Ísafold - 25.06.1884, Blaðsíða 1

Ísafold - 25.06.1884, Blaðsíða 1
taur út á miívikudijsmorpa. Vsrí árjanjsins (50 arka) 4 kr.; erlendis 5 kr. Borgisi Ijrir raiðjan júl'minuð. ISAFOLD. Uppsðgn (skr.S.) bnndin vi3 iramót, 6- jild nema komin sje til ötg. ijrir L akt Aijreiðsiustofa i Isafoldarprentsm. 1. sal. XI 26. Reykjavík, miðvikudaginn 25. júnímán. 18 84. 101. Innlendar frjettir. 102. Útlendar frjettir. Fáein orð um verðlagsskrár. 103. Auglýsingar. Forngripasafmð opið hvern mvd. og ld. kl. 1—2 Landsbókasafnið opið hvern rúmhelgan dag kl. 12 —2 útlán md„ mvd. og ld. kl. 2 — 3 Póstar fara frá Rvík 28. júni. Póstskip ler frá Rvík I. júli. Sparisjóður Rvíkur opinn hvern mvd og ld. 4 — 5 Strandferðaskipið fer frá Rvik I. júlí. Veðuratliuganir í Heykjavík, eptir Dr. J. Jónassen | Hiti (Cels.) Lþmælir I Veðurátt. Túní. |ánóttu|um hád. fm. em. fm. em. M. I8.| + 5 + 11 29,8 29.7 Sa d h U d h F. ig.j + 6 + 12 30 3° S h b S h b F. 20.I + 5 + 10 29,9 29,6 Sa h d A hv d L. 2I.j S + 10 290 29.+ Sa h d S h d S. 22.! +6 + 9 29,4 29.4 O d A h d M. 23. + 6 + 12 29.4 29.2 A h d n d í>. 24.I + 5 + n 29.2 29,2 Nv h b V h b Athgr. Alla vikuna hefir vindur verið frá suðri eða landsuðri (Sa) og hefir verið talsverð úrkoma með köflun ; 20. var h.inn rokhvass um tima eptir miðjan dag, en lygndi aðkveldi sama dags. f dag 24. bjart veður, vestanútnorðan gola. Keykjavik 25. júni 1884. Hjeraftslækniseinbættið í Gullbríngu- sýslu (2. læknishjéraði) veitt 27. maí settum hjeraðslækni þar cand. med. & chir. þórði Thoroddsen. Prófastur settur í Borgarfjarðarsýslu sira þórhallur Bjarnarson í Reykholti. Emhattttispróf við háskólann í lögum lauk 5. júní Páll J. Briem með 1. einkunn. Póstskipift Romny kom hjer í gær- morgun, eptir að eins 9 daga ferð frá Khöfn. Með því komu meðal annars Sigurður Mel- sted prestaskólafor8töðumaður með frú sinni; Hjörtur Jónsson hjeraðslæknir, sem dvalið hafði í Khöfn í vetur; W. Fischer stór- kaupmaður o. fl. Strandferftaskipift Laura kom hing- að degi fyr, 23.; hafði gengið ferðin mikið vel: viðgerðin við vjelina reyndist ótvílug; skipið gekk með hálfum krapti til Seyðis- fjarðar, varúðar vegna, en með fullum krapti úr því. Frá Vestmannaeyjum ætlaði fjöldi fólks austur með skipinu, að leita sjer þar at- vinnu, en komst ekki nema helmingur eða svo, því skipið hjelt á stað fyrirvaralaust, áður en síðari báturinn með fólkið úr eyjun- um og farangur þess var kominn að því. Hefir þetta verið kært fyrir landshöfðingja. Skipstjóri kvað bera fyrir sig offermi á skip- inu af fólki. En varla getur það verið gild afsökun fyrir að gera fólkið viðskila við far- angur sinn eða hafi hann yfirgefið bátinn í sýnilegum sjávarháska. Verzlunarfrjettir frá útlðnduin af sama tagi og áður. þetta er ágrip af þar að lútandi skýrslum frá Khöfn, að því er ís- lenzkar vörur snertir: Af saltfiski enn óseld í Khöfn eitthvað 300 skpd frá fyrra ári, sem ekki gengur út fyrir 40 kr. skpdið af stórum fiski, 35 kr. smár og 25—20 kr. ýsan, allt góð og ó- skemmd vara. xÓfáanlegt boð á Spáni í farm frá Vestmannaeyjum í júní eða júlí, og mundi seljandi þó ekki hafa gengið frá 60 rm (nál. 53 kr.)