Tíminn - 26.01.1980, Blaðsíða 1

Tíminn - 26.01.1980, Blaðsíða 1
Stðumúla 15 • Pósthólf 370 ■ Reykjavik • Ritstjórn 86300 • Auglýsingar 18300 • Afgreiðsla og áskrift 86300 • Kvöldsímar 86387 & 86392 Steingrímur Hermannsson: „Nánast ósvífni” Framsóknarmenn reiðubúnir að vinna að meirihlutastjórn „Þessar nýju tillögur Alþýöu- flokksins uröu mér mikið undr- unarefni”, sagði Steingrimur Hermannsson, formaður Fram- sóknarflokksins, i viðtali við blaðið i gær um „umræðugrund- völl” þann, sem Benedikt Grön- dal lagði fram i stjórnarmynd- unarviðræðunum. „Og ég verö aö taka undir þaö sem fjölmargir flokksmenn i Fr amsókna rf lokknum hafa sagt, aö þessar tillögur eru nán- ast ósvifni eins og málin standa og eftir þaö sem á undan er gengiö”, sagði Steingrimur. „Við framsóknarmenn gát- um ekki annað en hafnaö þess- um tillögum sem umræðu- grundvelli”, sagði hann. „Fyrri tillögur Alþýðuflokksins, frá þvi i desember, voru i rauninni málefnalega mjög nálægt okkar hugmyndum, og aðilar i forystu Alþýðuflokksins höfðu fullviss- aðokkur um að þeirhefðu góðan og mikinn vilja til þess að ganga til samkomulags. Hið sama skildist okkur á fyrsta fundinum sem haldinn var undir forystu Benedikts Gröndal, áöur en hann lagði þessar nýju tillögur fram. í þessum tillögum Alþýðu- flokksins er gengið svo langt i ýmsum málaflokkum, t.d. land- búnaðarmálunum, að það væri ekki til neins að leggja fram ein- stakar breytingartillögur. Sjálf- ur grundvöllurinn yrði að ger- breytast ef von ætti að vera um samkomulagþarsem við ættum hlut að máli.” Blaðið spurði Steingrim hvers nú væri að vænta i stjórnar- okkur það ljóst”, sagði Stein- grimur, ,,að ábyrgð fylgir kosningasigri okkar, og við ætl- um ekki að vikjast undan henni. Við erum reiðubúnir til þess að vinna að öðru samkomulagi um meirihlutastjórn, ef þess er þá kostur. Við erum tilbúnir með tillögur sem fylgja i grundvallaratrið- um kjarnanum i okkar upphaf- legu tillögum, en taka mikið til- littil þesssem fram hefur kom- ið frá öðrum flokkum i viðræð- unum.” Steingrímur Hermannsson. myndunarviðræöunum. Hann sagði: „Við höfum hingaö tfl lagt alla áherslu á myndun vinstristjórn- ar, og viö höfum gert allt sem unnt hefur veriö til þess aö koma henni á fót. Viðviljum hins vegar aö sjálf- sögöu ekki berja höföinu viö steininn, eftir að Alþýöubanda- lagiö lokaöi fyrst fyrir þennan möguleika og Alþýöuflokkurinn síöan. Við framsóknarmenn gerum SkUar Benedikt Gröndal umboðinu í dag? Ræður Lúðvík einn aístöðu Alþýðubanda- lagsins? HEI— Sannarlega blæs ekki byr- lega um stjórnarmyndunartil- raunir Benedikts Gröndal. Er hann boðaði fulltrúa Alþýðu- bandalagsins á sinn fund, sagði hann Lúðvik einn hafa komið og hafnað viðræðugrundvellinum án þessaö hafa einu sinni fyrir þvi að lesa tillögurnar. Það hefði komið greinilega iljós hjá Lúðvik að Alþýðubandalagið væri ekki tilbúið til að taka þátt i fjögurra flokka stjórn. Benedikt færði þá I tal möguleika á myndun Nýsköp- unarstjórnar, en sagði Lúðvik hafa hafnað þeim möguleika á stundinni og hvorki þurft til þess umhugsunartima né samráð viö samflokksmenn sina. TUlkaði Benedikt þetta sem að Aiþýðu- bandalagið hefði á vissan hátt dregið sig Ut úr islenskri pólitlk nú i miðri stjórnarkreppunni. Eftir að fara yfir viðræðu- grundvöll Benedikts á löngum fundi þingflokks og fram- kvæmdastjórnar komst