Fréttablaðið - 30.04.2008, Blaðsíða 17

Fréttablaðið - 30.04.2008, Blaðsíða 17
H A U S MARKAÐURINN 9MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL 2008 Ú T T E K T „Mér sýnist á öllu að um- framframboð á íbúðarhús- næði sé nú orðið töluvert meira á Íslandi en það var fyrir verðfallið og undir- málslánakrísuna í Banda- ríkjunum. Jafnframt eru birgðir af tómu húsnæði meiri en þær voru í Banda- ríkjunum,“ segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, doktor í skipulags hagfræði. Hann bendir á að í septem- ber síðastliðnum hafi tvær milljónir íbúða staðið tómar í Bandaríkjunum öllum. Sigmundur Davíð styðst við bandarískar aðferðir þar sem miðað er við hlutfall fasteigna til sölu, deilt með fjölda kaupsaminga. Þannig megi ráða hversu miklar birgðir séu til af húsnæði miðað við veltu á fasteigna- markaði hverju sinni. „Í mars var þinglýst 354 kaupsamningum á höfuð- borgarsvæðinu. Í byrjun apríl áætlaði ég að að minnsta kosti 6.300 íbúðir væru aug- lýstar til sölu. Auglýstar íbúðir nema því um átján mánaða veltu. Það er slá- andi tala því að í Bandaríkj- unum þótti mjög afbrigði- legt að hlutfallið færi úr sex mánuðum í tíu,“ segir Sig- mundur Davíð. Þá telur hann rétt að hafa í huga að í mars hafði Seðla- bankinn ekki birt spá sína um mikla raunlækkun fast- eignaverðs. Í liðinni viku hafi til að mynda aðeins 51 kaupsamningi verið þinglýst á höfuðborgarsvæðinu. „Fari fjöldi kaupsamninga á mán- uði niður í um það bil 200, á sama tíma og framboð verð- ur meira en nokkru sinni fyrr, fer þetta hlutfall upp úr öllu valdi.“ Offramboð af íbúðum SIGMUNDUR DAVÍÐ GUNNLAUGSSON Yfir sex þúsund íbúðir auglýstar til sölu, en innan við fjögur hundruð kaupsamningum þinglýst að jafnaði. Það veit á umframframboð af íbúðarhúsnæði. Töluvert meira líf var í Leirvogstungu en í Helgafelli þegar blaðamaður fór þar um. Unnið í mörgum húsum, auk þess sem starfs- menn Ístaks vinna margir að gatnagerð og jarðvinnu. Hins vegar voru þar mörg hús hálf- kláruð, þar sem enginn sást við störf. Mann- fæð kynni í einhverjum tilvikum að skýrast af því að blaðamaður var þarna á ferðinni á vinnutíma. En í sumum tilvikum virtist lítið hafa verið hreyft við um nokkurt skeið. Þeir sem blaðamaður sá þarna að störfum vildu lítt ræða stöðu mála í hverfinu við blaða- mann. Báru ýmist fyrir sig litla íslenskukunn- áttu eða kusu heldur að ræða önnur mál. Í samningum Mosfellsbæjar við Leirvogs- tungu ehf. og Helgafellsbyggingar eru fyrir- varar um framkvæmdahraða. Þannig mega þessir aðilar hægja á, þyki fjárhags- og mark- aðsaðstæður óhagkvæmar. MANNFÆÐ Á FRAMKVÆMDASVÆÐI Blaðamaður fór um Vallarhverfi í Hafnar- firði, nálægt álverinu í Straumsvík. Þar hafa þegar risið fjölmargar íbúðablokkir, auk ýmiss atvinnu- og verslunarhúsnæðis. Þegar ekið er í suðurátt, inni í hverfinu, má meðal annars líta barnavagna á svölum, eða úti- grill. Eftir því sem sunnar er farið verður hins vegar meira um nýbyggingar. Enda þótt gatnakerfið þarna virðist vera fullbúið, götur malbikaðar og jafnvel komn- ir upp ljósastaurar, er mismikið um að vera við húsbyggingar. Sums staðar er unnið að kappi og margir við störf. Annars staðar er minna í gangi. Í sumum tilvikum sjást aðeins grunn- ar. Sums staðar hafa útveggir verið steypt- ir og stundum komið á þá þak. Víða er búið að glerja. Hér er eingöngu rætt um íbúðar- húsnæði. 