Fréttablaðið - 05.10.2008, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 05.10.2008, Blaðsíða 40
20 5. október 2008 SUNNUDAGUR sport@frettabladid.is FÓTBOLTI Jónas Guðni Sævarsson, fyrirliði KR, var að vinna sinn þriðja bikarmeistaratitil í gær en hann varð bikarmeistari með Keflavík árin 2004 og 2006. „Ég vinn bikarmeistaratitilinn alltaf á tveggja ára fresti, árin 2004, 2006 og 2008, þannig að ég vinn bikarinn aftur árið 2010,“ segir Jónas Guðni sigurreifur. „Það er frábært að enda sumarið með þessum hætti og vera taplausir í níu síðustu leikjum okkar og landa titli. Maður getur ekki verið annað en ánægður með þetta sumar þó svo að við hefðum vissulega viljað vera nær toppnum í deildinni. Ég lít í raun og veru á þetta sem frábært sumar með bikarmeist- aratitlinum. Það er bara þannig,“ segir Jónas Guðni. - óþ Jónas Guðni Sævarsson, KR: Tek bikarinn aftur árið 2010 SIGURVEGARI Jónas Guðni Sævarsson vann bikarinn í þriðja skiptið á ferlinum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON FÓTBOLTI „Leikurinn var bara mjög jafn, eins og reyndar allar viðureignir liðanna í sumar og það var því svo sem vitað fyrirfram að þetta yrði bara stál í stál. Lítið var um færi og það er því óhugnanlega svekkjandi að við höfum þurft að sjá um að skora sigurmarkið fyrir þá og mér fannst ekki vera neinn meistarabragur yfir þessu hjá þeim,“ segir Pétur Georg Markan, sóknarmaður Fjölnis, svekktur í leikslok. „Þetta er í annað árið í röð sem við förum í þennan bikarúrslita- leik og við vorum kannski frekar lítillátir í fyrra en nú vildum við bara vinna og ekkert annað. Það er því erfitt að vera eitthvað að stæra sig af því að hafa farið tvisvar í bikarúrslitaleik og tapa í bæði skiptin. Það er ömurlegt. Það er samt vissulega erfitt að segja eitthvað þegar allir eru að reyna sitt besta. Þá er þetta bara spurning um hvort þetta fellur þín megin eða ekki og þetta féll með KR í þessum leik.“ - óþ Pétur Georg Markan, Fjölni: Allir reyndu að gera sitt besta ÁTÖK Fjölnismaðurinn Pétur Georg Markan reynir að stöðva KR-inginn Gunnar Örn Jónsson. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON FÓTBOLTI Þjálfarinn Ásmundur Arnarsson hjá Fjölni, sem hefur gert frábæra hluti með Grafarvogsfélagið á undanförnum árum, var eðlilega svekktur í leikslok í gær. Ásmundur var tiltölulega sáttur með spilamennsku Fjölnis í fyrri hálfleik en allt annað en sáttur með seinni hálfleikinn hjá sínum mönnum. „Við lögðum leikinn upp með að spila agaðan varnarleik og að keyra svo á þá eins mikið og tækifæri gáfu til og mér fannst við gera það ágætlega í fyrri hálfleik. Þá náðum við að skapa okkur nokkur færi sem hefðu getað skilað einhverju en síðasta sendingin klikkaði þá gjarnan. Í seinni hálfleik náðum við að mér fannst aldrei almennilegum takti við leikinn og vorum nánast bara í vörn og í einhverjum eltingarleik,“ segir Ásmundur. Fjölnismenn töpuðu einnig bikarúrslita- leiknum í fyrra, þá eftir framlengdan úrslitaleik gegn FH, og það eykur ef eitthvað er á vonbrigðin með að hafa tapað nú gegn KR með marki á 89. mínútu. „Það er alltaf leiðinlegt að fá á sig mark á lokamínútunum og það er skelfilegt að tapa með þeim hætti. En það er bara svona, óneitanlega súrt í broti en við getum náttúru- lega verið sáttir með sumarið í heild sinni. Það er bara dálítið erfitt að sjá það núna því við ætluðum að vinna bikarinn og það er fúlt að fá silfrið aftur,“ segir Ásmundur. - óþ Spútniklið Fjölnis þurfti að sætta sig við silfur, annað árið í röð, eftir tap gegn KR í úrslitaleik VISA-bikarsins: Skelfilegt að tapa með þessum hætti SVEKKTUR Ásmundur Arnarsson, þjálfari Fjölnis, var