Tíminn - 01.10.1986, Blaðsíða 7

Tíminn - 01.10.1986, Blaðsíða 7
Miðvikudagur 1. október 1986 Tíminn 7 BJ og Alþýðuflokkur: BJ fellur frá hugmyndum um stjórnkerfisbreytingar bein kosning forsætisráðherra lögð á hilluna „Á undanförnum árum hefur Alþýðuflokkurinn tekið miklum stakkaskiptum. Áherslur hans í stjórnmálum eru nútímalegri og frjálslyndari en áður. í sveitar- stjórnarkosningum sl. vor staðfesti Alþýðuflokkurinn að hann hefur möguleika og vilja til að beita sér fyrir róttækum breytingum í ís- lenskum stjórnmálum. Því hefur nú myndast grundvöltur fyrir sam- vinnu þessara tveggja stjórnmála- hreyfinga." Þetta segir m.a. í yfirlýsingu sem Bandalag jafnað- armanna hefur gefið út í tilefni af því að það hefur ákveðið að ganga í Alþýðuflokkinn, en þeir sem gegnt hafa trúnaðarstörfum fyrir BJ hafa stofnað Félag frjálslyndra jafnaðarmanna og sótt uni inn- göngu í Alþýðuflokkinn. Jón Baldvin Hannibalsson formaður Alþýðuflokksins sagði á sameigin- legum blaðamannafundi með BJ í gær að trúlega yrði Félag frjáls- lyndra jafnaðarmanna samþykkt inn í flokkinn síðar um daginn og síðan yrði inngangan endanlega staðfest af flokksþinginu 3.-5. okt- óber. Félag frjálslyndra jafnað- armanna myndi síðan starfa innan Alþýðuflokksins sem eitt af flokks- félögunum. Jón Baldvin sagði ennfremur að með þessari ákvörðun BJ væru sögulegum sættum náð í röðum jafnaðarmanna á íslandi og með henni væri bætt fyrir klofning Vil- mundar heitins Gylfasonar á sínum tíma. Sagði hann að síðan á flokks- þinginu 1984 þar sem samþykkt var ný stefnuyfirlýsing, „Hver á Jón Baldvin Hannibalsson, for- maður Alþýðuflokksins sagði í gær að flokksþing Alþýðuflokksins, sem halda á um næstu helgi yrði mjög sögulegt vegna þeirra sátta sem þar kæmu fram í jafnaðarmannahreyf- ingunni á íslandi. Benti formaðurinn á að á milli kl. 17-19 þann 3. október myndu tveir fyrrverandi formenn flokksins þeir Gylfi Þ. Gíslason og Hannibal Valdimarsson ávarpa þingið, takast í hendur og sættast sögulegum sáttum. Jafnframt myndi Guðmundur Einarsson fyrrv. for- maður Bandalags jafnaðarmanna ávarpa þingið sem alþýðuflokks- maður. Til þess að innsigla að hér væri um sögulega stund að ræða og fyrirboði mikilla tíðinda fyrir jafnað- arstefnuna á íslandi, benti Jón Baldvin á að á sama tíma og þetta gerðist yrði sólmyrkvi yfir íslandi í hámarki og tungl skyggja á 99% af sólu, samkvæmt fréttum Tímans. Jón var spurður um hvort þessi samruni við B J, hinar sögulegu sættir jafnaðarmanna, myndu þýða að þeir sæktust nú frekar eftir stjórnarsam- starfi við Sjálfstæðisflokkinn en áður. „Ég hef sagt það áður að mark- miðið er að Alþýðuflokkurinn fái blásandi byr til þess að tryggja áhrif hans við ríkisstjórnarmyndun," sagði Jón Baldvin. Kvaðst hann jafnframt hafa lýst því yfir að hann teldi Framsóknarflokkinn íhaldsam- asta kerfisflokk í landinu og því fyrr sem hann færi frá völdum því betra. Síðan sagði Jón Baldvin: „Ég tel að ísland“? hafi flokkurinn boðað breytta stefnu t.d. í efnahagsmál- um þar sem lögð var áhersla á valddreifingu og andstöðu við ríkisforsjá. Taldi Jón Baldvin að lítið bæri milli BJ og Alþýðuflokks- ins í helstu stefnumálum og að raunar væru þessir aðilar sammála tveir kostirséu mögulegir í stöðunni. Annar er að semja við Sjálfstæðis- flokkinn á grundvelli þeirra mála sem hann kann að setja á oddinn. Hinn kosturinn er að til greina komi þriggja flokka stjórn og þá byggist það á samkomulagi við Alþýðu- bandalagið líka. „Ég hef alltaf sagt að skilyrðin fyrir samstarfi við Sjálf- stæðisflokkinn séu tvö. Númer eitt er að við höfum nægan styrk til þess að takast á við Sjálfstæðisflokkinn á jafnréttisgrundvelli. Og númer tvö að stjórnarmyndunarviðræður leiði í Ijós að við fáum fram þau mál „Ég tel að þessi ákvörðun sé rétt og að með þessu móti vinnum við best að okkar málefnum," sagði Kolbrún Jónsdóttir þingmaður BJ í samtali við Tímann í gær. „Ég hef sagt það áður að áherslur Alþýðu- flokksins hafa breyst og ég vil trúa því, að með þessu náist betri samfylking um ýmis þeirra stefnu- um 90% þeirra. Eitt helsta ágrein- ingsmálið hafi verið sú stefna BJ að kjósa bæri forsætisráðherra í bein- um kosningum en þeir hefðu sam- þykkt að leggja það mál til hliðar. Guðmundur Éinarsson, alþing- ismaður staðfesti á fundinum í gær að BJ-menn hefðu fallið frá þessu sem við setjum á oddinn," sagði Jón Baldvin. Aðspurður um hvaða mál yrðu þá sett á oddinn í