Tíminn - 23.03.1996, Blaðsíða 1

Tíminn - 23.03.1996, Blaðsíða 1
argangur Laugardagur 23. mars 59. tölublað 1996 Þaó tekur aöeins eitin ■ | ■virkan daq aö koma póstinum ..tji — þínum til skila Forseti ASI ítrekar af- stööu sína aö sitja aö- eins eitt kjörtímabil: Vandasamt ab velja fory „Éc sacöi l stu „Eg sag(5i þarna fyrir noröan aö ég reiknaöi ekki meö því aö vera nema eitt kjörtímabil og sá útreikningur stendur enn- þá,“ segir Benedikt Davíösson forseti ASÍ aöspuröur hvort einhver breyting heföi oröiö á afstööu hans til áframhald- andi setu í forsetastól ASÍ. Hann vill hinsvegar ekkert tjá sig um þaö hvort þrýst sé á hann til aö gefa kost á sér til endurkjörs og segist ekki vilja blanda sér í þessa umræöu á neinn hátt. Hann segir aö þaö sé töluverð vinna í gangi hjá formönnum landssambanda innan ASÍ í því aö reyna aö koma sér saman um tillögur um forystu ASÍ og mið- stjórn fyrir þing sambandsins sem haldiö veröur í Kópavogi eftir miöjan maí nk. Benedikt segir aö það sé aö ýmsu að huga í þessum efnum, enda þarf aö gera tillögur um 30 manns í miðstjórn ASÍ. Honum finnst jafnframt líklegt aö sá ágrein- ingur sem varö í verkalýöshreyf- ingunni vegna niöurstööu meirihluta launanefndar ASÍ viö endurskoðun samninga snemma vetrar, hafi áhrif á þessa vinnu alla saman. „Samsetningin á því getur veriö vandasamt verk og enda- punkturinn á því verður ekki unninn fyrr en á þinginu. Ég held líka aö menn séu nokkurn veginn sammála mér í því aö þetta sé fyrst og fremst verkefni forystu landsambandanna. Þessi vinna kemur hinsvegar ekkert inná mitt borð," segir Benedikt. -grh Sterkasta tækib gegn fátæktinni Tryggingastofnun er sex- tug um þessar mundir og af því tilefni rœöir Tíminn viö Karl Steinar Cuönason forstjóra um stofnunina. Sjá blaösíöu 7 Vibar. Er ekki maöurinn sem heggur mann og annan Viöar Eggertsson, fyrrum leikhús- stjóri LR í viötali á blaösíöu 12 Fjórba valdib sœkir ab Bolla Gústavssyni á Biskupsstofu í gœr. Séra Flóki Kristinsson og Jón Stefánsson organisti halda báöir áfram störfum sínum: Aftur á byrjunarreit? Séra Bolli Gústavsson vígslu- biskup felldi í gær úrskurö í Langholtskirkjudeilunni svo- nefndu. Samkvæmt honum halda bæöi séra Flóki Kristins- son sóknarprestur og Jón Stef- ánsson organisti og kórstjórn- andi áfram störfum sínum viö kirkjuna. Ber þeim aö hlíta þeim úrskurbi og haga sam- starfi sínu eftir því sem reglur segja til um, þ.á m. viö al- menna helgidagaguðsþjón- ustu í kirkjunni. Brjóti annar eba báöir gegn úrskuröinum er biskupi sem yfirmanni kirkjunnar skylt aö grípa til vibeigandi rábstafana. Séra Bolli Gústavsson sagði eftir fundinn um þær ráðstafan- ir sem hugsanlega yröi gripiö til ef presturinn og organistinn halda ekki friðinn, aö ekki væri hægt aö útiloka ab annar yröi Iátinn víkja úr starfi. „Ég tel aö kirkjunni beri skylda til aö ganga eins langt og hægt er til aö ná sáttum." Hann neitaði jafnframt spurningu frétta- manna hvort óbreytt staða væri í málinu. Séra Ragnar Fjalar Lárusson sagöi „sáttargjöröina