120 lóðum var úthlutað á Völlunum fyrir skömmu. Nú er komið að gjalddaga. Um fimmtán prósentum lóðanna hefur þegar verið skilað til bæjarins, allt einbýlishúsa- lóðir. Þetta er mun meira en verið hefur undan farið og þykir enn eitt merkið um samdráttinn. LÓÐUM SKILAÐ TIL REYKJAVÍKUR Reykjavík stefnir að því að fólk byggi nýtt hverfi undir hlíðum Úlfarsfells. Þar hefur hundruðum lóða verið úthlutað, einkum ein- býlishúsalóðum. Þarna eru tvö hverfi í und- irbúningi; Úlfarsárdalur og Reynisvatnsás. Þar hefur verið úthlutað lóðum undir fjöl- býlishús, en þó einkum einbýlis, par- og rað- húsalóðum. Í fyrrasumar var úthlutað 115 lóðum í Úlfarsár dal, með byggingarrétti fyrir tæp- lega 400 íbúðum. Hrólfur Jónsson, yfirmaður framkvæmda- sviðs Reykjavíkurborgar, segir að úr þeirri úthlutun hafi þrettán lóðum verið skilað. Allar lóðirnar hafi verið einbýlishúsalóðir. Fjölmörgum lóðum hafi nýlega verið út- hlutað við Reynisvatnsás; 56 einbýlishúsa- lóðum og þrettán fyrir raðhús og parhús. Af þeim hafi tólf lóðum verið skilað. Samtals hefur því 25 lóðum verið skilað í þessu eina hverfi. Hrólfur Jónsson bendir á að hluta lóðanna við Reynisvatnsás hafi þegar verið endur- úthlutað. „Svo vitum við að beðið er eftir lóðum á svæðinu.“ En hvers vegna skilar fólk lóðum? „Í flest- um tilvikum er það svo að fólk nær ekki að fjármagna lóðakaupin. Bankarnir eru ekki tilbúnir að lána nema á mun lakari kjörum en áður. Þetta er meginskýringin.“ FREKARI HVERFI Í UNDIRBÚNINGI Verktakafyrirtækið Eykt vinnur að undir- búningi fyrir íbúðarhverfi í Blikastaðalandi í Mosfellsbæ. Ekki mun vera á dagskrá að hefja þar framkvæmdir fyrr en á næsta ári. Einnig er framkvæmt víðar á höfuðborgar- svæðinu, svo sem í Norðlingaholti í Reykja- vík, 101 Skuggahverfi, í uppsveitum Kópa- vogs nálægt Elliðavatni og víðar. Greiningardeild Kaupþings sagði í skýrslu um fasteignamarkaðinn í haust að hugsanlega hefði framboð íbúðarhúsnæðis á höfuðborgar svæðinu náð hámarki í fyrra. Vísbendingar hefðu verið um að hægt hefði á íbúðamarkaði, en verktakar fremur ein- beitt sér að verslunar- og skrifstofuhús- næði. Fram hefur komið að velta á fasteigna- markaði er með minnsta móti, sumir segja við frostmark. Því má telja óvíst að allt það íbúðarhúsnæði sem nú er í byggingu seljist svo glatt, enda þótt alltaf verði einhver þörf fyrir húsnæði, þótt ekki sé nema vegna þess að þjóðinni fjölgar, og flestir búa nú í eða við höfuðborgina. viku fyrir viku ðisins og ný hverfi skipulögð. Hins vegar hefur verulega hægt Helgafellslandi í Mosfellsbæ, en fátt annað. Ingimar Karl við fjölmargar nýbyggingar. Verktaki segist taka eina viku í einu. Greining Glitnis telur að til loka árs 2009 lækki íbúðaverð að raungildi um fjórtán prósent. Deildin gerir ráð fyrir því að íbúðaverð lækki um þrjú pró- sent í ár. „Draga mun úr eftir- spurn á íbúðamarkaði á kom- andi ársfjórðungum vegna hæg- ari gangs hagkerfisins í kjölfar takmarkaðs aðgengis að lánsfé og lítillar kaupmáttaraukningar ráðstöfunartekna,“ segir í riti greiningar um íbúðamarkaðinn, sem birtist í fyrradag. Seðlabankinn hefur raunar spáð öllu meiri lækkun fast- eignaverðs, allt að þriðjungs raunlækkun á næstu misser- um. Fjármálaráðuneytið er öllu bjartsýnna í sinni spá en spáir þó fimmtán prósenta lækkun. Þá sýna nýjustu hagvísar Seðlabankans að kaupmáttur hefur undanfarið ár almennt rýrnað um næstum því heilt prósentustig. Áður hefur komið fram að kaupmáttur stórra hópa launafólks hefur einnig rýrnað undanfarin ár. Greining Glitnis telur að draga muni úr vexti á fram- boði íbúðarhúsnæðis á árinu. „Þá hefur byggingarkostnaður hækkað hraðar en íbúðaverð á undanförnum mánuðum sem er til þess fallið að draga úr íbúða- fjárfestingu,“ segir Greiningin, en bætir því við að meðalverð íbúða á árinu verði þó rúmlega fimm prósentum hærra í ár en í fyrra, „vegna grunnáhrifa“. Íbúðaverð lækki áfram á fyrri hluta næsta árs, þó þannig að lækkun ársins nemi 2,5 pró- sentum. Þegar deildin miðar við eigin verðbólguspá gerir hún ráð fyrir fjórtán prósenta raun- lækkun til ársloka 2009. Glitnir spáir lækkun

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.