Tíminn - 19.02.1986, Blaðsíða 1

Tíminn - 19.02.1986, Blaðsíða 1
LÁNASJÓÐSSTJÓRN er enn bitbein stúdenta því Ólafur Arnarson fulltrúi Vöku í stjórninni, sem sagöi sig úr stjórninni 6. febrúar s.l., situr enn stjórnarfundi þar til Sverrir Hermannsson hefur skipað formlega fulltrúa nemenda í stjórnina. Ólafur stóö aö því í gær að fella tillögu frá SINE og BIS um aö varafulltrúar nemenda tækju sæti í stjórn- inni án skipunar ráöherra enda væru for- dæmi fyrir slíku. Sverrir hefur lýst því yfir aö hann ætli aö gefa sér góöan tíma áöur en hann skipar nýja fulltrúa. KARLMAÐUR á fertugsaldri hefur veriö úrskurðaöur í gæsluvarðhald fram til 3. mars, vegna gruns um tilraun til nauðgunar. Ólíkt því sem gerist í flestum málum í þess- um málaflokki, reyndi maöurinn að nauðga kynbróöur sínum, sem streyttist harkalega á móti, og lauk viöskiptum þeirra svo aö hiö tvítuga fórnarlamb náöi aö flýja íbúð nauögarans, og hefur málið veriö kært til Rannsóknarlögreglu ríkisins. VISTMAÐUR MEÐ brunasár var fluttur á slysadeild [ gærkvöldi frá deild 8 á Kópavogshæli. Kviknað hafði í fötum mannsins, út frá sígarettu aö því er talið var, og mun hann hafa brennst fremur illa, sér- staklega á bringu. MIKHAEL TAL teflir fjöltefli við bankamenn í Utvegsbankanum í kvöld kl 19.00. SÁTTAFUNDUR var boöaður meö samninganefndum BSRB og ríkisins í gærkvöldi, eftir að lítt hafði miðað bæði varö- andi kaupmáttaraukningu og kaupmáttar- tryggingu. Óvíst var hversu lengi sá fundur myndi standa. RANNSÓKNARlögreglan á Akur- eyri á von á kærum frá a.m.k. þrem aðilum sem hafa í hyggju aö kæra Hitaveitu Akureyr- ar vegna of hárra hitaveitureikninga, aö þvi aðdagblaöið Ðagursegir. Meö því vilja þeirfá rannsókn á því hvort upphæö hitaveitureikn- inganna sé réttlætanleg. NORRONA, skip Smyril Line, mun á komandi sumri sigla sömu áætlun og undan- farin tvö surflur þ.e. frá Seyðisfirði á fimmtu- dögum mánuðina júní, júlí og ágúst til Fær- eyja, Danmerkur, Hjaltlandseyja og Noregs. Þaö eru engar áætlanir uppi um aö m/f Smyril, skip Strandfaraskipa landsins í Fær- eyjum, taki upp farþegaflutninga til íslands, hvorki til Þorlákshafnar, Vestmannaeyja, né annarra íslenskra hafna. Þessu vill Feröa- skrifstofa ríkisins kom á framfæri til að forð- ast misskilning vegna rangs fréttaflutnings aö undanförnu. VÍÐIR í STARMÝRI hefurskiptum eigendur. Guömundur Ragnarsson, bróöir Jónasar Ragnarssonar kaupmanns í Kefla- vík hefur fest kaup á versluninni og mun hann taka viö rekstrinum um mánaöamótin. Kaupverö verslunarinnar fékkst ekki upp- gefið. Guðmundur hefur áöur komið nálægt kaupmannsstörfum og verslunum, því hann var yfirmaður hjá Jónasi bróöur sínum í Keflavík í versluninni Nonni og Bubbi. Ekki hafa verið boöaöar grundvallarbreytingar í rekstrinum og því viöbúiö aö hún starfi áfram þar sem fyrri eigendur skilja viö. VEL VIÐ SKÁL brutust tveir menn inn í Nesapótek á Eiðisgranda í fyrrinótt. Mennirnir höföu á brott meö sér talsvert magn af skiptimynt, en uröu aö hverfa fljótar úr apótekinu en upphaflega var gert ráö fyrir, þar sem lögregla kom aö þeim viö innbrotið. Þeir náöust á tveimur jafnfljótum og hafa ver- iö í yfirheyrslum hjá Rannsóknarlögreglu ríkisins. KRUMMI Maður fer nú að efast um hvor er fjármálaráðherra, Ásmundur eða Þor- steinn... Bjöm Þórhallsson varaformaður ASÍ, Magnús L. Sveinsson formaður V.R. og Magnús Gunnarsson framkvæmdastjóri VSÍ, ræðast við í fundarhléi igær. Samningar: HREYFING KOMIN Á VIDRÆDURNAR - eftir aö ASÍ varpaöi fram nýjum hugmyndum Samninganefndir ASÍ, VSÍ og VMS komu saman til fundar í gær- kvöld til framhaldsviðræðna um þær hugmyndir sem ASÍ kom fram með í fyrrinótt. í millitíðinni var skipuð sérstök undirnefnd til að ræða kauptrygg- ingarmál og að sögn Ásmundar Stefánssonar fékkst ekki efnisleg niðurstaða á fundi þeirrar nefndar