Tíminn - 19.02.1991, Blaðsíða 16

Tíminn - 19.02.1991, Blaðsíða 16
AUGLYSINGASIMAR: 680001 & 686300 RÍKISSKIP NUTIMA FLUTNINGAR Hatnarhusinu v TrYggvagotu, S 28822 j Ókeypis auglýsingar fyrir einstaklinga POSTFAX 91-68-76-91 NI5SAIVI Réttur bíll á réttum stað Ingvar Helgason hf. Sævarhöffla 2 Símí 91-674000 Ti iiiimi ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRÚAR 1991 Tvö morð voru framin í Reykjavík um helgina og auk þess var maður stunginn í brjóstið. Þau sem frömdu verknaðina hafa öll átt við andlegan sjúkleika að stríða: Gæsluvarðhald eini kostur dómstólanna? Karlmaöur um fimmtugt og 24 ára gömul kona voru stungin til bana um helgina og auk þess var einn maður stunginn lífshættu- lega og liggur nú á sjúkrahúsi. í öllum tilfellum eru þeir sem frömdu verknaðinn með sögu úr heilbrigðiskerfinu, eins og það er orðað, þ.e. hafa átt við meiri eða minni erfiðleika og jafnvel geðræn vandamál að stríða. Fyrsta hnífsstungan átti sér stað í húsi í Bústaðahverfi á föstudags- kvöldið. Þar stakk ungur maður föður sinn í brjóstið. Faðirinn var færður á sjúkrahús og var á gjör- gæsludeild fyrsta sólarhringinn en er nú að ná sér. Pilturinn flúði af vettvangi og var þegar hafinn mikil leit að honum. Hann fánnst síðan seinni partinn á laugardaginn. Hann var úrskurðaður í gæsluvarð- hald til 23. mars og gert að sæta geðrannsókn. 24 ára gömul þroskaheft kona fannst látin um klukkan þrjú, að- faranótt laugardagsins. Hún fannst í herbergi 28 ára gamals þroska- hefts manns, í sambýli þroskaheftra við Njörvasund. Hann hefur játað að hafa orðið henni að bana og var úrskurðaður í gæsluvarðhald til 3. apríl og gert að sæta geðrannsókn. Lögmaður mannsins kærði þann úrskurð til Hæstaréttar. Ekki er von á niðurstöðum frá Hæstarétti fyrr en í dag eða á morgun. Þá var 48 ára gamall maður stung- inn til bana í húsi við Blesugróf, klukkan fimm á sunnudaginn. Verknaðinn framdi rúmlega fimm- tug kona og lét hún sjálf vita þegar hún hafði framið verknaðinn. Kon- an hefur átt við geðræn vandamál að stríða og varð manni að bana ár- ið 1974. Áður en aö til þess kom hafði hún verið úrskurðuð geðveik eftir að hafa veitt öðrum áverka með eggvopni. Farið hefur verið fram á að hún verði úrskurðuð í gæsluvarðhald og gert að sæta geð- rannsókn. í gærkvöld var ekki ljóst hvort takast myndi að fá hana vist- aða á sjúkrastofnun. í öllum tilfellum hafa þeir sem verknaðina frömdu, átt við erfið- leika að stríða, m.a. geðræn vanda- mál. Ungi pilturinn sem stakk föður sinn slasaðist alvarlega í umferðar- slysi fyrir nokkrum árum, með þeim afleiðingum að hann fékk höf- uðhögg og marðist við heiia. Eftir það hefur hann átt við vandamál að stríða. Konan sem varð manninum að bana hefur verið úrskurðuð geð- veik, eins og áður sagði og þroska- hefti maðurinn er sá sami og hélt ungum pilti í skúr á leikskóla eina nótt fyrr í vetur. Því þykir það sæta furðu að þau séu öíl úrskurðuð í gæsluvarðhald í minnst einn og hálfan mánuð. Öm Clausen hrl. er lögmaður þeirra allra og sagði í samtali við Tímann að í svona til- fellum ætti ekki að nota gæsluvarð- haldsúrskurði. „Það á setja upp stofnun samkvæmt 69. grein laga um meðferð opinberra mála 4. tölu- lið“, sagði Öm. í 69. grein laga um meðferð opinberra mála 4. tölulið segir að gæsluvarðhaldi megi ekki beita sjúklinga og vanfærar konur eða konur með bam á brjósti. Þau skal úrskurða til geymslu eftir læknisráði á spítala eða öðmm við- eigandi stað með þeim hætti, að heilsu þeirra sé borgið. „Það á ekki að loka þetta fólk inni í gæsluvarð- haldsfangelsi eins og venjulega glæpamenn, heldur á að vera til einhver stofnun í heilbrigðiskerf- inu, þar sem er sérstök gæsla til þess að hafa svona fólk á. Það er til í öðmm löndum en það er ekki til hér og þetta er það sem vantar", sagði Örn. Örn kærði