Morgunblaðið - 30.03.2007, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 30.03.2007, Blaðsíða 12
12 FÖSTUDAGUR 30. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ bílar F rá árinu 1923 hefur BMW framleitt mótor- hjól sem hafa í heiðri gæði og íhaldssöm gildi með stóra ferðafáka í fararbroddi fylkingarinnar. Nú lít- ur aftur á móti út fyrir að blásið hafi verið til stórsóknar hjá BMW því fjölbreytnin hefur aukist all- verulega. Fyrir um 25 árum framleiddi BMW einungis tveggja strokka loftkældar boxervélar og þannig hafði það verið frá því fyrsta box- ervélin leit dagsins ljós árið 1923. 60 árum síðar þótti BMW sem þörf væri á nýjungum og var þá bætt við framleiðslulínuna 4 strokka vatnskældri línuvél og skömmu síð- ar 3 strokka vél. Flestum þótti sem BMW hefði fórnað gömlu gildunum en sem oftar hafði BMW rétt fyrir sér og mótorhjólin með línuvélun- um tóku fljótlega fram úr gömlu tveggja strokka boxervélunum í sölu. Úrvalið aldrei eins gott Árið 1993 var enn og aftur ákveðið að hleypa nýju lífi í fram- leiðslulínuna með því að bjóða eins strokks hjól sem hafði verið hann- að með hjálp Rotax-vélarframleið- andans. Seint á síðasta ári bættist svo við nýjasta línan, F800, en þau hjól er búin vatnskældri 800 cc samhliða tveggja strokka vél. Hef- ur því framleiðsla BMW farið úr því að bjóða eingöngu loftkældar, tveggja strokka boxervélar í það að bjóða 650 cc eins strokks vél, tveggja strokka boxer (sem í dag er reyndar olíukældur), fjögurra strokka vatnskældar línuvélar og tveggja strokka vatnskælda vél í F800-línunni. Úrvalið hefur því aldrei verið eins gott. Gaman í stað þæginda Fram til þessa hefur BMW þó haldið fremur fast í hefðbundnu gildin sín, gæði, þægindi, áreiðan- leika og endingu, en nú virðist sem þægindin séu að hverfa og gamanið komi í staðinn því BMW hefur nú boðið þrjú ný mótorhjól í eins strokks deildinni sem öll hafa feng- ið yfirheitið X; Xcountry, Xmoto og Xchallenge. Öll eru þessi mótorhjól með 53 hestafla 652 cc vélinni sem BMW hefur framleitt lítið breytta frá 1993 og kom fyrst í F650GS. Mótorhjólalína þessi er mun meira ögrandi á að líta en önnur mótorhjól BMW. Léttleiki, lipurð og dirfska virðist vera þeir þætti sem framleiðendur BMW reyna að koma á framfæri með þessum mót- orhjólum enda eru þau ætluð til styttri túra fremur en lengri, og sýna auglýsingarnar fyrir mótor- hjólin hvernig þau eru aðallega notuð sem leiktæki. Mismunandi flokkar Nýja línan hefur vakið mikla at- hygli enda mjög óhefðbundin og það ekki bara á mælikvarða BMW. Verðlagningin er vel samkeppn- isfær við japönsku mótorhjólin en hingað til hafa BMW-mótorhjól verið með því dýrasta, ef ekki ein- faldlega það dýrasta sem fæst. Nú gefst nýjum viðskiptavinum hins vegar tækifæri til að eignast BMW-mótorhjól á svipuðu verði og sambærileg japönsk mótorhjól kosta. Nýju mótorhjólin þrjú höfða öll til mismunandi hópa í nýjum flokki viðskiptavina BMW. Xcountry er bæjarhjól sem hentar líka á veg- arslóða – ætlað fyrir þann sem vill geta farið hvert sem er, hvenær sem er, en þó bara til að leika sér. Xmoto er hreinræktað götuhjól og er skemmtilegast í hlykkjóttum beygjum og til