Fréttablaðið - 02.06.2008, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000
MÁNUDAGUR
2. júní 2008 — 148. tölublað — 8. árgangur
VEÐRIÐ Í DAG
Baldursnesi 6
Akureyri
Sími 414 1050
Smiðjuvegi 76
Kópavogi
Sími 414 1000
Opið virka daga frá 8 -18
laugardaga frá10 -15
Tilboð
af
völdum
vörum
í
verslun
um ok
kar.
Meðan
birgði
r enda
st.
FÓLK Hilmar Lúthersson er einn
reyndasti mótorhjólakappi þjóð-
arinnar enda verið á mótorfák í
fimmtíu ár. Hann man tímanna
tvenna en segir margt hafa breyst
til betri vegar í mótorhjólamenn-
ingunni. Þar nefnir hann sérstak-
lega viðhorf ökumanna til mótor-
fákanna. „Mótorhjólamenn verða
þó alltaf að vera með puttann á
bremsunni.“
Hvað aksturslag mótorhjóla-
manna sjálfra varðar segir Hilm-
ar: „Það er ekkert verra í dag en
það var í gamla daga. Þá var auð-
veldara að þekkja lögguna úti á
vegi og menn höfðu því nægan
tíma til að hægja niður. Það gat
stundum verið gaman að bruna
austur fyrir fjall því þar var mal-
bikað alla leið.“ - shs / sjá síðu 30
Á mótorhjóli í fimmtíu ár:
Með fingurinn
á bremsunni
GEIRFUGLARNIR
Svara Árna
Bergmann
Safna fyrir nýjum híbýlum uppstoppaðs geirfugls
FÓLK 30
LENA RÓS MATTHÍASDÓTTIR
Spilar á gítarinn og
syngur með börnunum
heimili
Í MÍÐJU BLAÐSINS
Táknrænt
fyrir lífið
Myndlistarverk
Ingu Ragnars-
dóttur vígt á
Akranesi.
TÍMAMÓT 16
FASTEIGNIR
Fjölbreyttur
gróður í garðinum
Sérblað um fasteignir
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
Lindsay aftur
í sviðsljósið
Ástarævintýri
Lohan vekur
upp gamlar
minningar.
FÓLK 20
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL.
Skammt frá guðshúsi Grafarvogs gegnir sálar-
mikill gítar fallegu hlutverki í lífi prests. „Heima held ég mest upp á gítarinn hans pabba míns,
sem er eldri en ég að árum. Alltaf þegar pabbi var í
landi tók hann gítarinn í hönd og við fjölskyldan sung-
um saman,“ segir Lena Rós Matthíasdóttir sók
prestur í Grafarvogskirkj þgíta i
„Eftir mjög erfiða daga fer ég og hoppa úr mér
álag dagsins, reyni að herma eftir krökkunum að
leika sér og geri þá oftast eitthvað misheppnað sem
uppsker hlátur barna. Það hreinsar hugann.“
Lena Rós er sjálfmenntuð á gítar É
slarkfær á vin k
Gítar með sál og tannaför
Séra Lena Rós Matthíasdóttir með gamla gítar föður síns í fanginu, en gítarinn verður oftast fyrir valinu þegar kemur að slökun eftir anna-saman dag í kirkjunni.FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Runnar eru yfirleitt ótrúlega fljótir að spretta þegar þeir taka við sér á vorin. Þó að júní sé rétt að byrja er alveg kominn tími á að snyrta þá sem mest hafa
vaxið.
Gluggana er alveg tilvalið að þvo að innan sem utan á þessum árstíma þegar vel hlýtt er orðið í veðri. Síðan er bara að njóta þess að horfa út um þá tandurhreina.
Merkingar eru mikilvægar og nauðsyn-legt að útidyrahurðir og póstlúgur séu vel merktar íbúum heimilisins. Annars er töluverð hætta á að pósturinn skili sér ekki allur í réttar hendur.
Veri› stælt í sumar
Nú bjó›um vi› sumarkort sem gildir til 1. september
2008 á a›eins kr. 12.900.Innifalinn er einn tími hjá einkafljálfara sem finnur út
fla› æfingarkerfi sem hentar flér.
Höf›abakka 9 Sími: 511-1575 www.hreyfigreining.is
S J Ú K R A fi J Á L F U N O G L Í K A M S R Æ K T
fasteignir 2. JÚNÍ 2008
Fasteignasalan Ás hefur til sölu tæplega tvö
hundruð fermetra einbýlishús á einni hæð. Fullbúinn bílskúr fylgir eigninni. Eignarlóðin
er 1.100 fermetrar og á henni er stór og mikill
garður með pöllum, heitum potti, gosbrunni og
fjölbreyttum gróðri.
