Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 07.03.1966, Blaðsíða 1

Mánudagsblaðið - 07.03.1966, Blaðsíða 1
■/ 18. árgangur. Mánudagur 7. rnarz 1966 8. tölublað. Róttækar breytingar á borgarstjórn- arframbo&i Sjálfstæðisflokksins? Mikill undirbuníngur — Hörð keppní — Sigurði Magnússyni sparkað? — Miklar bollaleggingar standa yfir um þessar mundir varð- andi framboðslista Sjálfstæðismanna í borgarstjórnar- kosningunum, sem ekki eru langt undan. Mun Geir vilja vanda mjög til liðsins nú og talið víst að einum eða tveim fulltrúum verði sparkað af listanum eða settir í vonlaust saeti en aðrir láti af störfum fyrir elli sakir. Vissulega mun ákveðið að sparka Sigurði Magnússyni og talið er að Gróa Pétursdóttir muni hætta. Þá hefur verið skimað eftir líklegu fólki til vinsælda en allt þar er enn í óvissu. ÓLÁNSFERILL SIGURBAR MAGNtJSSONAR Ferill Sigurðar Magnússonar í borgarstjórn hefur verið Sjálfstæðisflokknum í senn til skapraunar, bölvunar og fylgis- taps. Sigurður hefur æ komið fram til úlfúðar og notað hvert tækifæri og áhrif til að koma borgarbúum í einhver vand- ræði eða óhagræði. Hann er forustumaður að vitleysunni um lofcun, upphafsmaður „sölugat- anna“ illræmdu og annars þess sem hinum almenna borgara má verst koma. Hefur sá armur flokksins, sem skilur atkvæða- emölun, löngum haft horn í síðu' Sigurðar. LIÐSMENN OG ÓVINIR Geir mun sjálfur vera að koma sér upp einskonar innra hring, snaran hóp tryggra fylg- ismanna, sem hann getur treyst. Ku þar vera einna fremstur for- ustumaður í Heimdalli, tryggur og myndarlegur piltur, áhuga- maður um mannvirðingar. List- inn, eins og hann var, hefur vakið nokkrar deilur enda hafa margij. þar verið heldur at- kvæðalitlir í baráttu við harð- snúna andstæðinga einkum Ein- ar Ágústsson, sem verið hefur all-óvæginn i ádeilum sínum á borgarstjórnina, vel máli far- inn og réttsýnismaður. Hefur mest mætt á Geir að vera til varnar en hinir liðsmenn held- ur linir. KOST OG LÖST Það þykir vitað, að barátt- an framundan verður bæði hörð og óvægin. Óleyst verkefni eru æðimörg og kröfurnar æ há- værari um meiri framkvæmdir. Geir og flokkur lians geta þó Sýna má perlufestar með ýmsu móti. bent á ærið margt sem unnið hefur verið á síðasta kjörtíma- bili hans. Gatnagerðin hefur stóraukizt og verið til mikils sóma, 'byggingarmálin eru á hraðri leið upp á við, örlítið hefur dregið úr alvaldi borgar- innar í ýmsum rekstri og ein- staklingum og fyrirtækjum gef- in nokkur tækifæri. Þá hefur og tekizt vel í ýmsum öðrum greinum, þótt enn sé mörgu á- bótavant. Óskiljanlegt sam- starfsleysi hefur verið milli hinna einstöku framkvæmda- deilda borbarinnar og frámuna- legur klaufaskapur og athug- unarleysi hefur kostað borgar- búa off jár. UNDIRBtJNINGUR Nú er verið að undirbúa leik inn af miklum krafti og innan skamms mun Mánudagsblaðið ræða einstakar framkvæmdir, jákvæðar og neikvæðar, sem um verlur deilt. Þá verður og geró grein fyrir framboðum og öðru eins og gert hefur verið undan- farin ár. Flugmenn mótmæla — segjast órétti beittir Hæstvirti fjármálaráðherra. Við undirrituð, flugliðar hjá Loftleiðum h.f., leyfum okkur að mótmæla mismuni þeim, sem gerður er á farmönnum á skip- um og loftföi-um í ákvæðum hinnar nýju tollareglugerðar. Teljum við á okkur hallað í þessu máli, og krefjumst þess að fullt jafnrétti verði látið ríkja í þessum efnum milli þess ara tveggja stétta farmanna. Álit okkar er, að magn það af tollfrjálsum varningi, sem sjómönnum verður leyft að flytja inn í landið á hverjum tuttugu dögum, sé talsvert meira en okkur verður leyfi- legt að hafa með á sama tíma. Þá álítum við og, að með hinni nýju reglugerð verði brotin á okkur hefð, þar eð hingað til hefur okkur leyfzt að flytja með okkur einn kassa (24 fl.j af sterku öli í stað áfengis, sem reglugerðin nýja gerir ekki ráð fyrir, að slíkt verði leyft. Hvað varðar eftirlit með því, að rétt magn áfengis verði flutt inn á tilskildu tímabili (sbr. reglugerðina), þá álítum við það einfalt