eðlilega súr eftir svekkjandi tap gegn KR í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR FÓTBOLTI KR varð í gær bikarmeist- ari karla í ellefta sinn í sögu félags- ins en Vesturbæjarstórveldið hefur unnið bikarinn oftast allra félaga á Íslandi. Logi Ólafsson, þjálfari KR, var brosmildur í leikslok eftir erf- iðan úrslitaleik. „Þetta var eins og við var að búast, erfiður leikur fyrir okkur. Við vissum að Fjölnismenn myndu liggja aftarlega á vellinum og reyna að beita skyndisóknum og við ætluðum að koma í veg fyrir það. Við pressuðum þá framarlega og reyndum þannig í veg fyrir að þeir næðu góðum sendingum fram völlinn. Það gekk ágætlega upp og þeir fengu ekki mörg færi. Að sama skapi gekk okkur erfiðlega að komast í færi vegna þess hve aftarlega þeir lágu og það var því kærkomið að fá þetta mark í lokin. Sigurinn skrifast klárlega á liðs- heildina og eljuna sem við sýnd- um,“ segir Logi. Leikurinn fór vægast sagt rólega af stað í gær og var tíðindalítill á upphafsmínútunum. Það var meira líf með KR-ingum eftir því sem líða tók á fyrri hálfleikinn á meðan Fjölnismenn lágu til baka og reyndu að beita skyndisóknum. En bæði lið áttu það sameiginlegt að þeim gekk illa að reka smiðshöggið á sóknarlotur sínar. Sóknaraðgerð- ir beggja liða voru á stundum efni- legar en þegar kom að því að taka síðustu sendinguna, var hún oftast nær alveg glæpsamlega léleg og lítið sem ekkert reyndi á mark- verðina, Þórð og Stefán Loga. Stuðningsmenn liðanna létu til- þrifaleysið þó ekki á sig fá og héldu uppi frábærri stemningu í stúk- unni. Vallaraðstæður voru vissulega ekki eins og best verður á kosið og Laugardalsvöllurinn var reyndar ekki í leikhæfu ástandi í gær- morgun fyrir leikinn. En hvort sem það hefur haft áhrif á spilamennsku liðanna eða ekki þá var fátt sem gladdi augað í fyrri hálfleik og staðan markalaus þegar hálfleiks- flautan gall. KR-ingar byrjuðu seinni hálf- leikinn betur og á 53. mínútu áttu Gunnar Örn Jónsson og Björgólfur Takefusa skemmtilegt þrí hyrnings- spil sem endaði með því Gunnar Örn átti fínt skot sem Þórður varði. Þetta var fyrsta skot KR-inga í leiknum sem hitti á markið. KR-ingar héldu áfram að pressa án þess sem fyrr að skapa sér almennileg marktækifæri. Fjölnis- menn virkuðu að sama skapi hug- myndasnauðir og ólíkir sjálfum sér. Það dró til tíðinda á 83. mínútu er hurð skall nærri hælum hjá Fjöln- ismönnum þegar Grétar Sigfinnur Sigurðarson, varnarmaður KR, átti skalla í slá eftir hornspyrnu vara- mannsins Óskar Arnar Hauksson- ar. Óskar Örn átti eftir að reynast Vesturbæingum heldur betur drjúgur því þegar allt virtist stefna í framlengingu lét Óskar Örn að sér kveða á ný. Á 89. mínútu barst boltinn til kantmannsins vinstra megin fyrir utan vítateig Fjölnis og hann lét vaða að markinu. Boltinn virtist stefna fram hjá þegar hann hafði allt í einu viðkomu í Kristjáni Haukssyni, varnarmanni Fjölnis og þaðan fór hann í markið. KR- ingar fögnuðu dátt, en Fjölnismenn trúðu ekki eigin óheppni. Fjölnismenn gerða harða atlögu að marki KR-inga á lokaandartök- um leiksins og gerðu tilkall til víta- spyrnu í blálokin en dómarinn Magnús Þórisson flautaði ekki. Stuttu síðar flautaði Magnús svo til leiksloka og KR-ingar því VISA- bikarmeistarar 2008. KR-ingar voru talsvert á milli tannanna á fótboltaspekingum fyrir tímabilið og margir hverjir gerðu þá kröfu á að félagið næði að landa titli í sumar. Logi lét sér fátt um finnast um þannig tal þá og það hefur ekkert breyst núna þrátt fyrir bikarmeistaratitilinn. „Við erum ekki uppteknir af því sem aðrir eru að segja. Við viljum bara vinna okkar verk og vinna að okkar markmiðum, hvað svo sem