Tíminn - 28.04.1987, Blaðsíða 2

Tíminn - 28.04.1987, Blaðsíða 2
2 Tíminn Þriðjudagur 28. apríl 1987. Þingflokkur Sjálfstæðisflokks: Þorsteinn fær umboð - til stjórnarmynd- unarviðræðna Þingflokkur Sjálfstæðisflokks- ins kom saman síðdugis í gær og ræddi stöðuna að afloknum kosn- ingum. Þingflokkurinn sam- þykkti traustsyfirlýsingu á Þor- stcin Pálsson formann flokksins og veitti honum umboð til að taka þátt í stjórnarmyndunarvið- ræðum. Engar formlegar línur voru lagöjir um það við hvcrja sjálfstæðismenn vildu helst ræða en miðstjórn flokksins mun koma til tundar í dag og verður þetta ntál þá m.a. á dagskrá. Nýr lögreglubíll Um allt land verður lögreglan að notast við 5 til 6 ára gainla bíla, sem ekið hefur verið milli 3 og 4 hundruð þúsund kílómetra. Það cr því gleði- efni, þegar bætast nýir ln'lar í skörðin. Lögreglan í Reykjavík hef- ur eignast tvær 118 dínhestafla Saab 900i bifreiðir með beinni innspýtingu til reynslu á götum borgarinnar. Þær eru með nýrri tegund af sírenum og að sjálfsögðu bláum ljósum af Jet- Sonic gerð, sem taka munu við af þeim rauðu með tímanum. Á myndinni er fyrri bíllinn af tveimur, sem kom á götuna á föstu- daginn, á planinu aftan við verkstæði lögreglunnar við Síðumúla. Við hann standa f.v. Sigurður Pétursson, lögregluþjónn, og Ásgeir Guð- ntundsson, aðstoðarvarðstjóri. Áætlað er að fá fleiri slíka bíla til lögreglunnar ef þeir reynast vel. þj (Tímamynd: Pjelur) Jón Baldvin vill foröa „stjórnarmyndunarhringekjumenúett“: Vilí svör áður en forseti gefur umboð - Jón ræddi viö Þorstein á sunnudag og aftur í gær. Ræddi einnig viö Kvennalistann „Ég hef lýst skoðun minni að það ætti ekki að vera ofverk stjórnmála- manna að vinna úr þessum kosninga- úrslitum sem túlka vilja þjóðarinnar. Víða eru uppi raddir sem lýsa ótta við stjónmálakreppu og pólitíska upplausn. Svarið við því væri að sýna fram á að hægt er að ganga til sjórnarmyndunar og vinna það verk nokkuð hratt. Ég vil gjarnan auðvelda forseta það verk að þurl'a ekki að eyða miklum tíma í formsatriði. Ég tel rétt að við cigum að læra af reynsl- unni og þurfum ekki að endurtaka stjórnarmyndunarhringekju- Það kom mörgum á óvart í gærdag þegar Ijóst var að Jón Baldvin Hannibalsson var byrjaður að mynda ríkisstjórn og hafði raunar byrjað á því í fyrradag. Jón Baldvin sagði í gær í samtali við Tímann að hann væri að leita eftir svari frá Kvennalista og Sjálf- stæðisflokki um það hvort ríkisstjórn þessara flokka og Alþýðuflokks væri ekki möguleiki sem kanna skyldi til þrautar áður en forseti hefur viðræð- ur við formenn stjórnmálaflokk- anna. menúett," sagði Jón Baldvin. Fundahöld Jóns Baldvins í þeim tilgangi að mynda ríkisstjórn hófust á sunnudag með fundi hans við Þorstein Pálsson. Aðsögn Jónsfeng- ust þaú svör frá Þorsteini að hann væri sammála Jóni um að kanna til þrautar hvort Kvennalistinn væri tilbúinn til að axla ábyrgð. Kvennalistakonur eru hinsvegar ckki komnar jafn langt og Jón Bald- vin í myndun ríkisstjórnar. Kristín Halldórsdóttir þingmaður fyrir Kvennalistann sagði í samtali við okkur í gær að greinilegt væri að Jón Baldvin væri að reyna að ráða at- burðarásinni og að um oftúlkun væri að ræða þegar talað væri um stjórn- armyndunarviðræður. Rétt er að benda á að forseti mun ekki veita umboð til stjórnarmynd- unarviðræðna fyrr en eftir næstu helgi, að beiðni Steingríms Her- mannssonar forsætisráðherra. -ES En af hverju leggur Jón Baldvin áhcrslu á að kanna það áður en forsetinn ræðir við formennina? o £ i £ * TOYOTA Árið 1976 gengu sex skíðagarpar yfir þrjá íslenska jökla, þar á meðal Vatnajökul, stærsta jökul Evrópu, á aðeins 25 dögum. Hvem hefði órað fyrir því að sama leið yrði ekin á jeppum ellefu ámm síðar á aðeins sjö dögum? í þessa ótrúlegu ferð völdust auðvitað jeppar frá Toyota sem reyndust í einu orði sagt frábærlega. Þrír jöklar, þrjár Toyotur Nú er fullreynt að Toyotajeppamir em sannkölluð torfærutröll! m - I 'M&' B

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.