Fréttablaðið - 28.12.2007, Blaðsíða 76

Fréttablaðið - 28.12.2007, Blaðsíða 76
32 28. desember 2007 FÖSTUDAGUR tonlist@frettabladid.is TÓNNINN GEFINN Steinþór Helgi Arnsteinsson Margt bar á góma á tónlistarárinu 2007. Fréttablaðið hefur nú þegar valið þær plötur sem þóttu bera af á árinu, bæði hér heima og úti í hinum stóra heimi, en hverjar voru þá uppgötvanir ársins? Hvaða nýju gestir voru það sem komu manni í opna skjöldu með frumlegum tónum sínum? Hér er samt ekki átt við nýliða ársins. Til dæmis var alveg nokkuð ljóst í dágóðan tíma fyrir útgáfu platna Mika og Klaxons að þær myndu gera allt vitlaust og svo framvegis. Fyrir mér áttu stærstu uppgötvanir ársins sér stað innan danstónlistar- geirans sem hlaut heldur betur uppreisn æru. Úr ranni plötufyrirtækja á borð við Kitsune og Ed Banger tók að óma harðari og beinskeyttari hljómur en maður hafði áður kynnst, sem byrjaði reyndar fyrst að taka á sig almennilega mynd árið 2006. Á árinu 2007 komu samt út nokkrar plötur sem hristu verulega upp í geiranum. Digitalism, Simian Mobile Disco og Boys Noize voru allt sveitir sem hrærðu vel upp í eyrum manns með plötum sínum á árinu en á toppi listans sat auðvitað dúettinn ógurlegi Justice. Skóglápsrokkafturhvarfið (oft nefnt new-gaze) hélt líka áfram á árinu 2007. Sveitir á borð við A Place to Bury Strangers, Maps, Soft Circle, Deerhunter, Au og Shocking Pinks voru þannig allt nýjar sveitir í eyrum undirritaðs úr þessari átt. Úr annarri og töluvert prog-aðri átt kom einnig sveitin Battles en fyrsta eiginlega breiðskífa sveitarinnar, Mirrored, er án nokkurs vafa með plötum ársins. Svo voru líka hinar og þessar sveitir, bæði gamlar og nýjar, sem fyrir mér persónulega voru meiri uppgötvanir en aðrar. Enda er athöfnin sjálf, að uppgötva eitthvað, mjög persónuleg. Get ég til dæmis nefnt sænsku sveitina The Mary Onettes, skrautfuglinn Dan Deacon, undrabarnið Burial, hávaðagemlingana í No Age og finnsku krúttin í TV- Resistori. Fyrir aðra voru Amy Winehouse, Tegan and Sara, Bat for Lashes, The Cromatics, Patrick Wolf, Jamie T, St. Vincent og/eða The Field það mest brakandi ferska sem árið 2007 gaf af sér. Hvað sem því líður verður hins vegar að segjast að árið 2007 í tónlist var einstaklega giftusamt. Uppgötvanir ársins BATTLES Ein af uppgötvunum ársins. > Í SPILARANUM Stórsveit Nix Noltes - Royal Family-Divorce Caribou - Andorra Páll Óskar - Allt fyrir ástina Einar Ágúst - Það er ekkert víst það klikki Of Montreal - Hissing Fauna, Are You the Destroyer? OF MONTREALNIX NOLTES Enska hljómsveitin Radiohead heldur áfram að fara ótroðnar slóðir í kynningu á sinni nýjustu plötu, In Rainbows. Nú hafa hljómsveitarmeðlimir tilkynnt að tónleikar með sveitinni verði sýndir á netinu rétt eftir miðnætti á nýársnótt. Allir þeir sem hafa hug á geta horft á tónleikana á vefsíðunni Radiohead.tv. Lög frá In Rainbows verða í aðalhlutverki á nýárstónleikunum en söngvarinn Thom Yorke hefur gefið í skyn að nokkur af vinsælustu lögum sveitarinnar