F orstofan er flísalögð með skápum. Gestabað-herbergið er nýuppgert, flísalagt í hólf og gólfog með nýjum blöndunartækjbaðherber i
húsi. Borðkrókur er í eldhúsi og innréttingin hvít.
Barnaherbergið er rúmgott og flísalagt, var áður tvö
herbergi. Hjónaherbergið er einnig flísalagt. Inn af
því er fataherbergi með innréttingu og glugga.
Baðherbergið er nýuppgert, flísalagt í hólf og gólf
með gólfhita, nuddbaðkari og sturtu. Gluggi er á bað-
herberginu.
Sólstofan er nýleg með flísum og gólfhita. Út af
henni er gengið í gegnum tvöfald hpall með h
Pottur og gosbrunnur
Norðurtún 5 er einbýlishús á einni hæð.
Símar 551 7270, 551 7282 og 893 3985Til sölu eitt hagstæðasta farþegaskip landsins
Skipið tekur 90 farþega auk áhafnar. Skipið hent-
ar mjög vel í hvers kyns ferðamannaþjónustu, í
hvalaskoðun, sjóstangaveiði og m.fl. Fjármögn-
unarmöguleikar til staðar.
Nánari upplýsingar og myndir á hibyliogskip.is, á skrifstofu og í símum 892 6113 & 893 3985Þuríður Halldórsdóttir hdl lö
Fr
um
BJART NYRÐRA Í dag verða aust-
an eða suðaustan 3-13 m/s, hvass-
ast sunnan og suðvestan til. Bjart
norðan til fram á daginn en þykknar
svo upp. Hætt við lítilsháttar vætu
sunnan og vestan til.
VEÐUR 4
12 16
15
1212
SJÁVARÚTVEGUR Rúmlega sextíu
tonn af kjöti af sjö langreyðum
sem veiddar voru haustið 2006
hefur verið selt til Japan. Hval-
kjötið var flutt til landsins ásamt
norsku hrefnukjöti sem var sent út
með sömu flutningavél. Einar K.
Guðfinnsson sjávarútvegs-
ráðherra segir of snemmt að segja
til um hvort nýr kvóti verður gef-
inn út.
Kristján Loftsson, forstjóri
Hvals hf., segir að allt hvalkjötið
sé nú í Japan og aðeins tímaspurs-
mál hvenær því verði dreift til
verslana og fiskimarkaða. „Þetta
er allt komið á leiðarenda og ég
fékk ágætis verð fyrir kjötið.“
Kristján segist vongóður um að
nýr kvóti til atvinnuveiða verði
gefinn út. „Stjórnvöld fara eftir
ráðleggingum fiskifræðinganna
og ef þeir ætla að vera samkvæmir
sjálfum sér verður veiddur hvalur
eftir þeirra hugmyndum.“
Með sölunni á kjötinu eru skil-
yrði fyrir frekari atvinnuveiðum á
langreyði uppfyllt en sjávar-
útvegsráðherra hefur sagt að nýr
kvóti verði ekki gefinn út fyrr en
markaðsaðstæður leyfa slíkt og
búið sé að tryggja leyfi til að flytja
hvalkjöt til Japans. Spurður hvort
kvóti verður gefinn út í ljósi þess-
ara tíðinda segir sjávarútvegsráð-
herra að of snemmt sé að segja til
um það. „En það hlaut að koma að
þessu. Veiðin var ekki til þess að
veiða eingöngu heldur til að selja
afurðirnar.“ Einar segir að stjórn-
völd hafi ekki haft neina aðkomu
að sölu hvalkjötsins
Jón Gunnarsson, sem situr í
sjávar útvegsnefnd Alþingis, segir
ljóst að útflutningur á hvalkjöti frá
Íslandi og Noregi sé staðreynd.
