Tíminn - 06.04.1988, Blaðsíða 7

Tíminn - 06.04.1988, Blaðsíða 7
Miövikudagur 6. apríl 1988 Tíminn 7 Starfshópur leggur tillögur um lækkun rafhitunarkostnaðar fyrir ríkisstjórnina á fimmtudag: Spjótin beinast nú að Landsvirkjun og RARIK Starfshópur fulltrúa stjórnarflokkanna vinnur nú að tillögum um lækkun á töxtum rafhitunarkostnaöar. Mun hópurinn leggja tillögur sínar fyrir ríkisstjórnina á morgun, fimmtudag. Olíuverð hefur lækkað verulega á síðustu árum og að sögn fjármálaráðherra, Jóns Baldvins Hannibalssonar er almenn pólitísk samstaða um að Landsvirkjun og Rafmagnsveitur ríkisins aðlagi sig þessum breytingum á markaðinum. „Sölufyrirtækin standa frammi fyrir þeim valkosti að tapa þessum markaði eða að breyta sinni verð- pólitík," sagði Jón Baldvin. „Islensk stjórnvöld hafa haft að opinberri stefnu í 20 ár að innlendir orkugjafar reynist samkeppnisfærir." Áður hefur Steingrímur Her- mannsson lýst yfir áhyggjum af þró- un orkuverðs. Hann hefur lýst Landsvirkjun sem ríki í ríkinu og í samtali við Tímann sagði hann: „Við teljum að Landsvirkjun geti ekki leikið svona lausum hala og verði að taka í sinni verðlagningu tillit til heimsmarkaðsverðs á orku. “ Um það bil 20% af heildar orku- sölu Landsvirkjunar og 60% af smá- sölu Rafmagnsveitna ríkisins eru vegna húshitunar. Tillögur hópsins miða að lækkun þessara taxta um allt að 70 til 90 milljónir króna á ári. „Til greina kemur að þeir afli sér tekna á móti, annars vegar með því að hækka gjaldið á aðra taxta og hins vegar með skuldbreytingum. Lands- virkjun hefur þegar bætt stöðu sína sem svarar 30 milljónum með skuld- breytingum, með því að breyta eldri lánum í hagstæðari lán,“ sagði Jón Baldvin Hannibalsson. Steingrímur Hermannsson taldi að lækkun á verði raforku til upphit- unar og hækkun á aðra liði umhugs- unarverða. „Hún kemur til greina en ég er ansi hræddur um að atvinnu- lífið sem berst í bökkum og er víða að stöðvast verði ekki sérstaklega hrifið af þessu.“ Til stendur að taka upp viðræður við stjórn Landsvirkjunar þegar starfi vinnuhópsins er lokið. Verður því starfi hraðað eins og kostur er á. Hópinn skipa Hermann Svein- björnsson aðstoðarmaður sjávarút- vegsráðherra, Guðrún Zoéga að- stoðarmaður iðnaðarráðherra og Þórarinn Arason skrifstofustjóri í fjármálaráðuneytinu. Jón Baldvin sagðist vera tilbúinn til að skoða aðra þætti til viðbótar, t.d. tillögur um aukna hagkvæmni og sparnað í rekstri rafmagnsveitn- anna. En Jón Baldvin taldi ekki vera veigamikil rök fyrir því að ríkið taki á sig þann tekjumissi sem yrði með taxtalækkunum. „í fyrsta lagi er ríkið þegar búið að taka á sig á undanförnum áratugum lOmilljarða afskuldumorkukerfisins. Afborgan- ir og vextir af þeim lánum sem ríkið hefur tekið á sig samsvara um 20% í tekjuskatti nú þegar. Það er ekki skynsamleg stefna að hafa tvíþætt orkuverð, annars vegar það sem birtist á reikningum heimilanna og hins vegar það sem birtist í sköttun- um.“ Steingrímur var sammála því að ríkið eigi ekki að taka á sig of miklar byrðar. „En höfuð ábyrgð ríkisins er nú að halda hlutunum gangandi í þessu landi og ef allt annað stöðvast þá er til lítils að halda ríkissjóði á sléttum sjó,“ sagði hann. „Miðað við þá þróun sem orðið hefur núna kann að þurfa að auka niðurgreiðsl- ur á raforku til upphitunar." „Við höfum lagt okkar áherslur. Þar á meðal teljum við að það eigi að standa við áðurgerðan samning um að yfirtaka skuldir Rafmagn- sveitna ríkisins og Orkubús Vest- fjarða,“ sagði Steingrímur. Þetta er einmitt annað mál sem starfshópur- inn er að vinna að. Að sögn Her- manns Sveinbjörnssonar er þar um mun stærra vandamál að ræða en haldið var í fyrstu. Til stendur hækk- un á töxtum þessara aðila 1. maí ef ekki verður til annarra ráða gripið en ekki eru allir sammála um leiðir til úrlausnar á þessu stigi. JIH Fréttamenn