í gærdag. ASÍ hefur lagt fram kröfu um rauð strik sem eins konar vísitölu- tryggingu, en vinnuveitendur lögðu fram í tilboði sínu frá því í síðustu viku að gerðardómur ákvarði um laun ef framfærsluvísi- talan fari fram úr viðmiðunarmörk- um. Deiluaðilar ákváðu að taka sér umhugsunarfrest til að skoða þessi mál betur. Hugmyndir ASÍ frá því í fyrri- nótt hafa fengið þokkalegar undir- tektir hjá atvinnurekendum en í þeim er gert ráð fyrir stórauknu hlutverki ríkissjóðs frá því sem áður var. Hugmyndin er að með ákveðnum aðgerðum greiði ríkis- sjóður niður verðlagshækkanir þannig að verðbólgan lækki allt niður í 7% í árslok. Helstu leiðir sem nefndar hafa verið í því sam- bandi eru lækkun tolla á hátolla- vörum, sem vega þungt í vísitölu- grundveliinum, að greiða niður bú- vöruverð og nota til þess fé sem annars færi til útflutningsbóta, lækka verðjöfnunargjald á raf- orku, auk fleiri atriða s.s. að óbein- ir skattar yrðu lækkaðir, en beinir skattar þá lækkaðir minna en gert var ráð fyrir í hugmyndum ríkis- stjórnarinnar. Með þessum tillög- um og útfærslu þeirra vonast ASl eftir að kaupmáttur þeirra lægst launuðu sem ekki hafa notið launa- skriðsins svokallaða gæti hækkað um 8% en kaupmáttur almennt héldist sá sami og var að meðaltali í fyrra. Atvinnurekendur hafa lýst sig til umræðu um að kaupmáttur verði almennt hinn sami og í fyrra, en að- ilar eru ekki sammála um hvernig þetta megi útfæra og fá ekki sömu „Það er lítil ástæða fyrir okkur íslendinga að óttast aðgerðir þeirra Grænfrjðunga í Bandaríkjunum í sumar. Það er greinilegt að slag- kraftur jreira er ekki sá scm þeir segja hann vera. Grænfriðungar og önnur dýraverndunarsamtök hafa sagt að þau gætu valdið gífurlegum skemmdum á mörkuðum okkar víða í Bandaríkjunum, þar sem þau hafa greiðan aðgang að stjórn- völdum og svo og svo mikil áhrif á stjórnsýslusviðinu," sagði Kristján Loftsson framkvæmdastjóri Hvals hf. í samtali við Tímann í gær. Tilefni þessara ummæla Krist- niðurstöður út úr útreikningum sínum. Samningamenn beggja vegna borðsins ítrekuðu það í gær að hér væri einungis um hugmyndir að ræða og sögðu að þeir yrðu að nálgast frekar áður en þeir gætu farið með þessar hugmyndir til ríkisstjórnarinnar. Ásmundur Stefánsson sagði að ef af samningum á þessum nótum yrði myndi kostnaður eða tekjutap jáns er grein sem birtist í helgar- blaði Tímans 9. febrúar, þar sent sagt var frá því að Bandaríkjamenn hafi heimilaö veiðar á ameríska vísund- inum aftur, eftir nær aldar friðun, úr stofni sem telur 2000 dýr. „Stjórnvöld í Bandaríkjunum eru að friða þessa dýraverndar- hópa með því að vera að andskot- ast í öðrum, sem ekki eru á þeirra heimavelli. Baráttan gegn hval- veiðum og fleiru, er pólitík sem er keyrð á erlendum vettvangi til þess að friða dýraverndunarhópa og tryggja að friður sé fyrir þeim heima í Bandaríkjunum," sagði ríkissjóðs geta orðið einhvers stað- ar í kringum 1 milljarð króna allt eftir því við hvaða útreikninga menn miðuðu. Mjögmisjafnthljóðvarí samn- ingamönnum í gærkvöld, sumir töldu að vel miðaði aðrir mun minna. Allir voru þó sammála um að hreyfing væri komin í samkomu- lagsátt. - BG Kristján. Hann sagði að undirbúningur væri svipaður og vanalega fyrir hvalvertíðina sem hefst í júnímán- uði. Kristján vildi benda á að að- gerðir gegn Norðmönnum hefðu verið áhrifalausar á mörkuðum í Bandaríkjunum. „Þessir menn bara gala og gala annað veifið en slagkrafturinn er enginn. Ef við lít- um til sölu Norðmanna í Banda- ríkjunum á sjávarafurðum þá hefur salan aukist ár frá ári þó Grænf- riðungar segist sjálfir vera með miklar efnahagsþvinganir í gangi." -ES Kristján Loftsson framkvæmdastjóri Hvals hf.: „Þurfum ekki að óttast hótanir Grænf riðunga“ - slagkraftur þeirra ekki sá sem þeir segja

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.