stjórnarvið- ræðum ef sameinaðir jafnaðarmenn fengju þann styrk sem þeir telja sig þurfa sagði Jón: „Það er nokkuð ljóst, mál númer eitt er nýtt skatta- kerfi og það þýðir að við fengjum fjármálaráðuneytið; mál númer tvö er einn lífeyrissjóður fyrir alla lands- menn og það þýðir líka fjármála- ráðuneytið; nýtt húsnæðislánakerfi, það þýðir félagsmálaráðuneytið; nýskipan sveitarstjórnarmála þýðir einnig félagsmálaráðuneytið; mál innan Alþýöuflokks miða Bandalagsins sem ég tel mjög mikilvæg. í því sambandi má nefna dreifingu valds sem ég tel bráð- nauðsynlega fyrir landsbyggðina," sagði Kolbrún ennfremur. Kolbrún var spurð hvort hún teldi að krafa sem hún hefur nokkuð haldið á lofti um frjálst fiskverð muni fá hljómgrunn á þessum nýja vett- stefnuatriði, enda kæmu til aðrar leiðir sem samstaða er um í flokk- unum til þess að vinna að þeint markmiðum sem miða að lýðræðis- lcgri stjórnarháttum. Guðmundur sagði að engir samningar eða hrossakaup hefðu fylgt þessum samruna, heldur byggðist hann á gagnkvæmu trausti um að vilji væri til samstarfs á breiðum grundvelli. sem er ekki flokksstefna en mín stefna er að það þarf að stokka upp þessi atvinnuvegamálaráðuneyti og setja upp eitt atvinnuvegaráðuneyti þar sem hver einstakur atvinnuvegur er eins og undirdeild, sem þýðir að við þurfum að hafa tök á einhverju af atvinnuvegaráðuneytunum. Éger t.d. alveg sannfærður um það að hagur bænda á íslandi væri stórum betri en hann er núna ef neytenda- sjónarmið Alþýðuflokksins hefðu verið meira ráðandi sl. 25 ár,“ sagði Jón Baldvin Hannibalsson ennfrem- ur. - BG vangi. „Frjálst fiskverð er mitt baráttumál og ég breyti ekki skoð- un minni á því máli þó ég fari inn í Alþýðuflokkinn. Við göngum sem félag inn í Alþýðuflokkinn ekki kannski til að gera byltingu þar heldur til aðvinna okkar skoðunum fylgi," sagði Kolbrún. - BG Stefán Benediktsson, alþingismaður: Þetta eru nútíma- stjórnmál „Ég verð að segja að þetta leggst mjög vel í mig,“ sagði Stefán Benediktsson alþingis- maður í samtali við Tímann í gær. Stefán sagði að í þessari ákvörðun fælist ákveðin viður- kenning á staðreyndum og því að markmiðum þeim sem menn settu sér við stofnun BJ hafi ekki verið náð, ekki í þetta skiptið. „Þessi ákvörðun var samþykkt einróma, en það væri ef til vill skrítið ef ekki kæmu upp ein- hverjar óánægju raddir, þá hefði nú Bandalagið verið gjörsamlega steindautt ef það gerist ekki,“ sagði Stefán ennfremur. Að- spurður um hvort þingmenn Bandalagsins væru ekki með þessu að reyna að tryggja sér áframhaldandi þingsetu sagði Stefán: „Ég er ekki í nokkrum vafa unt það að við hefðum átt kost á þvf að ná a.m.k. þrem þingmönnum í næstu kosningurn, það í sjálfu sér ekki erfitt mál í því pólitíska landslagi sem við lifum í. Hins vegar tel ég að það hefði ekki verið neitt meiri árangur heldur en að fara í frani- boð fyrir þann flokk sem við eigum mesta samleið með,“ sagði Stefán. „Ég tel að við sýnum með þessu öllu meira pólitískt raunsæi en menn almennt hafa þorað hér á landi með vilja til að láta ekki einhver ágreiningsmál trufla fyrir samstarfi sem leitt getur til meiri árangurs en aðilarnir hvor um sig geta náð,“ sagði Stefán ennfrem- ur. Hann sagði að lokum að engir samningar eða skilyrði hafi verið sett í þessu máli, „þetta eru ekki gamaldags stjórnmál, þetta eru nútíma stjórnmál," sagði hann. - BG/ES Jóhanna Siguröardóttir alþingismaöur: Mun enn aukasókn Alþýðu- flokksins „Ég fagna þessum sögulegu tímamótum hjá Alþýðuflokkn- um,“ sagði Jóhanna Sigurðar- dóttir alþingismaður í samtali við Tímann í gær. „Alþýðuflokkur- inn hefur stefnt að því að fá Bandalag jafnaðarmanna til liðs við sig og ég tel að þetta geti breytt miklu. Alþýðufíokkurinn er í sókn og liðsinni BJ við flokkinn mun enn auka á þá sókn,“ sagði Jóhanna. Aðspurð um hvort þetta myndi ekki færa Alþýðuflokkinn til hægri sagði Jóhanna. „í mínum huga gerir þetta það ekki. Það eru fyrst og fremst málefnin sem ráða og málefnastaða og ég hef trú á því að ef það verður ágreiningur um einhver mál að það verði hægt að jafna hann. En ég tel að þetta muni ekki færa flokkinn til hægri“, sagði Jóhánna Sigurðar- dóttir. _BG -BG Jón Baldvin Hannibalsson, formaöur Alþýðuflokks: Jafnaðarmenn vilja fá Nýsköpun eða Viðreisn - og fjármál, félagsmál og atvinnumál sem ráðuneyti Kolbrún Jónsdóttir, alþingismaður: Vinnum skoðunum okkar fylgi

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.