„Þetta er í samræmi við það sem við
höfum haldið fram, að góður mark-
aður sé fyrir þessar afurðir. Nú er
ekkert annað að gera en að hefja
atvinnuveiðar á fullum krafti. Hags-
munirnir eru skýrir hvað varðar
okkar fiskistofna jafnt sem í tilliti
til atvinnusköpunar og útflutnings.“
Sjö langreyðar voru veiddar
haustið 2006 eftir að sjávarútvegs-
ráðherra gaf út kvóta til að veiða níu
dýr. Hafrannsóknastofnun telur
stofn langreyðar þola að 150 til 200
dýr séu veidd árlega. - shá
Útflutningur hafinn
á hvalkjöti til Japan
Sextíu tonn af kjöti af sjö langreyðum sem veiddar voru árið 2006 hafa verið
send til Japan. Með sömu ferð fór norskt hrefnukjöt á markað. Sjávarútvegs-
ráðherra segir of snemmt að segja til um hvort nýr veiðikvóti verði gefinn út.
HANDBOLTI Ísland verður ein af tólf
þjóðum sem eiga fulltrúa í hand-
botlakeppni Ólympíuleikanna eftir
29-25 sigur á Svíum í lokaleik
sínum í forkeppni Ólympíuleik-
anna. Þetta verða sjöttu Ólympíu-
leikarnir sem íslenska karlalands-
liðið verður með.
„Ég er rosalega stoltur og leyni
því ekki neitt. Ég vissi sem var að
verkefnið var erfitt og gat farið á
báða vegu. Mér rann blóðið til
skyldunnar og ég sé ekki eftir því í
dag. Þetta var ögrandi verkefni
sem tókst með þrotlausri vinnu
frábærs hóps,“ sagði Guðmundur
Guðmundsson landsliðsþjálfari.
Svíagrýla Íslendinga hefur
breyst í Íslandsgrýlu fyrir Svíana
eftir að íslenska handboltalands-
liðið kom í annað sinn á tveimur
árum í veg fyrir að Svíar kæmust á
stórmót.
„Við Dorrit óskum ykkur til
hamingju með glæsilegan sigur í
frábærum leik. Þjóðin fagnar öll
og óskar ykkur heilla á komandi
Ólympíuleikum. Sigurkveðjur,“
skrifaði Ólafur Ragnar Grímsson,
forseti Íslands, í heillaskeyti sem
hann sendi landsliðinu eftir sigur-
inn á Svíum í keppni um sæti á
Ólympíuleikunum í Peking í
sumar.
Sigurinn er í höfn en Svíar hót-
uðu á tímabili í gærkvöld að kæra
úrslit leiksins. Þeir sáu skömmu
síðar að sér og ekkert verður úr
kærunni. - óój / Sjá íþróttir 26
Íslenska landsliðið vann úrslitaleik gegn Svíþjóð í forkeppni Ólympíuleikanna:
Strákarnir okkar með á ÓL
MAÐUR LEIKSINS Hreiðar Levý Guðmundsson átti stórleik gegn Svíum í gær. Íslenska landsliðið tryggði sér með sigrinum þátttöku-
rétt á Ólympíuleikunum sem fram fara í Peking í ágúst. Lokatölur leiksins voru 29:25 Íslendingum í vil. FRÉTTABLAÐIÐ/ALEKSANDAR DJOROVIC
ÍTALÍA Þúsundir manna flykktust
út á götur Napólí í gær til að mót-
mæla því að sorpið, sem safnast
hefur í hauga á götum borgarinn-
ar, verði flutt á ruslahaug í Chia-
iano, einu af úthverfum borgar-
innar.
Íbúarnir telja sorpmóttökuna
vera of nálægt sjúkrahúsi til að
forsvaranlegt sé að safna þar
rusli. Sjúkrahúsið er í 1,6 kíló-
metra fjarlægð frá sorphaugnum.
Silvio Berlusconi, sem er nýorð-
inn forsætisráðherra Ítalíu á ný,
ákvað í síðustu viku að láta losa
ruslið úr borginni og koma því
fyrir á tíu stöðum, meðal annars í
Chiaiano. - gb
Ruslahaugarnir í Napolí:
Íbúar mótmæla
lausn vandans
ÞÚSUNDIR MÓTMÆLTU Íbúarnir telja
sorpmóttöku of nálægt sjúkrahúsi.
NORDICPHOTOS/AFPGreining og hættumat
„Við búum sem sé við dómsmála-
ráðherra sem ber ekki skynbragð
á lýðréttindi borgaranna og telur
glæpsamlegt að hafa aðrar stjórn-
málaskoðanir en hann sjálfur,“
skrifar Guðmundur Andri Thorsson.
Í DAG 14
Þróttur
skellti
toppliðinu
Þrettán mörk voru
skoruð í þremur
leikjum í 5. umferð
Landsbankadeildar
karla í gær.
ÍÞRÓTTIR 27