Lesbók Morgunblaðsins - 20.10.2007, Side 1

Lesbók Morgunblaðsins - 20.10.2007, Side 1
Laugardagur 20. 10. 2007 81. árg. ráðhús reykjavíkur 25. okt . – 11. nóv. 2007 – sigurþór jakobsson málverk lesbók TÓNLISTARHÚSIÐ HVAÐA ÁHRIF MUN TÓNLISTAR- OG RÁÐSTEFNUHÚSIÐ HAFA Á BORGARMYNDINA OG BORGARLÍFIÐ? >> 3 Er ævisaga Maós eftir Jung Chang farsakennd skrípamyndaskrif? » 8 Bloc Party Stærsta nafnið í stærsta tónlistarpartíi ársins spilar í Hafnarhúsinu í kvöld. »7 Eftir Þröst Helgason vitinn.blog.is Blótgælur eftir Kristínu Svövu Tóm-asdóttur er besta frumraun ljóð-skálds sem ég hef séð lengi. Kristín Svava er 22 ára og hef- ur meðal annars lesið upp ljóð sín á ljóða- kvöldum Nýhils við góðar undirtektir. En þessi bók á eftir að afla Kristínu Svövu við- urkenningar sem fá fyrstubókarskáld hljóta. Kristín Svava slær harðan tón. Hún er köld, írónísk, æðrulaus en líka sjóðandi heit og fyndin. Þetta eru ekki lög unga fólksins en það er mikið rokk og ról í textunum. Og afstaðan er skýr þótt tíminn einkenn- ist af afstöðuleysi: „Skítt með það, förum heim til mín.“ Í heiminum sem þessi ljóð lýsa ríkir ást- leysi og áttleysi, „allt er einhvern veginn fyr- ir bí“, kæruleysi, miskunnarleysi og sam- bandsleysi, „annarleg eru annarra mörk/og íshafið sjálft á milli“. En Kristín Svava stendur styrkum fótum í sinni hefð. Hún leikur sér að því að snúa upp á Unglinginn í skóginum, „eia pillur! eia stjörnur!/stjörnurnar í bandaríska fán- anum“. Og femínísk kveðja hennar til Sig- urðar Pálssonar (sem verður einhvern veg- inn óforvarandis að táknmynd karlveldisins í íslenskum bókmenntum) er skuggalega skemmtileg: Klof vega menn. Þetta er rödd sem þið skuluð hlusta eftir. MENNINGARVITINN Klof vega menn

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.