«. I Norvegi sömu kvartan- irnar út af Spánarverzluninni. Helzt líkur fyrir að Frakkar muni byrgja Spánverja upp nægilega að fiski með góðu verði. þetta að það brást með verzlunarsamninginn við Spán hefir líka spillt enn meira fyrir. Af íslenzkri ull liggja óseldir á Englandi frá f. á. hjer um bil 3000 ballar. Á upp- boði í Liverpool í maí á vestfirzkri ull var hæst boð 7-J d. pdið enskt, sem er sama sem 60 a. fyrir danskt pd; »og það verð mundi naumast fást nú hjer (þ. e. í Khöfn) fyrir beztu vorull, éf til vill að eins 58 aurar«. Haustull 50-—53 a.; mislit ull 50 a. Hákarlslýsi tært í 51£ til 52 kr. tunnan síðast í Khöfn ; dökkt 48 til 50 kr. Fyrir harðfisk stóran vel verkaðan er j von um að fáist 80—90 kr. Tólg 37 aura. Sauðakjöt 60 kr. Fyrir æðardún bezta má fá 16 kr. Sundmaga 85—90 a. Hrogn í Norvegi 52 kr. hæst, 40 kr. (tunnan) af lak- ara tagi. Síld lækkandi; óseldar í Khöfn 3000 tnr; síðast gefnar 5—10 kr. fyrir tunn- una eptir gæðum. Aflahrögft afbragðsgóð á Seyðisfirði og töluverð víðar eystra. Hjer við sama og áður. Tíðarfar ágætt um land allt, eptir því sem til spyrzt. Grasvöxtur í bezta lagi. Fjárkláðinn. það er að heyra að norðan, að þar sje að mestu horfin öll hræðsla við fjárkláðann, og flestir á því, að hann sje þess kyns, að hann muni ekki sýkja út frá sjer. það er einkum haft til sannindamerkis, að á aðal-kláðabænum, Geiteyjarströnd við Mývatn, kom hann ekki fram nema á einu búinu (afþremur?), og þrátt fyrir daglega samgöngu við hitt fjeð á bænum fjekk það ekki kláðann, enda var fóðri þessa kláðuga fjár mjög ábótavant að verkun, og það hafði haft vonda húsvist í fyrra sumar og í haust». þetta skrifar merkismaður í júngeyjarsýslu, og bætir því við, að nú (15. júní) viti hann ekki til, að nokkurstaðar sje til kláðakind þar í sýslu, «nema ef vera skyldi einn gemlingur í tukt- húsinu í Húsavík, sem tekinn var framan úr dölum mjög löðrandi í maur, settur inn hjá öðrum heilum rúnum, og hafa ekki komið fyrir almennings sjónir í hart nær 7 vikur, án þess að sá heili að sögn þeirra sem hirða, hafi enn smittast. þessir áttu að leiða sanuleikaun í ljós, og jeg veit ekki betur en að hann sje þetta, að ómögulega tekst að fá heilbrigða gemlinginn veiktan af hinum». esturfara-æsingar. Ritstjóri Leifs, blaðs íslendinga í Vesturheimi, sem er ný- byrjað annað árið, eptir eymdarlíf hið fyrsta ár sitt, hefir fengið stjórn Oanadaríkis til að taka blaðið upp á sína þróttmiklu arma og sjá því borgið með því að kaupa af því með fullu verði 2000 expl. þetta ár, er síð- an skal útbýta gefins hjer á landi, í því skyni að spana menn til vesturfara. Hafa fyrstu númer blaðsins, er hafa inni að halda hina glæsilegustu lýsingu á lífinu í Ameríku og samsvarandi ófrægðarsögu af högum manna hjer á landi, þegar verið send til út- býtingar «öllum hinum þjóðhollustu og mestu föðurlandsvinum» landsins (þeir eru taldir upp í blaðinu), með áskorun um að þeir «ljái lið sitt til að flytja hverja lifandi sál af landi burt, og lofa því standa auðu og tómu í nokkra tugi ára» o. s. frv. Yoftaleg maniiraun og lirakningur. í vor einhvemtíma höfðu þrír veiðibátar með 5 mönnum hver villzt í þoku frá ensku hvalvéiðaskipi einhversstaðar í Grænlands- hafi. Eptir 10 daga útivist komst einn bát- urinn að landi norður á Melrakkasljettu, og var einn maðurinn látinn, en 4 lifðu, mjög skemmdir. Annan bátinn fann há- karlaskip af Eyjafirði á rúmsjó fyrir norðan Kolbeinsey, eitthvað um hvítasunnuleytið. í honum var einn maður lifandi, en rænu- laus og nær dauða en lífi, og ræfill af líki annars manns, — annar handleggurinn og hjartað. Manninum var hjúkrað sem bezt og fluttur á land f Siglufirði, en síðan til Akureyrar, til lækningar; var komið drep í báða fætur og skyldi taka þá af. þegar maðurinn fjekk rænuna, sagði hann svo frá, að liðnir væru að hann hjeldi eitt- hvað 16 dagar frá því að hann og þeir f jelagar fimm saman villtust frá hvalveióaskipinu, allslausir af matföngum. Á 7. degi ljezt

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.