Tíminn - 06.02.1980, Blaðsíða 1

Tíminn - 06.02.1980, Blaðsíða 1
— ýmsir þing- manna Sjálfstæð- isflokksins fylgj- andi þessu stjóraarmunstri segir Gunnar HEI— „Ég hef ástæöu til aö ætla, aö þaö takist aö koma stjdrninni saman fyrir vikulokin” sagöi Dr. GunnarThoroddsenigær,eftir aö hann haföi tekiö viö umboöi til myndunar ríkisstjórnar úr hendi forseta Islands aö Bessastööum i gær. Gunnar var spuröur hvort hann gæti nefnt fleiri ákveöna stuön- ingsmenn heldur en fram hefur komiö. Hann sagöistekkigeta til- kynnt neitt um þaö aö svo stöddu, en hann vonaöist til aö þeir yröu fleiri og helst allur þingflokkur Sjálfstæöisflokksins. Þar sem þessitilraunhans værieini mögu- leikinn til myndunar meirihluta- stjórnar, teldi hann ástæöu til aö ætla aö meirihluti þingmanna Sjálfstæöisflokksins endurskoö- aöi afstööu sina. Þá sagöi hann vitaö aö ýmsir þingmanna Sjálf- stæöisflokksins væru fylgjandi stjórn þessara flokka. Gunnar sagöi aö áfram yröi unniö affullum kraftiviöaö koma saman málefnasamningum. Um skiptingu ráöuneyta og skipan ráöherralista yröi samiö aö þvi loknu. Hann viöurkenndi þó, að auövitaö heföi ýmislegt verið rætt um æskilega skiptingu ráöuneyta, en sem sagt ekkert ákveöiö enn- þá. Veðurguðirnir hefðu varla getað vandað sig meira, á þessum árstima, við fegrun umhverfis Bessastaða og staðinn sjáffan, en þeir gerðu fyrir komu Gunnars Thoroddsens þangað i gær .glampandi vetrarsói og logni. Forseti fól Gunnari stjórnarmyndun: Aöur en Gunnar fór frá Bessastöðum gaf hann sér góðan tfma til að svara spurningum blaðamanna. En sem kunnugt er losna framá- menn i stjórnmálum ekki við þann kross, að hafa herskara blaða- manna sifellt á hælunum og jafnvel I einkatimum sfnum stóran hluta sólarhringsins, sem allt vilja fá að vita jafnvel áður en það gerist. Timamynd Tryggvi. Miðvikudagur 13. febrúar 1980 36. tölublað — 64. árgangur Eflum Tímann Síðumúla 15 ■ Pósthólf 370 • Reykjavik • Ritstjórn 86300 • Auglýsingar 18300 • Afgreiðsla og áskrift 86300 • Kvöldsímar 86387 & 86392 „Vinstri stjóm” Gunnars fyrir vikulok Ekki er að efa, að Gunnar Thoroddsen hefur fengið jafn góðar móttökur hjá for- seta islands Kristjáni Eldjárn, innandyra á Bessastöðum. Er ljósmyndaraskar- anum var hleypt inn til myndatöku, að fundi þeirra loknum, höfðu þeir greinilega tekið upp léttara efni en stjórnarniyndunarviðræður. Timamynd Tryggvi. GUNNAR KOMINN ME2) UMBOÐ FORSETA m.a. vegna ábendinga Framsóknar og Alþýöubandalags HEI — ,,Að öllum málavöxtum athuguöum og meöal annars meö tillití. til eindreginna ábendinga frá formönnum Framsóknar- flokks og Alþýöubandalags, kvaddi forseti Islands I dag dr. Gunnar Thoroddsen alþingis- mann á sinn fund og fól honum aö gera tilraun til myndunar rikis- stjórnar sem njóti meirihluta- fylgis á Alþingi”, sagöi i fréttfrá forseta Islands i gær. Ekki voru Gunnari sett nein ákveöin tima- mörktil stjórnarmyndunarinnar, en forsetilagði áherslu á að þess- ari tilraun yröi hraöaö eftir þvi sem unnt væri. Undanfari þessarar ákvöröun- arvar fundur forseta I fyrradag, meö formönnum allra stjórn- málaflokkanna hverjum i sfnu lagi, þar sem hann kannaöi viö- horf þeirra til stjórnarmyndunar- viöræönanna sem fram heföu far- iö frá þvi aö forseti átti fund meö öllum formönnunum sameigin- lega 30. jan. s.l. En á þeim fundi haföi hann óskaö eftir niöurstöö- um þeirra um eöa upp Ur siöustu helgi. Hafnir: Allur laxinn drapst — Sjóeldistilraun Fiskifélagsins eyðilagðist i norðanveðri Félag áhugamanna um laxeldi á sömu slóðum slapp betur Tvö böm úr Kópavogi drukknuðu FRI — Tvö börn.drengir á aldr- inum þriggja og fimm ára, drukknuöu er þau fóru niður úr Ishellu milli Sunnubrautar, sunnanmegin i Kópavogi, og Arnarness um 300 metra frá landi. Allt tiltækt lið var kallað á staðinn en tilkynning um að börn væru að leik út á Isnum barst lög- reglunni laust fyrir kl. 18 I gær. Börnin náöust upp en þau voru þá látin. All nokkuð mun hafa verið um þaö undanfarið að börn hafi verið að leik úti á isnum á þessu svæði en isinn er ótraustur og hafa þau ekki gert sér grein fyrir þvi. FRI — I miklum norðanstormi er geisaöi á suðvesturhorni landsins fyrir rúmri viku drápust allir lax- ar þeir er Fiskifélagið haföi haft i nót I ósunum undan Höfnum, 1 svonefndum Seljavogi. Að sögn Jósefs Borgarssonar oddvita i Höfnum hófst sjóeldið i mai/júni i fyrra og upphaflega voru 1200 laxaseiði sett i nótina. Nokkur afföll munu hafa verið á laxinum áður en veöriö setti strik I reikninginn, en reikna má með aöum 8-900 fiskar hafi verið i nót- inni. Þeir höföu náö um 2 punda stærö er þeir drápust. Jósef sagði aö laxarnir heföu náö þessari stærö i október og þvi virtist hafakomið i ljós aö sumar- eldi lax með þessum aöferöum gæfi góða raun en hins vegar væri ekki byggjandi á vetrareldi vegna þeirrar hættu sem kuldi skapaði eldinu. Félag áhugamanna um laxeldi hafði einnig eldisstöö á sömu slóöum, en þeir sluppu betur und- an veörinu. Samturöu mikil afföll hjá þeim. Þeir höföu sina nót i Djúpavogi, en hann liggur lengra inu i landiö. Aö sögn Hinriks Ivarssonar hreppstjóra var mikið talaö um skemmdarverk eftir aö þessir at- burðir höföu átt sér staö, en það væri fjarri lagi að um Jwð hefði veriö aö ræöa. Nót Fiskifélagsins var bundin viö land meö nælonlin- um en þær voru skornar er aö var komiö eftir veöriö. Hinsvegar var ishella á voginum er veöriö var og mun isinn hafa brotnaö i veörinu og höggviö linurnar i sundur svo aö nótin lenti i einni flækju út I voginum. Hinrik sagöi aö I veöri sem þessu, og sérstak- lega ef jafnframt væri smá- streymt og þvi litil hreyfing á vatninu, væri mikil hætta á aö kuldinn yröi þaö mikill aö laxinn þyldi þaö ekki.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.