaöur, Haraldur Kröyer sendiherra, fastafulltrúi Islands hjá Sameinuöu þjóöunum. Jón Arnalds ráöuneytisstjóri, Már Elísson fiskimálastjóri, dr. Gunnar G. Schram, varafasta- fulltrúi Islands hjá Sameinuöu þjóöunum og fulltrúar þingfiokk- anna, Benedikt Gröndal alþm., Gils Guömundsson alþm., Haraldur Henrýsson dómara-, fulltrúi, Þór Vilhjálmsson prófessor og Þórarinn Þórarins- son. alþm., Búið að brýna klippurnar: Skoríð aftan úr 4 brezk- um togurum ÞÓ.Reykjavík. — islenzku varö- skipin hófu aðgeröir gegn erlendum togurum aö nýju I gær eftir nær sex vikna hlé, en sem kunnugt er hafa varðskipin veriö mjög bundin viö Vestmannaeyjar aö undanförnu vegna náttúru- hamfaranna þar. Varöskipiö Ægir klippti sundur vir fyrsta togarans i gærmorgun, og f gær klippti Ægir vlra tveggja togara til viöbótar og óöinn klippti sundur forvfr eins togara. Allir voru þessir togarar aö veiöum 30- 40 sjómllur noröur og norö- austur af Rauöanúpi á Melrakka- sléttu. Varöskipin komu aö 29 brezkum togurum aö veiöum úti af Melrakkasléttu I gærmorgun, og togurunum til aðstoöar voru dráttarbáturinn Statesman og aöstoöarskipiö Miranda. Varö- skipin bentu togurunum á, aö þeir væru viö ólöglegar veiðar og skipuöu þeim aö halda út fyrir 50 sjómilna mörkin. Þegar þessar viövaranir báru ekki árangur, voru klippurnar settar út og rétt fyrir klukkan tiu skar Ægir á forvir togarans Ross Resolution GY 427, þar sem togarinn var aö veiöum 37 sjómílur noröur af Rauöanúpi á Sléttu. Siöan gerist þaö um klukkan 15.42, aö Ægir sker á afturvir togarans Port Valve GY 484, en sá togari var á veiöum 32 sjómilur frá Rauöanúpi. Hafstein Hafsteinsson, blaöa- fulltrúi Landhelgisgæzlunnar, sagöi i gærkvöldi, aö likur væru taldar á, aö varöskip heföi skoriöá forvirRoss Khartum GY 120 á svipuðum tima. A svipuöum tima skar varö- skipiö Óöinn á forvir brezka togarans William Wilberforce GY 140, en hann var viö veiðar 40 milur noröaustur af Rauöanúp. Þaö viröist ekki bera á ööru en klippur varöskipanna hafi verið vel brýndar þann tima, sem þær voru úr notkun vegna ástandsins I Vestmannaeyjum, en nú er búiö aö klippa sundur vira 23 togara. Þar af eru tuttugu brezkir, en hin- ir v-þýzkir.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.