Tíminn - 11.04.1984, Blaðsíða 1

Tíminn - 11.04.1984, Blaðsíða 1
Islendingaþættir fylgja blaðinu í dag Siðumula 15—Posthólf 370 Reykjavik—Ritstjórn86300-Augiysingar 18300— Afgreiðsla og askrift 86300 — Kvóldsimar 86387 og 86306 Hálka og sviptivpndar á Vesturlandsvegi SEX BÍLAR FUKU ÚT AF ■ Sex bílar fuku út af Vestur- landsvegi, á móts við Korpúifs- staði um kl. 18.00 í gær. Einn bíllinn skemmdist töluvert, en hinir bflarnir héldust á hjólun- um. Einn komst upp af sjálfsdáð- um en kranabíl þurfti til að ná hinum upp á veginn. Engin slys urðu á fólki. Að sögn lögreglu var mjög mikil hálka á smá vegarkafla móts við Korpúlfsstaði, auk þess var mjög sviptivindasamt seinni part dagsins þannig að bílarnir fuku þvers og kruss. ■ Stórhætta var á smá kafla á Vesturlandsvegi í gær vegna hálku og sviptivinda. 6 bílar fuku út af veginum, þar af valt einn og skemmdist töluvcrt. Þessi mynd var tekin af hálkukaflanum í gær og sýnir bílana eins og hráviði utan vegar. Á innfelldu myndinni sést bfllinn sem valt. Tímamynd Sverrir. . • >•-, ■ ; ■ Ríkisstjórnin f jallar enn um f járlagadæmið: GENGISFELUNG EF EKKI TEKST AÐ FYLLA GAHÐ? ■ „Ég skal ekki segja hver niðurstaðan verður. Við sátum yfir þessu í dag og niðurstaða verður að fást á þingflokks- fundum á morgun og síðan í ríkisstjórn á fimmtudag“, Bláa lónið: FJOGUR ÞUSUND TONN AF KÍSIL FALLA TIL ÁRLEGA en enginn vill kaupa ■ í frárennslislóni Hitaveitu Suðurnesja í Svartsengi, svo- kölluðu Bláa Lóni fellur út mikið af ómenguðum kísil sem nýta mætti við margskonar iðnfram- leiðslu. Að sögn Ingólfs Aðal- steinssonar framkvæmdastjóra Hitaveitu Suðurnesja er hér um að ræða 4000 tonn á ári. Eins og kunnugt er þá er kísillinn hráefni í gler, fyllingar- efni í málningu, síunarefni og margt fleira mætti nefna sem kísillinn nýtfst við. Munurinn á kíslinum í Svartsengi og þeim sem unninn er norður í Mývatns- sveit er sá að kísillinn þar er unninn úr skeljum og því mun heppilegri en hreinn kísill sem síunarefni. A hinn bóginn má ætla að kísillinn í Svartsengi sé heppilegur til ýmisskonar fram- leiðslu þar sem kísils er þörf sem hráefni. Að sögn Ingólfs Aðalsteins- sonar hefði hitaveitan ekkert á móti því að kísillinn væri unninn ef einhver hefði áhuga. - b. sagði Steingrímur Hermanns- son, forsætisráðherra spurður hvernig gengið hafl að fylla upp í gatið á fundi ríkisstjórnar í gær. Steingrímur sagði kannski einhverja samstöðu hafa náðst um helming vandans, en hitt vanti ennþá. M.a. gat hann þess að tillögur væru komnar fram um í kringum 200 mill- jóna króna sértekjur í heil- brigðis og tryggingakerfinu, þannig að á því sviði hafi töluvert náðst. Róttækar skipulagsbreytingar á hinum tveim stóru kerfum okkar - heilbrigðis- og menntakerfinu sé þó sennilega eina vitið. Þangað fari mesta fjármagnið - um helmingur af fjárlögun- um. „Ef ekki er skorið niður þar þá er þetta vonlaust", sagði Steingrímur. Steingrímur sagði nú brýnt að halda áfram viðureigninni við verðbólguna með því að taka á öðrum þáttum en kaup- mættinum. Hin mikla þensla í peningamálum sé lang alvar- legasti þátturinn og verði ríkis- sjóður síðan rekinn með mikl- um halla ofan á þensluna í bankakerfinu hljóti það að lokum að leiða til þess að 1 þrýstingurinn á gengið valdi meiri gengisbreytingu en ríkis- . stjórnin hafi hugsað sér. „Ég tel því alvarlegt ef okkur tekst ekki að fylla upp í þetta gat að mestu leyti“. - HEI. Stundakennarar við Háskólann: Leggja nið- ur vinnu á mánudaginn — til að leggja áherslu á kröfur sínar ■ Slundakennarar við Há- skóla íslands hafa ákveðið að leggja niður kennslu mánudag- inn 16. apríl n.k. til að leggja áherslu á kröfur sínar um að reglur uin greiðslur til stunda- kennara við HÍ verði endur- skoðaðar. Kennararnir ætla að nota verkfallsdaginn sem starfsdag þar scm komið verði saman til að ræða þessi mál og skora þeir á aöra stunda- kcnnara, fastráðna kennara við Háskólann og háskóla- nema að mæta ekki til kennslu þennan dag. -GSH Landbúnaðarsýning í haust: Sú stærsta sem haldin hefur verið hérlendis ■ Dagana 20.-30. september næstkomandi halda Markaðs- nefnd landbúnaðarins og Mjólk- urdagsnefnd eina þá stærstu og glæsilegustu matvælasýningu sem haldin hefur verið hérlendis jafnframt því sem þarna verða til sýnis aðrar landbúnaöarvörur svo sem skinna og ullarafuröir, blóm og ýinsar nýjungar scm ekki hafa verið kynntar almenn- ingi fyrr. Samhliða sýningunni verður fagráðstcfna þar sem verða um 40 landbúnaðarráð- herrar mcðal þátttakenda. Sýningin verður haldin í hús- næði Mjólkursamsölunnar á Bitruhálsi, sem þá verður koniið undir þak og verður sýningar- svæðið 1500 fermetrar. Sýning- argestum mun gefast kostur á að smakka á þeim vörum sem þarna verða á boðstólunum en jafn- framt verða til sölu sérstakir kynningarpakkar landbúnaðar- afurða. Á næstu dögum verður skipað í sýningarráð þar sem munu sitja fulltrúar allra helstu afurðasölufyrirtækja og verður fyrsti fundur ráðsins haldinn 17. apríl. Er það von aðstandenda sýningarinnar að sem flest af- urðasölufyrirtæki sjái sér fært að taka þátt í þessari einstöku sýn- ingu. -b I

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.