Morgunblaðið - 24.10.2006, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 24.10.2006, Blaðsíða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 24. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR STARFSMENN Daníelsslipps við Bakkastíg í Reykjavík flögguðu í hálfa stöng í gærmorgun þegar 70 ára sögu fyrirtækisins lauk. Forstjóri Daníelsslipps, Gunnar Richter er bæði sár og ósáttur við endalok fyr- irtækisins og segist ekki skilja hvers vegna slippurinn sé látinn víkja á meðan sambærilegt fyrirtæki, Stál- smiðjan haldi áfram. Daníelsslippur var stofnaður í jan- úarmánuði árið 1936 af langafa Gunn- ars, Daníel Þorsteinssyni ásamt fleir- um. Stærstu tímamótin í sögu fyrirtækisins voru árið 1986 þegar ný dráttarbraut var tekin í notkun, sú hin sama og lögð var af í gær. Fjórir starfsmenn unnu í slippnum undir lokin en þegar mest var munu starfs- menn hafa verið allt að 50 talsins að sögn Gunnars. Atvinnustarfsemin var hvað mest á árunum 1940–1970 og segja má að hún spanni fimm kyn- slóðir því sonur Gunnars vann tvö sumur í slippnum. Oft og tíðum voru um 15–20 skip á landi á vegum slippsins og lætur nærri að hann hafi þá afgreitt um 60– 70 skip á ári að meðaltali. Síðasta skipið sem rann út af dráttarbraut- inni var Fanney HU, áður Jón Jóns- son SH, smíðaður á Akureyri. Daníelsslippur var sambærilegur að stærð og ýmsir slippar á höf- uðborgarsvæðinu og tók að sér allar almennar viðgerðir sem félaginu var unnt að framkvæma. Grátleg að sjá síðasta skipið Gunnar segir það hafa verið grát- legt að sjá síðasta skipið fara út úr slippnum og horfa upp á fyrirtækið leggja niður starfsemina eftir allan þennan tíma. Sú athöfn að flagga í hálfa stöng tjáir það viðhorf Gunnars að rangar áherslur séu uppi í atvinnu- málum í borginni. „Þessir 50 bátar sem koma ekki í slipp hér í höfninni árlega þýðir að Reykjavíkurborg verður af tilteknum viðskiptum,“ seg- ir hann. „Þessu fyrirtæki er fórnað fyrir skipulag svæðisins án þess að nokkuð komi í staðinn. Ég er hálfhvumsa í dag. Það er grátlegt að horfa á síð- asta skipið fara út því það er nóg að gera í þessari atvinnustarfsemi. Það versta við þetta allt saman að þetta fyrirtæki skuli þurfa að fara á undan sambærilegu fyrirtæki, Stálsmiðj- unni, hér við hliðina. Þetta end- urspeglar þröngsýni hjá Faxaflóa- höfnum með því að það er ekki sama hver á í hlut. Daníelsslippur virðist þurfa að fara þótt Stálsmiðjan megi vera. Ég er ósáttur við að einn slippur þurfi að víkja fremur öðrum og óska svara við því.“ Gunnar hyggur á aðra starfsemi án þess að hann upplýsi hvað það er en mun taka starfsfólkið með sér í ný verkefni ef af verður. Ekki er ljóst hvort vélar og tækjabúnaður fyr- irtækisins verður nýtt annars staðar en Gunnar segist á hinn bóginn treysta sér til að setja dráttarbraut- ina niður hvar sem er. „Ég hef verið hér í 27 ár og það virðist allt á sömu bókina lært, það veit enginn hvort hann er að koma eða fara. Það virðist vera meiri þörf fyrir tónlistarhús en slipp en þetta er frekar súr dagur.“ Guðný Gerður Gunnarsdóttir borgarminjavörður segir að á svæð- inu í heild hafi verið merkileg at- vinnustarfsemi sem tengist útgerð og sjósókn í Reykjavík. Árbæjarsafn lagði mat á gildi húsanna, í húsakönn- un árið 2003, þar á meðal eignir Daní- elsslipps og voru húseignirnar sjálfar ekki taldar hafa mikið varðveislugildi. Öðru máli gegndi um steinbæ rétt of- an við slippinn auk timburhúss við Mýrargötu sem áður var íbúðarhús Daníels Þorsteinssonar. „Frá því að þessi úttekt var gerð, hefur Sjóminjasafn Reykjavíkur ver- ið stofnað við vesturhöfnina. Þá hafa komið hugmyndir og ábendingar til þeirra sem vinna að skipulagi á veg- um borgarinnar, um að gaman gæti verið að varðveita hluta slippsins sem gæti tengst Sjóminjasafninu. Og það er í sjálfu sér ágætis hugmynd. Það hefur þó ekki verið tekið undir það í skipulagsvinnunni. Þarna er auðvitað merk atvinnu- saga sem tengist líka Alliancehúsinu, vestar á Mýrargötunni. Nú hefur Sjó- minjasafninu verið fundinn staður við vesturhöfnina og að mínu mati gæti það gefið okkur tækifæri til að skoða hvort ekki væri rétt að varðveita hluta slippsvæðisins.