Tíminn - 19.11.1988, Blaðsíða 2

Tíminn - 19.11.1988, Blaðsíða 2
£ nnirrnT 2-Tímínrí . . S *S » Sr «• .U* ■*1 V« * » k * * A « t ft i I • ftt I 1 ■ * « « *» » «“> ”l>,» ^ ■** ■* * ;>k\' • 'Ó.-. vowxwcJ ■" ................. Uaugartfágur 1ð: növerrí’öef i 988 % Jón Baldvin Hannibalsson á 44. flokksþingi Alþýðuflokksins: Umbótaöflin vinstra megin við miðju ef li samstöðu sína „Meðan Sjálfstæðisflokkurinn liggur við stjóra og áhöfnin til kojs verða umbótaöflin vinstra megin við miðju að efla samstöðu sína, vegna þess að það er þjóðarnauðsyn.“ Þessi tiivitnun er úr setningarræðu Jóns Baldvins Hannibalssonar er hann flutti á 44. flokksþingi Alþýðuflokksins í gærkvöldi. Formaðurinn boðaði í framhaldi af þessu að flest hin sögulegu ágreiningsefni væru fyrir bí. Sú þróun hafi hafist með sáttum Alþýðuflokks og Bandalags jafnað- armanna og hún verði að halda áfram, skref fyrir skref. Jóni Baldvin Hannibalssyni varð ekki einungis tíðrætt um tímamót í stjórnmálum, heldur var í ræðu hans einnig að finna greiningu á þcim tímamótum í atvinnu- og efnahags- málum, einnig alþjóðlegum sam- skiptum sem íslenska þjóðin stendur á, ásamt uppgjöri við ríkisstjórn Þorsteins Pálssonar. í sambandi við síðastnefnda atriðið sagði formaður- inn m.a.: „Við hinir, sem teljum að stjórnmál snúist fremur um þjóðar- heill en sálarheill einhverra forystu- manna, gátum ekki horft á það aðgerðalaust að hjól atvinnulífsins stöðvuðust á s.l. hausti." Hvað varðar verkefni núverandi ríkisstjórnar og þær ráðstafanir sem hann telur nauðsynlegar að gera í kjölfar þeirrar hagsveiflu sem gengin er yfir, nefndi Jón Baldvin m.a. eftirfarandi atriði: Nauðsynlegt sé að lækka tilkostnaðinn í atvinnulíf- inu með endurskipulagningu og hag- ræðingu, breyta verði landbúnaðar- stefnunni og skipuleggja nýja mark- aðssókn. Einnig þurfi að huga að samruna fyrirtækja og hagkvæmari nýtingu framleiðslutækjanna. Kratar halda sitt 44. flokksþing um helgina og munu m.a. kjósa nýja flokksstjórn og framkvæmdastjórn. Meðal hliðarfundarefna verður um- ræða um vinstri hreyfingu, byggða- mál og atvinnulíf og fjölskylduna og vinnutímann. Flokksþingið er haldið á Hótel íslandi að þessu sinni. Þingið var sett í gær og verður slitið á morgun. Flokksþingið ber að þessu sinni yfirskriftina „Réttlæti og raunsæi". Ekki er búist við átökum um formannssætið en þar situr Jón Baldvin Hanniblasson öruggur í sessi að flestra mati, en einhverra breytinga er að vænta varðandi rit- arastól flokksstjórnarinnar. KB/SSH Formaður umferðar- nefndar Kópavogs sviptur ökuleyfi Á Timmtudagsniurguninn hafði Lögreglan í Kópavogi hvndur í hári ökumanns sem ók með rúmlega 100 kílómetra hraða eftir Hafnarfjarðar- vegi til suðurs. Lögreglan náði manninum eftir töluverðan eltingar- leik en þá hafði hann mcðal annars ekið yfir á rauðu Ijósi og fór heldur hraðar yfir en áður. Maðurinn, sem er formaður um- ferðarnefndar Kópavogs, var færður á lögreglustöðina þar sem svipta átti hann ökuleyfi samstundis. Bæjarfóg- eti mun þó hafa tekið málið í sínar hendur og farið fram á rannsókn inálsins sem aftur varð til þess að svipta átti manninn ökuleyfi í gær. Þetta mun ekki vera í fyrsta sinn sem formaður umferðarnefndar bæjarins er tekinn fyrir of hraðan akstur því sjö sektir mun hann hafa átt ógreiddar þegar hann var færður á stöðina í fyrradag. Bíll mannsins mun hafa verið í heldur bágu ásig- komulagi og óskoðaður, því var hann færður til skoðunar hjá Bifr- eiðaeftirliti ríkisins. Þar voru gerðar sjö athugasemdir við útbúnað bílsins. Einnig mun tryggingafélag mannsins hafa verið búið að fara fram á að númer bílsins yrðu klippt af vegna vangoldinna trygginga- iðgjalda. Þegar Tíminn ræddi við Ásgeir Pétursson bæjarfógeta í Kópavogi í gær vildi hann lítið tjá sig um málið og sagði það á engan hátt geta talist vera komið á opinbert stig. Tíminn hafði