í gegnum tíðina fái að fljóta með. In Rainbows kemur í verslanir á geisladiski og vínylplötu frá og með 1. janúar en sem kunnugt er hefur verið hægt að nálgast plötuna frítt á netinu frá því í október. Nýárstónleikar Radiohead á netinu NOTA NETIÐ Thom Yorke og félagar í Radiohead eru duglegir að notfæra sér nýjustu tækni til að koma sér á framfæri á nýstárlegan hátt. > HÆTTIR HJÁ DEF JAM Rapparinn Jay-Z ætlar að hætta sem forstjóri plötufyrirtækisins Def Jam um áramótin. Hann tók að sér stöðuna fyrir tveim- ur árum, þegar hann til- kynnti að hann væri hættur að gefa út tónlist. Síðan þá er Jay-Z aftur kominn á fullt í rapp- inu og sér sér ekki fært að sinna stöðunni að fullu. Á þessum árstíma keppast tónlistarfjölmiðlar við að gera upp árið og flest tíma- rit og vefmiðlar hafa þegar birt árslista sína. Trausti Júlíusson skoðaði nokkra þeirra og velti fyrir sér niðurstöðunum. Eins og þegar hefur komið fram eru nokkrar plötur sem standa upp úr þegar uppgjör alþjóðlegra tón- listarmiðla yfir bestu plöturnar árið 2007 eru skoðuð. Arcade Fire- platan Neon Bible, sem var hlut- skörpust í vali tónlistarsérfræð- inga Fréttablaðsins sem birt var fyrir jól, er mjög víða hátt á listum og það sama er hægt að segja um plötuna sem varð í öðru sæti í því vali, Sound of Silver með LCD Soundsystem. Af öðrum plötum sem eru nefndar víða má nefna In Rainbows með Radiohead og Person Pitch með Panda Bear, en sem kunnugt er fer þar sólóverk- efni Noah Lennox úr Animal Collective, en plötu þeirrar sveitar, Strawberry Jam, má líka víða sjá hátt á listum. Allt eru þetta frá- bærar plötur sem eiga fyllilega skilið það lof sem á þær er borið. Á heildina litið virðist indí og rokk- skotin danstónlist vera nokkuð áberandi á listunum þetta árið. M.I.A. vinsæl vestanhafs Annars er töluverður munur á árs- listum breskra fjölmiðla og þeirra bandarísku. Fyrsta plata Íslands- og Airwaves-vinanna í Klaxons, Myths of the Near Future, er til dæmis mjög hátt á listum í Bret- landi og það sama má segja um plötu Alex Turner og félaga í Sheffield-sveitinni Arctic Monk- eys, Favourite Worst Nightmare, en breskir fjölmiðlar virðast síður en svo hafa fengið leið á þeim. Í bandarísku miðlunum kemur sterk útkoma Tamílatígra-skæru- liðaprinsessunnar Mayu Arulp- ragasam nokkuð á óvart, en platan hennar Kala er á toppnum bæði hjá Rolling Stone og Blender og í þriðja sæti á lista Pitchforkmedia. M.I.A. er undir miklum áhrifum frá bandarísku hipphoppi sem kannski skýrir að einhverju leyti aðdáun- ina vestanhafs, en svo er þetta líka frábær plata, nútímalegt popp þar sem blandað er saman á snilldar- legan hátt áhrifum frá tónlist víðs vegar að úr heiminum, Evrópu, Ameríku, Asíu, Afríku og Ástralíu. Frávikin athyglisverð Þó að það séu nokkrar plötur sem mest ber á í áramótauppgjörun- um eru undantekningarnar oft athyglisverðastar. Observer Music Magazine velur til dæmis plötu Damons Albarn og félaga í The Good The Bad & The Queen bestu plötu ársins, franska