Tíminn - 24.03.1973, Blaðsíða 1

Tíminn - 24.03.1973, Blaðsíða 1
„Hótel Loftlelðir býður gestum stnum að velja á mllli 217 herbergja með 434 rúmun — en gestum standa Itka tbúðir til boða. Allur búnaður mlðast við strangar kröfur vandlátra. LOFTLEIÐAGESTUM LIÐUR VEL. 4 WOTELLOFTŒIÐtR Loftmyndin sýnir vel hrauniö sem braust fram á Heimaey f fyrrinótt. Ofarlega til hægri er nýja sjiikrahúsiö, (Tfmamynd Kári) MEIRA EN 70HÚS GRÓFUST UNDIR HRAUN r A HEIAAAEY Menn urðu að forða sér á hlaupum undan hrauninu KJ-Reykjavík. — Viö urðum að hafa okkur alla við til að geta bjargað dæl- unum og pípunum, sem lágu upp á garðinn, og stundum varð maður bók- staflega að hlaupa undan hrauninu, sem skreið yfir hvert húsið á fætur öðru, sagði einn af starfs- mönnum Viðlagasjóðs við fréttamann Tímans i Vest- mannaeyjum í gærmorgun. — Þetta byrjaði svo um munaði um klukkan átta, eða þegar fólkið var að fara í kirkjuna, en mesta hraunskriðið mun hafa verið á milli klukkan þrjú og sex í morgun. Hraunið kveikti í hverju húsinu á fætur öðru, og á tímabili var þetta eitt ægilegt eld- haf yfir að líta, en hraunið skreið stöðugt fram, og færði logandi húsin á kaf hvert á fætur öðru, sagði Erlingur ísleifsson frá Sól- heimum í Mýrdal. Tveggja mánaða Það er eins og gosið á Heimaey hafi viljað minna eftirminnilega á, að tveir mánuðir voru i fyrri- nótt frá þvi jarðeldarnir á Heima- ey brutust út, og einmitt nákvæmlega á tveggja mánaða afmælinu var atgangurinn i hrauninu hvað mestur. Menn i Eyjum sögðu frétta- manni Timans i gær, að strax á fimmtudagsmorguninn hefði mátt greina, að eitthvað mikið var i aðsigi. Hraunstraumurinn jókst þá, og var hraunið mjög þunnt. Hraunfylla mun hafa safnazt saman norðan við giginn, og sprengdi hún siðan hraunið fram, með þeim afleiðingum að um 70 hús fóru á kaf. Alls er þá talið, að um niutiu hús hafi farið undir hraunið frá þvi það tók að skriða fram um siðustu helgi. Áður var talið, að rúmlega hundrað hús væru komin undir hraun og ösku, svo tala þeirra húsa, sem nú eru komin á kaf, er eitthvað á þriðja hundrað. Hraunbrúnin nær nú yfir austasta hluta Urðarvegar og Bakkastigs og nær að Heimagötu á milli Landagötu og Grænu- hliðar, en þar er það komið einna vestast i bæinn. Frá Heimagötu liggur hraunbrúnin i suð-austur og y.fir Austur- veg og Kirkjubæjarbraut. Þarna skammt frá er nýja sjúkra- húsið i Eyjum, og eru vart nema rúmir eitt hundraö metrar á milli hraunkantsins og þessarar nýju og glæsilegu byggingar sem ekki var einu sinni búið að taka i notkun að fullu. Hraunkanturinn er meira en tiu metra hár að jafnaði, og i honum eru viða stór björg, sem oltið hafa fram og malað húsin undir sér. Fyrir tveim dögum var byrjað að gera garð , sem liggja átti frá syðri hafnargarðinum og upp i hliðar Helgafells og sögðu sjónar- vottar i Eyjum, að garðurinn hefði ekki veitt hrauninu neina Framhald á bls. 10 Vestmannaeyingar kaupa hrað- frystihús Júpíters og Marz ÍSFÉLAG Vestmannaeyja hefur fest kaup á hrað- frystihúsi Tryggva ófeigssonar á Kirkjusandi, og er kaupverðið tvö hundruð milljónir króna. Fleiri fyrir- tæki hafa að undanförnu átt i samningaumleitunum við Tryggva um kaup á hraðfrystihúsinu, en nú hefur endanlega verið frá því gengið, að ísfélagið nær kaup- unum. isfélag Vestmannaeyja á langa sögu að baki, sem næralltafturtil aldamóta, og hefur verið mjög samof- in sögu atvinnuþróunar í Eyjum. Framkvæmdastjóri þess er Einar Sigurjónsson. Um langt skeið hefur ísfélagið rekið frystihús í Eyjum með miklum myndarbrag, og var búið að færa það að öllu leyti í það horf, sem frekast er krafizt sam- kvæmt hinum nýju reglum, er settar hafa verið um hreinlæti og aðbúnað, áður en eldgosið hófst. Það var meðal afkastamestu frystihúsa og eitt þeirra, sem hvað mest hefur flutt út af frystum þorskblökkum. JH

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.