Fréttablaðið - 15.05.2006, Blaðsíða 10
10 15. maí 2006 MÁNUDAGUR
TÍMI TIL AÐ LÆKKA LEIKSKÓLAGJÖLD
UM 25% 1. SEPTEMBER 2006 OG AÐ
FORELDRAR GREIÐI ALDREI FYRIR
FLEIRI EN EITT BARN Á LEIKSKÓLA
SAMTÍMIS
Fjölskyldustefna Sjálfstæðisflokksins
og önnur stefnumál á betriborg.is
Vefsíðugerð framhald
Námskeið ætlað þeim sem vilja halda áfram og bæta við kunnáttu
sína og getu við gerð faglegra vefsvæða. Ásamt kennslu á forritið
Dreamweaver kynnast nemendur gagnagrunnstengdum vefsvæðum.
Farið er stuttlega í gerð gagnagrunnstaflna með Microsoft Access
og hvernig tengja má vefsíður við gagnagrunna.
Einnig er farið í notkun CSS stíla
fyrir vefsíðugerð.
Námskeið þetta hentar vel þeim
nemendum sem tekið hafa Vefsíðugerð
grunn, grunnnámskeið í Dreamweaver
eða hafa sambærilega þekkingu eða
undirstöðu.
Lengd: 36 stundir. Hefst 17. maí og
lýkur 31. maí.Verð kr. 39.000,-
V E F S M Í Ð I
Faxafen 10 • 108 Reykjavík • Sími: 544 2210 • www.tsk.is • skoli@tsk.is
Íbúafjöldi 1. des. 2004:
5.655 - 1. des. 2005: 5.782
ÚRSLIT KOSNINGANNA 2002:
Fjöldi íbúa á kjörskrá: 3.950
Fjöldi greiddra atkvæða: 3.067 (77,6%)
Fjöldi fulltrúa í bæjarstjórn: 9
Listi Framsóknarflokksins (B)
767 atkvæði - 2 fulltrúar
Listi Sjálfstæðisflokksins (D)
1.034 atkvæði - 4 fulltrúar
Akraneslistinn -
Listi Samfylkingarinnar (S)
956 atkvæði - 3 fulltrúar
Listi Vinstrihreyfingarinnar
græns framboðs (U)
197 atkvæði - 0 fulltrúar
Í meirihlutasamstarfi kjörtímabilið 2002-
2006 eru Akraneslisti - Listi Samfylking-
arinnar (S) og Framsóknarflokkur (B).
Bæjarfulltrúar B-lista:
Guðmundur Páll Jónsson
Magnús Guðmundsson
Bæjarfulltrúar D-lista:
Gunnar Sigurðsson
Guðrún Elsa Gunnarsdóttir
Jón Gunnlaugsson
Þórður Þ. Þórðarson
Bæjarfulltrúar S-lista:
Sveinn Kristinsson
Kristján Sveinsson
Ágústa Hjördís Friðriksdóttir
KOSNINGAR 2006:
Efstu menn B-lista,
Framsóknarflokks:
1. Guðmundur Páll Jónsson bæjarstjóri
2. Magnús Guðmundsson forstjóri
3. Guðni Tryggvason verslunarmaður
4. Dagný Jónsdóttir,
verkefnisstjóri starfsmannamála
5. Helgi Pétur Magnússon nemi
Efstu menn D-lista,
Sjálfstæðisflokks:
1. Gunnar Sigurðsson,
framkvæmdastjóri
2. Sæmundur Víglundsson
byggingatæknifræðingur
3. Eydís Aðalbjörnsdóttir landfræðingur
4. Þórður Þ. Þórðarson bifreiðastjóri
5. Björn Elíson markaðsfulltrúi
Efstu menn F-lista, Bæjarmála-
félags frjálslyndra og óháðra:
1. Karen Jónsdóttir
viðskiptafræðingur
2. Magnús Þór Hafsteinsson,
fiskifræðingur og alþingismaður
3. Rannveig Bjarnadóttir
grunnskólaleiðbeinandi
4. Sæmundur T.
Halldórsson
verkamaður
5. Kristinn Jens
Kristinsson öryrki
Efstu menn S-lista,
Samfylkingar:
1. Sveinn Kristinsson bæjarfulltrúi
2. Hrönn Ríkharðsdóttir
aðstoðarskólastjóri
3. Anna Lára Steindal siðfræðingur
4. Sigrún Ósk Kristjánsdóttir háskólanemi
5. Hrafnkell Proppé garðyrkjumaður
Efstu menn V-lista,
vinstri grænna:
1. Rún Halldórsdóttir læknir
2. Sigurður Mikel Jónsson háskólanemi
3. Halla I. Guðmundsdóttir kennari
4. Hjördís Garðarsdóttir háskólanemi
5. Heiðar Mar Björnsson verkstjóri
Gunnar Sigurðsson
er oddviti D-listans
og hefur verið síð-
ustu tólf ár. Undan-
farin tvö kjörtímabil
hefur listinn verið
í minnihluta.
„Þessu þurfum
við að snúa við
ekki bara okkar
vegna heldur vegna bæjarbúa,“ segir
Gunnar og leggur áherslu á að listinn
stefni að hreinum meirihluta. Hann
býður fram bæjarstjóraefni sem vakið
hefur athygli, en það er Gísli Einarsson
fyrrverandi alþingismaður Samfylkingar.
Gunnar segir forgangsmál D-listans
að auka þjónustu. „Við viljum byggja
í og við dvalarheimilið Höfða til að
útrýma biðlistum og byggja nýjan
leikskóla og nýtt hús fyrir tónlistarskól-
ann.“ Umhverfis- og skipulagsmál eru
líka ofarlega á blaði. „Hér hefur verið
lóðaskortur undanfarin ár sem sést best
á því að við erum undir landsmeðaltali
í íbúafjölgun og þessu þarf að breyta,“
segir Gunnar.
Gunnar Sigurðsson D-lista:
Stefnt á hreinan
meirihluta
Guðmundur Páll Ólafs-
son leiðir B-listann en
hann er bæjarstjóri í
meirihlutasamstarfi
við S-lista. Hann segir
samstarfið hafa gengið
vel og verið árangurs-
ríkt en ekkert liggi
fyrir um áframhald.
„Úrslit kosninganna
leiða í ljós hvers konar meirihluti verður
myndaður.“
B-listinn er með tvo menn í bæjar-
stjórn og gerir Guðmundur Páll sér vonir
um að hann haldi sínu fylgi. „Síðast
vantaði okkur reyndar bara þrjú atkvæði
til að ná inn þriðja manninum.“
Hann segir núverandi meirihluta
hafa haldið vel á málum í hinni miklu
uppbyggingu síðustu ára. „Það þarf sterk
bein til að þola góða daga,“ segir hann.
Mörg brýn verkefni eru framundan að
sögn Guðmundar Páls. „Þar má nefna
áframhaldandi þróun Faxaflóahafna,
byggingu nýs tónlistarskóla, frekari upp-
byggingu íþróttamannvirkja og bætta
þjónustu við eldri borgara.”
Guðmundur P. Ólafsson B-lista:
Gott samstarf
og árangursríkt
Karen Jónsdóttir
viðskiptafræðingur
fer fyrir lista frjáls-
lyndra og óháðra.
Hún segir listann
hafa fengið góðar
viðtökur. „Ég finn
að fólk vill fá nýtt
og ferskt blóð í
bæjarpólitíkina,
hún hefur verið frekar einhæf.“
Hún segir F-listann leggja áherslu
á öldrunarmálin. „Við viljum byggja
þriðja áfanga að hjúkrunarheimili
við dvalarheimilið Höfða, málefnum
eldri borgara hefur ekki verið nógu vel
sinnt hér. Svo eru það umhverfis- og
skipulagsmálin, gatnakerfið hér er illa
farið og það skortir líka mikið upp á
að eignum bæjarins sé vel haldið við.
Þá þarf að taka til hendinni við að
bæta ásýnd bæjarins.“
Karen vonast til að F-listinn nái
einum manni inn en segir ekkert
ákveðið um hugsanlegt meirihluta-
samstarf. „Við höldum öllu opnu í
þeim efnum,” segir hún.
