Tíminn - 03.06.1993, Blaðsíða 1
Frétta-Tíminn. .Frétta-síminn...68-76-48...Frétta-Tíminn.. Frétta-síminii...68-76-48...Frétta-Tíminn Frótta-síminn...68-76-48
ÍmBiBfHlWBBH
3. júní 1993
102. tbl. 77. árg.
VERÐf LAUSASÖLU
KR. 110.-
Þorsteinn Pálsson segir ekki hægt að auka veiðar á öðrum botnfisktegundum til að vega upp
minni þorskveiði á næsta fiskveiðiári líkt og gert var í fýrra:
Nú á Þorsteinn ekki
að koma með tillögur
Þonteinn Pálsson sjávarútvegsráð-
herra segir að fallið hafi verið frá því
að hann hafi forystn um að móta til-
lögu um hvernig eigi að bregðast við
minni þorskveiði á næsta fiskveiðiári
eftir að forsætisráðherra gerði tillðgu
um að nefnd, skipuð fulltrúum
stjóraarandstððunnar, ASÍ, VSÍ og
fimm fulltrúum úr ráðuneytunum,
vinni tillðgur um viðbrðgð við minni
þorskveiðL
Forsætisráðherra og utanríkisráð-
herra lýstu því yfir á föstudaginn að
eðlilegt væri að sjávarútvegsráðherra
gerði tillögu um hvemig ætti að
bregðast við minni þorskveiði á næsta
fiskveiðiári. Sjávarútvegsráðherra
lýsti því þá yfir að hann myndi vinna
slíkar tíllögur og leggja þær fyrir rík-
isstjómina samhliða tíllögu um afla-
mark á næsta fiskveiðiári.
í fyrradag lagði forsætisráðherra svo
fram tillögu í ríkisstjóminni um að
mynduð verði tíu manna nefnd sem f
sitji fulltrúar frá forsætisráðuneyti,
sjávarútvegsráðuneyti, fjármálaráðu-
neyti, utanríkisráðuneyti og félags-
málaráðuneyti, auk fulltrúa frá Fram-
sóknarflokki, Alþýðubandalagi,
Kvennalista, ASÍ og VSÍ. Gert er ráð
fyrir að fulltrúi forsætisráðherra í
nefndinni veití henni forstöðu. Sam-
kvæmt hugmynd forsætisráðherra á
nefhdin að reyna að ná samstöðu um
leiðir til að laga stöðu sjávarútvegar-
ins í kjölfar væntanlegrar ákvörðunar
um leyfilegan hámarksafla á næsta
fiskveiðiári.
„Ég held að það sé engum vafa undir-
orpið að ef það næst víðtæk sátt um
þetta þá er það traustasti grundvöllur-
inn til að byggja 1 Ég hef margsinnis
lagt á það áherslu að það væri mikils
um vert að reyna að ná þjóðarsátt um
uppbyggingu útflutningsgreinanna.
Það væri eina líklega leiðin til að skila
raunhæfum árangri," sagði Þorsteinn
Pálsson í samtali við Tímann í gær.
Þorsteinn sagðist frekar reikna með
að þessi tillaga verði formlega sam-
þykkt á næsta ríkisstjómarfundi eftir
helgina, en ákvörðun um þessa nefnd-
arskipan var frestað á síðasta fundi
vegna Qarveru margra ráðherra.
Þorsteinn sagðist reikna með að
hann myndi leggja fram tillögu um
aflamark á næsta fiskveiðiári fyrir
nefndina þegar tillagan liggur fyrir.
Þorsteinn sagði ljóst að ekki yrði
hægt að fara sömu leið og farin var í
fyrra og leifa meiri veiði í fiskistofna
sem eru þokkalega sterkir eins og ýsu,
síld, rækju og karfa. „Það er ekki hægt
að leika þann leik tvisvar í röð að
reyna á þanþol hinna stofnanna,"
sagði Þorsteinn.
Þorsteinn sagðist ekki geta svarað því
hvað það taki langan tíma fyrir ríkis-
stjómina að taka ákvörðun um afla-
mark á næsta fiskveiðiári og aðgerðir
sem því fylgi. Hann sagði að reynt yrði
að hraða þeirri vinnu sem framundan
er eins og kostur væri. Æskilegt væri
að ákvörðun lægi fyrir í þessum mán-
uði, en lögum samkvæmt þurfi ekki
að taka ákvörðun í málinu fyrr en í
síðasta lagi fyrir lok júlfmánaðar.
Þorsteinn sagði að eitt af því sem
hann væri að láta skoða, væm leiðir til
að jafna niðurskurð á þorskveiðum
milli landshluta.
