Tíminn - 18.11.1977, Blaðsíða 1

Tíminn - 18.11.1977, Blaðsíða 1
r V. Fyrir y> vörubil^^ Sturtu- grindur Sturtu dælur Sturtu- — Hri Engar ákvarð- anir teknar — hvort fela skal einstaklingum rekstur nokkurra rikisfyrirtækja KEJ-Reykjavík — Það hafa engar ákvarðanir veriðteknar í nefnd, og um tillögugerð hennar er allt óljóst enn eða hvort sam- Ingi Tryggvason staða næst um álit, sagði Ingi Tryggvason alþingis- maður þegar Tíminn bar undir hann frétt i Morgun- blaðinu um ríkisfyrirtæki, sem kæmi til greina að fá einstaklingum eða félög- um til reksturs. Sagöi Ingi, að nefndin, sem um þessi mál fjallaði, hefði haldið marga fundi og kannað rekstur nokkurra rikisfyrirtækja, en mál- ið værisem sagt enn á athugunar- stigi. Nefndina skipa — auk Inga — Arni Vilhjálmsson, prófessor, Gisli Blöndal hagsýslustjóri, Guðriður Eliasdóttir, formaður verkakvennafélagsins i Hafnar- firði, Ölafur Sverrisson, kaup- félagsstjóri Borgarnesi, Steinþór Gestsson alþingismaður og Vig- lundur Þorsteinsson, fram- kvæmdastjóri i Reykjavik. áþ-Reykjavík. I gær sat seðlabankaráð á fundi og ræddi endurskoðun á vaxtakjörum. Þar sem Hagstofan hefur ekki gengið frá visitölu fram- færslukostnaðar, var ekki tekin ákvörðun um vaxtabreytingar. Hins vegar á vísitalan að liggja fyrir um hádegi í dag og búast má við ákvörðun frá Seðla- bankanum eftir helgina. Breyting á vöxtum í aðsigi Sadat til ísrael á laugardaginn — andstaöa gegn ferðinni meöal Araba Jafnt orku- verð KEJ-Reykjavik — Steingrim- ur Hermannsson mælti I gær fyrir þingsályktunartillögu á Alþingi, sem felur I sér aö komiö veröi á fót einu fyrir- tæki, sem annist alia megin raforkuvinnslu og flutning raforku á milli landshluta, þar sem sérstakar landshlutaveit- ur sjá um dreifingu til neyt- enda. Jafnframt veröi orku- verð um allt land jafnað og þar með aflétt núverandi ástandi, þar sem orkuverð frá virkjunum er mjög misjafnt og neytendur sitja ekki við sama borð i þessum efnum. Það eru 12 þingmenn Fram- sóknarfiokksins, sem ásamt Steingrimi flytja þessa tillögu, og á þingfundi i gær i samein- uðu þing lýsti Ragnar Arnalds fylgi viö tillöguna, en Karvel Pálmason, sem einnig talaði, sá ýmislegt athugavert við flutning málsins. Sjá nánar á bls. 10. - Tel Aviv-Reuter. Mena- chem Begin forsætisráð- herra Israels tilkynnti í gær að forseti Egypta- lands, Anwar Sadat komi i heimsókn til Israels á laugardag. Begin tilkynnti bandarískum þingmönn- um, sem eru í heimsókn í Israel, fréttina og sagði, að egypzki forsetinn myndi dvelja tvo daga í landinu. Begin sagði, að hann hefði frestaö ferð sinni til Bretlands af þessum sökum, en hún átti að hefjast á sunnudag. Fréttirnar um að Sadat sé væntanlegur á laugardag kom flestum ráða- mönnum i tsrael á óvart, þvl búizt haföi verið við að hann kæmi til tsraels einhvern tima i næstu viku, eftir að Begin kæmi til baka frá Bretlandi. Talsmaöur stjórnar Begins sagði, að á sunnudag myndi Sadat koma i E1 Aqse moskuna i Jerúsalem, sem er þriðja helg- asta moska Múhameöstrúar- manna. A eftir mun honum verða að þeirri ósk sinni að fá að ávarpa israelska þingið, og ræða um ófriöinn i löndunum fyrir botni Miðjaröarhafs, og nauösyn þess að koma þar á friöi. Svar Sadats, þar sem sagði aö hann þægi heimboðiö til tsrael, barst bandariska sendiráöinu i Tel Aviv I gær og skömmu siðar tilkynnti Begin áætlaðan komu- tlma egypzka forsetans. Aður en Sadat snýr heim á mánudag mun hann meðal annars skoða minnis- merki um 6 milljónir Gyöinga sem hurfu i Þýzkalandi I seinni heimsstyrjöldinni. Ismail Fahmi, utanrikisráð- herra Egyptalands, sagði af sér, skömmu eftir að Sadat tilkynnti aö hann hyggöist fara til Israels. Fahmi hefur verið utanrikisráð- herra siðan i október 1973. í bréfi til Sadats sagði Fahmi, að vegna nýrra aöstæöna sæi hann sér ekki fært að gegna embætti lengur. Riad sem skipaður var eftirmaö- ur Fahmis sagöi af sér nokkrum klukkust. siðar. Sadat kom I gær frá Damaskus, en þar ræddi hann viö Assad Sýr- landsforseta, sem lagðist mjög gegn förinni til Israel. Hassan, konungur Marokkó, hefur hins vegar sagt aö hann bindi nýjar friöarvonir við ferð Sadats. Sprengja sprakk fyrir utan egypzka sendiráöið i Damaskus skömmu eftir að greint hafði ver- ið frá ágreiningi Assads og Sad- ats. Yfirmenn egypzka forsætis- ráðuneytisins munu koma til Is- raels I dag til aö undirbúa komu Sadats. Anwar Sadat Menachem Begin Hvað á að gera við umfram- framleiðsluna? GV-Reykjavík. A auka- aöalfundi Stéttasambands bænda sem haldið verður þann 30. þ.m. verður tekin ákvörðun um hvað gera á við framleiðslu mjólkur- afurða, sem er umfram þarfir islenzka markaðs- ins. Þar verða mættir 46 kjörnir fulltrúar bænda. Áður hafa komið upp slík umf ramf ramleiðslu- vandamál og hefur þá oft- ast verið tekið til þess ráðs að bændur hafa minnkað framleiðsluna. Astæðan fyrir þvi aö mjólkur- framleiðslan hefur aukizt svo mikiö i haust (10%) er sú, að menn eru vel heyjaðir frá þvi i sumar og fóöurbætirinn er ódýr. Einnig er hægt að imynda sér aö bændur hafi þurft aö auka fram- leiösluna til að halda í horfinu, vegna þeirrar dýrtiöar, sem á sér stað i landinu.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.