Tíminn - 09.09.1987, Blaðsíða 3

Tíminn - 09.09.1987, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 9. september 1987 Fjárlagagerö ríkisstjórnarinnar: „Það sem var fyrst og fremst á dagskrá var að við lögðum fyrir ríkisstjórn stórar spurningar til pólit- ískrar ákvörðunar áður en lengra verður haldið. Það var markmið ríkisstjórnarinnar um að minnka hallann í ríkisfjármálum. Ég hef sett mér það markmið við þessa fjárlaga- gerð að draga verulega úr þessum halla og markmiðið á að vera að draga hann niður í hálft prósent af vergri landsframleiðslu, þ.e. tölur einhvers staðar á bilinu 12-13 hundr- uð milljónir á þcim verðlagsforsend- um sem við erum með,‘" sagði Jón Baldvin Hannibalsson, fjármálaráð- herra eftir ríkisstjórnarfund í gær, þar sem m.a. var rætt um fjárlaga- gerð. „Það er einfalt mál að ná þessu fram. Annars vegar með því að halda verulega í við vöxt ríkisút- gjalda og hins vegar með því að afla n'kissjóði aukinna tekna í samræmi við þá stefnumörkun sem kemur fram í starfsáætlun ríkisstjórnarmn- ar um það. Stóru málin í því eru auðvitað þær róttæku breytingar sem boðaðar hafa verið á söluskatti, þ.e.a.s. að fækka verulega undan- þágum. Síðan var farið yfir nokkur stefnumótandi nýmæli við þessafjár- lagagerð,"" sagði Jón Baldvin enn- fremur. Sem dæmi um nýmælin nefndi Jón breytingar á verkaskiptingu rfkis og sveitarfélaga, þar sem gerðar eru tillögur um að farið verði eftir tillög- um sem liggja fyrir og samkomulag verið um. Fyrsta skrefið yrði þá stigið í þessa átt með þessum fjárlög- um og annað með næstu fjárlögum. Annað nýmæli væri kerfisbreyting á starfsemi ýmissa stofnana sem nú eru rekin af ríkissjóði. Annars vegar væru breytingarnar í því fólgnar að breyta stöðu þeirra, gera þær sjálf- stæðari eða að sjálfseignarstofnun- um og hins vegar að margar stofnanir verðleggi þjónustu sína nær fram- leiðslukostnaðarverði. „Einnig var rætt ítarlega um láns- fjárlög og um nauðsyn þess að smíða ný tæki til að ná betur fram mark- miðum stjórnvalda, bæði til inn- streymis erlends fjármagns og fyrir innlendan lánsfjármarkað. Þar eru ýmsar breytingar á döfinni og þá aðallega til að draga úr sjálfvirkri ríkisábyrgð á fjárfestingalánasjóð og breyta núverandi kerfi á innstreymi erlends fjármagns," sagði Jón Baldvin. „Að sjálfsögðu var rætt aftur um sölu ríkisfyrirtækja. En þar erum við að ræða um fleira en sölu. Uppi eru hugmyndir um að ríkið geri auknar kröfur um arðscmi fyrirtækjanna. í annan stað munum við setja niður samstarfshóp á vegum fjármálaráðu- neytisins og hinna ýmsu íagráðu- neyta sem stofnanirnar og fyrirtækin heyra undir til að móta stefnuna betur. Það þarf að leggja mikla vinnu í mat á þessum eignum, því það er alls ekki ætlunin að gefa þetta, heldur á þetta að lúta fyrir- fram mótuðum rcglum um aukna hagkvæmni og arðsemi í tslensku atvinnulífi. Um leið er dregið úr ríkisforsjá þar sem hún á ekki heima" sagði Jón ennfremur. Fyrir liggja tillögur um hvernig ná eigi niður halla ríkissjóðs í rúman milljarð króna. Rætt verður betur við fagráðherra sem eiga frekari útgjaldaóskir við fjármálaráðherra. Vonast cr til að endanleg ákvörðun liggi fyrir á ríkisstjórnarfundi á þriðjudag. „Niðurskurðurinn á ríkisútgjöld- um bitnar víða, því við erum réttlátir Halldór Asgrímsson fertugur Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra varð fertugur í gær. Fjöldi gesta heimsótti ráðherrann og færði honum góðar gjafir. Troðfullt var út úr dyrum á meðan Halldór tók á móti gestum. Fluttar voru ræður afmælisbarninu til heiðurs. Meðal þeirra sem fluttu ræðu var forsætisráð- herra, Þorsteinn Pálsson. Líkti hann Halidóri við hvalinn og sagði bæði hann og hvalinn komast þangað sem þeir ætluðu sér. Halldór þakkaði gestum og vitnaði þá til orða Þorsteins og sagði að ekki væri alltaf hollt, hvorki fyrir hann né hvalinn að komast þangað scm þeir ætluðu sér. Meðal gjafa sem Halldóri voru færðar, var þetta málverk, sem er gjöf frá framsóknarfélögunum í Reykjavík, Sambandi