“ Sögu Daníels- slipps lokið Morgunblaðið/Sverrir Síðastur Fanney HU kemur úr Daníelsslipp. Hún hét áður Jón Jónsson SH sem smíðaður var á Akureyri á sínum tíma. Þegar mest var að gera fóru 60–70 skip frá slippnum á árunum 1940–1970 og 50 manns unnu þar. Morgunblaðið/Sverrir Grátlegt Flaggað í hálfa stöng í Daníelsslipp enda grátlegt að sjá endalok slippsins, segir forstjórinn. Í HNOTSKURN »Daníelsslippur var stofn-aður árið 1936 af Daníel Þorsteinssyni, langafa nú- verandi forstjóra Gunnars Richters. »Upp hafa komið hug-myndir um að varðveita hluta slippsins sem gæti tengst Sjóminjasafni Reykjavíkur og athafnasvæði safnsins. »Húseignir Daníelsslippseru ekki taldar hafa haft varðveislugildi þótt öðru máli gegni um íbúðarhús Daníels sjálfs og steinbæ fyrir ofan slippinn. Grátlegt að horfa á síðasta skipið fara úr slippnum, segir forstjórinn Áratuga þjónusta Gunnar Richter, forstjóri Daníelsslipps, við dráttar- spilið sem nú snýst ekki lengur. Á NÆSTU dögum eða vikum geta bíleigendur farið að borga með greiðslukorti fyrir skammtímabíla- stæði í miðborg Reykjavíkur og inn- an nokkurra ára munu stöðumælar heyra sögunni til – miðavélar taka við hlutverki þeirra. Framkvæmdaráð Reykjavíkur- borgar samþykkti á fundi sínum í gærdag að fela Bílastæðasjóði Reykjavíkur að útfæra nýjar leiðir til að auðvelda viðskiptavinum sín- um að greiða fyrir bílastæði. Í byrj- un næsta árs verða tekin í notkun tímabundin kort og skafmiðar. „Þeir virka þannig að ef bíleigandi er með skafmiða sem gildir í klukkutíma, skefur hann af honum komutíma, þ.e. dagsetningu, klukkustund og mínútu og er með hann til sýnis í bílrúðunni,“ segir Stefán Haraldsson, framkvæmda- stjóri Bílastæðasjóðs. „Kortin virka hins vegar þannig að þau gilda frá ákveðnum tíma og að lágmarki í viku.“ Fyrirmyndin er sótt til Kaup- mannahafnar þar sem slíkir val- möguleikar hafa gefist vel. Hægt verður að kaupa kortin á netinu og þau verða svo annað hvort send til viðkomandi eða sótt til Bílastæða- sjóðs. Hægt verður að velja um viku- og mánaðarkort. Gert er ráð fyrir að gildistími skafmiðanna verði frá einni klukkustund og upp í heilan dag. „Einnig erum við að fara að setja upp mæla sem eru með búnaði fyrir kreditkort og við stefnum að því að skipta út gömlu miðamælunum með þeim nýju, en það getur tekið ein- hvern tíma,“ segir Stefán. Einnig er í vinnslu áætlun um að skipta út öll- um stöðumælum fyrir miðamæla. Stefán telur breytinguna til batn- aðar fyrir viðskiptavini. Til að mynda þarf ekki að stimpla inn PIN-númer greiðslukorts í mælana. Hægt að greiða fyrir bíla- stæði með greiðslukorti Morgunblaðið/Ásdís Skipt út Stöðumælar í miðborginni munu hverfa alveg á næstu árum. FÁMENNUR fundur var haldinn í Valhöll síðdegis í gær um nafnlaust bréf sem forystusveit Sjálfstæðis- flokks barst fyrir liðna helgi. Í bréf- inu var fullyrt að stuðningsmenn Guðlaugs Þórs Þórðarsonar hefðu einir aðgang að upplýsingum sem safnað var í síðustu sveitarstjórnar- kosningum. Á fundinum var farið yfir málið með fulltrúum nokkurra frambjóð- enda en áður hafði Andri Óttarsson, framkvæmdastjóri flokksins, sent frá sér tilkynningu. „[Á mánudag] barst flokknum bréf frá stuðnings- mönnum Guðlaugs Þórs þar sem óskað var eftir því að skrifstofa Val- hallar tæki út úthringikerfi og þær upplýsingar sem stuðningsmennirn- ir væru að vinna eftir til að ganga úr skugga um að einungis væri unnið eftir þeim upplýsingum sem flokk- urinn hefði sjálfur afhent frambjóð- endum,“ segir Andri en einnig að ekkert hafi bent til þess að misnotk- un á upplýsingum hefði átt sér stað. Gögn ekki misnotuð LÖGREGLAN á Húsavík var kölluð nokkrum sinnum á vettvang í gær vegna þess að bílar höfðu endað ut- an vegar vegna hálku. Að sögn lög- reglunnar er hálka á svæðinu orðin mikil. Slys á fólki voru minniháttar, mar og rispur, og var enginn flutt- ur á sjúkrahús. Bílar út af vegna hálku hjá Húsavík KJARTAN Ólafs- son, fyrrverandi alþingismaður, fór seinnipart dags í gær í Þjóð- skjalasafnið til að kynna sér þau gögn um hler- anir sem fallist hefur verið á að veita honum að- gang að. Hann hyggst afhenda öll- um fjölmiðlum sem eftir því leita eintak af öllum þeim skjölum sem hann fékk aðgang að. Kjartan hafnaði því að hafa fréttamenn og myndatökumenn með sér í Þjóðskjalasafnið í gær, og vildi ekki tjá sig um það sem fram kemur í gögnunum fyrr en hann hefði kynnt sér það vel. Hann sagð- ist hins vegar ætla að veita fjöl- miðlum viðtöl um innihald skjal- anna í dag, þriðjudag, og afhenda þeim um leið eintak af skjölunum. Afhendir fjöl- miðlum gögnin Kjartan Ólafsson ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.