gæsluvarðhaldsúr- skurðinn yfir þroskahefta mannin- um til Hæstaréttar. „Hann vinnur á vernduðum vinnustað og er fluttur þangað sérstaklega, hann má ekki fara einn út í búð eða út í banka. Hann er þannig andlega á sig kom- Maðurinn, sem var stunginn í brjóstið í Bústaðarbverfi á föstudagskvöldið, var fluttur á sjúkrahús en er nú að ná sér. Sonur hans, sem hefur átt við erfiðleika að stríða, var úrskurðaður í gæsluvarðhald til 23. mars og gert að sæta geðrannsókn. Timamynd: pjetur inn að honum var ekki hleypt ein- um út en nú má loka hann inni í gæsluvarðhaldi", sagði Öm. Rann- sóknarlögregla ríkisins vildi í gær ekki tjá sig um málin. Þorsteinn A. Jónsson, deildarstjóri í dómsmálaráðuneytinu, sagði að það væri í valdi dómsstóla að meta hvort dæma ætti fólk í gæsluvarð- hald eða til annars konar vistunar. Hins vegar væm ekki til stofnanir sem vildu taka við geðsjúkum af- brotamönnum. „Þetta hefur verið til umfjöllunar og heilbrigðisráðu- neytið auglýsti í janúar stöðu yfir- læknis í réttargeðlækningum til að veita slíkri stofnun forstöðu", sagði Þorsteinn. Guðjón Magnússon, skrifstofu- stjóri í heilbrigðisráðuneytinu, sagði að umsóknarfrestur um stöð- una væri liðinn og verið væri að fara yfir þær umsóknir sem hefðu borist. „Það er von okkar að þetta komist í gagnið sem íyrst og sá sem verður ráðinn í þetta starf mun hafa forgöngu um að skipuleggja hvem- ig eigi að standa að þessu. Síðan er á fjárlögum fjámpphæð til þess að opna stofnun fyrir geðsjúka, ósak- hæfa afbrotamenn, bæði þar sem þeirverðavistaðirogteknirtil með- ferðar", sagði Guðjón. Hann sagði að ekki hefði verið ákveðið hvar þessi stofnun yrði staðsett en ljóst væri að hún yrði að vera í nánum tengslum við geðdeild og þá kæmu aðeins Akureyri og Reykjavík til greina. Aðspurður hvort þessi mál núna um helgina myndi ýta á eftir þessu, sagðist Guðjón halda að þetta hefði verið í fullum gangi en atburðimir um helgina yrðu eflaust til að ýta enn frekar á það. Aðspurð- ur hvort ekki hefði komið til greina að úrskurða þessa aðila til vistunar á geðdeild í stað gæsluvarðhalds, sagði Guðjón að það hefði varla komið til greina, því að í þessum til- fellum væri verið að vinna að rann- sókn málanna og það krefðist mjög sérhæfðrar meðferðar sem ekki sé til staðar á neinni stofnun hér á landi í dag. —SE Sprunga kom á ytra byrði á glugga í Boeing 737 þotu Flugleiða: Lækkaði flugið um 21 þús. fet Sprunga kom á ytra byrði á glugga í stjómklefa Boeing 737 þotu Fluglciða þegar hún var á leiö til Keflavíkur frá Glasgow sl. laugar- dag. Af öryggisástæðum lækkaði þotan flugið skyndilega um 21 þúsund fet, fór úr 33 þúsund fet- um niður í 12 þúsund fet. Að sögn Skúla Jóns Sigurðar- sonar, deildarstjóra hjá loftferða- eftirlitinu, var enginn hætta á ferðum. öryggisreglur kveða svo á um að þegar sprungur komi í glugga skuli umsvifalaust lækka fiugið vegna þrýstingsins sem er meiri eftir því sem ofar dregur. Síðan hafi komið I ljós að sprung- an var einungis á ytra byrðinu og því ljóst að engin hætta var á ferð- um. Þotan hélt stefnunni til Keflavíkur þegar hún hafði lækk- að flugið og lenti þar án vandræða á laugardaginn. —SE Hreyfing í prestastétt Séra Svavar Stefánsson, sóknar- prestur á Neskaupstað, var kjörinn sóknarprestur í Þorlákshafnar- prestakalli á fundi kjörmanna um síðustu helgi. Aðrir umsækjendur um prestakall- ið voru séra Helgi Hróbjartsson, séra Hulda Hrönn M. Helgadóttir og séra Kolbeinn Þorleifsson. Þá hafa kjörmenn í Stóra- Núps- prestakalli ákveðið að kalla Axel Árnason guðfræðing til þjónustu í prestakallinu. Biskup íslands hefur auglýst Gler- árprestakall í Eyjafjarðarprófasts- dæmi laust til umsóknar, en séra Pétur Þórarinsson hefur sagt emb- ætti sínu Iausu frá 1. apríl. Umsóknarfrestur er til 15. mars.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.