Sjónvarps: V n Ija i íafr tið heimildarmanni Hreppsnefnd Höföahrepps á Skagaströnd um raforkuverö: Mótmælir hækkun Hreppsnefnd Höfðahrepps á Skagaströnd gerði á fundi sínum 17. mars 1988 svofellda samþykkt um verð raforku til húshitunar: „Hreppsnefnd Höfðahrepps mót- mælir stórfelldri hækkun raforku- verðs til húshitunar, sem orðið hefur á síðustu mánuðum. Bent er á, að gífurlegur aðstöðu- munur er á milli heimila í einstökum sveitarfélögum í landinu að því er varðar húshitunarkostnað. Sam- kvæmt athugun Fjórðungssambands Norðlendinga er hitunarkostnaður meðalhúss með raforku 87% hærri en ef hitakostnaður framfærsluvísi- tölunnar er notaður sem viðmiðun. Það er skoðun hreppsnefndarinnar, að leitast verði við að jafna þennan mun í stað þess að auka hann. Verði ekki gerðar viðeigandi leiðréttingar í þessu efni, kemur til athugunar að hreppsnefndin semji í einu lagi fyrir hönd húseigenda í hreppnum um kaup á rafmagni eða orkugjafa til húshitunar." AG/starfskynning Gamall fréttahaukur í heimsókn Árni Helgason, fyrrverandi póstmeistari í Stykkishólmi og fréttaritari Morgunblaðsins og útvarpsins þar, leit inn á Tímann fyrir páskana, svona til að sjá hvemig við hefðum það. Árni var um sinn sýsluskrifari á Eskifirði og í Stykkishólmi og oft settur sýslumaður í Snæfellsnes- og Hnappadalssýslu. Árni stofnaði Lúðrasveit Stykkishólms og er nú formaður hennar. Gaman var að fá Árna í heimsókn, en hann er fróður um margt. í þessari páskaferð sinni hingað suður hitti hann marga að máli, m.a. Eystein Jónsson, fyrrverandi ráðherra, en þeir áttust við um pólitík eystra. Myndin hér að ofan var tekin á ritstjórn Tímans er Árni var í heimsókn. Timamynd ge Tímanum hefur borist eftirfarandi bréf frá Helga H. Jónssyni, varafréttastjóra Sjónvarps: Hr. Indriði G. Þorstcinsson ritstjóri í Tímanum cr þann 30. mars s.I. fjallað um fréttastofu Sjónvarpsins á þann hátt, að ekki veröur athugascmdalaust undir setið. Þar cr m.a. haft eftir ónafngreindum „innanhússheimildum Tímans", að „frcttir fréttamannanna séu ritskoðaðar, samkvæmt skipunum að ofan, sérstaklega cf um er að ræða fréttir scm sncrta stjórnmál, og cr ckki vel séð af yfirmönnum ef rcynt cr að flytja jákvæðar fréttir af vinstri vamg þjóölífsins og mcnn jafnvel spurðir um hvcr tilgangur fréttarinn- ar sc eiginlega.“ Hér er svo freklega vegið aö starfsheiðri okkar, að við hljótum að mótmæla. Allar fullyrðingar í þessa vcru cru út í hött og tilhæfulausar með öllu. Þessi áburðurér svo alvarlegur, að við gerum þá kröfu til Tímans, að hann skýli sér ekki á bak við einhverja ónafngreinda menn í þessu efni. Annað nafnlaust flcipur í þessari grein Tímans er ekki þess eölis. að við teljum ástæðu til þess að cyða orðum á þaö. Helgi H. Jónsson Hclgi E. Helgason ÓlafurSigurðsson Ögmundur Jónasson Árni Þórður Jónsson Arnþrúður Karlsdóttir Árni Snævarr Guðni Bragason Jón Valfells Katrín Pálsdóttir Bjarni Felixson Ómar Þ. Ragnarsson Hallur Hallsson Athygli er vakin á því. að undir þetta rita nafn sitt allir þeir fréttamenn scm til náðist vegna páskahelgarinnar. Við förum þcss á leit, að blaðið birti þessa athugascmd okkar. Athugasemd fréttastj. Það verða að teljast ótrúleg tíðindi, a.m.k. meöal blaðamanna, að 13 fréttamenn Sjónvarps fari fram á það viö ritstjórn Tímans að birta nafn á heimildarmanni/ rnönnum, scm óskað hefur/hafa nafnleyndar. Ritstjórn Tímans gcr- ir slíkt ekki, livað svo sem tiðkast kann hjá fréttastofu Sjónvarps. Það að fá fréttamenn til að skrifa á lista þar sem krafist er að nafn heimildarmanna verði gefiö upp er út af fyrir sig afrck hjá varafrétta- stjóranum, Helga H. Jónssyni, sem stcndur fyrir þessari uppákomu. Hins vegar hefði staöa þess sem neitaði að skrifa undir ekki vcriö öfundsverð. Tíminn stendur við frétt sína scnt fyrr.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.