Fréttablaðið - 06.11.2006, Page 8
Vi› sty›jum Steinunni Valdísi ...Prófkjör Samfylkingarinnar í Reykjavík, 11. nóvember
FORYSTA Í KRAFTI ÞJÓNUSTU
Í tilefni afhendingar Íslensku gæðaverðlaunanna 7. nóvember og stjórnunarviku
heldur Stjórnvísi í samstarfi við Capacent ráðstefnu um Forystu í krafti þjónustu
á Nordica Hotel.
Að loknu erindi Svöfu er ráðstefnunni skipt upp í tvo strauma og viðfangsefnið
skoðað í ljósi einkageirans og opinbera geirans.
Einkageirinn
Þjónusta í ljósi stefnu – Hermann Jónasson framkvæmdastjóri Landsbankanum
Þjónusta í ljósi ferla og tækni – Guðjón Reynisson framkvæmdastjóri 10-11
Þjónusta í ljósi mannauðs – Ægir Þórisson mannauðsstjóri Capacent
Opinberi geirinn
Þjónusta í ljósi stefnu – Sigrún Ósk Sigurðardóttir aðstoðarforstjóri ÁTVR
og Þorvaldur Ingi Jónsson viðskiptafræðingur
Þjónusta í ljósi ferla og tækni – Jón H. Steingrímsson forstöðumaður
þjónustusviðs Ríkisskattstjóra
Þjónusta í ljósi mannauðs – Þórhallur Örn Guðlaugsson dósent við
viðskipta- og hagfræðideild HÍ
Ráðstefnulok
Samtal tveggja strauma og pallborðsumræður með þátttöku
nokkurra valinnkunnra einstaklinga úr íslensku atvinnulífi.
Ráðstefnustjóri er Kristinn Tryggvi Gunnarsson hjá Capacent
Ráðstefnan hefst kl. 13.00 og lýkur kl. 16.30.
Að ráðstefnu lokinni er gestum boðið að vera viðstöddum
afhendingu Íslensku gæðaverðlaunanna sem fer fram á
sama stað kl. 16.30. Forsætisráðherra Geir H. Haarde
mun afhenda verðlaunin og boðið verður upp á léttar
veitingar og tónlist í tilefni afhendingarinnar.
Verð kr. 9.800 fyrir félagsmenn,
kr. 14.000 fyrir aðra.
skráning á www.stjornvisi.is
Forysta í krafti þjónustu –
Svafa Grönfeldt aðstoðarforstjóri Actavis.
Dagskrá
Hvaða fyrrverandi einræð-
isherra var dæmdur til dauða
í gær?
Hversu gömul er Eiðakirkja?
Hver er í öðru sæti á fram-
boðslista framsóknarmanna í
Suðvesturkjördæmi?
Ein virtasta fréttastofa
Evrópu, DPA í Þýskalandi, hefur
eftir Stefáni Ásmundssyni,
skrifstofustjóra sjávarútvegsráðu-
neytisins, að Íslendingar gætu
þurft að endurskoða afstöðu sína til
atvinnuhvalveiða ef ekki verður
hægt að selja kjötið á erlendum
mörkuðum. Stefán segist ekki hafa
átt við að stjórnvöld væru að meta
hvort eigi að endurmeta leyfi til
atvinnuhvalveiða vegna markaðs-
skorts.
„Það sem ég var að segja var að
þetta er atvinnustarfsemi eins og
hver önnur og að það er atvinnurekandinn sem
heldur utan um markaðsmálin. Auðvitað heldur
hann ekki áfram ef hann hefur ekki markaði,“ segir
Stefán. DPA hefur einnig eftir
Stefáni í viðtalinu að hvalveiðar séu
ekkert ólíkar bílasölu; ef framleið-
andi hefur ekki kaupendur að
bílunum þá hætti hann framleiðslu.
Einar K. Guðfinnsson sjávarút-
vegsráðherra segir að stjórnvöld
komi ekkert að því að taka ákvörð-
un um að stöðva veiðarnar á
markaðsforsendum. Það verði
sjálfhætt ef ekki er rekstrargrund-
völlur. „Sá sem annast veiðina ber
ábyrgð á sölu afurðanna eins og í
öllum öðrum greinum sjávarút-
vegs. Það segir sig sjálft að ef
hvalveiðar verða ekki arðbærar þá verða þær ekki
stundaðar frekar en aðrar óarðbærar atvinnugrein-
ar.“
Borgarráð Reykja-
víkurborgar samþykkti að úthluta
Ásatrúarfélaginu lóð undir hof í
Leynimýri á fundi sínum á fimmtu-
daginn. Var skipulagssviði falið að
gera tillögur að staðsetningu lóð-
arinnar.
Egill Baldursson, lögsögumað-
ur Ásatrúarfélagsins, segir þetta
frábærar fréttir. „Stefnt er að því
að taka fyrstu skóflustungu að
hofinu 1. desember næstkomandi.
Þetta verður bæði hof og félags-
heimili. Öll blót munu fara þarna
fram á helgistað félagsins og einn-
ig fundir og þess háttar.“
Fjögur höfuðblót eru haldin á
hverju ári fyrir hvern ársfjórðung
auk sérstaks þorrablóts. „Allt að
170 manns taka þátt í blótunum
hjá okkur og eru allir velkomnir.
Sérstaklega góð þátttaka er á
barnablótinu sem haldið er sumar-
daginn fyrsta ár hvert.“
Rúmlega eitt þúsund manns
eru í Ásatrúarfélaginu og segir
Egill mikla uppsveiflu í félaginu
um þessar mundir. „Það eru spenn-
andi tímar fram undan.“
Borgarráð samþykkti einnig að
gefa Trúfélagi rússnesku rétttrún-
aðarkirkjunnar á Íslandi fyrirheit
um úthlutun lóðar fyrir kirkju-
byggingu á lóð á Nýlendureit, á
milli Nýlendugötu og Mýrargötu.
Hof ásatrúarfólks
í Leynimýri
Vilhjálmur Egils-
son, framkvæmdastjóri Samtaka
atvinnulífsins, SA, segist hafa
beðið eftir að Seðlabankinn færi
að gefa önnur skilaboð en þau að
hækka vextina.
„Við hefðum gjarnan viljað sjá þá
lækka en það er betra að halda
stýrivöxtunum óbreyttum en að
hækka þá,“ segir hann og telur að
bankinn ætti að fara að huga að
vaxtalækkun. „Það eru miklar
líkur á því að bankinn sé orðinn
of seinn án þess að ég vilji
fullyrða afdráttarlaust um það.
Hættan er sú að bankinn keyri
gengið of hátt og það komi
verðbólgugusa í vor.“
Hefði viljað
lækkun vaxta