Fréttablaðið - 27.09.2007, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 27.09.2007, Blaðsíða 6
 „Þessi dómur er þess eðlis að það er nánast útilokað að við hann verði unað,“ sagði Einar Gautur Steingrímsson, verjandi Róberts Árna Hreiðarssonar héraðslögmanns, að lokinni dómsupp- kvaðningu í gær. Róbert Árni var dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn fjórum unglingsstúlkum á aldrinum 14 og 15 ára og fyrir vörslu barnakláms. Verjandinn telur að sakfellingarnar séu „allt, allt of þungar miðað við dómafordæmi Hæstaréttar og að héraðsdómarar hafi gengið allt, allt of langt.“ Ákæran á hendur lögmanninum var í níu liðum, meðal annars fyrir að hafa tælt stúlkur til kynferðis- maka gegn greiðslu. Ein slík samskipti gengu þannig fyrir sig að vinkona einnar stúlkunnar ræddi við „Rikka“, eitt dulnefna Róberts á MSN-spjallrás á netinu. Rikki þóttist vera sautján ára gamall piltur. Stúlkan var þá talsvert ölvuð í samkvæmi og vantaði þær vinkonur bílfar. Rikki tjáði þeim að hann vissi um mann sem vildi skutla henni gegn munnmökum. Féllst stúlkan á þetta tilboð og sótti Róbert þær klukkan fjögur að nóttu. Hún hafði við hann munnmök á bílastæði BSÍ og hitti hann margsinnis upp frá þessu og fékk greitt 10.000 til 20.000 krónur fyrir hvert skipti. Á tímabili hittust þau daglega, segir í dómsorði. Stúlkan var vinafá, stóð höllum fæti félagslega og neytti á þessum tíma fíkniefna. Róbert er sekur fundinn um að hafa blekkt stúlkuna og nýtt sér vitneskju um bága stöðu hennar og yfirburði sína vegna aldurs-, þroska- og aðstöðumunar, til að koma fram við hana vilja sínum. Sækjandi í málinu var Kolbrún Sævarsdóttir. Hún sagðist sátt við niðurstöðuna en „hefði viljað sjá refsirammann fullnýttan, sem er fjögur ár“. Hún kvaðst allt eins gera ráð fyrir því að Róbert áfrýjaði. Verjandi Róberts vildi ekki staðfesta að áfrýjað yrði. Hann sagði hins vegar að refsingar í réttarríki ættu að miðast við brotafordæmi. Brotin varði mest fjögurra ára fangelsi en Róbert fái refsingu á við nauðgara. „Það er ekkert vit í þessu, ekki neitt.“ Róbert dvelst nú á Spáni og verjandinn segir að „þessar samsæriskenningar í fjölmiðlum um að hann sé að flýja land [séu] bara ekki réttar. Hann kemur til Íslands, eins og aðrir sem koma úr fríi.“ H im in n o g h af /S ÍA Fiskislóð 1 • Sími 580 8500 • www.ellingsen.is Tryggvabraut 1–3, Akureyri • Sími 460 3630 Opið mánud.–föstud. 8–18, laugard. 10–16 Stangveiði- vörur 25–70% AFS LÁT TUR 25–70% afsláttur af stangveiðivörum og búnaði. Gríptu tækifærið og „græjaðu þig upp“. HUGSAÐU VEL UM HÚÐINA ÞÚ FÆRÐ DECUBAL Í NÆSTA APÓTEKI Af 180 ríkjum heims telst spilling „alvarleg“ í 131 ríki, eða alls 73 prósentum. Þar af telst spillingin „stjórnlaus“ í 75 ríkjum. