Tíminn - 26.07.1991, Blaðsíða 11

Tíminn - 26.07.1991, Blaðsíða 11
Föstudagur 26. júlí 1991 HHHI ÍÞRÓTTIR ' Tíminri 19 Mjólkurbikarkeppnin í knattspyrnu: Þórsarar áfram skeggjaðir eftir öruggan sigur á KR — Þór, Víðir, FH og Valur komust í undanúrslit Mjólkurbikarkeppninnar 2. deildarliö Þórs frá Akureyri Rallakstur: RALLADí SKAGAFIRDI Á morgun, laugardag, heldur Bílaklúbbur Skagaíjarðar rall- keppni, Hótel Áningar-rallið, og er það liður í íslandsmeistara- keppninni í rallakstri. Lagt verður af stað frá Hótel Án- ingu á Sauðárkróki kl. 8.00. Fyrsta sérleið verður vestur yfir Þverár- fiall og veg nr. 741, Neðri- Byggð, og síðan austur yfir Þverárfiall aft- ur. Þessar leiðir verða eknar tvisv- ar. Eftir hádegishlé kl. 13.20 verð- ur ræst inná Nafir, sem er innan- bæjarleið á Sauðárkróki. Sú leið verður einnig ekin tvisvar. Þar gefst áhorfendum kjörið tækifæri til að fylgjast með rallbílunum. Kl. 14.40 verður síðan ræst inná Kiða- skarð, sem liggur frá Mælifelli yfir í Svartárdal í Húnavatnssýslu. Sú leið verður ekin til baka aftur og keppninni lýkur um kl. 17.00 við Hótel Áningu. Um kvöldið verður kvöldverður og verðlaunaafhending á Hótel Án- ingu. Allir helstu rallkappar landsins verða á meðal keppenda, þar á meðal þeir Rúnar og Jón, Stein- grímur og Guðmundur, og Ásgeir og Bragi á Metro. Leiðabækur fyrir áhorfendur munu liggja frammi í verslunum á Sauðárkróki og víðar, þannig að áhorfendur geti sem best fylgst með keppninni. Áhorfendum er bent á að bestu útsýnisstaðimir eru við Golfskálann á Nöfum og við Þverárfiall báðum megin. Veg- urinn yfir Þverárfiall verður lokað- ur frá kl. 07.55, sem og aðrir vegir sem ekið er um, meðan á keppni stendur. Þetta er í fyrsta sinn sem Bíla- klúbbur Skagafiarðar heldur rall- keppni, en hingað til hefur klúbb- urinn aðallega staðið fyrir rallí- cross- og íscrosskeppnum. Bif- reiðaíþróttaklúbbur Reykjavíkur hefur verið heimamönnum innan handar við undirbúning keppninn- ar. BL kom heldur betur á óvart í gær- kvöld, er liðið sló efsta lið 1. deildar, KR, út úr Mjólkurbikar- keppninni í knattspymu. Þór vann öruggan sigur, 4-2, og leik- menn liðsins verða því áfram skeggjaðir, því þeir hafa ekki rak- að sig síðan keppnin hófst og svo verður áfram meðan Iiðið er eldd slegið út úr keppninni. KR-ingar komust yfir í leiknum, er Ragnar Margeirsson skoraði, en Halldór Áskelsson jafnaði fyrir Þór. í sfðari hálfleik kom Bjarni Svein- bjömsson Þór í 4-1 með tveimur mörkum, en síðasta orðið átti Atli Eðvaldsson, 4-2. VÍÐISMENN ÁFRAM Neðsta lið 1. deildar, Víðir úr Garði, komst f undanúrslit keppn- innar með því að sigra Stjörnuna 3-2. í fyrri hálfleik komst Víðir í 2- 0. Bjöm Vilhelmsson skoraði fyrra markið, en það síðara var sjálfs- mark Stjörnunnar. Valdimar Krist- ófersson og Láms Guðmundsson jöfnuðu fyrir Stjörnuna í síðari hálfleik, en rétt fyrir leikslok skor- aði Guðjón Guðmundsson, fyrir- liði Víðis, sigurmarkið, 3-2. FRAMLENGT Á VALSVELLI Á Valsvelli var hart barist á blautu grasinu. Hvomgu liði tókst að skora í fyrri hálfleik, en í upphafi þess síðari tókst Steindóri mark- varðahrelli Elíssyni að skora fyrir Blika. Bjarni Sigurðsson hálfvarði skot Steindórs, en Steindór fékk boltann aftur og skaut í Bjama og inn. Tíu mín. síðar átti Pavol Kretovic misheppnaða sendingu aftur á Eirík Þorvarðarson, Gunn- ar Már Másson komst inn í send- inguna og skoraði, 1-1, og þar við sat. í framlengingu tókst hvomgu lið- inu að skora og því var gripið til vítaspymukeppni. í henni misnot- uðu Blikamir Hilmar