Morgunblaðið - 14.01.2006, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 14.01.2006, Blaðsíða 34
34 LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. Ingibjörg Sólrún Gísladóttirfór mikinn hér á síðumMorgunblaðsins á miðviku-daginn í grein sinni „Of hátt matvælaverð“. Vitnar hún þar til vinstri og hægri í skýrslu Hagfræðistofnunar Háskóla Ís- lands frá 2004 og nýútkomna skýrslu norrænu samkeppniseft- irlitanna um matvörumarkaðinn á Norðurlöndum í samanburði við Evrópusambandið. Af mál- flutningi Ingibjargar Sólrúnar að ráða mætti ætla að hún hefði látið plata sig. Ákveðnar stað- reyndir blasa við í þessum gögn- um en greiningunni er ábóta- vant. Viðfangsefnið er margþætt og gefur sig illa að alhæfingum og skyndilausnum. Ingibjörg Sólrún og Samfylkingin þykjast hafa öll svörin. En við hvaða spurningum? Ég hef fagnað ákvörðun for- sætisráðherra að setja fjölskip- aða nefnd í það að greina fyr- irliggjandi upplýsingar um matvælaverð á Íslandi í sam- anburði við nágrannaþjóðir okk- ar og gera tillögur um hvernig það megi nálgast því sem þar gerist. Ég tel slíka umfjöllun mjög af hinu góða og til þess fallna að leiða landsmenn í sann- leika málsins. Þeir sem hafa kynnt sér ofangreindar skýrslur vita að þær ályktanir sem ýmis öfl hafa kosið að draga í kjölfar þeirra og Ingibjörg Sólrún kýs nú að gera að sínum og Samfylking- arinnar standast illa nánari skoð- un. Þykir mér leitt að opinbert stjórnvald eins og Samkeppniseft- irlitið hafi gert að meginskýringu hás matvælaverðs hérlendis stað- hæfingu sem að engu er krufin í annars um margt vandaðri nor- rænni skýrslu. Ber það ekki mik- inn vott um fagmennsku þar á bæ. Svo óskýr eru skilaboðin að því miður hendir það ráðherra samkeppnismála að fara með rangt mál þegar hún fullyrðir í nýlegri ræðu að jafnvel standi til að afnema framleiðslutengdan stuðning. Er brýnt að lyfta um- ræðunni á hærra plan og fræða frekar en að hræða íslenska neyt- endur. Formaður Samfylkingarinnar fullyrðir að stærsti einstaki or- sakavaldur á verði matvæla til landsmanna sé það fyrirkomulag sem er á opinberum stuðningi við landbúnað á Íslandi. Telur hún mikilvægast að ríkisstjórnin grípi til þess úrræðis „að taka upp beingreiðslur í stað tollverndar og framleiðslutengdra styrkja og losa bændur undan þeirri miklu miðstýringu sem nú einkennir skipulag og framleiðslu í l aði.“ Fullyrðir formaðurin framt að slíkar greiðslur m auka hagræðingu og samk landbúnaði og að nú þegar að vinna að breytingum á kerfi landbúnaðarins. Blekkingarleikur Verð matvæla á Íslandi sannarlega hátt og þær sa anburðartölur sem liggja f þeim efnum eru óumdeilda matvælaverð á Íslandi ver ekki lækkað með ódýrum flutningi. Ingibjörg Sólrún og svo margir aðrir, verðu setja sig betur inn í málið verður á við viðfangsefnið heildstæðum og málefnale hætti. Það liggur fyrir að flestar búvörur eru fluttar Ódýr málflutningur Ingibj ’Sér hún í þessari ræðu tækifæri til a færa upp á yfirbor raunverulegt stefn markmið Samfylki arinnar, þ.e.a.s. að Ísland inn í Evróp bandið?