Tíminn - 07.07.1983, Blaðsíða 1

Tíminn - 07.07.1983, Blaðsíða 1
Fimm leikir f bikarkeppni KSÍ — bls. 10 og 19 FJÍ OG ÍLBREYTTARA BETRA BLAÐ! Fii 15 nmtudagur 7. júlí 1983 4. tölublað - 67. árgangur Enginn sýnt fram á að raðsmfðaskipin geti staðið undir fjárfestingunni: „EKKERT AF VERDMÆTASKOP- UNINNISKILAR SÉR T1L BAKA” — segir Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegsráðherra ■ „Það hefur enginn sýnt fram á það að þessi raðsmíðaskip geti staðið undir fjárfestingu. Líkindi benda tO þess, að þau geti greitt til baka þriðjung tU helming af fjárfestingarkostnaði. Ég var upplýstur um það á Akureyri, að um það bil helmingur af stofn- kostnaði skipanna væri innflutt efni og samkvæmt því og við núverandi aðstæður sýnist mér að ekkert af þeirri verðmæta- sköpun sem á sér stað í skipa- smíðastöðinni skili sér til baka,“ sagði Halldór Ásgrímsson, sjáv- arútvegsráðherra, þegar borin voru undir hann ummæli Gunn- ars Ragnars, forstjóra Slipp- stöðvarinnar á Akureyri, þess efnis að verið væri að keyra niður skipasmíðaiðnaðinn í Iand- inu, ef hætt yrði við byggingu raðsmíðaskips, sem nú er veríð að hefja byggingu á hjá Slipp- stöðinni. „Ofan á þetta bætist að í flotanum eru mjög fá skip sem hafa rekstrargrundvöll og öll skip sem við bætast minnka möguleika þeirra sem fyrir eru. Ef eitthvað er skammsýni þá er það að halda áfram á sömu braut - í fyrsta lagi að fjárfesta þannig að ekkert skili sér til baka og í öðru lagi að gera rekstrar- grundvöll skipa sem fyrir eru verri." - Hvernig verður þá komið til móts við vanda skipasmíðaiðn- aðarins? „Auðvitað verður að takast á við vanda hans og það er mikil- vægt fyrir sjávarútveginn að hann geti haldið áfram. Það verður hins vegar að gera með einhverri skynsemi. Ásakanir sitt á hvað hjálpa ekki til í þeim efnum.“ Halldór sagðist hafa verið á fundum, meðal annars með aðil- um frá Hafrannsóknarstofnun, til að ganga úr skugga um það hvort stofnunin gæti ekki notað eitthvað af raðsmíðaverkefnis skipunum, - en þau eru fjögur alls og þar af aðeins eitt selt, - til að leysa framtíðarþörf stofnun- arinnar. „Það er okkur að sjálfsögðu mikilvægt að eiga fullkomin rannsóknarskip. Um alllangt skeið hefur verið stárfandi nefnd sem telur þörf á því að endurnýja tvö hafrannsóknarskip. Meðal annars sé nauðsynlegt að fá lítið skip í stað Drafnar. Eg tel það koma mjög til álita að seinna skip slippstöðvarinnar á Akureyri komi þar inn í dæmið,“ sagði Halldór. Hann sagði loks að í þessum efnum yrði að taka hagsmuni heildarinnar fram yfir hagsmuni einstakra fyrirtækja. Og því mið- ur væri ekki hægt að sjá að tillit hefði verið tekið til þess í sam- bandi við umrætt raðsmíðaverk- efni. “SÍÓ- Féll í yfirlið vegna eitur- gufu f plastgerð: Sjúkrabfll afpantaður ad hans ósk -féll aftur f yfirlið skömmu seinna og liggur á Landspftalanum ■ Piltur sem var við vinnu í plastgerð Vélsmiðjunnar Norma í Garðabæ, en þar eru m.a. framleiddir fiskkassar féll í yfir- lið vegna eiturgufa sem hann andaði að sér. Strax var pantaður sjúkrabíll til að flytja hann á sjúkrahús en hann mun hafa legið einhvern tíma í yfirliði áður en menn urðu þessa varir. Pilturinn komst svo til meðvit- undar skömmu eftir að sjúkra- bíllinn var lagður af stað og vildi hann þá afpanta sjúkrabílinn. Var farið að óskum hans. Er hann var kominn heim til sín hinsvegar féll hann aftur í yfirlið og var þá fluttur á Land- spítalann þar sem hann liggur nú en líðan hans mun vera eftir aðstæðum góð. -FRI Lítið veidd ist í Þverá — George Bush og Stein grfmur Hermannsson, fengu þó einn hvor ■ Þeir voru ekki sérstaklega fengsælir, veiðimennirnir í Þverá í Borgarfirði í gær. George Bush dró þó einn 5 punda lax og Steingrímur Hermannsson ann- an jafnstóran. Geir Hallgrímsson varð ekki var, en Tíminn hefur reyndar ekki öruggar fregnir af því hvort hann kastaði færi eða lét sér nægja að fylgjast með tilburðum hinna við veiðarnar. Bush lagði af stað til veiðanna með föruneyti í þyrlu landhelg- isgæslunnar frá Þingvöllum en þar hafði Jón Helgason forseti Sameinaðs alþingis hádegisverð- arboð gestunum til heiðurs. í gærmorgun ræddi Bush við ís- Ienska ráðamenn og embættis- menn meðan frúin heimsótti m.a. frú Auði og Halldór Lax- ness á Gljúfrasteini. I gærkvöldi sat Bush kvöld- verðarboð forseta íslands á Bessastöðum en gestirnir halda heimleiðis um kl. 13.00 í dag. Sjá bls. 4-5. -JGK ■ Forseti íslands, Vigdís Finnbogadóttir hélt hóf á Bessastöðum til heiðurs George Bush varaforseta Bandaríkjanna og sjást þau hér saman við komu hans á forsetasetrið. Tímamynd Árni Sæberg. „Húsarotta” gengurlaus í Kópavogi: FÓR INNÁ 5-6 STAÐI ■ „Það gengur „húsarotta" laus hér í bænum og við höfum verið að fá tilkynningar um hann í allan dag“ sagði Eðvarð Ámason lögregluþjónn í Kópa- vogi í samtali við Tímann og vildi hann vara íbúa bæjarins við þessum manni. Ekki mun hann enn hafa haft neitt fémætt að ráði úr þeint húsum sem hann hefur farið í. „Hann hefur farið inn á 5-6 stöðum, aðaliega í kjallara og í fjölbýlishús hér í austurbæn- um“ sagði hann. Þeir sem einhverjar upplýsr ingar geta gefið um þennan mann eru beðnir um að koma þeim áleiðis til lögreglunnar. ____________-FRI BLAÐAUKI UM HVERA- GERÐI ■ Sérstakur blaðauki um Hveragerði og nágrenni fylgir Tímanum í dag. Eftir eina viku er ráðgert ,að svipað blað um Ölfus og Þorlákshöfn verði geflð út. I framhaldi af þessu ert meiningin að hálfsmánaðar- lega verði gefln út aukablöð sem helguð verði ákveðnum byggðarlögum, þar sem sagt verði frá því sem helst er á döflnni þar á sém fléstum sviðum.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.