Sighvatsson og Steindór Elísson og Valsmaður- inn Ágúst Gylfason spyrnur sínar og því sigmðu Valsmenn saman- lagt 5-4. GÓÐ FRAMMISTAÐA LEIFTURS Leiftursmenn frá ólafsfirði, sem leika í 3. deild, reyndust 1. deildar- liði FH erfiður mótherji í gær. Gunnlaugur Sigursveinsson kom Steindór Elísson skoraði fyrír Breiðablik gegn Val í gærkvöld. Hér reynir hann að leika á Ág- úst Gylfason Valsmann. Báðir fóm þeir síðan illa aö ráði sínu í vítaspymukeppni, en Vals- menn komust áfram 5-4. Leiftri yfir undir lok fyrri hálfleiks, en í þeim síðari jafnaði Hörður Magnússon fyrir FH. í lok framlengingar tókst Hlyni Eiríkssyni, varamanni FH, að skora og tryggja FH sæti í undan- úrslitunum. Dregið verður í undanúrslitum Mjólkurbikarkeppninnar á hádegi í dag. BL 12. alþjóðlega rallkeppnin á íslandi: SEX ERLENDAR ÁHAFNIR HAFA BOÐAÐ KOMU SÍNA — í KUHMO-rallið sem hefst 6. september HM öldunga í frjálsum íþróttum: SIGURBORG KOMST í ÚRSLIT í 200M Meðal keppenda í KUHMO-ralIinu, 12. alþjóðlegu rallkeppninni sem haldin er á íslandi og hefst 6. sept- ember nk., verða 6 erlendar áhafnir, þar af þijár á öflugum fjórfijóla- drifnum bflum. í gær var gerður samningur milli Bifreiðaíþrótta- klúbbs Reykjavflrur og Hjólbarða- hallarinnar við Fellsmúla, um að fyrirtækið verði aðalstyrktaraðili keppninnar. Hjólbarðahöllin flytur inn KUHMO-hjólbarða, sem keppn- in er kennd við. Hjólbarðahöllin var einnig aðal- styrktaraðili keppninnar í fyrra, en keppni þessi er eini alþjóðlegi við- burðurinn í bifreiðaíþróttum hér á landi á þessu ári. Þær erlendu áhafnir, sem boðað hafa komu sína, eru: Peter Geitel, Finnlandi, Mazda 323 TUrbo 4x4; Saku Vieimaa, Finnlandi, Lancia Delta Integrale 4x4; Andrew Or- chard, Bretlandi, Ford Sierra Cosw- orth 4x4; Philippe Gobert, Frakk- landi, Fiat Uno Turbo; Alistair Smith Skotlandi, VW Golf GTi; og Alan Bat- ho, Englandi, Lada 2105. Margar af bifreiðum þessum eru hreinar keppnisbifreiðir, en þess má geta að Lancia Delta Integrail, Ford Sierra og Mazda 323 berjast nú um heimsmeistaratitil framleiðenda í ralli. KUHMO-rallið stendur yfir í 3 daga og leggja keppendur af stað þann 6. september frá Perlunni í Öskjuhlíð, enda liggur fyrsta sérleið um sjálfa Öskjuhlíðina. Síðan verður haldið út á Reykjanes. Snemma á laaugar- dagsmorgun taka við sunnlenskar heiðar og fiallvegir, í bland með styttri leiðum kjörnum fyrir áhorf- endur. Á sunnudeginum verður haldið í Borgarfiörð og komið til baka um Kaldadal og Tröllaháls. AIIs verða eknir um 1000 km í rallinu, þar af um 400 km á sérleiðum. BL Sigurborg Guðmundsdóttir tók í gær þátt í 200m hlaupi 35-40 ára kvenna á heimsmeistaramóti öld- unga, sem haldið er í Lahti í Finn- landi um þessar mundir. Sigurborg komst í úrslit og varð þar í 7. sæti á 26,84 sek. Hlaupið vannst á 25,5 sek., sem er mjög góður tími. ólafúr Unnsteinsson keppti í spjót- kasti í gær, í flokki 50-55 ára, og hafnaði í ca. 20. sæti af um 60 kepp- endum. Hann kastaði 39,56m. Kasta þurfti 47m til að komast í úrslit. Öldungurinn síungi, Jóhann Jósson úr Garði, keppti í langstökki í flokki 70-75 ára. Hann stökk 4,09m og varð í 11. sæti. Langstökkið vannst á 4,98m. í dag keppir Unnur Stefáns- dóttir í undanrásum í 400m hlaupi, en úrslit í greininni verða á morgun. 26 keppendur eru skráðir til keppni í 400m hlaupið. BL Birgir Vagnsson frá Hjólbaröahöllinni og Tryggvi M. Þóröarson, keppnisstjóri í KUHMO-rallinu, handsala samninginn í Periunni í Öskiuhlíð í qær. Tfmamvnd Pietur

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.