‘ Eftir Guðna Ágústsson HJÓNABAND Á SORPHAUGI? Ummæli Karls Sigurbjörnsson-ar, biskups Íslands, í fréttumNFS 2. janúar síðastliðinn hafa kallað fram viðbrögð margra undanfarna daga. „Ég held að hjóna- bandið eigi það inni hjá okkur að við allavega köstum því ekki á sorphaug- inn án þess að hugsa okkar gang,“ sagði biskup. Tilefni ummælanna var tillögur á Alþingi um að trúfélögum verði heimilað að gefa samkynhneigða saman í hjónaband. Með orðum sín- um gaf biskup í skyn að með því að leyfa samkynhneigðum að eignast hlutdeild í þessari stofnun, hjóna- bandinu, væri það ónýtt. Farið á haugana. En hver er þá staða hjónabands- ins, þessarar grundvallarstofnunar í flestum samfélögum manna, nú um stundir? Stendur hjónabandið sterk- um fótum í íslenzku samfélagi? Skoð- un á nokkrum tölum frá Hagstofu Ís- lands leiðir annað í ljós. Hjónavígslum fer hlutfallslega stórum fækkandi. Árið 2004 voru þær 1.472, fimm á hvert þúsund íbúa. Á sjötta áratugnum voru hjóna- vígslur átta á þúsund íbúa á ári. Kirkjubrúðkaup voru álíka mörg árið 2004 og árið 1950, þótt íbúafjöldi Ís- lands hafi hartnær tvöfaldazt á rúm- lega hálfri öld. Á sama tíma hefur hlutfall hjónaskilnaða margfaldazt. Lögskilnaðir á hverja 1.000 íbúa voru 0,8 í kringum 1950, nú eru þeir 4,3. Árin 2000–2004 voru hjónavígslur að meðaltali 1.583 á ári en lögskiln- aðir 543. Skilnaðir voru m.ö.o. um 34% af hjónavígslunum; fyrir hver þrenn hjón sem gengu í hjónaband fengu ein skilnað. Hjónabandið er að sjálfsögðu ennþá kjölfestan í lífi margra; stað- festing kærleikssambands tveggja einstaklinga, sem styðja og styrkja hvor annan í blíðu og stríðu, umgjörð kynlífs og barneigna, rammi um fjöl- skyldulífið. En staða þess hefur veikzt. Fjöldi skilnaða gefur til kynna að ýmis gangi fólk oft í hjóna- band að illa yfirlögðu ráði eða reyni ekki nægilega að viðhalda því, þegar erfiðleikar knýja dyra. Við bætist að ýmis löggjöf hins opinbera er hjóna- bandinu andstæð, eins og Guðmund- ur Hallvarðsson alþingismaður hefur ítrekað bent á. Það getur beinlínis borgað sig fjárhagslega fyrir fólk að ganga ekki í hjónaband eða jafnvel að skilja á pappírunum. Versnandi staða hjónabandsins bitnar verst á þeim, sem sízt skyldi, þ.e. börnunum. Þau upplifa oft mikið tilfinningalegt umrót í kjölfar skiln- aða, sem verður svo undirrót margs konar vandamála og enn frekari upp- lausnar í samfélaginu. Auðvitað spjara mörg skilnaðarbörn sig vel, en það hlýtur alltaf að vera börnum fyr- ir beztu að alast upp í kærleiksríkri fjölskyldu, þar sem foreldrarnir hafa undirgengizt þá skuldbindingu, bæði fjárhagslega og tilfinningalega, sem í hjónavígslunni felst. Það stendur engum nær en þjóð- kirkjunni að berjast fyrir góðri stöðu hjónabandsins. Á vegum kirkjunnar hefur ýmislegt vissulega verið gert, t.d. með hjónanámskeiðum einstakra safnaða. En það má gera meira. Það vantar t.d. fræðslu fyrir ungt fólk, sem hyggur á hjúskap og barneignir, um það hvernig stuðla megi að góðu hjónabandi og rasa ekki um ráð fram. Þjóðkirkjan ætti að ráðast í herferð til stuðnings hjónabandinu. Með því að tregðast við að veita samkynhneigðum kirkjulega vígslu er kirkjan hins vegar að berjast á röngum vígstöðvum. Hjónabandið veikist ekki og fer ekki á haugana þótt samkynhneigðum sé veitt hlut- deild í því. Það eru allt aðrir ógnvald- ar, sem hafa gert stöðu hjónabands- ins jafnerfiða