Tíminn - 27.06.1987, Blaðsíða 1

Tíminn - 27.06.1987, Blaðsíða 1
i-—. Hefur boðað frjálslyndi og framfarir í sjötíu ár iTminn LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 1987- 136. TBL. 71. ÁRG. Kjarasamningar kosta einkageirann mannskap: Barátta fyrir brauði auðveldari hjá ríki Hinn almenni vinnumarkaður virðist ekki lengur hafa það forskot, hvað launakjör snertir, sem ríkisstarfs- menn kvörtuðu sem mest undan fyrir gerð síðustu kjarasamninga. Er nú svo komið að greiðlegar gengur að ráða mannskap til ríkisfyrirtækja og atvinnurekend- ur hafa á orði að mannskapur segi upp til að komast í stöður hjá ríkinu. Á þetta við jafnt um langskólagengið fólk og fólk í lægra launuðum störfum. Með gerð kjarasamninganna í vetur er sem dæmið hafi snúist við og lítur út sem halli á einkageirann. Tíminn ræddi við Þórarinn V. Þórarinsson fram- kvæmdastjóra VSÍ og kannaðist hann við þessa þróun sem vart hefur orðið við upp á síðkastið. Sjá bls. 5 Sorphaugarnir eru lokaðir Ruslahaugar á vergangi Enn finnast verkfræðingar borgar og ná- grannasveitarfélaga vegna staðsetningar nýrra sorphauga fyrir Stór-Reykjavíkursvæðið. Gufu- nesshaugarnir verða fullir innan þriggja ára og þá verður að flytja. Náttúruverndarsjónarmið hamla stækkun svæðis í Gufunesi. Kjalarneshreppur mótmælir haugunum á svæði þar. Grindavík mótmælir staðsetningu hauganna í Krísuvík. Bæjarverkfræðingur Hafnarfjarðar segir mótmæli alltaf verða hvað sem gert verði. Stefnir í óefni og verður því að hefja sig yfir dægurþras og taka ákvörðun nú þegar. Hollustuvernd og Náttúru- verndarráði þykja það undarleg vinnubrögð að hafa ekki verið höfð með í ráðum. Sjá bls. 3 NISSAN PATROL Eigum til afgreiðslu strax flestar gerðir af NISSAN PATROL bæði díesel og bensín. Verð á NISSAN PATROL JEPPUM frá kr. 840.000.- Verð á NISSAN PATROL PICK-UP kr. 746.000.- 0 m xi Munið bílasýningar okkar laugardaga |.193087| og sunnudaga kl. 14-17 Verið velkomin - Alltaf heitt á könnunni mllMGVAR HELGASON HF. Sýningarsalunnn/Rauðagerði. simi 33560

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.