Tíminn - 25.01.1986, Blaðsíða 1
LAUGARDAGUR 25. JANÚAR 1986-19. TBL. 70. ÁRG.
DELTA flugfélagiö ameríska hefur sent öllum
ferðaskrifstofum á íslandi og hinum Norðurlöndunum
tilboð um að selja sérstök fargjöld til og frá Bandaríkj-
unum og til fjögurra staða innan Bandaríkjanna á
23.370 krónur. Farþegar frá íslandi geta farið út með
Flugleiðum. Þetta tilboð kemur í kjölfar samninga
sem Samvinnuferðir náðu við Deltaflugfélagið um
afslátt á flugfari í Bandaríkjunum.
STÚDENTARÁÐ H.í. hefur krafist þess
að lagalegur réttur stúdenta til að tilnefna eigin full-
trúa í stjórn Lánasjóðs íslenskra námsmanna, sé
virtur. Stúdentaráð hefur látið lögfræðinga meta hvort
Sverri Flermannssyni sé stætt á að neita að skipta um
fulltrúa stúdenta í stjórn LÍN, og var álit lögfræðings-
ins Sverri í óhag. Ólafur Arnarson, fulltrúi fráfarandi
stúdentaráðs í stjórn LÍN, hefur nú dregið afsögn
sína úr stjórninni til baka.
LEON BRITTAN,
viðskipta- og iðnaðarráð-
herra Bretlands, sagði af
sér í gær eftir að margir
samflokksmenn hans
höfðu hótað að hætta að
styðja ríkisstjórnina að
öðrum kosti. Aðalástæð-
an fyrir afsögninni var sú
að hann bar ábyrgðina á
að koma skjölum, sem
voru óhagstæð Heseltine
fyrrum varnarmálaráð-
herra Breta, í fjölmiðla. Af-
sögn Brittans er talin mik-
ið áfall fyrir Thatcher for-
sætisráðherra en Brittan
var helsti stuðningsmaður
hennar innan ríkisstjórn-
arinnar.
SNJÓFLÓÐ féll á Óshlíðarveg í grennd við
(safjörð í gærdag. Lögreglu var tilkynnt um að vegur-
inn væri lokaður laust fyrir kvöldmatarleytið. Haft var
samband við vegagerðina á ísafirði og hugðust þeir
ryðja veginn um leið og tími gæfist. Snjóflóðið féll í
grennd við krossinn á Öshlíðarveg, og féll það á 10
metra kafla. Ekki skapaðist hætta þegar þao féll.
ÁTTUNDA UMFERÐ á Skákþingi Reykja-
víkur var tefld sl. miðvikudagskvöld. Staðan eftir þá
umferð í opna flokknum er sú, að í efsta sæti er
Hannes Hlífar Stefánsson með 7 vinninga. I 2.-4.
sæti eru Bjarni Hjartarson, Þráinn Vigfússon og
Þröstur Árnason með 6 Vz vinning. í unglingaflokki er
6 umferðum lokið og er Þröstur Árnason efstur með 6
vinninga.
DEILUR flugmálastjórnar og flugumferðar-
stjóra veröa ekki leystar í bráð. í gær slitnaði upp úr
viðræðum deiluaðila. Ekki hefur verið boðaður nýr
fundur í deilunni, og herma heimildirTímans að langt
sé þar til menn geti hugsað sér að setjast aftur við
samningaborðið.
KRUMMI
„Það var að losna stóll í
þróunarfélagsstjórn-
inni. Ætli Geir viti af
þessu..."
„Kaffibaunamálið“ afgreitt frá ríkissaksóknara:
FIMM ÁKÆRDIR
„Rökrétt framhald" segir Valur Arnþórsson
Ríkissaksóknari hefur gefið
út ákæru á hendur fimm af
framámönnum í Sambandi ís-
lenskra samvinnufélaga. Þeir
eru: Erlendur Einarsson for-
stjóri, Gísli Theodórsson fyrr-
verandi forstöðumaður skrif-
stofu Sambandsins í London,
Hjalti Pálsson framkvæmda-
stjóri verslunardeildar, Sigurð-
ur Árni Sigurðsson forstöðu-
maður skrifstofunnar í London
og fyrrverandi deildarstjóri
innan innflutningsdeildar og
loks Arnór Valgeirsson deild-
arstjórf verslunardeildar.
„Ég held að þessi ákæra sé
nánast rökrétt framhald af
þcirri rannsókn sem hefurfarið
fram og þeirri umfjöllun sem
þetta mál hefur fengið. Ég held
það hafi nánast verið óhjá-
kvæmlegt að málið færi fyrir
dómstólana, þannig að þar
kæmi úrskurður um sekt eða
sýknu. Hinsvegar er það Ijóst
að lögfræðinga greinir á um
það, hvort þarna sé um laga-
brot að ræða. Lögfræðingur
sem hefur skoðað þetta fyrir
Sambandið telur að í þcssu sé
ekkert lagabrot," sagði Valur
Arnþórsson stjórnarformaður
Sambandsins í samtali við Tím-
ann í gær, vegna ákærunnar í
„Kaffibaunamálinu" svokall-
aða.