öðrum finnst. En við skulum samt sjá hvað úrtölumenn segja fyrir næsta tímabil,“ sagði Logi og glotti við tönn. omar@frettabladid.is KR bikarmeistari í ellefta skiptið KR-ingar hrósuðu 1-0 sigri í bragðdaufum úrslitaleik í VISA-bikar karla gegn Fjölnismönnum á Laugardals- velli í gærdag. Sigurmarkið var sjálfsmark Kristjáns Haukssonar, varnarmanns Fjölnis, á 89. mínútu leiks- ins. Fjölnismenn urðu þar með að sætta sig við silfurverðlaunin í VISA-bikarnum, annað árið í röð. STEMNING Það var sannarlega frábær stemning í stúkunni og áhorfendur létu vel í sér heyra. SIGURÖSKUR KR-ingar fögnuðu að vonum gríðarlega á Laugardalsvellinum í gær. Á myndinni má sjá frá vinstri Grétar Sigfinn Sigurðarson, Jónas Guðna Sævarsson og Gunnlaug Jónsson í sigurvímu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON > Svekkjandi endir á ferlinum Miðjumaðurinn knái Ágúst Gylfason hjá Fjölni lék sinn síðasta leik á ferlinum í tapinu gegn KR í gær og var að vonum svekktur í leikslok. „Við vorum þéttir og fórum inn í leikinn með það að leiðarljósi að halda markinu hreinu og ná að lauma inn einu marki eða svo. Það var því erfitt að fá það í andlitið svona seint í leiknum að þeir nái að skora, það var erfitt að svara fyrir það,“ segir Ágúst. „Ég er harðákveðinn í því að ég er hættur en það er vissulega svekkjandi að enda þetta á þennan hátt. Sumarið er hins vegar í heildina búið að vera gott og að ná sjötta sætinu og úrslitaleik í bikarn- um er mjög góður árangur og vonandi nær Fjölnir að byggja á því.“ Pétur Hafliði Marteinsson, varnarjaxl KR, var í skýjunum með bikarsigurinn í gærdag og hrósaði sér í lagi sterkri liðsheild fyrir þá staðreynd að sigurinn hafi komist í höfn hjá KR. „Það var frábært að enda tímabilið með bikarmeistaratitli. Svona eftir á að hyggja er mér nokkurn veginn sama hvernig leikurinn sjálfur spilaðist. Aðalmálið var að við næðum að halda þetta út, berjast áfram og ná að skora sigurmarkið og það gekk eftir og tilfinningin er gríðarlega ljúf,“ segir Pétur Hafliði. Pétur Hafliði átti stóran þátt í uppgangi Vestur- bæinga eftir erfiða byrjun á keppnistímabilinu og var lykilmaður í varnarleik liðsins í sumar og myndaði öflugt miðvarðapar með Grétari Sigfinni Siguðarsyni. Pétur Hafliði skoraði einnig gríðarlega mikilvægt mark fyrir KR-inga í framlengdum undanúrslitaleik gegn Breiðabliki. „Það sem er svo gaman við þetta allt saman er að vinna bikarmeistaratitilinn með liði sem er búið að vera stígandi í leik sínum og hefur verið að bæta sig jafnt og þétt í allt sumar. Við misstum liðin aðeins fram úr okkur í upphafi móts og það var erfitt en við misstum aldrei trúna á verkefninu og andinn í hópnum var alltaf frábær, sama á hverju bjátaði. Á ákveðnum tímapunkti settum við okkur þau markmið að ná sem allra lengst í bikarnum og það er algjörlega frábært að uppskera það með þessum hætti í lok tímabilsins,“ segir Pétur Hafliði. Pétur Hafliði hefur verið að melta það með sér hvað taki við hjá honum í lok sumarsins og aðspurður kvaðst hann vera búinn að ná lendingu í því máli. „Ég býst við því að bikarúrslitaleikurinn verði minn síðasti leikur á ferlinum. Það er búið að vera frábært að vinna með þessum stráknum og ég held að það gerist ekki betra en að enda ferilinn á bikartitli með frábæru liði og með frábæra stuðningsmenn á bak við sig. Ég reikna með því að henda skónum í ruslið á eftir.“ KR-INGURINN PÉTUR HAFLIÐI MARTEINSSON: HEFUR AÐ ÖLLU ÓBREYTTU LEIKIÐ SINN SÍÐASTA LEIK Á FERLINUM Reikna með því að henda fótboltaskónum í ruslið Á FLUGI Logi Ólafsson, þjálfari KR, var tollerað- ur í leikslok í gær.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.