Fréttablaðið - 15.06.2007, Blaðsíða 64
Á miðvikudagskvöld birtist á vef-
ritinu Kistunni grein eftir Sigurð
Gylfa Magnússon sagnfræðing.
Þar greinir Sigurður frá viðskipt-
um sínum við dómnefnd í Háskóla
Íslands sem tók til skoðunar tvær
bækur Sigurðar sem hann lagði
fram í fyrra til mats sem doktors-
verkefni. Dómnefndin sem skipuð
var Lofti Guttormssyni prófessor,
Gunnþórunni Guðmundsdóttur að-
júnkt og Einari Hreinssyni sagn-
fræðingi sendi frá sér álit fyrir
stuttu þar sem ritum Sigurðar er
hafnað og þau harðlega gagnrýnd.
Þessa niðurstöðu kveðst Sigurður
hafa heyrt úti í bæ og honum hafi
við eftirgrennslan borist álitið frá
óskyldum aðilum áður en honum
var birt það. Nefndarmenn hafi því
brugðist trúnaði. Í grein sinni tínir
Sigurður fleira til um störf heim-
spekideildar og sagnfræðiskorar
sem hann telur ámælisvert. Þar
nefnir hann að þeir Loftur Gutt-
ormsson hafi eldað grátt silfur
um árabil. Sigurður hafi gagnrýnt
sagnfræðiskor lengi og þar hafi
Loftur helst verið til andsvara. Sig-
urður segir að sér hafi ekki verið
tilkynnt formlega að Loftur sæti í
nefndinni og hann því ekki getað
nýtt andmælarétt sinn.
Sigurður Gylfi hefur um langt
árabil verið gagnrýninn og staðið
í deilum við starfsbræður sína.
Hann heldur fram einsögurann-
sóknum, rannsóknum sem bein-
ast að þröngri sneið í tíma og stað.
Rit hans Fortíðardraumar (2004)
og Sjálfssögur (2005) lýsa þessari
rannsóknarstefnu. Í vor kom frá
honum safn ritgerða Sögustríð, en
hann telur sig standa í stríði við
ríkjandi stefnu í rannsóknaraðferð-
um innan Háskóla Íslands. Gengur
hann svo langt í greinargerð sinni
á Kistunni að halda því fram að
ósk sín um að dómnefnd á vegum
sagnfræðiskorar legði mat á rit sín
hafi í raun verið próf á hlutdrægni
sem ríki þar á bæ. Hann hafi ekk-
ert með doktorspróf frá Háskól-
anum að gera enda sé hann doktor
frá Ameríku og eigi að auki tilbúna
doktorsritgerð í handraðanum um
alþýðumenningu á Íslandi.
Dómnefndin er óvenju harðorð
í umsögn sinni en álit hennar má
lesa í heild í kjölfar greinar Sig-
urðar á Kistunni. Þar segir m.a.
að ritin tvö séu sjálfstæð verk og
dugi ekki saman sem grundvöllur.
Talað er um „alvarlega vankanta“
á framlagi erlendra fræðimanna til
einsögurannsókna; umfjöllun um
fyrri rannsóknir sé „gloppótt og
full af illa studdum fullyrðingum“.
Talað er um „alhæfingar sem stand-
ast ekki“, skilgreiningar á hugtök-
um séu „ómarkvissar“. „Óskýrleiki
í framsetningu og ófullnægjandi
úrvinnsla setur víða mark á text-
ann, jafnvel heila kafla.“ Margt
fleira er tínt til og rökstyður dóm-
nefndin álit sitt rækilega.
Sigurður bregst til varna. Greinar-
gerð hans fylgir bréf lögmanns
hans Daggar Pálsdóttur. Þar er þess
krafist að dómnefndarálit sé dæmt
ógilt og ný og óvilhöll nefnd skipuð.
Annars verði Háskólinn sóttur til
saka á öðrum vettvangi.
Deilur um dómnefndarálit hafa
áður borist út fyrir veggi Háskól-
ans. Ásakanir um trúnaðarbrest
virðast í þessu tilviki eiga við rök
að styðjast og eru alvarlegar.
Deildarráð hefur óskað rök-
stuðnings frá sagnfræðiskor fyrir
vali á Lofti Guttormssyni í dóm-
nefndina. Var fundað í skorinni 11.
júní sl. en rökstuðningur var ekki
frágenginn en það mun gert næstu
daga.
Harkaleg deila í uppsiglingu
Sýningar haustsins komnar í sölu á
www.leikhusid.is
Afhending
Grímuverðlaunanna
í kvöld!
„ÞAÐ ELSKA ALLAR KONUR HEIMSFRÆGA MENN“
GRETTIR
Miðasala 568 8000
www.borgarleikhús.is
grettir.blog. is