í ákærunni er fimmmenning-
unum gefið að sök að hafa á
árunum 1980 og 1981 náð undir
Sambandið með refsiverðum
hætti samtals um 200 milljón-
um króna af innflutningsverði
kaffibauna, sem Kaffibrennsla
Akureyrar hf. flutti inn á fyrr-
greindum árum með milli-
göngu Sambandsins. Þá er
þeim ennfremur gefið að sök
skjalafals og brot á lögum um
skipan gjaldeyris- og viðskipta-
mála.
- ES
Sjá yfirlýsingu frá Erlendi
Einarssyni bls. 2.
Geir
skiptir
við
Matthías
Það var kalt í veðri á Bessa-
stöðum í gær þegar ráðherrar
komu til ríkisráðsfundar vegna
ráðherraskipta. Geir Hail-
grimsson lét af embætti utan-
ríkisráðherra en Matthías Á.
Mathiesen tók við. Geir tekur
við embætti Seðlabankastjóra í
september.
i Sjá nánar bls. 3 Tímamynd: Kóbert
Þróunarfélagið úr sögunni?
Davíð sagði af sér
Taldi forsætisráöherra hafa beitt pólitískum þrýstingi
„Ég ætla mér ekki að bregð-
ast sjálfum mér á gamals aldri,“
sagði Davíð Scheving Thor-
steinsson í samtali við Tímann í
gær , eftir að hann hafði sagt af
sér stjórnarformennsku og
stjórnarsetu í Þróunarfélagi ís-
lands hf. Ástæðan fyrir afsögn
Davíðs er ágreiningur um
ráðningu á Gunnlaugi M. Sig-
mundssyni forstjóra Fram-
kvæmdastofnunar í starf fram-
kvæmdastjóra félagsins. Þegar
ráðning Gunnlaugs hafði verið
samþykkt lagði Davíð Schev-
ing fram bókun þar sem segir
að vegna afskipta stjórnmála-
manna af málefnum félagsins sé
hugsjónalegur grundvöllur
þess brostinn. Tilgangurinn
með stofnun hlutafélagsins hafi
verið að losna undan pólitísk-
um áhrifum. í bókuninni segir
orðrétt: „Nú hefur það hins
vegar gerst að forsætisráðherra
hefur beitt áhrifum sínum inn-
an stjórnar félagsins til að hafa
áhrif á val framkvæmdastjóra.“
í framhaldi af bókun Davíðs
lýsti Hörður Sigurgestsson
stjómarmaður sig sammála
henni og sagði sig einnig úr
stjórn félagsins.
Davíð Scheving sagði í gær
að hann hefði ekkert á móti
Gunnlaugi sem slíkum, en það
væri „prinsipp“-mál að stjórn-
málamenn kæmu ekki nærri
málefnum félagsins. Aðspurð-
ur um það hvort þetta merkti
að einkageirinn væri að draga
sig út úr Þróunarfélaginu, sagð-
ist Davíð ekki geta talað nema
fyrir sjálfan sig og að hann
hefði persónulega ekki lagt fé í
félagið. Hins vegar gæti hann
ekki séð hvernig menn ættu að
draga til baka skuldbindingar
sínar við félagið. Eina leiðin
væri þá ef forsendur fyrir hluta-
fjárloforðunum hefðu brostið,
eða eitthvað í þá áttina. Um
framtíð félagsins vildi hann ann-
ars ekkert segja og vísaði á þá
sem enn væru þar við störf.
Meiri hluti stjórnar Þróunar-
félagsins hafnaði því alfarið að
um pólitískan þrýsting frá for-
sætisráðherra væri að ræða. f
sérstakri bókun sem þeir
gerðu, undirstrikuðu þeir að
ráðning Gunnlaugs í starfið
hafi að öllu leyti verið byggð á
hlutlægu mati á hæfni hans í
starfið. í bókun meirihlutans
segir ennfremur: „Stjórn fé-
lagsins mun hér eftir sem hing-
að til fyrst og fremst vinna störf
sín með hagsmuni félagsins að
leiðarljósi. Viðundirritaðirlýs-
um yfir miklum vonbrigðum
með viðbrögð þessara tveggja
stjórnarmanna í máli þessu.“
Undir bókunina rita Guð-
mundur G. Þórarinsson, Jón
Ingvarsson og Þorsteinn Ólafs-
son. Ekki náðist í forsætisráð-
herra í gærkvöld.
Inn í stjórn Þróunarfélagsins
munu koma varamennirnir
Björn Þórhallsson jvaraforseti
ASÍ og Gunnar Ragnars for-
stjóri Slippstöðvarinnar á Ak-
ureyri. -BG