og hún er nú. Þvert á móti myndi þeim fjölga, sem nytu góðs af þeirri siðferðilegu kjölfestu, sem felst í því að staðfesta heit sitt um ævarandi kærleika og trúfesti frammi fyrir Guði. Börnun- um, sem byggju við stöðugleika hjónabandsins, myndi fjölga. Og töl- fræðin, sem vitnað var til að ofan, myndi jafnvel lagast ofurlítið. Þótt lítil reynsla sé auðvitað komin á stað- festa samvist samkynhneigðra, er það staðreynd að árin 2000–2004 voru skilnaðir samkynhneigðra para heldur lægra hlutfall (29%) af nýjum staðfestum samvistum en hlutfall lögskilnaða gagnkynhneigðra af hjónavígslum. Hjónabandið myndi færast skref- inu fjær haugunum. Ætti kirkjan ekki a.m.k. að leyfa því að njóta vaf- ans? HJÁLP Í NEYÐ Þegar neyðin er stærst er hjálpinnæst, segir máltækið. Sú er þó ekki alltaf raunin. Í Morgunblaðinu í gær er sagt því að fjöldi ökumanna sinnti ekki hjálparbeiðni þegar bíl- stjóri leitaði aðstoðar eftir að bifreið hans hvolfdi á Öxnadalsheiði. Slysið átti sér stað á svæði þar sem ekki er hægt að ná sambandi í gsm-síma og var bílstjórinn því upp á aðra kom- inn. Ökumaður fyrstu bifreiðarinn- ar, sem átti leið hjá, stöðvaði, en það gerðu aðrir ekki, heldur óku hjá. Höskuldur Eiríksson, varðstjóri hjá lögreglunni á Blönduósi, segir að þetta hendi alltaf annað slagið. „Ég held að þetta sé orðið þannig að fólk veigrar sér við að stoppa og treystir sér hreinlega ekki í það,“ segir hann. „Það er hrætt við að ráða ekki við aðstæðurnar sem mæta því.“ Ef til vill er varasamt að fullyrða út frá einu dæmi, en þó er hér ekki um einstakt tilvik að ræða. Í þjóð- félagi nútímans virðist færast í vöxt að hver láti sér nægja að hugsa um sig og vilji sem minnst afskipti hafa af öðrum. Allir þekkja söguna um miskunn- sama Samverjann. Boðskapur henn- ar er einfaldur og það er umhugs- unarefni ef hann á ekki lengur við hér á landi. Atvik á borð við það, sem átti sér stað á Öxnadalsheiði á mánudag, heyra sem betur fer enn til undantekninga. Vonandi verður það svo áfram. Heildarábati fyrirhugaðraVaðlaheiðarganga er tæp-lega 1,2 milljarðar króna,þe. ábati vegna fram- kvæmdarinnar á núvirði er tæpum 1,2 milljörðum króna hærri en kostnað- urinn við hana. Arðsemi framkvæmd- arinnar er 7,9%, þjóðfélagið fær 7,9% arð af því fé sem kostar að gera göng- in. Þetta kemur fram í skýrslu sem Rannsóknastofnun Háskólans á Ak- ureyri gerði, en höfundur hennar, Jón Þorvaldur Heiðarsson, kynnti hana á fundi með Sturlu Böðvarssyni sam- gönguráðherra á fundi á Akureyri í gær. Þá var einnig farið í skoðunar- ferð að Skógum í Fnjóskadal, þar sem áætlað er að gangamunninn verði þeim megin, en vænlegast þykir að göngin liggi frá Hallandsnesi Eyja- fjarðarmegin og um 7 kílómetra leið undir Vaðlaheiði að Skógum. Rannsóknastofnun hefur á undan- förnum mánuðum gert arðsemismat á fjölda jarðaganga, m.a. tveimur slík- um kostum á Vestfjörðum og fimmtán jarðgangakostum sem voru metnir á Austurlandi. Fram kemur í skýrslunni að hvað arðsemi jarðganga á Vestfjörðum og Austurlandi varðar þyki hagkvæmast að leggja slík göng milli Dýrafjarðar og Arnarfjarðar, 5,3% arðsemi, en þar á eftir koma stutt göng undir Beru- fjörð með 4,2% arðsemi, um 4% arð- semi yrði á göngum milli