leiks. Xchallenge er svo það sem kemst næst því að vera krossari hjá BMW. Nú er bara að vona að það stytt- ist í að BMW-mótorhjól fáist hjá umboðsaðila á Íslandi en hingað til hefur fólk þurft að flytja mótor- hjólin inn frá meginlandinu á eigin vegum.Blendingur Xcountry er blendingur sem hentar vel til bæjarnotkunar en ræður líka við möl og léttari ófærur. Götuhjól BMW Xmoto er hreinræktaður beygjubani, 53 hestöfl og aðeins 160 kíló með öllum vökvum. Drullumall Xchallenge er svo það mótorhjól sem kemst næst því að vera krossari eða drullumallari eins og þeir eru gjarnan kallaðir. BMW mótorhjól í mikilli sókn ÞEGAR flestir hugsa um mótorhjól og Bandaríkin þá kemur Harley Davidson fyrst í hugann enda sennilega frægasta mót- orhjólategund í heimi. Og við Harley Davidson tengir maður yfirleitt ekkert annað en þung og stór mótorhjól sem ætluð eru til rólegheitaaksturs á góðviðrisdögum. Það kemur því á óvart að sjá bandarískt sporthjól í ætt við Ducati-hjólin frægu en það er engu að síður raunin hjá Roehr-fyrirtækinu en þar hefur verið hannað sporthjól sem hefur fengið heitið V-roehr, með vél úr Harley Davidson V-rod, og er útlit hjólsins náskylt núverandi Ducati-ættarsvipnum. Um er að ræða 1130 cc vatnskælda, tveggja strokka V-vél frá Harley Davidson V-rod mótorhjólinu en vélin sú á að fylgja Harley Davidson inn í 21. öldina. Er hún mun tækni- legri en gömlu loftkældu vélarnar frá fyrirtækinu. Vélin skil- ar líka meira afli, 120 hestöflum úr aðeins 1130 cc, er léttari og sparneytnari en Harley-eigendur eiga að venjast. Sporthjólið frá Roehr er nokkuð nýstárlegt að mörgu leyti. Vatnskassarnir eru t.d. staðsettir til hliðanna á mótorhjólinu því þá er hægt að færa vélina framar í stellið til að ná betra jafnvægi í akstri en það er einmitt aðalsmerki hjólsins; frá- bært jafnvægi og aksturseiginleikar. Fjöðrunin er frá Ohlins, bremsur frá Brembo, felgurnar frá Marchesini og öll yfirbygging mótorhjólsins er úr koltrefja- efni. Mótorhjólið er því frekar létt og lipurt en verður líka fyrir vikið mjög dýrt. Mun það kosta um 40 þúsund dollara í Bandaríkjunum og má því reikna með að mótorhjólið slagi hátt í 5 milljónir króna komi það til Íslands. Vélin sem var hönnuð af Harley Davidson með tæknilegri ráðgjöf og aðstoð frá Porsche (en Porsche þurfti líka að snúa baki við loftkældum vélum) býður upp á mikla möguleika í afli og er hægt að fá hjólið með allt að 180 hestöflum og það í að- eins 193 kílóa mótorhjóli. Það er því óhætt að segja að þetta hlýtur að vera eitt öflugasta mótorhjólið sem komið hefur frá Bandaríkjunum og er algjörlega á skjön við það sem flestir eiga að venjast úr þessari átt. Bandarískt sporthjól? Öflugt Með allt að 180 hestöflum og aðeins 193 kílóa þyngd þá má reikna með að þetta sé eitt öflugasta mótorhjól sem komið hefur frá Bandaríkjunum. Sportlegt V-Roehr sportmótorhjólið er rennilegt á að líta og sækir mikið útlitslega til Ducati 749 mótorhjólsins. Yfirbygg- ingin er úr koltrefjaefni og er hjólið sett saman úr hágæða- hlutum enda kostar það skildinginn. Takið eftir vatnskass- anum á hlið mótorhjólsins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.