Tíminn - 25.07.1978, Blaðsíða 1
Slðumúla 15 • Pósthólf 370 ■ Reykjavik • Ritstjórn 86300 • Auglysingar 18300 • Afgreiðsla og áskrift 86300 • Kvöldsímar 86387 & 86392
Utflutningsbanninu aflétt
trúum þvi að bráðabirgðalögin verði afnumin sagði Guðmundur J
HEI — Verkamannasambandið
hefur nú ákveðið að falla frá lit-
flutningsbanninu, en eftir þvi sem
blaðið hefur fregnað mun for-
sætisráðherra hafa gert það að
skilyrði fyrir aðgerðum af hálfu
rikisstjórnarinnar til að koma i
veg fyrir stöðvun frystihúsanna.
1 fréttatilkynningu frá Verka-
mannasambandinu segir m.a. að
þar sem rikisstjórnin hafi nii sagt
af sér, eftir þann harða dóm sem
stefna hennar i launa og kjara-
málum hafi hlotið og I landinu sé
enn sem komið er engin ábyrg
rikisstjórn, þá samþykki fram-
kvæmdastjórn Verkamannasam-
bandsins að beina þvi til aðildar-
félaga sinna, að þau fresti fram-
kvæmd Utflutningsbannsins fyrst
um sinn. Enda sé þess vænst að
mjög bráðlega fáist full viður-
kenning á þvi, að gengið verði til
samninga við Verkamannasam-
bandið á grundvelli tilboðs þess,
sem sambandið lagði fram á
fundi með sáttasemjara og fól i
sér fulla og óskerta visitölu á allt
kaup, sem i dag sé allt að 169.000
kr. i dagvinnu og óskert álag á
alla yfirvinnu.
Þá segir einnig að fáist slik
viðurkenning ekki, muni Verka-
mannasambandið gripa til þeirra
ráða sem það telji duga til að
tryggja verkafólki þau laun, sem
felast i áðurgreindu tilboði.
Blaðið spurði Guðmund J. Guð-
mundsson, hvað fælist bak við
orðin „enda sé þess vænst aö
mjög bráðlega fáist full viður-
kenning á að gengið verði til
samninga við Verkamannasam-
bandið”. Guðmundur sagöi það
fyrstog fremst vera ástæöuna, að
tveir af næststærstu stjórnmála-
flokkunum heföu lýst sig þessu
fylgjandi og Framsóknarflokkur-
inn gefið i skyn að hann væri þvi
hlynntur, að fyrst og fremst væri
hugsað um láglaunafólk varðandi
kjarabætur. Svo við viljum trúa
þvi sagi Guðmundur, að ef þessir
flokkar verða stjórnaraðilar, þá
afnemi þeir bráöabirgðalögin og
samningar þessa fólks taki gildi.
En viö erum ekkert aö draga
endanlega linu fyrir alla, heldur
aðeins þennan hóp sem fellur
undir samningstilboð okkar og
það er mikill meirihluti af félög-
um A.S.l.
Guðmundur sagði að þvi væri
heldur ekki að leyna að stór hópur
launþega væri ekki hrifinn af til-
boði Verkamannasambandsins,
þvi það teldi það allt of lágt. M.a.
heföu hærra launaöir félagar inn-
anA.S.Í. gagnrýnt Verkamanna-
sambandið harðlega fyrir þessa
afstöðu.
Loðnu-
veiðarnar
stöðvast
Kás — „Við höfum Ut af fyrir sig
ekki vaíd til þess að stoppa loðnu-
veiðarnar, en við erum búnir að
senda bátunum aðvörun um að
okkur hafi ekki tekist að fá neinar
verksmiðjur á landinu til þess aö
lofa þvf að taka á móti loðnu á
næstunni”, sagði Þórður Asgeirs-
son, formaöur loðnunefndar, i
samtali við Timann i gærkveldi.
Þessar aðgerðir loðnuverk-
smiðjanna eru i beinu framhaldi
af hinni miklu átu, sem fundist
hefur í loðnunni undanfarið, og
sem gerir hana að mjög óhentugu
hráefni til bræðslu.
Að visu sagði Þórður, að Sfldar-
verksmiðja rikisins á Siglufirði
hefði ákveðið að taka á móti ein-
hverju óverulegu magni, en það
myndi ekki einu sinni duga þeim
bátum sem enn væru á miðunum,
ef þeir fengju afla fljótlega.