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri skýrslu stofnunarinn- ar Transparency International. Stofnunin gefur árlega út skýrslu þar sem mat er lagt á umfang spillingar í ríkjum heims. Spilltustu ríki heimsins eru Búrma og Sómalía með aðeins 1,4 stig þar sem tíu stig teljast fullt hús og til marks um enga spill- ingu. „Búrma er mjög gott dæmi um það þegar spilling, fátækt og kúgun skerast,“ sagði stjórnarfor- maður stofnunarinnar, Huguette Labelle, þegar skýrslan var kynnt í London í gær. Nýja-Sjáland, Danmörk og Finn- land tróna á toppnum sem minnst spilltu ríki heimsins með 9,4 stig af tíu mögulegum. Í 4. til 5. sæti eru Singapúr og Svíþjóð og Ísland kemur næst í 6. sæti. Norðurlöndin raða sér öll á topp tíu þar sem Noregur er í 9. til 10. sæti. Það Evrópuríki sem var neðst á listanum var Hvíta-Rússland, sem skipaði 150. til 162. sæti ásamt ríkjum á borð við Síerra Leóne, Simbabve og Kongó. Skýrslan byggist á afstöðu viðskiptamanna og greinenda til spillingar í hverju ríki. Stjórnlaus spilling í 75 ríkjum Hefur þú verið afgreidd(ur) í verslun af starfsmanni sem talar ekki íslensku? Finnst þér ástandið í miðborg- inni betra eftir átak lögregl- unnar? Lögmaður áfrýjar líklega dóminum Verjandi Róberts Árna Hreiðarssonar telur þriggja ára fangelsisdóm óviðunandi og ekki í samræmi við fordæmi Hæstaréttar. „Hefði viljað sjá refsirammann fullnýttan,“ segir sækjandi. Róbert Árni er ekki að flýja land, að sögn verjanda. Hvorki Einar Her- mannsson né Kristján Möller hyggjast aðhafast meira í deilu vegna ummæla Kristjáns um Einar, samkvæmt upplýsingum frá lögmanni Einars og úr sam- gönguráðuneytinu. Niðurstaðan, ef einhver, er sú að Kristján biðst afsökunar á því að hafa nafngreint Einar einan sem ábyrgan fyrir ógöngum við kaup á Grímseyjarferjunni. Þetta kveður lögmaður Einars, Ragnar H. Hall, þó gert í skugga lögsóknar, sem hafi verið boðuð ráðherranum bréfleiðis. Kristján hafi því ekki beðist afsökunar að eigin frumkvæði, eins og hann hafi látið í veðri vaka. Lögmaður Kristjáns, Sigurður G. Guðjónsson, svaraði bréfi Ragnars og Einars þannig að ráð- herra myndi ekki biðjast afsök- unar, daginn áður en hann baðst svo afsökunar. Ragnar segist engar athuga- semdir gera við að lögmaður utan úr bæ, en ekki ráðuneytisins, hafi séð um málið. „Það er ákvörðun ráðherrans hverjum hann felur að svara fyrir sig,“ segir hann. Enginn innan samgönguráðu- neytis vill tjá sig um málið. Sam- kvæmt heimildum þaðan er þar álit manna að í bréfinu hafi Einar farið fram á að Kristján drægi til baka ummæli sem hann hafi aldrei látið falla. Ráðherra hefði, með því að gera það, verið að ljúga. Því hafi hann hafnað því. Deilu Einars og Kristjáns lokið Erkibiskup kaþólsku kirkjunnar í Afríkuríkinu Mós- ambík sagðist í samtali við fréttastofu BBC telja að sumir smokkar sem fluttir eru til Afríku frá Evrópu væru viljandi sýktir af HIV-veirunni „til þess að gera fljótt út af við Afríkumenn“. Erkibiskupinn, Francisco Chimoio, sagði tvö Evrópulönd standa á bak við þetta en neitaði að segja hver þau væru. Ummæli erkibiskupsins hafa vakið reiði meðal fólks sem berst fyrir aukinni fræðslu um eyðni og gegn útbreiðslu sjúkdómsins. Talið er að rúm sextán prósent Mósamb- íka séu smitaðir af HIV. Telur smokka sýkta af HIV
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.