Fréttablaðið - 16.05.2006, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 16.05.2006, Blaðsíða 34
■■■■ { útskrift 2006 } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ Á húfuverkstæði P. Eyfeld hafa stúd- entshúfur landans verið saumaðar árum saman. Pétur Eyfeld yngri er þessa dagana í óða önn að undir- búa húfur útskriftarnema. „Þetta er allt saumað í höndunum og við fjölskyldan dundum við þetta,“ segir Pétur og bætir því við að fáir átti sig á því að stúdentshúfugerðin hvíli á herðum einnar fjölskyldu. „Þetta er ansi löng törn og stundum eru krakkarnir seinir að panta eða koma á síðustu stundu með húfur sem þarf að láta laga.“ Stúdentshúfur voru fyrst notaðar hér á landi árið 1888 og þá var um danskar húfur að ræða. Þegar Lærði skólinn varð að Menntaskólanum í Reykjavík árið 1904 varð það hluti af sjálfstæðisbaráttunni að taka í notkun íslenskar húfur. Fyrstu stúd- entarnir sem útskrifuðst frá MR voru með derlausar húfur en árið 1914 kom fram sú húfa sem enn er notuð í dag . Pétur segir að þótt mikið sé að gera í húfugerðinni sé einnig algengt að útskriftarnemar kjósi að nota gamlar húfur. „Við erum mikið í því að laga húfur og það eru dæmi um að sama húfan sé notuð af öllum í sömu fjölskyldunni. Þá getur það til dæmis verið stórmál að útskrif- ast með gömlu húfuna hans afa og margar skemmtilegar hefðir skapast í kringum það,“ segir Pétur. Pétur segir að stúdentshúfurnar séu svipaðar á öllum Norðurlöndun- um en þær íslensku hafi þó nokkra sérstöðu þar sem hvíti kollurinn sé laus. „Ári eftir útskriftina er hvíti kollurinn tekinn niður með viðhöfn og þá er húfan heilsvört,“ segir Pétur og bendir á að það færist í aukana að eldri stúdentar setji upp húfurnar sínar. Allar stúdentshúfurnar eru eins fyrir utan það að Menntaskólinn á Akureyri og Verkmenntaskól- inn á Akureyri láta búa til sínar eigin stjörnur með merki skólans og útskriftarári. Þá hafa ýmsar sér- greinar sinn lit og þær húfur eru með örlítið öðru sniði en stúdentshúfurn- ar. „Iðnnemahúfurnar eru heilrauðar og undanfarin ár hafa ýmsar sér- námsbrautir einnig tekið upp sinn lit. Sjúkraliðarnir eru t.d. með gráa húfu, verslunarbrautin með bláa og félags- liðarnir með græna,“ segir Pétur. Fjölskyldan saumar hvíta kolla Nú líður að því að stúdentar setji upp hvíta kolla. Húfurnar eru sjálfsagður hlutur í augum flestra en færri vita að þær eru allar saumaðar af einni fjölskyldu í Reykjavík. Snið stúdentshúfunnar hefur ekki breyst í rúm 80 ár. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Pétur Eyfeld við saumaskapinn. Húfurnar eru í ýmsum litum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Síðasta laugardag fór Ólafur Hvann- dal Ólafsson í sitt síðasta próf en hann er að klára BA-próf í lögfræði úr Háskólanum í Reykjavík. Ólafur útskrifaðist úr framhaldsskóla um jólin 2002 og eftir það fór hann út á vinnumarkaðinn í hálft ár áður en hann skellti sér í háskólann en þar hefur honum líkað vel. „Þetta hafa verið mjög lærdóms- rík og skemmtileg ár og sú ákvörð- un að fara í laganám er líklega besta ákvörðun sem ég hef tekið. Ég er að klára þriggja ára nám og í haust mun ég svo halda áfram í tveggja ára masters-námi hér við skólann,“ sagði Ólafur en hann er enn ekki alveg ákveðinn í því hvað hann ætlar að gera að því námi loknu. „Ég held þessu bara opnu og það verður spennandi að sjá hvað framtíðin ber í skauti sér.“ Ólafur segir að námið sé þó nokk- uð erfitt. „Maður þarf að sjálfsögðu að leggja mikla vinnu í þetta eins og flest annað í lífinu. Ef maður legg- ur sig ekki fram þá nær maður ekki árangri,“ sagði Ólafur. Hann ætlar að halda upp á BA-prófið með því að fara með vinunum til New York og jafnvel halda litla veislu fyrir fjöl- skylduna þegar heim er komið. Hann ætlar þó ekki að kaupa sér sérstök útskriftarföt fyrir þetta tilefni. „Ég er nýbúinn að kaupa mér ný föt og ætli ég noti þau bara ekki,“ sagði Ólafur Hvanndal Ólafsson en eftir prófin ætlar hann að skella sér til New York ásamt vinum sínum úr lögfræðinni. Fagnað með fjöl- skyldunni Ólafur Hvanndal Ólafsson er að útskrifast með BA-próf í lögfræði og fer í masters-námið í september. Ólafur Hvanndal fer til New York með félögum sínum eftir prófin. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR ������������������� ����������������� ������������������������������������������ ������������������������������������������������ ����������� �� ��������� ����������������������������� F A B R IK A N Jói Fel F í t o n / S Í A Ertu orðin leið á að vera með appelsínuhúð, slit og slappa húð? Komdu þá til okkar, það virkar! Pantaðu frían prufutíma í síma 587-3750 Englakroppar.is Stórhöfði 17
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.