tónlistarbiblían Les Inrock upt- ibles setur plötur Airwaves- Svíans Loney Dear, Sologne og Loney Noir saman í þriðja sætið, Uncut setur White Chalk með PJ Harvey í þriðja sætið, hjá Q Magazine er Icky Thump með White Stripes næstbesta plata ársins og hið ný-örenda Stylus Magazine setur plötu kántrí-söng- konunnar Miröndu Lambert, Crazy Ex-Girlfriend, í annað sætið. Þegar neðar dregur á list- unum eru frávikin ennþá meiri. Fjölbreytnin í heimspoppinu árið 2007 kemur í ljós og maður tekur eftir alls konar plötum sem maður hafði ekki gefið gaum. Það besta við öll þessi áramóta- uppgjör er einmitt að þau vekja athygli manns á plötum sem maður hafði ekki heyrt og vissi jafnvel ekki af. Volta víða á listum Að lokum má geta þess að þó að hlutur íslenskra tónlistarmanna sé frekar rýr á árslistunum þetta árið þá er plata Bjarkar Volta á nokkuð mörgum listum (númer 11 hjá Uncut, 15.hjá Mixmag, 19 hjá Q, 24 hjá Mojo...) og plata Amiinu, Kurr, er númer 41 á lista Mojo... Dansrokk og indí á árslistum M.I.A. Vinsæl hjá gagnrýnendum vestan- hafs. Les Inrockuptibles (FR) 1. LCD Soundsystem – Sound of Silver 2. Justice – Cross 3. Loney Dear – Sologne & Loney, Noir 4. Animal Collective – Straw- berry Jam 5. Klaxons – Myths of the Near Future NME (UK) 1. Klaxons – Myths of the Near Future 2. Arctic Monkeys – Favourite Worst Nightmare 3. Radiohead – In Rainbows 4. Arcade Fire – Neon Bible 5. Les Savy Fav - Let’s Stay Friends Rolling Stone (US) 1. M.I.A. – Kala 2. Bruce Springsteen – Magic 3. Jay-Z – American Gangster 4. Arcade Fire – Neon Bible 5. Kanye West – Graduation Uncut (UK) 1. LCD Soundsystem – Sound of Silver 2. Arctic Monkeys – Favourite Worst Nightmare 3. PJ Harvey – White Chalk 4. Robert Plant and Alison Krauss – Raising Sand 5. Wilco – Sky Blue Sky Mixmag (UK) 1. LCD Soundsystem – Sound of Silver 2. Justice – Cross 3. Burial – Untrue 4. Digitalism – Idealism 5. Gui Boratto – Chromophobia Mojo (UK) 1. Radiohead – In Rainbows 2. Arcade Fire – Neon Bible 3. Bruce Springsteen – Magic 4. Arctic Monkeys – Favourite Worst Nightmare 5. LCD Soundsystem – Sound of Silver Pitchforkmedia (US) 1. Panda Bear – Person Pitch 2. LCD Soundsystem – Sound of Silver 3. M.I.A. – Kala 4. Radiohead – In Rainbows 5. of Montreal – Hissing Fauna, Are You the Destroyer? Undertoner (DK) 1. Radiohead – In Rainbows 2. Panda Bear – Person Pitch 3. Arcade Fire – Neon Bible 4. Okkervil River – The Stage Names 5. The National – Boxer Blender (US) 1. M.I.A. – Kala 2. Arcade Fire – Neon Bible 3. Lil Wayne – The Carter 3 Sessions 4. Kanye West – Graduation 5. Against Me! – New Wave Stylus (US) 1. LCD Soundsystem – Sound of Silver 2. Miranda Lambert – Crazy X Girlfriend 3. Panda Bear – Person Pitch 4. Lil Wayne – Da Drought 03 5. The National – The Boxer Tíu erlendir árslistar KLAXONS Heitir í Bretlandi. LONEY DEAR Sænskur Íslandsvinur. 50-70%afsláttur smáralind opið á gamlársdag frá kl. 10-13
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.