ungra framsóknar- manna, Tímanum og dyggum stuðningsmönnum framsóknarfélaganna. Kristinn Finnbogason framkvæmdastjóri Tímans afliendir hér afmælis- barninu málverkið. Tímamynd Pjetur Félag starfsfólks í húsgagnaiönaði: Vinnustöðvun yfirvofandi Félag starfsfólks í húsgagnaiðnaði hefur boðað til verkfalls þann 15. september hafi ekki náðst samkomu- lag við VSÍ um gerð fastlaunasamn- ings fyrir þann tíma. Að sögn Krist- björns Árnasonar, formanns félags- ins var um það samið í febrúarsamn- ingunum að aðilar skuli ganga frá fastlaunasamningi á tímabilinu l.mars til 1. september. Það hafi hins vegar ekki verið gert ,þrátt fyrir tilraunir félagsins til að ganga til samninga við VSÍ og því sé heimilt að segja samningum upp frá 1. september með tveggja vikna fyrir- vara. Þetta hafi verið gert og jafn- framt hafi verið boðað til vinnu- stöðvunar þann 15. september. Sagði Kristbjörn að framkvæmd hefði verið launakönnun á vegum Kjararannsóknarnefndar þann 15.- 28. mars sl. og sé kröfugerð félagsins byggð á niðurstöðu hennar, en þar kom m.a. fram að meðallaun í félaginu eru um 350 kr. á klukku- stund. Yrði að taka mið af hversu mikið álag væri á starfsfólk og eins að framleiðni í iðnaðinum hefði aukist mjög mikið. Þórarinn V. Þórarinsson frkst. VSÍ sagði að þessi verkfallsboðun væri merki um hina auknu sérhyggju í verkalýðshreyfingunni. Húsgagna- iðnaðurinn hefði ekki efni á að borga hærri laun og allt tal unt að miða kröfucerð við ákveðin með- allaun í félagi sem hefði bæði faglært og ófaglært starfsfólk innan sinna vébanda væri út í loftið. Húsgagna- iðnaðurinn hefði ekki safnað digrum sjóðum og ef fyrirtæki stæði anrjars vegar frammi fyrir því að fara á hausinn vegna verkfalls eða ganga til óraunhæfra samninga, veldu flest eflaust fyrri kostinn. Samningsaðilar funduðu í gær og voru hæfilega bjartsýnir um árangur. -phh Jón Baldvin Hannihalsson fjáimála- ráðherra. menn. Það er ekkert einfalt svar til við þessu. Því er hins vegar ekki að neita að talsmönnum landbúnaðar- mála finnst kannski að þeirra hlutur verði of stór. Ég hef gert tillögu um að sjávarútvegurinn fái ekki endur- grciddan sinn söluskatt, þaðer rétt,“ sagði Jón Baldvin og aðspurður unt hvort sú tillaga hefði mætt mikilli mótspyrnu, svaraði hann: „Það var a.m.k. enginn fögnuður." Um er að ræða a.m.k. einn milljarð króna. _sÓL Viðræður VMSÍ við VSÍ og VMS hafnar Fyrsta fundi Verkamannasam- bandsins og Vinnuveitcndasam- bandsins og Vinnumálasambands samvinnufélaganna lauk um hádegi í gær. Að sögn þeirra Guðmundar J. Guðmundssonar formanns VMSÍ og Þórarins V. Þórarinssonar frkst. VSí var þessi fundur gagnlcgur og málin reifuð. Sagði Þórarinn að vilji hefði komið fram af hálfu beggja aðila, að reyna að semja á grundvelli kaup- máttar frentur en krónutölu, en hvort það tækist fyrir áramót væri erfitt um að segja. Hins vegar ljóst að menn væru að tala unt mjög litlar breytingar. VMSÍ lagði fram kröfugerð þá sem samþykkt var á sögufrægri for- mannaráðstefnu sambandsins um síðustu helgi, en aðilar urðu sam- mála um að setja á stofn vinnunefnd sem starfaði á milli funda og hennar hlutvérk fyrst í stað væri að skoða hver þróun launamála hefði orðið frá síðustu samningum. Næsti fund- ur aðila verður kl. 14 næsta þriðju- dag. Sagði Þórarinn að viðsemjendur VMSÍ hefðu gert kröfu til að fá að vita fyrir hverja Verkamannasam- bandið væri raunverulega að semja, nú eftir að 11 verkalýðsleiðtogar gengu af fundi um síðustu helgi og lægi það vonandi fyrir á næsta fundi. Guðmundur J. Guðmundsson sagði að hann væri þegar byrjaður að ræða við forystumenn áðurnefndra félaga til að reyna að ná sáttum, en ákveðin svör hefðu aðeins borist frá Vöku á Siglufirði og Árvakri á Eskifirði, en þau félög ætla ekki að semja með VMSÍ. Hins vegar væri hljóðið mis- jafnt í áðurnefndum forystumönn- um og ómögulegt að segja hvernig mál muni þróast. -phh Er þér annt um líf þitt og limi

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.