-EÓ
Lista-
svið
Listahátíð í Hafnarfirði
hefst á föstudagskvöld og
af því tilefni er veríð að
reisa heljarmikið svið í
Íróttahúsinu í Kaplakríka.
opnunarhátíðinni mun
Sigrún Hjálmtýsdóttir
syngja, Sinfóníuhljómsveit
islands leika og einnig
taka hafnfirskir kórar lagið.
Lúðrasveit Hafnarfjarðar
tekur á móti gestum svo
það mun engum leiðast.
-GKG.
Ttmamynd Aml Bjama
*
Halldór Asgrímsson segir það vekja tortryggni að forsætisráðherra skuli ræða við stjórnar-
w andstöðuna í gegnum fjölmiðla:
komast Agreininguriiin í ríkisstjórn
I
Aðalfundur Félags íslenskra
| myndlistarmanna, sem haldinn
var 10. og 28. maf s.L, beinir
þehn tilmælum til Ríkisútvarps-
íns að umfiölhm um myndlist í
sjónvarpinu verði stórefld og
fréttaflutnirrgur af myndlistar-
sýningum verðí meiri og vand-
aðri. Fundurinn telur að mögu-
leikar sjónvarps sem myndmið-
ils séu mjög vannýttir hvað
varðar myndlist og telur brýna
þörf á aukinni þáttagerð um
myndlist í samráði við mynd-
inni þjóðhættulegur
Halldór Ásgrímsson, fyrrverandi sjávarútvegsráðherra, segir að
það sé þjóðinni afar hættulegt að það skuli ekki vera samstillt
ríkisstjóm við völd nú þegar mikllr erfiðleikar eru í efnahagsmál-
um og við blasi niðurskurður á fiskveiðum. Hann segist ekki geta
tekið alvaríega tiilögu Davíðs Oddssonar um nefndarskipan til
að fjalla um vanda sjávarútvegarins á meðan aðeins sé rætt við
stjómarandstöðuna I gegnum fjölmiðla.
kosin ný stjóm félagsins. Hana
skipa: Hannes Lárusson fbr-
maður, Guðrún Einarsdóttir rit-
ari, Valgerður Bergsdóttir gjald-
keri, Kristín Jónsdóttir og Guð-
rún Kristjánsdóttir meðstjóm-
endur, GS.
„Við höfum talið að fyrir iöngu
væri þörf á nánari samvinnu í
þjóðfélaginu um okkar efhahags-
mál. Ég minni á það að ríkisstjóm-
in lét það verða sitt fyrsta verk að
hætta öllu samráði við stjómar-
andstöðuna í sambandi við undir-
búning sjávarútvegsstefnunnar og
neitaði að hafa fulltrúa stjómar-
andstöðunnar með í þvf verki. Þeg-
ar það fór að bera á ýmsum vanda-
málum í sjávarútveginum, sem
ávalt munu fylgja okkar samfélagi,
þá vísaði ríkisstjómin vandanum
til tvíhöfðanefndarinnar sem að
vísu skilaði aldrei áliti um hann.
Síðan gerist það að forsætisráð-
herra lýsir því yfir að vandi sjávar-
útvegarins sé fyrst og fremst efría-
hagsvandamál og þar af Ieiðandi
eigi hann að vera á borði forsætis-
ráðherra. Sjávarútvegsráðherra
hefur síðan vísað öllum spuming-
um um það mál á forsætisráð-
herra. Fyrir nokkrum dögum fann
forsætisráðherra svo upp á því að
málið eigi að vera hjá sjávarút-
vegsráðherra og þá fer hann fyrst
af stað í málinu og kemur þá ber-
lega í ljós að það hefur í reynd eng-
inn verið með ábyrgð á þessum
málum f langan tíma vegna ósam-
Haildór Ásprfmsson alþlngismaður.
komulags á milli sjávarútvegsráð-
herra og forsætisráðherra.
Svo skyndilega í gær kemur þessi
tillaga upp án þess að nokkurt
samráð sé haft við okkur um það
og það virðist jafríframt hafa kom-
ið sjávarútvegsráðherra á óvarL
Þannig að þetta vekur allt miklar
spumingar um hæfni og getu rík-
isstjómarinnar til að fara með
þessa alvarlegu stöðu í íslenskum
efnahagsmálum.
Ég get ekki tekið forsætisráð-
herra alvarlega meðan hann talar
við stjómarandstöðuna í gegnum
fjölmiðla og get f sjálfu sér ekki
tjáð mig um hans hugmyndir fyrr
en hann hefur komið með þær og
skýrt þær út fyrir okkur.
Við emm að sjálfsögðu tilbúnir
til að tala við hann hvenær sem er
ef hann óskar eftir,“ sagði Halldór
Ásgrímsson.
-EÓ