Tíminn - 07.06.1995, Blaðsíða 1

Tíminn - 07.06.1995, Blaðsíða 1
STOFNAÐUR 1917 79. árgangur Miövikudagur 7. júní 1995 103. tölublað 1995 20 milljónirnar til Feröamálaráös vegna HM í hand- bolta komu í góöar þarfír, segir Magnús Oddsson: Skilar sér allt til baka tækin í ferðaþjónustu séu mörg. Sjálfum þykir honum álitlegast að skoða gistináttafjölda á hótelum og gistihúsum til ab mæla árangur. Staðreynd sé að á Akureyri hafi um 200 manns fyllt hótelin í maí vegna HM-riöils sem þar var leikinn. Þetta hafi aldrei fyrr gerst á Akureyri. „Ferðaþjónustan brást þannig við í ár ab reynt var að hnika til svoköll- uðum hvataferbum erlendra fyrir- tækja hingað yfir á aprílmánub. Það virðist enginn taka eftir því að í apr- íl var 20% aukning á erlendum ferbamönnum hingað miðab við sama mánuð í fyrra," sagði Magnús. I Hafnar- fjaröarhöfn í gœr var verib ab landa úthaf- skarfa úr frystitogaranum Haraldi Kristjánssyni HF sem skipib fékk á Reykjaneshryggnum. En eins og kunnugt er þá komst útgerb skips- ins framhjá verkfalli sjómanna meb þvíab leigja skipib tii Vest- fjarba. Deiluabilar hittust á tveim- ur óformlegum fundum í gœr í Karphúsinu en vaxandi óþolin- mœbi er farib er ab gæta mebal einstakra útgerbarmanna sem mikilla hagsmuna eiga í veibum á humri, síld og úthafskarfa. Útgerb- armenn í Þorlákshöfn hafa m.a. lýst því yfir ab ef ekki semst innan örfárra daga muni þeir hafa verk- fallib ab engu og fara á humar. Tímamynd: CS Framsóknarmenn velja fulltrúa flokksins í stjórnir, nefndir og ráö sem kosiö er í á Alþingi: Ágreiningur um st j órn Byggbastofnunar „Þab er ekki lítils virði þegar fyr- irliði sænska handboltaliösins segir í sjónvarpinu þeirra að hann sé staddur í stórkostlegasta landi heims," sagði Magnús Oddsson, feröamálastjóri í samtali við Tím- ann í gær. Ferðamálaráö fékk 20 milljón króna aukafjárveitingu af almannafé vegna HM í hand- knattleik. Magnús segir ab það fé hafi kom- ið í góðar þarfir og að þab eigi allt eftir ab koma til baka og meira til. Sífellt berist úrklippur og ábending- ar um sjónvarpsumfjöllun, sem hafi veriö hagstæð landkynning. Blaða- og fréttamenn höfðu mik- inn tíma aflögu meðan þeir fylgd- ust með HM í handbolta hér á landi. Ferðamálaráð bauð upp á ýmsar kynningar sem kostaöar voru af áðurnefndum 20 milljónum. Fréttamenn fengu sérstaka Islands- tösku með ýmsu efni um landið, það út af fyrir sig kostabi 1,5 millj- ónir, kvöldverbur fyrir hátt í 400 fréttamenn kostaði sitt, sem og tímarit sem gefið var út. „Ég vil ekki kenna neinum um eitt eba annað í sambandi við ferða- mannastrauminn í maí. En ég við- urkenni að ég hafði ekki sömu væntingar og margir aðrir varöandi gestafjölda sem hingað kæmi vegna HM-mótsins. Ég sá ekki fyrir mér full skemmtiferðaskip á sundunum eða yfirfull hótel," sagði Magnús. Magnús segir ab ljóst sé ab mæli- Breytingar á þjónustu Tímans Dagblaðið Tíminn vinnur nú að því að bæta dreifing- arþjónustu sína við lesend- ur úti á landi og stefnir að því að koma blaðinu til áskrifenda á hlestu þéttbýl- isstöðum árla morguns. Af þessum sökum hefur prent- un verið færð nokkuð fram þannig að síökvöldið og nóttin nýtist til að'-dreifa blaöinu. Til að byrja með mun þessa einkuin veröa vart á Vestur- og Norður- landi en smám saman munu breytingarnar ná til annara landshluta. Áskrifendur á höfuðborgar- svæðinu munu einnig njóta góðs af nálægðinm við fram- leiöslustaðinn því víða veröur hægt aö dreifa blaöinu á síð- kvöldum og mönum gefst þá kostur á að sjá blað morgun- dagsins kvöldinu ábur, en það er raunar svipað því sem þekkist hjá flestum banda- rískum morgunblöðum. Tím- inn vonar að áskrifendur taki vel í þessar breytingar. ■ Þingflokkur framsóknar- manna hefur ákveöið hvaða fulltrúar flokksins munu taka sæti í stjórnum, nefnd- um og rábum, sem kosið er í á Alþingi, að undanskildri skipan fulltrúa í stjórn Byggðastofnunar. Einn þingmanna flokksins, Gunnlaugur Sigmundsson, var mjög óánægður meb niðurstööu þingflokksins, en hann sóttist meðal ann- ars eftir sæti í bankaráði Landsbankans og gekk hann af þingflokksfundi. Valgerður Sverrisdóttir, for- maður þingflokksins fram- óknarmanna, segist ekki geta gefib upp hverjir þessir ein- staklingar eru, þar sem það hefur ekki verið tilkynnt þeim. Valgerður segir að þing- flokkurinn hafi ákveðið að hækka hlutfall kvenna í nefndum og ráðum, auk þess sem það atvikaðist svo að hlutfall pólitískt kjörinna full- trúa lækkar. Það hafi verið ákvörðun þingflokksins nú, en ekki sé um það að ræða að sú framtíðarstefna hafi verið mörkuð, enda líti hún svo á að það sé ekki hlutverk þing- flokksins að móta slíka stefnu, heldur æðri stofnanna flokks- ins. Valgerður sagðist vona að skyndilegt brotthvarf Gunn- laugs af þingflokksfundi myndi ekki hafa alvarlegar af- leiðingar og ekki hafa nein áhrif á samskipti þingflokks- ins við Gunnlaug. Samvkæmt heimildum Tím- ans hefur verið ákveðið að Helgi S. Guðmundsson verði í bankaráði Landsbankans, Siv Friðleifsdóttir taki sæti í Norð- urlandaráði, Arnþrúður Karls- dóttir taki sæti Áslaugar Brynj- ólfsdóttur í Menningarsjóði, en þess má geta að Arnþrúður sóttist eftir sæti í útvarpsráöi en fékk ekki stuðning. Hins vegar verður Gissur Pétursson annar fulltrúi framsóknar- manna í útvarpsráöi og vegna aukins vægi flokksins á þingi, munu framsóknarmenn fá annan fulltrúa í ráðinu og það sæti mun Kristjana Bergs, for- maður Landssambands fram- sóknarkvenna skipa. Eins og áður sagði hefur ekki náðst samstaða um hvaða tveir fulltrúar flokksins verða í Byggðastofnun, en Stefán Guðmundsson alþingismaður hefur sótt það fast að fá það sæti. ■

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.