Fáskrúðs- fjarðar og Stöðvarfjarðar, göng milli Breiðdals og Berufjarðar með þverun myndu skila 3,5% arðsemi og löng göng undir Berufjörð 2,7% arðsemi. Greið leið ehf., hlutafélag sem stofnað var í byrjun árs 2003 í þeim tilgangi að vinna að undirbúning fyrir stofnun félags um framkvæmdir við Vaðlaheiðargöng hafði áhuga á að sjá hvar þau göng stæðu í samanburði við áðurnefnda jarðagangakosti. Rann- sóknastofnun hefur nú unnið skýrslu þar sem þjóðhagsleg arðsemi Vaðla- heiðarganga var metin á svipaðan hátt og gert varð varðandi göngin á Austurlandi Forsendur matsins voru m.a. þær að engin gjaldtaka yrði í göngunum, þau yrðu opnuð í byrjun árs 2011 að loknum þriggja ára framkvæmdatíma og stofnkostnaður yrði rúmlega fjórir milljarðar króna án virðisaukaskatta og að við bættist ríflega 400 milljóna króna fjármagnskostnaður. Gert er ráð fyrir um 9 milljóna króna rekstrarkostnaði á ári, en sparnaður við rekstrarkostnað Víkur- skarðs yrði um 3 milljónir á ári. Veg- urinn frá Akureyri og austur um styttist um tæpa 16 kílómetra með til- komu Vaðlaheiðarganga. Sparnaður vegna færri umferðaróhappa Fram kemur í skýrslunni að um- ferðaróhöppum ætti að fækka um 3,4 á ári, en þannig myndi sparnaður samfélagsins á fyrsta ári ganganna vegna færri umferðaróhappa nema tæpum 10 milljónum króna. Einnig kemur fram í skýrslunni að samfélagið myndi græða um 1,2 millj- arða króna á því að Vaðlaheiðargöng yrðu gerð, en góðar líkur séu á að ábatinn yrði enn meiri. Nefnt er að ef verkefnið yrði unnið í því sem kallað er kreppa í samfélaginu yrði ábatinn rúmlega 1,5 milljarðar og arðsemin 8,6% og einnig að hann yrði enn meiri ef stóriðja risi við Húsavík eða Eyja- fjörð í kjölfar meiri umferðar. Nefnt er í skýrslunni að ábatinn muni minnka verði veggjald innheimt í göngin, en verði gjaldið hóflegt hafi það lítil áhrif á heildarniðurstöðuna. Vegagerðin er nú rekstrarlíkan Greiðra Vaðlaheiðarganga að s Jónssonar framkvæm sagði hann að verið væ rannsóknum sem ger astliðnu sumri, en þá nokkrar rannsóknarh upplýsinga um jarðlö vatnsleka í berglögum í ljós að gera þarf rafs svæðinu, en þær verð birtir meir, sennilega ur Verkfræðistofa No Vegagerðina að því að tengingar og gera kos fyrir þær. „Um leið liggur fyrir munum v lega niður hvar vegten sagði Pétur Þór. Han að á vegum Skipulags verið að skoða umhve fyrirhugaðra framkvæ in. „Við viljum helst by næsta árs, 2007,“ sagð var bjartsýnn á að það Umferð um Víkursk ist um 5% á ári að jafn ár, en sólarhringsumf var 1023 bílar árið 200 Á aðalfundi Greiðra ári kom fram að fjá hafa lýst yfir áhuga á gerð ganganna. Samgönguráðherra kynnt skýrsla um Vaðlaheiðar Ábati af framkvæmdi um 1,2 milljarðar kró Við Skóga í Fnjóskadal en þar skammt frá er áætlað að austar Vaðlaheiðarganga verði. Frá vinstri: Sturla Böðvarsson, samg Bjarni Jónasson, varamaður í stjórn Greiðrar leiðar, Halldór J stjórnarmaður í Greiðri leið, Hreinn Haraldsson, framkvæmda Vegagerðinni, Pétur Þór Jónasson, framkvæmdastjóri Eyþing sveitarfélaga í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum, og Jóhann Guðm stofustjóri í samgönguráðuneytinu. Eftir Margréti Þóru Þórsdóttur maggath@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.