samband við Heimi Pálsson, forseta bæjarstjórnar í gær og spurði hann hvaða augum hann liti á það að formaður umferðar- nefndar bæjarins væri tekinn á of miklum hraða og þar af leiðandi sviptur ökuleyfi? Heimir vildi taka fram að hann hefði ekki heyrt á þetta mál minnst fyrr og ef það væri satt, sem hann reyndar tryði varla þá væri það vissulega mjög alvarlegt mál. Að öðru leyti vildi Heimir alls ekkert tjá sig um málið og neitaði meðal annars að svara þeirri spurningu hvort við- komandi manni yrði ekki vikið úr sæti formanns þeirrar nefndar er fjalla ætti um umferðaröryggismál í Kópavogi. „Ég sagðist ekkert frekar hafa um málið að segja,“ var svar forseta bæjarstjórnar. -áma Vísitala byggingar- kostnaöar reiknuð út af Hagstofu íslands: Vart mælanleg hækkun ínóv. Hagstofan hefur reiknað vísi- tölu byggingarkostnaðar eftir verðlagi í nóvember. Reyndist hún vera 124,9 stig eða 0,08 hærri en í október. Samsvarandi vísitala miðað við eldri grunninn frá 1982 er 399 stig. Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala byggingarkostnaðar hækkað um 16,2 prósent. Síðustu þrjá mánuði hefur vísitalan hækkað um hálft prósent og sam- svarar það 1,9 prósenta árshækk- un. Lægsta tilboði í lagningu snúningsgólfsins í Öskjuhlíðarhúsið hafnað: Hagvirki of íslenskt? „Ég tei það ekki gild rök að hafna íslenska tilboðinu vegna þess að tilboðsgjafar hafi ekki gert slíkt gólf áður,“ sagði Sigurjón Pétursson Abl. á borgarstjórnarfundi í fyrra- dag. Sigurjón tók til máls af því tilefni að ákveðið hefur verið að hafna tilboði Hagvirkis/Galax í lagningu snúningsgólfs í útsýnishúsið uppi á Öskjuhlíð en taka þess í stað erlendu tilboði. Tilboð Hagvirkis/Galax var lægst en því var engu að síður hafnað. Sigurjón benti á að svipað mál hefði komið upp fyrir nokkrum árum er stjórn Hitaveitunnar hafnaði ís- lensku tilboði í kerfisráð fyrir Hita- veituna. Þá, sagði Sigurjón, hafði inn- kaupastofnun borgarinnar vit fyrir stjórn Hitaveitunnar og tók íslenska tilboðinu þrátt fyrir að tilboðsgjafi hafði þá ekki áður smíðað slíkan kerfisráð. Kerfisráðurinn hefur síðan þjónað sínu hlutverki óaðfinnanlega og að sögn Sigurjóns eitt helsta stolt Hita- veitunnar nú. Rök fyrir því að hafna íslenska gólflagningartilboðinu nú séu mjög ámóta þeim sem höfð voru uppi gegn íslenska gangráðinum á sfnum tíma og séu jafn ómarktæk nú sem þá og því legði hann til að íslenska tilboðinu yrði tekið. -sá Frá gangnagerð í Ólafsfjarðarmúla. Framkvæmdum við neðanjarðarmannvirki Blönduvirkjunar lokið: Krafttak upp á yfirborðið Hinn 15. þ.m. lauk Krafttak sf. við verksamning þann við Lands- virkjun sem tók til gerðar allra neðanjarðarmannvirkja Blöndu- virkjunar og uppsteypu stöðvarhúss virkjunarinnar sem einnig er neðan- jarðar. Að verkinu hafa að staðaldri unnið 30-40 manns og hefur það að sögn forráðamanna Krafttaks gengið mjög vel. Nú er Krafttak hinsvegar komið upp á yfirborðið því í október hófust starfsmenn fyrirtækisins handa við gerð jarðgangna í gegnum Ólafs- fjarðarmúla sem kunnugt er. Því verki miðar reyndar vel áfram og munu þegar vera um 160 metra inn í bergið. -áma Vaxtalækkunardagur á mánudag: 24% vaxtalækkun á sparireikningum Vextir á almennum sparireikn- ingum munu lækka á mánudaginn um 2-4% eftir bönkum og eru þeir þá komnir allt niður í 2% hjá sumum þeirra. Verðtryggðir spari- reikningar lækka lítið sem ekkert umfram verðbólgulækkunina og verða því áfram á bilinu 8-8,75% raunvextir. Nafnvextir á almennum skulda- bréfum verða á bilinu 17-18% og lækka sem því nemur en á þessu er nokkur munur milli banka. í gær sendu flestir bankarnir inn til Seðlabanka íslands niðurstöður sínar um vaxtalækkanir eins og venja er til þar sem vaxtalækkunar- dagar eru að jafnaði 1. hvers mánaðar, 11. hvers mánaðar og 21. hvers mánaðar. KB r >

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.