alltaf þaö kristilegasta og besta" og hann væri því ánægöur með úrskurö- inn. Flóki hefði samþykkt á fundinum að halda sáttargjörð- ina sem og Jón Stefánsson, sem þó var fjarverandi á fundinum vegna anna. „Hann verbur að svara fyrir þaö," sagði Ragnar Fjalar þegar blaöamaöur Tímans benti á aö séra Flóki lýsti því síö- ast yfir í fyrradag aö hann myndi aldrei starfa með Jóni eftir þaö sem á undan er gengið. „Nú er reynt til þrautar. Vib get- um litið á úrskurðinn sem sal- ómonsdóm." Samskiptaöröugleikar hafa veriö á milli séra Flóka og Jóns um nokkurra ára skeið en upp úr sauö fyrir jólin í fyrra þegar Jón hætti störfum tímabundib og lýsti því yfir að hann gæti ekki starfað áfram með Flóka. Nokkrum vikum síöar rann leyfi Jóns út án þess aö sættir hefðu náöst en þá meinabi Flóki Jóni aö spila í kirkjunni. Síðan hafa sóknarnefnd og lögmenn kom- iö aö málinu meö ýmsum hætti auk þess sem hópur fólks stóö fyrir undirskriftasöfnun innan sóknarinnar sem sýndi aö 40% sóknarbarna vildu Flóka burt út starfi. Fyrir tveimur vikum -tók Bolli Gústavsson vígslubiskup á Hólum við deilunni til úrskurö- ar þar sem herra Ólafur Skúla- son biskup dró sig í hlé, m.a. eftir aö lögmaður séra Flóka taldi hann vanhæfan vegna fyrri afskipta af deilunni. Hann er talinn hafa byggt álit sitt að miklu Ieyti á þeim gögnum sem fyrir lágu. Erfitt er aö sjá aö líta megi á úrskurð víglubiskups sem viö- unandi lausn eftir allan þann tíma sem farið hefur í aö skoöa máliö og þaö sundurlyndi sem sannaö er aö einkenni störf séra Flóka og Jóns. Prestur sem Tím- inn talaði viö í gær sagöi aö úr- skurðurinn væri sér og kirkju- legu starfi vonbrigöi. Hann sæi ekki betur en aö allt væri á byrj- unarreit. -BÞ Jón Stefánsson organisti um úrskurö vígslubiskups: Sáttur ef ég fæ starfsfrið Vibbrögö Jóns Stefánssonar organista og séra Flóka Kristinssonar virtust nokkuö misjöfn eftir aö úrskurður vígslubiskups féll í gær. Þannig gekk séra Flóki þung- brýnn úr húsi eftir fundinn og sagbist ekki tjá sig vib fjölmibla. Hann lýsti því síbast yfir í fyrradag ab hann gæti ekki hugsab sér ab starfa meb Jóni eftir þab sem á und- an er gengib. Viöbrögð Jóns voru nokkuð á annan veg: „Ég er sáttur við úrskurðinn hvað það varðar að ég er tilbúinn að koma þarna í messu og er reynd- ar þegar búinn að boöa messuhópinn nk. sunnudag. Þegar ég fór í fríið fyrir jól var sýnt að ég gat ekki starfað með Flóka undir þáverandi kring- umstæðum. Ég fór fram á að fá starfsfrið og ef hann er tryggbur núna er ég sáttur." Jón vildi ekki tjá sig um líkurnar á aö hann og Flóki gætu starfað saman, en taldi ekki útilokað ab vilji Flóka breyttist í þá ver- una að samstarfgrundvöllur yrði fyrir hendi. „Nú eru komnar samskiptareglur og vonandi kemur einhver til meb ab sjá um að þeim sé framfylgt," sagöi Jón ennfremur. Formaður sóknarnefndar Langholts- kirkju, Guðmundur E. Pálsson, vildi ekki tjá sig um úrskurbinn fyrr en að betur athuguðu máli. jón Stefánsson. -BÞ

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.