Karen Jónsdóttir F-lista:
Nýtt og ferskt
blóð í pólitíkina
Rún Halldórsdóttir V-lista:
Höfum fengið góðar viðtökur
Rún Halldórsdóttir læknir er efst á lista
vinstri grænna. Hún hefur ekki áður tekið
þátt í pólitísku starfi en lítur á þetta sem
tækifæri til að koma einhverju góðu til
leiðar. „Mér finnst vera mjög jákvætt and-
rúmsloft fyrir okkar framboði og við erum
bjartsýn á góðan árangur.“
Hún gerir sér vonir um að ná að
minnsta kosti einum manni inn, en
segist ekki geta sagt til um það hverjir
væru vænlegastir til samstarfs, en tekur fram að listinn úti-
loki engan frá samstarfi fyrirfram, málefnin ráði þar mestu.
„Við viljum byggja upp leikskóla fyrir öll börn og viljum helst
geta haft hann gjaldfrjálsan. Í umhverfismálum viljum við
efla sorpflokkun og svo viljum við efla heimahjúkrun og
heimahlynningu fyrir aldraða,“ segir Rún.
Sveinn Kristinsson S-lista:
Mikið af ungu og öflugu fólki
Sveinn Kristinsson er í efsta sæti S-lista
sem verið hefur í meirihlutasamstarfi við
B-lista síðustu átta ár. „Rekstur sveitar-
félagsins er mjög góður og Akranes er eitt
best rekna sveitarfélag á Íslandi. Hér er
góð og ódýr þjónusta enda hefur ávinn-
ingurinn af góðum rekstri runnið aftur til
íbúanna.“ Sveinn segir S-listann mikið
endurnýjaðan frá síðustu kosningum.
„Það er ný kynslóð að taka við og við
höfum mikið af ungu og kraftmiklu fólki.“ Hann segir mark-
mið listans að treysta atvinnulífið og styrkja samfélagið. „Á
næsta kjörtímabili verður aðalmálið að þjónusta íbúana enn
betur, frá fyrstu tíð til elliára.“ Og Sveinn segir stefnt að því
að vera áfram í forystu fyrir sveitarfélagið. „Við segjum hvað
við ætlum að gera og getum staðið við það,“ segir hann.
KOSNINGAR Á Akranesi hefur
meirihluti Samfylkingar og Fram-
sóknar stýrt undanfarin tvö kjör-
tímabil. Munurinn er þó aðeins
einn maður og raunar munaði ein-
ungis þremur atkvæðum síðast að
þriðji maður Framsóknar felldi
fjórða mann Sjálfstæðisflokks.
Síðast buðu fjórir listar fram
en listi vinstri grænna kom engum
manni að. Þeir reyna nú aftur og
svo bætist við framboð frjáls-
lyndra og óháðra, þannig að Akur-
nesingar hafa úr óvenju mörgum
listum að velja. Eflaust dreifast
atkvæðin eitthvað meira fyrir
vikið og því má gera ráð fyrir tví-
sýnum og spennandi kosningum.
Sjálfstæðismenn voru með
góða stöðu samkvæmt könnun
NFS en hún var vel að merkja
gerð áður en öll framboð voru
ljós. Þeir eru einir um að hafa
tilkynnt um bæjarstjóraefni, sem
er Gísli Einarsson fyrrum þing-
maður Samfylkingar og er óhætt
að segja að þau tíðindi hafi vakið
athygli.
Allir flokkar ganga óbundnir
til kosninga en haldi núverandi
meirihluti sínum hlut eru miklar
líkur á að þeir nái saman á ný um
stjórn bæjarins. - ssal
AKRANESKAUPSTAÐUR
Akraneskaupstaður
SVEITARSTJÓRNAR-
KOSNINGAR
2006
Útlit fyrir tvísýnar kosningar á Akranesi:
Ný framboð skapa spennu
AKRANES Spurningin er hvort meirihluti
síðustu kjörtímabila nái að halda velli.
HERSTÖÐ MÓTMÆLT Fjöldamótmæli urðu
í Suður-Kóreu vegna fyrirhugaðrar stækk-
unar bandarískrar herstöðvar í Pyeongtaek
í gær. Til átaka kom á milli um tvö þúsund
mótmælenda og óeirðalögreglu, þegar
andófsmenn lögðust í götuna og hrópuðu
slagorð á móti áætluninni. FRÉTTABLAÐIÐ/AP