Tíminn - 29.03.1973, Blaðsíða 1

Tíminn - 29.03.1973, Blaðsíða 1
WOTEL mLEMHR „Hótel Loftlelðlr býður gestum slnum að velja á mllll 217 herbergja með 434 rúmun — en gestum standa lika Ibúðir til boða. Allur búnaður miðast við strangar kröfur vandlátra. LOFTLEIÐAGESTUM LIÐUR VEL. V / Meirihluti aflans hjá tveim brezkum togurum smáfiskur „Dæmi um veiðar eins og þær eiga ekki að vera" sagði Ingvar Hallgrímsson fiskifræðingur ÞÖ, Reykjavík. — Miklar deilur urðu í Grimsby í gær, þegar togararnir Ross Revenge GY 718 og Prince Philip GY 138 voru 'búnir að landa afla sin- um. Ross Revenge land- aði 390 lestum af þorski og þar af voru 280 lestir ókynþroska smáþorskur. Af afla Prince Philip reyndust 160 lestir vera ókynþroska smáfiskur. Þegar þetta varð ljóst, lét Jón Olgeirsson umboðsmaður is- lenzkra togara i Bretlandi, hafa það eftir sér, að það væri meðal annars af þessari ástæðu, sem Islendingar hefðu fært út land- helgina i 50 sjómilur. Jack Evans, formaður brezkra togaraskipstjóra, sagði, að ummæli Jóns væru al- gjör þvættingur. A sumum mið- um fengist ekki annar fiskur, og að auki yrði þorskurinn ekki öllu eldri á sumum miöunum viö Is- land. Vegna þessa leitaði Timinn til Landhelgisgæzlunnar og fékk upplýst hvar togararnir hefðu aðallega haldið sig að veiðum i siðustu veiðiferð. Kom i ljós, að Ross Revenge hafði verið norð- ur af Rauðanúpi dagana 9.-11. marz, en þar fékk hann litinn frið fyrir varðskipunum. Á timabilinu frá 14.-20. marz var vitað um báða togarana á veið- um á Hornál og á Kögurgrunni, og voru þar þá engin islenzk skip. Þá leituöum við til Ingvars Haiigrimssonar fiskifræðings og báöum hann að segja álit sitt á þessu máli. Hann sagði, að sem kunnugt væri, þá væru mikil smáfisksvæði úti af Mel- rakkasléttu og islenzkir fiski- fræðingar hefðu oftar cn einu sinni reynt að fá þetta svæði friðiýst fyrir botnvörpu, en án árangurs. Ingvar sagði ennfremur, að siðla vetrar og snemma á vor- in gengi smár og ókynþroska Hér sjáum viö togarann Ross Revenge GY 718. Þessi stdri togari hét áður Freyr RE 1. Þessi togari var seldur til Bretlands ekki löngu eftir aö hann kom til landsins. Syst- urskip Ross Revenge er togarinn Siguröur og sá togari hefur verið einn sá aflasælasti þorskur oft á miðin við norð- anverða Vestfirði. Þessi fiskur cr yfirleitt ekki eldri en þriggja til sjö ára, og er þvi ekki orðinn kynþroska. — „Þetta er dæmi um veiðar eins og þær eiga ekki að ■ vera”, sagði Ingvar. Ilann sagði ennfremur, aö það væri löngu kunnugt, að Bretar veiddu óhemju smá- eigu tslendinga. fisks á islandsmiöum. Árið 1966 hefðu Brctar veitt 30% af þvi bolfiskmagni, sem veiðzt hefði við tsland. En ekki væri öll sagan sögð. Bretar hefðu veitt meira en helming þeirra fiska að tólu til sem fengjust hér við land og á þessu sæist hvilik rányrkja þaö væri, sem brezkir sjómenn stunduðu á tslandsmiðum. STÖÐUGT er unnið viö brúarsmiðina á Skeiðarársandi, og er þarna um mikil mannvirki aö ræða. Eins og sjá má á myndinni er hér um að ræða stálbitabrýr á steyptum undirstöðum. Bráðabirgðabrú var gerð á Núpsvötn, meðan á brúarsmiöinni stendur, en þegar brýrnar verða fullgerðar, verður Núpsvötnum og Súlu veitt saman undir brúna á myndinni (Tlmamynd EV) Takmarkinu er náð Loðnuaflinn 400 