Tíminn - 25.06.1974, Blaðsíða 7

Tíminn - 25.06.1974, Blaðsíða 7
Þriöjudagur 25. júni 1974. TÍMINN 7 A föstudagskvöldið kl. 21. verður kosningaskemmtun Fram- sóknarmanna i Valaskjálf á Egilsstöðum. Avörp flytja Halldór Asgrimsson og Eysteinn Jónsson. Karl Einarsson flytur skemmtiþátt. Hljómsveitin Æsir leikur fyrir dansi. Fjölmennið á þessa kosningaskemmtun B-listans á Austurlandi. Kosningaskemmtun í Valaskjdlf r Kosningasjóður Tekið er á móti fjárframlögum i kosningasjóð á skrifstofum B-listans. J Kosningaskrifstofur B-listans í Reykjaneskjördæmi Kjós: Möðruvöllum, simi um sBrúarland. Kjalarnes: Móum, simi um Brúarland. Mosfellssveit: Helgafelli, simi 66211. Seltjarnarnes: Lindarbraut 2, simi 28305. Kópavogur: Neðstatröð 4, simi 41590. ( Kosningastjóri: Helga Jónsdóttir. Garðahreppur: Goðatúni 2, simi 43911. Hafnarfjöröur: Strandgötu 33, simi 51819. Kosningastjóri: Ágúst B. Karlsson. Vogar: Aragerði 7, simi 6565. Njarðvik: Holtsgötu 1, simi 3045. Keflavik: Austurgötu 26, simi 1070. Kosningastjóri: Kristinn Danivaldsson. Sandgerði: Suðurgötu 38, simi 7407. Grindavík: Vikurbraut 34, simi 8111. Dalvík og Svarfaðardalur Kosningaskrifstofa B-listans fyrir Dalvik og Svarfaðardal verð- ur i Dalsmynni. Skrifstofan verður opin alla daga til kjördags frá kl. 5-7 og 8-10 e.h. Simi 6-14-51. Kosningastjóri Björn Danielsson. Kosningaskrifstofa á kjördag verður i Vikurröst. Simi 6-14- 51. Kosningaskrifstofa í Hveragerði Kosningaskrifstofa Framsóknarflokksins i Hveragerði er i gömlu simstöðinnLHún verður opin frá klukkan 13 til 22 fram að ^ kosningum. Síminn er 44 33_______________j Norðurlandskjördæmi vestra A Hofsósi þriðjudaginn 25. júni kl. 20:30. Skrifstofa d Húsavík Skrifstofa Framsóknarflokksins á Húsavik er að Garðarsbraut 5, II. hæð. Hún er opin daglega frá kl. 17 til 19 og 20. til 22. Simi 4-14-54. Stuðningsfólk B-listans er beðið að koma, eða hafa sam- band við skrifstofuna og veita upplýsingar. Viðtalstímar Patreksfirði Frambjóðendur Framsóknarflokksins I Vestfjarðakjördæmi verða til viðtals á kosningaskrifstofu flokksins Aðalstræti 15. Patreksfirði kl. 21 til 23 sem hér segir: 26. júni Steingrimur Hermannsson og Bogi Þórðarson 27. júni Steingrimur Hermannsson og Ólafur Þórðarson 28. júni Ólafur Þórðarson og Bogi Þórðarson r r Islandsmið handa Islendingum x B GEÐ- VEIKUR OG ÞVÍ ÓSAK- HÆFUR — dæmdur til öryggisgæzlu ÞANN 20. þ.m. var kveðinn upp i sakadómi Reykjavikur dómur i máli, sem höfðað var af ákæru- valdsins hálfu gegn Guðmundi Arnari Sigurjónssyni , Rauðarárstig 40 hér i borg. Mál þetta var höfðað með ákæruskjali saksóknara rikisins, dagsettu 7 f.m. gegn ákærða fyrir að hafa orðiö móður sinni Ólafiu Jóns- dóttur að bana með hnif á heimili þeirra hinn 26. desember s.l. Akærði hafði verið sjúklingur á Kleppsspitalanum annað veifið um langt árabil, og var leitað álits spitalans um geðheilbrigði hans og sakhæfi. Samkvæmt vottorði spitalans er ákærði geð- veikur og ósakhæfur. Málið var lagt fyrir læknaráð íslands, og staðfesti það niðurstöður þessa. Akærði hefur alla tið neitað að skýra frá málsatvikum, en hann var talinn sannur að sök um að hafa svipt móður sina lifi. Það var álit dómsins, að ákærði væri ósakhæfur, og var honum þvi ekki gerð refsing i málinu, en dæmdur til að sæta öryggisgæzlu ótima- bundið. Af hálfu ákæruvaldsins var þess krafizt, að ákærði verði sviptur erfðarétti eftir móður sina. Dómurinn hafnaði þessari kröfu á þeirri forsendu, að ákærði hefði verið ófær um að stjórna gerðum sinum, er hann vann framangreindan verknað. Dóm þennan kváðu udd saka- dómararnir Gunnlaugur Briem sem dómsformaður Jón A Ólafs- son og Haraldur Henrysson. Sækjandi málsins var Hall- varður Einvarðsson, aðalfulltrúi saksóknara, og verjandi Egill Sigurgeirsson hrl. Skotmenn ágengir SJ—Reykjavlk. — Lög- reglunni á Selfossi hafa undanfarna daga borizt kvartanir vegna skotmanna, sem fara um lönd bænda og styggja fugl og sel. Mest brögð eru að þessu i Sel- voginum, Þoriákshöfn og sveitum og þorpum þar austur af. Athygli skal vakin á þvi að óleyfiiegt er að fara um lönd manna með skot- vopn i óleyfi, og er slikt að vonum illa séð. Skcthrið á selveiðistað getur valdið bændum verulegu tjóni nú um veiðitimann. Fimm Islenzkar fuglategundir mun mega skjóta allt árið, en frá mannúðlegu sjónarmiði má vafasamt telja, hvort rétt er að leggja jafnvel þessa fugla að velli um varptimann. Fyrstir á morgnana óskast í dag og næstu daga Hafið samband við skrifstofuna á Rauðarárstíg 18 — Sími 2-82-61 Félag ungra framsóknarmanna Listaverkamarkaður — Rýmingarsala Nú er tækifæri að fá mikið fyrir litið. Þennan mánuð verða seld málverk, eftir- prentanir, bækur og listmunir, ennfremur ýmis húsgögn á ótrúlega lágu verði. Allt á að seljast. Opið frá kl. 2-6. Lokað á laugardögum. Málverkasalan Týsgötu 3 — Simi 1-76-02. Ellefu ára drengur óskar eftir plássi i sveit, sem matvinnung- ur. Upplýsingar i sima 7-26-33. Verksmiðju-útsala Útsalan stendur út þessa viku. Mikill afsláttur af öllum vörum. Opið 9-6, föstudag 9-10 siðdegis. Prjónastoia Kristinar Nvlendugötu 10. BILAVARA- HLUTIR NOTAÐIR VARAHLUTIR FLESTAR GERÐIR ELDRI BÍLÁ T.d. vélar, girkassar, drif i Benz ’59-’64, Opel ’62-’66, Moskvitch ’59-’69, Vauxhall Viva, Vauxhall Victor, og flest annað i eldri teg. bila, t.d. hurðir og boddihlutir i miklu úrvali. Ýmislegt i jeppa. BÍLAPARTASALAN Höfðatúni 10, simi 11397. Opið frá kl. 9-7 alla virka daga og 9-5 laugardaga.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.