„Ég veit að bæði þeir hjá verk-
smiðjunum og LIÚ eruá fundum,
en hvað þeir gera, það veit ég
ekki. Hins vegar væri það ansi
röklegt ef LtC skoraði á sfna
menn aö halda ekki áfram
veiöunum, þvi það sýnist ekki
mikið vit I þvi aö halda þeim
áfram, ef enginn vill taka á móti
aflanum.”
iþróttasiöum bls. 16-19 er
sagt frá Landsmótinu á Sel-
fossi.
Velheppnað Landsmót á Selfossi
16. Landsmót UMFt, sem
r fram á Selfossi var mjög
lheppnað —og mótið bauð
ip á mjög spennandi og
skemmtilega keppni.
Tryggvi, ljósmyndari Tim-
ans, tók myndina hér fyrir
ofan I 110 m grindahlaupi
karla, og eins og sést á
myndinni, þá keyrðu kepp-
endur á fullu og gáfu ekkert
eftir. i opnu blaðsins og á
Stjórnarmyndunarviðræðurnar:
Samkomulag verði
reynt til þrautar
Enn er mikið eftir i viðræðunum, ekki sist varðandi fyrstu
aðgerðir i efnahagsmálum
Á sameiginlegum
fundi þingflokks og
framkvæmdastjórnar
Framsóknarflokksins i
gærdag var samþykkt
að áfram skyldi haldið
viðræðum um stjórnar-
myndun með Alþýðu-
flokknum og Alþýðu-
bandalaginu og kannað
til þrautar hvort grund-
völlur er fyrir samstarfi
þessara flokka um lausn
þeirra vandamála sem
við er að glima i efna-
hagsmálum þjóðarinn-
ar.
Verður i dag, þriðjudag, unnið
áfram að könnun ýmissa atriða
sem til ákvörðunar koma i við-
ræðunum.
Samkvæmt heimildum sem
blaöið telur áreiðanlegar fela
drög þau aö stjórnarsáttmála,
sem Benedikt Gröndal hefur lagt
fram, fyrst og fremst I sér al-
menn ákvæði en minna af beinum
framkvæmdaatriðum.
Svo viröist, að mati þingmanna
Framsóknarflokksins sem blaöiö
hafði samband við, sem töluverð
alvara sé hjá viðræðunefndar-
mönnum Alþýöuflokks og Al-
þýðubandalags að gera jákvæða
tilraun til að ná samkomulagi.
Þannig sé það ljóst að fulltrúar
„sigurflokkanna” eru óðum að
„komast niður á jörðina” i efna-
hags- og kjaramálum, og enn
fremur eru taldar horfur á þvi að
hreyfing sé komin á það innan Al-
þýðubandalagsins að slaka mjög
til f varnarmálum, en Alþýöu-
flokkurinn hefur sem kunnugt er
lýstyfir þvi að hann er ekkireiðu-
búinn að standa að neinum veru-
legum breytingum I þeim efnum.
Eftir þvi sem blaðiö hefur
komist næst hafa enn ekki komið
upp nein alger árekstrar- eða
ágreiningsefni I viöræðunum sem
hindrað geta frekari umleitanir
um stjórnarsamstarf.
Hins vegar er talið að þess gæti
enn nokkuð innan Alþýöuflokks
og Alþýðubandalags að menn eigi
erfitt með aö sætta sig við að
staðreyndir efnahagslifsins séu
ekki með þeim hætti sem þeir
höfðu haldið fram fyrir kosn-
ingar, og að af þessu hljóti aö
leiða miklu minna svigrúm til að-
gerða en þeir höfðu boðað.
islendingar taka
við þessu sjálfir
og þarf enga
stefnu til
„íslendingar taka við
þessu sjálfir og þarf
enga stefnu til"
Eiríkur Briem fram-
kvæmdastjóri Lands-
virkjunar segir álit sitt
á erlendri ráðgjafar-
þjónustu á Islandi á
bls. 7. Fróðlegt að fá
hans álit/ því að við
erum vist ekki búin að
virkja nema 8%-l3% af
heildarvatnsaf linu í
landinu.
Eftir þvisem blaðið hefur sann-
frétt er afskaplega mikið eftir i
viðræðunum, ekki að því er
varðar fyrstu aðgeröir gegn þeim
vanda sem nú blasir við. Verður
þvl ekki séð á þessu stigi hvort
raunverulegur grundvöllur er
fyrir samstöðu um aðgerðir i
efnahagsmálum. Má ætla að þau
mál verði tekin til rækilegrar
ihugunar á næstu dögum.