þúsund lestir — Guðmundur með 15 þús. ÞÓ, Reykjavík. — „Nú er takmarkinu nóö. Við vor- umbúnir að segja, að við myndum ekki yfirgefa bækistöðvar okkar fyrr en hei Idarloðnua f linn væri kominn í fjögur hundruð þúsund smólestir, og nú getum við slegið því föstu, að heildaraflinn sé kominn nokkurtonn umfram það", sagði einn mannanna i Loðnulöndunarnefnd, er við ræddum við hann í gær Hann sagði ennfremur, að þeir i nefndinni hefðu reyndar verið hálfhræddir við þetta verkefni, sem þeim var falið i fyrstu. — En við höfum reynt, að sigla milli skers og báru, og reynt aö gera okkar bezta, sagði hann. Það geta vist allir verið sammála þessum nefndarmanni, þvi að öllum ber saman um, að Loðnulöndunar- lefndhefur fyllilega staðið i stykk- inu, og sú ákvörðun nefndarinnar, að grei&a háa flutningsstyrki til fjarlægra hafna, hefur ugglaust orðið til þess, að mun meira loðnumagn barst á land, en heföi orðið, ef sama verð hefði verið til allra staða á landinu, hvort sem siglingin hefði tekið einn tima eða einn sólarhring. I fyrstu voru greiddar 1.96 krónur fyrir hvert kiló loönu upp úr sjó, en siöan lækkaði það nokk- uð. Fyrir hvert loðnukiló, sem fór til frystingar voru greiddar sjö krónur, og ofan á hvert kiló var greitt mismunandi mikið i flutningsgjald. Er þvi óhætt að áætla, að verömæti loðnunnar nemi að þessu sinni 800 milljónum króna. Gert er ráð fyrir, aö þegar búið er að vinna loðnuna, þá verði hún helmingi verðmeiri, og ætti þvi útflutningsverðmæti loðnuaf- urða ekki að vera undir 1700-1800 milljónum að þessu sinni. Sæmileg loðnuveiði var við Reykjanes og öndverðanes f gær. Vitaö var um Gisla Arna á leið til lands með 320 tonn, Pétur Jóns- son með 340 tonn, Óskar Magnús- son var kominn með 400 tonn er siðast var vitaö og Eldborg var langt komin með að fylla sig. Aflahæsti loðnubáturinn Guð- mundur RE 29 landaði 630 tonn- um á Siglufirði i gær, þegar bát- urinn var búinn að landa þvi magni, vantaöi hann aðeins tvö tonn i 15.000 tonnin að sögn Páls annars eiganda bátsins. Dælur og 2 km, afpípum á leið til Eyja KJ-Reykjavik Hægt og sigandi veltur hrauniö I Vestmannaeyj- um fram, en jafnframt er á leiö- inni til Eyja mikill dælubúnaður, sem fenginn var frá Bandarfkjun- um. Fjórðungur búnaðarins er þegar kominn til Eyja, og fariö að nota hann, en afgangurinn kemur með skipi frá Keflavik I dag, svo það verður varla fyrr en undir eöa um helgina sem fullur kraftur veröur kominn á dælinguna. Fiskvinnsluhús Isfélagsins og Fiskiðjunnar eru nú í mikilli hættu, og var unnið að þvf i gær, að flytja allt lauslegt sem eftir var úr húsunum. Þegar sýnt þótti, að hraunið myndi þá og þegar ná að Vél- skólanum, var farið i það að bjarga vélum og áhöldum úr skólanum. Fyrir harðfylgi tókst að bjarga gamalli og merkilegri vél úr skólanum, áður en hann brann. Eldur komst f húsiö Borgarhól siðari hluta dags i gær, og þannig brenna þau eitt af öðru húsin, sem eru suður af fisk- vinnslustöðvunum upp af Naust- hamarsbryggju. Flutningaskipið Suðri tók dælurnar og pipurnar, sem komu flugleiðis, og var búizt við skipinu til Eyja i morgun. Alls hafa komið 32dælur frá Bandarikjunum, og i fyrri nótt komu 2 kilómetrar af leiðslum til að nota við dælurnar.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.