framkvæmdaat- riði, sem leysa mætti auðveld- lega, t.d. á þann hátt að hver flugliði bæri á sér litla kvit.t- anabók, sem tollverðir bókuðu í. Nokkrar flugáhafnir Loft- leiða eru nú í þjálfun í Kanada og geta því ekki ritað hér und- ir, en við álítum, að okkar orð séu einnig þeirra. Virðingarfyllst, Nöfnum sleppt. Utlendingar gerðir að fífíum Aulaspurningar útvarpsins um álit á landinu Hve lengi á það að líðast að erlendir gestir séu dregnir upp í útvarpið okkar, algjörlega varnarlausir og beinlínis skip- að að segja álit sitt á landi og þjóð? Hvernig geta menn, sem setið hafa hnípnir yfir taflborði hér í Reykjavík, djúpt sokknir í taflleiki, látið nokkra skoðun í ljós varðandi þjóð og land? Þessar spurningar eru vissu- lega tímalegar. Þessi aðferð við þessa erlendu gesti er ná- kvæmlega sú sama og ef manni væri boðið í kvöldverð hjá ó- í kunnu fólki og spurður álits á húsgögnum eða herbergjaskip- an. Hann er, samkvæmt venju- j legum umgengnisvenjum, nauð- beygður til þess að segja, að allt sé fagurt og blessað — ella kallaður dóni. Það er dálítið kjánalegt þeg- ar útvarpið — og stundum blöð in — fara að yfirheyra þetta saklausa fólk, og vitanlega er ákaflega takmarkað mark tek- ið á þessum yfirlýsingum. Gall- inn er bara sá, að þær eru svo barnalegar af okkar hendi, sem spyrjum, að brosað er að af- káraskap okkar í laumi. Það væri ekki óheppilegt að leyfa þessu „fræga“ fólki að dvelja hér a.m.k. mánuð áður en það myndar sér endanlega skoðun um Iand og þjóð. Upplausn og hasar í ^jóðleikhúsinu Leiharar vilja lengri æfingatíma, bætt vinnu- skilyrði — bóhmenntaráðunaut og aðrar um- bætur. Blaðið fréttifyrir skömmu, að leikarar Þjóðleikhúss- ins hefðu gert all-harðar samþykktir í garð Þjóðleik- hússins og komið þeim á framfæri við Þjóðleikhússtjóra, sem kallaði fund s.l. miðvikudag með leikarafélagi Þjóð- leikhússins. Leikarar kurruðu illa í samþykfctum sínum, kröfðust m.a. lengri æfingatíma, bókmenntaráðunauts, ýmissa lag- færinga við starfið. Var hiti í þeim allmikill, enda þykj- ast þeir búa við kröpp kjör. Sannleikurinn er sá, að hvað æfingar snertir er tíminn oftast ófullnægjandi, sem auð- séð er á frumsýningum. Bókmenntir hafa annazt jöfr- arnir andlegu Vilhjálmur Þ. Gíslason, sérdeilis vel menntur leikhúsmaður og Laxness, sem nú hefur tvö stykki í bígerð, bæði sennilega á heimsmælikvarða ef ekki meira. Endanlega hefur úrskurðarvald legið hjá Þjóðleikhússtjóra, enda nauðsynlegt, því í manna minn- um hefur hvorugur hinna mætu sérmenntuðu leikhús- manna skilað áliti sínu á þeim verkum, sem þeim hefur verið falið að lesa og dæma. Verður ekki annað séð, en að í þessum efnum hafi leikarar nokkurt kvabb-efni. Neyðaróp Alþýðublaðsins Þeir fáu, sem fylgjast með fréttum Alþýðublaðsins hafa veitt því athygli, að undan- farnar vikur hefur sí og æ verið að birta fréttir um rík- isstyrk handa dagblöðum Noregs. Fréttir þessar vekja hvergi athygli nema á síðum Alþýðublaðsins. Þeir, sem kunnugir þykj- ast málum telja þetta ósköp sfciljanlegt. Benedikt Grön- dal, sem er aðal-„fréttamað- urinn“ í þessu máli er orð- inn svo uggandi um hag blaðsins, að hann telur enga von um framtíð þess, komi ríkið því ekki til hjálpar. Blaðinu hefur gengið illa, allt frá því Gísli Ástþórsson fór frá því, en hann hafði komið því talsvert upp á við. Margir færustu blaðamenn- irnir hafa horfið burtu en óvanir komið í sum skörðin, þótt blaðið eigi enn mörgum ágætismönnum á að skipa m.a. einum bezta bókmennta- gagnrýnanda dagblaðanna, Ólafi Jónssyni. Það er því sannarlega neyðaróp, sem blaðið rekur nú upp og alls endis óvíst nema það verði að hætta sem dagblað og koma út t.d. þrisvar í viku til að halda sér á floti. Barnaleikritið Ferftin til Limbó hefur nú verið sýnt la sinnum í Þjóðleikhúsinu og alltaf fyrir fullu liúsi. Næsta sýning verð- ur á sunnudag kl. 3. — Myndin er af Arna Tr.vggvasyni, Valdi- mar Lárussyni og Ómari Ragnarssyni í lilutverkum sínum.

x

Mánudagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.