Fram- sóknarflokkurinn að þeirri niður- stöðu að hann gæti ekki tekiö þátt i stjórnarmyndunarviðræðum á þeim grundvelli. En samt tjáði Framsóknarflokkurinn sig reiðu- búinn tíl að leggja fram endur- skoðaðar tillögur um málefna- grundvöll. Benedikt sagðist að sjálfsögöu ekki bíöa eftir heildartillögum frá öðrum flokki. þegar honum hefði verið falin stjórnarmyndun. Þá væri eðlilegra að hann skilaði umboði sínu og aðrir tækju við. Aðspuröur sagöi hann enga von um viðreisnarstjórn, þar sem fyr- ir henni væri ekki þingmeiri- hluti. Hann ætlaði þó fyrir kur- teisissakir að bíða eftir svari Sjálfstæðisflokksins, eftír þing- flokksfund i gær. Þingfiokkur Al- þýðuflokksins mun siðan halda þingflokksfund fyrirhádegi I dag og eftir þann fund sagöi Benedikt það liggja ljóst fyrir hvað gera bæri. Hann bjóst við að ganga á fund forseta siðdegis i dag og skýra honum þá frá gangi mála. Sennilega þýðir það að Benedikt muni skila sinu umboði I dag og þá er enn einu sinni komið að for- setanum að ákveða næsta skref. í ljósi þessað framsóknarmenn segja þennan nýja grundvöll Benedikts miklu fjarlægari þeirra sjónarmiðum þeirra en hina ómenguðu stefnu Alþýöu- flokksins og að Alþýðubandalagið hefur greinilega ekki hrifist af honum heldur, var Benedikt spurður hvaða flokk kratar hefðu ætlað að nálgast með tillögum sinum á þessum grundvelli. Við þvi fengust engin svör sem henda mátti reiður á. Þingflokkur og framkvæmdastjóm: Framsóknar- menn eru reiðubúnir Hinar nýju tillögur Alþýðuflokksins óhæfar Siðastliðinn fimmtudag var haldinn sameiginlegur fundur i þingflokki og framkvæmda- stjórn Framsóknarflokksins. Fundurinn hófst kl. 16, en fundarhlé var gefið kl. 18 vegna þingfunda. Aftur hófst fundur- inn kl. 9 um kvöldið og stóð fram um miðnætti. A fundinum var rætt um „umræðugrundvöll” þann i stjórnarmyndunarviðræðunum sem Benedikt Gröndal hafði lagt fram af hálfu Alþýðuflokks- ins fyrr um daginn, og einnig var rætt almennt um stöðuna i stjórnmálunum og þær horfur sem upp eru komnar i viðræðum flokkanna um stjórnarmyndun. Við lok fundarins bar formað- ur flokksins, Steingrimur Her- mannsson, fram eftirgreinda tillögu til ályktunar og var hún samþykkt samhljóða með öllum atkvæðum. ,,Sameiginlegur fundur þingflokks og. framkvæmdastjórnar Framsóknarflokksins ályktar að tillögur þær, sem Alþýðuflokkurinn hefur nú lagt fram, geti ekki orðið grundvöllur að myndun rikis- stjórnar með þátttöku Framsóknarflokksins. Hins vegar er Framsóknarflokkurinn reiðubúinn að leggja fram endurskoðaðar tillögur um málefna- samning fyrir meiri- hlutastjórn”. FRI — Fokkerar þeir er Finnair fær frá Kóreu lentu á Reykjavikurflugvelli f gærkvöldi. Þeir lögðu upp frá Seoul þann 12. jan. s.l. og höfðu þvl verið tæplega tvær vikur á leiðinni. Arni Sigurðsson flugmaður sagði að bótt ferðin hefði veriö löng þá hefði allt gengið með ágætum Ihenni. Flugvelunum tveim verður breytt hérlendis áður en Finnair fær þær. Vélarnar er Flugleiðir fær koma hingað sennilega þann 8. feb„ n.k. Land og synir í gærkvöldi var frumsýnd kvikmyndin „Land og synir” eftir Indriða G. Þorsteinsson I Austurbæjarbiói. A opnunni i dag ræðir blaðamaður okk- ar við Jón Þórisson leik- myndateiknara. Myndin er af einum leikaranna, hund- inum Týra, sem kemur viö sögu i viðtalinu við Jón.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.